Erlent
100 tonn af gulli yfir hafið Seðlabanki Englands fékk óvenjulega beiðni í síðustu viku þegar Hugo Chávez, forseti Venesúela, vildi fá heim gullforða lands síns, eins fljótt og unnt væri. Það þýðir að flytja þarf 99,2 tonn af gullstöngum frá London til Caracas. Erlent 25.8.2011 00:00
Borgarbúar kolféllu á jarðskjálftaprófinu - fellibylur á leiðinni Íbúar New York kolféllu á jarðkjálftaprófinu að mati Kelly Huston, aðstoðarforstjóra „Emergency Management Agency“ í Kaliforníu. Erlent 24.8.2011 22:30
Heita 180 milljónum hverjum þeim sem finnur Gaddafi Rúmlega einni og hálfri milljón dollara eða sem samsvarar hundrað og áttatíu milljónum íslenskra króna og friðhelgi hefur verið heitið hverjum þeim sem handsamar eða drepur Gaddafi fyrrum einræðisherra Líbíu. Þrjátíu og sex erlendum blaðamönnum hefur nú verið sleppt úr sex daga gíslingu í Trípólí. Erlent 24.8.2011 18:43
Gefast upp á þjóðarhundinum Þýska lögreglan er smám saman að skipta þjóðarhundinum, þýskum fjárhundi (sheffer), út fyrir belgísku tegundina. Ríkislögreglan heldur nú aðeins 26 þýska fjárhunda á móti 281 belgískum. Erlent 24.8.2011 17:09
Fær hugsanlega ævifangelsi fyrir að fara óboðinn inn í landið Þrjátíu ára gamall pólskur karlmaður gæti orðið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að heimsækja son sinn til Danmerkur. Jyllands Posten segir að þetta yrði þá í fyrsta sinn sem maður fengi slíkan dóm þar í landi fyrir að koma inn í landið í óleyfi. Erlent 24.8.2011 16:37
Blaðamennirnir lausir Blaðamennirnir sem voru í haldi á Rixos hótelinu í Tripoli eru lausir úr prísundinni. Blaðamaður CNN segir á twitter-síðu sinni að þeir hafi yfirgefið hótelið í bíl nú síðdegis. Erlent 24.8.2011 15:31
Hadzic segist saklaus Stríðshöfðingi Serba, Goran Hadzic, lýsti sig saklausan fyrir Stríðsglæpadómstólnum í Haag í dag. Hadzic er ákærður fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni fyrir hlutdeild sína í Júgóslavíustríðinu 1991-1993. Verði hann fundinn sekur bíður hans lífstíðarfangelsi. Erlent 24.8.2011 15:21
Sektuð fyrir að gefa barninu ekki nafn Kona frá Kaupmannahöfn hefur verið sektuð um 500 danskar krónur, sem jafngildir um 10 þúsund íslenskum, fyrir að hafa ekki gefið barninu sínu nafn. Erlent 24.8.2011 15:14
Hnífaárás í New York Nakinn ungur maður gekk berserksgang í íbúðarblokk í New York í dag. Maðurinn var vopnaður eldhúshníf, drap einn og særði fjóra. Hann virðist hafa gengið milli íbúða, knúið dyra og ráðist á þann sem opnaði, segir í frétt vefmiðilsins www.mailonsunday.co.uk Erlent 24.8.2011 14:52
Malaría í Grikklandi Ferðalangar í Grikklandi hafa verið varaðir við malaríusmitum. Þetta kemur fram í frétt Telegraph. Síðan í júní á þessu ári hafa sex manns greinst í landinu með sjúkdóminn. Tilvikin urðu á Euboea, stórri eyju norður af Aþenu og Laconia svæðinu. Enginn smitaðra hafði ferðast nokkuð út fyrir Grikkland. Erlent 24.8.2011 14:29
8.7 milljónir lífvera á jörðinni Um 8.7 milljónir tegunda lífvera fyrirfinnast á jörðinni. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Public Library of Science Biology. Talan var fundin með nýju kerfi til að flokka lífverur og meta fjölda þeirra. Áður hefur hún verið áætluð frá 3 milljónum og allt upp í 100. Erlent 24.8.2011 14:10
N-Kórea tilbúin að gera hlé á kjarnorkuáætlun Kim Jong-il gaf það út á fundi í dag með rússlandsforseta, Dimitry Medvedev, að Norður Kórea væri reiðubúin að gera hlé á framleiðslu kjarnavopna og tilraunum sínum með kjarnorku. Þessi tilkynning gæti greitt götu viðræðna milli sex þjóða sem sigldu í strand árið 2008. Erlent 24.8.2011 13:35
Fundur SÞ og Suu Kyi Lýðræðissinnin Aung San Suu Kyi frá Búrma segir heimsókn sendifulltrúa Sameinuðu Þjóðanna (SÞ) hafa verið uppörvandi. Suu Kyi átti 90 mínútna fund með mannréttindafulltrúanum, Tomas Ojea Quintana, sem snerist helst um aðstæður 2.000 pólitískra fanga í Búrma og önnur málefni tengd mannréttindum. Erlent 24.8.2011 13:01
Ekkert „like“ í Þýskalandi Yfirmaður Persónuverndar í þýska fylkinu Schleswig-Holstein telur að „like" hnappurinn svokallaði á Facebook, sem notendur smella á til að lýsa velþóknun sinni á færslum og öðru, brjóti í bága við persónuverndarlög í Þýskalandi. Erlent 24.8.2011 13:00
Blaðamenn í stofufangelsi í Tripoli Um 35 erlendir blaðamenn eru fastir á Rixos hótelinu í Tripoli. Hótelið er umkringt stuðningsmönnum Gaddafi sem varna blaðamönnunum útgöngu. Bardagar geisa í kring. Byssumenn eru á göngunum, leyniskyttur á þakinu. Ef þeir reyna að sleppa út er byssum beint að þeim. Erlent 24.8.2011 11:58
Staðan í Líbíu Þó sprengingar og skothvellir heyrist enn í Líbíu eru þær blandnar hamingjuhrópunum fólks og barnasöng. Það eru fagnaðarlæti í Tripoli eftir einstakan og sögulegan dag. Erlent 24.8.2011 11:29
Áframhaldandi átök á Gaza Árásir héldu áfram á landamærum Gaza-svæðisins og Ísrael í dag. Ísrael gerðu loftárásir á Gaza og Palestínumenn skutu sprengjum til baka. Hamas samtökin segja einn Palestínumann látinn eftir árásirnar. Erlent 24.8.2011 10:14
Nakin Nigella hneykslar nágranna sína Nágrannar stjörnukokksins Nigellu Lawson kvarta nú undan því að þeir geta séð þessa kynþokkafullu konu ganga um nakta í íbúð sinni. Erlent 24.8.2011 10:04
Ríkisstjórn Ástralíu í hættu vegna kynlífshneykslis Ástralskur þingmaður er sakaður um að hafa notað kreditkort stéttafélags hjúkrunarfræðinga til að greiða fyrir þjónustu vændiskvenna. Ástralska lögreglan rannsakar nú málið. Erlent 24.8.2011 09:51
Fundur með Frakklandsforseta Leiðtogi uppreisnarmanna í Líbíu, Mahmoud Jibril, er á leið til Frakklands. Í kvöld mun hann eiga viðræður við Nicolas Sarkozy, frakklandsforseta. Viðræðurnar munu helst snúast um ástandið í Líbíu og framlag alþjóða samfélagsins til umskiptanna þar í landi. Erlent 24.8.2011 09:27
Írena nálgast Bandaríkin Fellibylurinn Írena fór yfir Bahama-eyjar og aðrar minni eyjar á Karabískahafinu í nótt en ekki er vitað um tjón eða mannfall. Erlent 24.8.2011 08:36
Átta börn fórust í eldsvoða Ellefu fórust, þar á meðal átta börn, þegar eldur kom upp í tveggja hæða húsi bænum Logan í Ástralíu á miðnætti. Fjölmiðlar á svæðinu segja að tvær fjölskyldur hafi búið í húsinu en þrír náðu að flýja út úr húsinu. Börnin er sem brunnu inni eru á aldrinum ellefu til sautján ára en ríkisstjóri Queensland-héraðsins hefur sent sérstaka ráðgjafa í skóla barnanna til að huga að bekkjarsystkinum og vinum þeirra. Eldsupptök eru ókunn en rannsókn stendur yfir. Erlent 24.8.2011 08:33
Eru ekki að skilja Bandaríski leikarinn Will Smith og eiginkona hans Jada Pinkett-Smith neita sögusögnum um skilnað. Í sameiginlegri yfirlýsingu segjast þau vera hamingjusöm og hjónabandið sé óskaddað. Erlent 24.8.2011 08:09
Gaddafí segist vera í Trípólí Tvær loftárásir voru gerðar í Trípólí, höfuðborg Líbíu, í nótt en talið er að Atlantshafsbandalagið beri ábyrgð á árásinni. Engar fréttir hafa borist á manntjóni. Erlent 24.8.2011 07:17
Saksóknari trúir ekki þernunni Dominque Strauss-Kahn, fyrrverandi yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, er laus allra mála í New York og gekk frjáls maður út úr dómhúsi í gær. Erlent 24.8.2011 00:45
Höfuðstöðvarnar á valdi uppreisnarliðs Uppreisnarmenn í Líbíu náðu höfuðstöðvum Múammars Gaddafí í Trípolí á sitt vald í gær eftir harða skotbardaga við stuðningsmenn Gaddafís klukkustundum saman. Höfuðstöðvarnar eru nokkur hús, herskálar og tjöld inni á rammgirtri lóð. Þar eru bæði skrifstofur Gaddafís og vistarverur hans og fjölskyldu hans. Hann sjálfur sást hvergi og var ekki vitað hvar hann væri niðurkominn. Erlent 24.8.2011 00:00
Kjarnarofnar teknir úr sambandi vegna jarðskjálftans í Bandaríkjunum Gamalt kjarnorkuver er nærri upptökum jarðskjálftans í Richmond í Virginíu sem reið yfir austurströnd Bandaríkjanna um klukkan sex í dag. Jarðskjálftinn reyndist vera 5.8 á richter og upptök hans voru á grunnu dýpi. Erlent 23.8.2011 18:50
Öflugur jarðskjálfti reið yfir austurströnd Bandaríkjanna Jarðskjálfti upp á 5.8 á richter reið yfir á Austurströnd Bandaríkjanna og fannst hann meðal annars í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington. Talið er að hann hafi átt upptök sín í Virginíu. Erlent 23.8.2011 18:03
Hluti af heila fjarlægður Breskur maður krefst skaðabóta vegna þess að hluti af heila hans var fjarlægður fyrir mistök í skurðaðgerð. Maðurinn, John Tunney að nafni, hefur og farið fram á að gerð verði rannsókn vegna mistakanna. Erlent 23.8.2011 17:01
Strauss-Kahn segist hafa upplifað martröð Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að síðustu mánuðir hafi verið martröð fyrir sig og fjölskyldu sína og að hann hlakki mikið til að snúa heim til sín. Erlent 23.8.2011 16:57