Erlent
Fundu rústir skylmingaþrælaskóla Mjög vel varðveittar rústir af skóla fyrir skylmingaþræla hafa fundist í Austurríki. Rústirnar eru hluti af 50 þúsund manna borg austur af Vín, sem var í blóma þar fyrir 1.700 árum. Borgin var mikilvæg hernaðar- og viðskiptaborg fyrir Rómverja. Erlent 9.9.2011 03:30
Afmælisdagarnir komu upp í lottóinu - vann milljarð Sjötíu og þriggja ára kona frá Kaliforníu í Bandaríkjunum getur þakkað börnum sínum og barnabörnum fyrir að hafa unnið níu milljónir bandaríkjadollara í lottó á dögunum. Því konan keypti miða á hverjum miðvikudegi með afmælisdögum þeirra og viti menn á miðvikudaginn síðasta komu afmælisdagarnir upp. Og okkar kona einum milljarði ríkari. Erlent 8.9.2011 23:08
Rússlandsforseti segir nauðsynlegt að auka flugöryggi Auka þarf flugöryggi í Rússlandi, sagði Dmitry Medvedev, forseti landsins, eftir að hann skoðaði slysstað þar sem 43 manns létu lífið í flugslysi í Jaroslavl í gær. Í flugslysinu fórust margir af fræknustu hokkýmönnum í heiminum. Erlent 8.9.2011 21:54
Upptökur af hryðjuverkunum opinberaðar Hljóðpupptökur úr flugvélunum sem rænt var þann 11. september 2001 voru birtar opinberlega í dag. Þær sýna glögglega hversu mikil ringulreið ríkti þegar flugvélunum fjórum var rænt. Erlent 8.9.2011 21:30
Hringdi 65 þúsund sinnum í fyrrverandi kærastann Hollenskir saksóknarar hafa ákært 42 ára gamla konu fyrir að hafa hringt 65 þúsund sinnum í fyrrverandi kærasta sinn í fyrra. Erlent 8.9.2011 21:08
Mannkynið horfir fram á útrýmingu Mannkynið mun deyja út ef mennirnir breyta ekki lífsstíl sínum, draga úr neyslu, snúa við loftslagsbreytingum og hætta að tortíma villtri náttúrunni. Þetta sagði Karl Bretaprins þegar hann hélt fyrstu ræðu sína sem forseti Alþjóðanáttúruverndarstofnunarinnar (e. World Wildlife Fund). Karl sagði að forgangsatriði væri að bjarga sjálfum sér. Erlent 8.9.2011 18:24
Hommar mega nú gefa blóð Sam- og tvíkynhneigðir karlmenn mega gefa blóð í Englandi, Skotlandi og Wales frá og með fyrsta nóvember næstkomandi, en það hafa þeir ekki mátt gera frá því á áttunda áratuginum. Erlent 8.9.2011 16:32
Alvarlegt sporvagnaslys í Svíþjóð Talið er að allt að tuttugu manns hafi slasast þegar sporvagn í Gautaborg í Svíþjóð ók aftan á kyrrstæðan bíl í borginni fyrr í dag. Áreksturinn var mjög harður samkvæmt sænskum vefmiðlum og er talið að sumir séu alvarlega slasaðir. Tildrög slyssins eru enn óljós en rannsókn er hafin. Erlent 8.9.2011 16:03
50 Cent fæðir Afríku Rapparinn og viðskiptajöfurinn 50 Cent hefur þróað nýjan orkudrykk, sem kemur á markað innan skamms. Orkudrykkurinn heitir Street King og hagnaðinum af sölu hans verður varið í að fæða afrísk börn. Erlent 8.9.2011 13:00
Framvegis þarf að spyrja þingið Stjórnlagadómstóll Þýskalands komst í gær að þeirri niðurstöðu að þátttaka Þýskalands í björgunaraðgerðum til hjálpar skuldugustu ríkjum evrusvæðisins bryti ekki í bága við þýsku stjórnarskrána. Erlent 8.9.2011 12:30
Sjálfbær þróun aðalviðfangsefni 21. aldar Ban Ki Moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að sjálfbær þróun sé mikilvægasta málefnið sem heimsbyggðin þarf að takast á við á næstu árum. Hann hélt ræðu í Háskólanum í Sidney í Ástralíu í morgun þar sem hann hvatti menn til þess að grípa til aðgerðra og að sjálfbær þróun sé lykilatriði til framtíðar. Erlent 8.9.2011 08:09
Gaddafí enn í Líbíu - ætlar að berjast til sigurs Múammar Gaddafí, fyrrverandi einræðisherra í Líbíu, vísar því á bug að hann sé flúinn úr landi til nágrannalandsins Níger. Viðtal við hann birtist á sýrlenskri sjónvarpsstöð í gærkvöldi en ekkert hefur heyrst frá honum síðustu vikur. Gaddafí sagði að allt tal um að hann ætli að flýja land væru lygar og sálfræðihernaður. Erlent 8.9.2011 08:08
Laus úr gíslingu sjóræningja Sjö manna áhöfn danskrar skútu er laus úr haldi sómalískra sjóræningja, sem réðust um borð í skútu fjölskyldunnar seint í febrúar. Erlent 8.9.2011 08:00
45 milljónir Bandaríkjamanna reykja Um 20 prósent Bandaríkjamanna reykja, samkvæmt nýrri rannsókn sem birt var á dögunum í tímaritinu Morbidity and mortality. Reykingamönnum hefur fækkað lítillega á síðustu fimm árum. Erlent 7.9.2011 23:00
Handtekinn fyrir að neita að slökkva á símanum í lendingu Það getur borgað sig að slökkva á farsímanum sínum þegar sest er upp í flugvél. Það fékk farþegi á leið frá Phoenix til Texas í Bandaríkjunum að kynnast á dögunum. Erlent 7.9.2011 22:00
Níger mun ekki loka á Gaddafi Utanríkisráðherra Níger segir að ekki verði hægt að loka landamærum Líbíu og koma þannig í veg fyrir að Muammar Gaddafi, fyrrverandi leiðtogi Líbíu, flýi yfir þau. Erlent 7.9.2011 20:54
Eddie Murphy kynnir Óskarinn Gamanleikarinn Eddie Murphy verður kynnir á næstu Óskarsverðlaunahátíð sem verður haldin í febrúar á næsta ári. Þetta hafa forsvarsmenn hátíðarinnar staðfest en sterkur orðrómur hefur verið síðustu vikur um að leikarinn myndi kynna hátíðina. Erlent 7.9.2011 17:34
Heilt íshokkílið fórst í rússnesku flugslysi Heilt íshokkílið fórst þegar farþegaþota hrapaði skömmu eftir flugtak í vesturhluta Rússlands í dag. Erlent 7.9.2011 15:41
Þarf að greiða skaðabætur fyrir lélega frammistöðu í rúminu Fimmtíu og eins árs gamall Frakki hefur verið dæmdur til þess að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni um eina og hálfa milljón króna í skaðabætur. Upphæðina þarf hann að reiða fram fyrir að hafa ekki staðið sig sem skyldi í hjónabandinu, eða inni í svefnherberginu öllu heldur. Konan sótti um skilnað og fékk fyrir tveimur árum. Erlent 7.9.2011 14:11
Mamma fangelsuð fyrir að aka á móti umferð Þriggja barna móðir í Bretlandi sem ók gegn umferð á M5 hraðbrautinni um 50 kílómetra leið í sumar hefur verið dæmd í níu mánaða fangelsi. Dómari úrskurðaði þetta í morgun en konan var undir miklum áhrifum áfengis. Hún grét í réttarsal í morgun þegar dómurinn féll og bar við alkóhólisma og vandræðum í einkalífi sínu. Erlent 7.9.2011 13:58
Farþegaþota fórst í Rússlandi Farþegaþota hrapaði skömmu eftir flugtak í vesturhluta Rússlands í dag. 36 létust í slysinu en vélin var af gerðinni Yak-42. Hún hafði tekið á loft frá flugvelli í nágrenni borgarinnar Yaroslavl á bökkum Volgu. Að minnsta kosti einn komst lífs af úr slysinu en óstaðfestar fregnir herma að flestir farþeganna hafi verið liðsmenn íshokkíliðs borgarinnar. Erlent 7.9.2011 13:32
Meira en þúsund hús ónýt Meira en þúsund hús hafa orðið skógar- og kjarreldum víða í Texas að bráð síðustu dagana. Flest þessara húsa, eða nærri 600, stóðu í Bastrop-sýslu sem er skammt frá höfuðborginni Austin. Erlent 7.9.2011 10:00
Háttsettir félagar Gaddafís flýja Nokkrir háttsettir stuðningsmenn Múammars Gaddafí flúðu í gær frá Líbíu yfir til nágrannalandsins Níger. Þeir fóru þangað í hópum í nokkrum bílalestum, sem ekið var hratt yfir eyðimörkina í Líbíu til landamæranna. Erlent 7.9.2011 08:15
Sprengjuárás í Nýju Delí Að minnsta kosti níu létust og fjörutíu og fimm eru sárir eftir sprengjuárás fyrir utan hús hæstaréttar í Nýju Delhí, höfuðborg Indlands í morgun. Þetta er í annað sinn á nokkrum mánuðum sem sprengjuárás er gerð fyrir utan réttinn en í júní sprakk þar bílsprengja. Í morgun virðist hafa verið um sprengju falda í skjalatösku að ræða og sprakk hún við öryggishliðið að réttinum. Erlent 7.9.2011 07:54
Nýjar myndir af tunglinu sýna glöggt mannaferðir fyrri ára Bandaríska geimvísindastofnunin NASA sendi í gær frá sér hágæða myndir sem teknar eru af mannlausu geimfari sem hefur sveimað um tunglið undanfarinn mánuð. Á myndunum sjást greinileg ummerki eftir geimförin sem fóru þangað fyrir um það bil fjörtíu árum síðan. En þau geimför voru kölluð Apollo 12, Apollo 14 og Apollo 17. Erlent 7.9.2011 07:21
Óvíst um samþykki þingsins Mannlíf á Ítalíu lamaðist að mestu í gær þegar efnt var til allsherjarverkfalls um land allt. Erlent 7.9.2011 00:15
Allt að 30 ára fangelsi fyrir fölsk skilaboð á Facebook Blaðakona og kennari í Mexíkó gætu átt yfir höfði sér 30 ára fangelsi vegna skilaboða sem þau sendu á Twitter og Facebook um að hryðjuverkamenn hefðu ráðist á skóla í borginni. Skilaboðin reyndust ekki á rökum reist. Erlent 6.9.2011 23:50
Tók upp skammbyssu á veitingastað - þrír létust Byssumaður hóf skyndilega skothríð inni á veitingastað í borginni Carson í Nevada í Bandaríkjunum í dag. Þrír létust eftir að hafa orðið fyrir skoti og nokkrir særðust. Erlent 6.9.2011 21:54
40 sjálfsvíg á dag í S-Kóreu Tíðni sjálfsvíga hefur tvöfaldast í Suður-Kóreu á síðustu árum. Þetta sýna nýjar tölur. Tölurnar sýna að árið 2009 frömdu meira en 40 manns sjálfsvíg á hverjum degi, sem eru tvöfalt fleiri en tíu árum fyrr. Erlent 6.9.2011 21:30
Hundruð látast á hverjum degi Hungursneyð hefur verið lýst yfir í fleiri héröðum í Sómalíu. Fjórar milljónir Sómala þurfa nú á neyðaraðstoð að halda, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Erlent 6.9.2011 21:15