Erlent
Minntust látins forseta Þingmenn minntust Lech Kaczinsky fyrrum forseta Póllands við hátíðlega athöfn í dag. Athöfnin fór fram áður en nýi forsetinn Bronislaw Komorowski var settur inn í embættið. Erlent 6.8.2010 23:30
Fjórtan milljónir orðið fyrir barðinu á flóðunum í Pakistan Að minnsta kosti fjórtán milljónir manna hafa orðið fyrir barðinu á flóðunum í Pakistan. Mikil rigning er í landinu og óttast er að ástandið versni enn frekar. Samkvæmt frétt BBC hafa um 1.600 manns látist í flóðunum. Erlent 6.8.2010 22:14
Straw dregur sig í hlé Jack Straw, þingmaður breska Verkamannaflokksins, ætlar að draga sig í hlé. Hann tilkynnti breskum fjölmiðlum þetta í dag. Jack Straw hefur átt farsælan stjórnmálaferil. Hann var meðal annars utanríkisráðherra í stjórn Tonys Blair og dómsmálaráðherra í stjórn Gordons Brown. Jack Straw hefur verið þingmaður fyrir Verkamannaflokkinn allt frá árinu 1979, eða í 31 ár. Erlent 6.8.2010 16:54
Jón Gnarr vekur athygli Breta Það uppátæki Jóns Gnarr að mæta sem klæðskiptingur við upphaf Hinsegin daga í gær hefur vakið athygli út fyrir landsteinana. Í það minnsta greinir fréttavefur BBC frá því í dag að hann hafi verið viðstaddur skemmtunina í gærkvöld. „Borgarstjórinn gat ekki mætt sjálfur,“ er haft eftir Jóni Gnarr á vefnum. Erlent 6.8.2010 16:43
María á von á tvíburum María, krónprinsessa Danmerkur, er ófrísk að tvíburum, samkvæmt upplýsingum sem Danmarks Radio hefur frá konungshirðinni. Gert er ráð fyrir að hún muni ala börnin í janúar næstkomandi. Danmarks Radio segir að undanfarna daga hafi Danir mikið velt vöngum um ástand Maríu en það var danska slúðurblaðið Se og Hør sem upplýsti um það á miðvikudag að hún væri ófrísk. Konungshirðin hefur hins vegar neitað að tjá sig þangað til í dag. Erlent 6.8.2010 14:55
Moskvubúar hrynja niður Dánartíðni íbúa Moskvu hefur hækkað um þriðjung undanfarnar vikur. Það er rakið til hitabylgjunnar sem er hin versta sem komið hefur í borginni í meira en öld. Erlent 6.8.2010 13:06
Hann er lifandi -borgaðu Lággjaldaflugfélögin svokölluðu hala inn milljarða króna með allskonar aukagjöldum. Erlent 6.8.2010 12:34
Fyrrverandi ráðherra Saddams vill Bandaríkjamenn áfram Tariq Aziz fyrrverandi utanríkisráðherra Saddams Hussein segir að Bandaríkjamenn skilji Írak eftir hjá úlfunum þegar þeir draga herlið sitt frá landinu. Erlent 6.8.2010 12:13
Engir gargandi grislingar Nokkur leiguflugfélög eru að skoða möguleika á því að bjóða upp á barnlaus flug til vinsælla áfangastaða. Erlent 6.8.2010 10:03
Krefjast þess að Wikileaks skili aftur leyniskjölum Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur krafist þess af forráðamönnum vefsíðunnar Wikileaks að þeir skili aftur leyniskjölum þeim um stríðið í Afganistan sem nýlega voru birt á síðunni og samhliða í þremur alþjóðlegum fjölmiðlum. Erlent 6.8.2010 07:54
Forseti Pakistan í opinberri heimsókn í Bretlandi Zardari forseti Pakistan er kominn í opinbera heimsókn til Bretlands þar sem hann mun eiga viðræður við David Cameron forsætisráðherra Breta. Erlent 6.8.2010 07:49
Kjærsgaard vill banna innflytjendur í Danmörku Pia Kjærsgaard formaður Danska þjóðarflokksins vill að stjórnvöld banni innflytjendum sem ekki eru af vestrænum uppruna að setjast að í Danmörku. Erlent 6.8.2010 07:46
Í dag eru 65 ár frá kjarnorkusprengjunni í Hiroshima Í dag eru 65 ár liðin frá því að Bandaríkjamenn sprengdu kjarnorkusprengju yfir borginni Hiroshima í Japan. Erlent 6.8.2010 07:44
Gerist teiknimyndahetja Ali Imron, ungur múslimi sem tók þátt í að skipuleggja sprengjuárás á eyjunni Balí árið 2002, sem kostaði 202 menn lífið, er aðalhetja teiknimyndasögu sem dreift verður í skóla og bókasöfn um alla Indónesíu. Erlent 6.8.2010 07:30
Bann við giftingum brýtur í bága við stjórnarskrá Vaughn Walker, dómari í Kaliforníu, felldi úr gildi bann við hjónaböndum samkynhneigðra í Kaliforníuríki. Walker taldi bannið, sem samþykkt var í atkvæðagreiðslu fyrir tveimur árum, brjóta í bága við stjórnarskrá Bandaríkjanna. Erlent 6.8.2010 06:45
Stjórnvöld banna útflutning á hveiti Rússnesk stjórnvöld hafa bannað allan útflutning á korni til ársloka. Ástæðan er sú að tuttugu prósent af hveitiuppskeru landsins eyðilögðust í skógareldum. Bannið gæti framlengst telji stjórnvöld það nauðsynlegt. Erlent 6.8.2010 06:30
Andstæðingar fallast á úrslitin Íbúar í Keníu samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta nýja stjórnarskrá sem dregur mjög úr völdum forseta landsins. Andstæðingar nýju stjórnarskrárinnar segjast ætla að sætta sig við niðurstöðuna. Erlent 6.8.2010 06:15
Tryggði stöðu sína til hausts Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, tryggði stöðu sína á þinginu að minnsta kosti fram á haustið þegar stjórnarþingmenn felldu þingsályktunartillögu gegn aðstoðarráðherra í dómsmálaráðuneytinu, sem er flæktur í spillingarmál. Erlent 6.8.2010 03:00
Verja kjarnorkuver fyrir skógareldum Björgunarsveitir í Rússlandi eru að örmagnast eftir að hafa barist vikum saman við skógarelda sem engin leið virðist að hemja. Erlent 5.8.2010 16:07
Bein Jóhannesar skírara í klausturrústum Bein af Jóhannesar skírara eru fundin í rústunum af fornu munkaklaustri í Búlgaríu að sögn þarlendra yfirvalda. Erlent 5.8.2010 14:34
Bandaríkjamenn senda fulltrúa til Hiroshima Bandaríkjamenn senda á morgun í fyrsta skipti fulltrúa sinn til þess að vera við minningarathöfn um kjarnorkuárásina á Japönsku borgina Hiroshima í síðari heimsstyrjöldinni. Erlent 5.8.2010 13:57
Klæðaskiptingar húðstrýktir Nítján ungir múslimar hafa verið húðstrýktir opinberlega í Súdan fyrir að klæðast kvenmannsfötum og farða sig. Erlent 5.8.2010 13:12
Aaaarg...reykingamaður um borð Þotu American Airlines sem var á leið frá New York til Los Angeles í gær var snúið til lendingar í Nýju Mexíkó þegar talið var að farþegi hefði kveikt sér í sígarettu. Erlent 5.8.2010 12:27
Churchill vildi leynd um fljúgandi furðuhlut Winston Churchill vildi halda því leyndu að ein af flugvélum breska flughersins hefði hitt fyrir fljúgandi furðuhlut í síðari heimsstyrjöldinni. Erlent 5.8.2010 12:08
Munntóbak vænlegra en nikótíntyggjó til að hætta reykingum Það er vænlegra til árangurs að nota munntóbak til að hætta að reykja en nikótín tyggigúmmí eða aðrar nikótínvörur, samkvæmt nýrri norskri rannsókn. Erlent 5.8.2010 10:48
Vill dauðadóm yfir WikiLeaks hermanni Bandarískur þingmaður telur að dæma eigi til dauða hermanninn sem sakaður hefur verið um að leka hernaðarupplýsingum til WikiLeaks vefsíðunnar. Erlent 5.8.2010 10:01
Gosið í Eyjafjallajökli kemur sjávarlífi til góða Vísindamenn eru nú að rannsaka hvort aska úr eldgosinu í Eyjafjallajökli muni koma sjávarlífinu í hafinu í kringum Ísland til góða. Erlent 5.8.2010 08:01
Naomi Campell vitnar fyrir stríðsglæpadómstólnum Ofurfyrirsætan Naomi Campell hefur borið vitni fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag. Erlent 5.8.2010 07:56
Fidel Castro ávarpar þingið á Kúbu Reiknað er með að Fidel Castro fyrrum leiðtogi Kúbu muni ávarpa þingið á Kúbu um helgina. Yrði það í fyrsta sinn í fjögur ár að Fidel ávarpar þingið. Erlent 5.8.2010 07:47
Mary krónprinsessa Dana sögð vera ólétt að nýju Flest öll vikublöðin í Danmörku eru með það á hreinu að Mary krónprinsessa landsins sé ólétt af þriðja barni sínu. Erlent 5.8.2010 07:25