Erlent

Búa sig undir hefnd

Mikill viðbúnaður er nú í Pakistan en yfirvöld þar í landi búa sig undir hefndaraðgerðir Talibana eftir að leiðtogi þeirra, Hakimullah Mehsud, féll í loftárás Bandaríkjahers í gær.

Erlent

Sprenging í flugeldaverksmiðju

Kínverska lögreglan hefur handtekið lögfræðing og framkvæmdastjóra kínverskrar flugeldaverksmiðju en 11 manns létust og 17 særðust í sprengingu í verksmiðjunni, sem staðsett er í Guangxi, í gær.

Erlent

Reiði í Indónesíu

Indónesísk yfirvöld hafa kallað sendiherra Ástralíu á sinn fund eftir að fram kom að áströlsk sendiráð hafa verið notuð til stuðnings njósnakerfi í Asíu.

Erlent

Flugmenn blindaðir með leysigeisla

Hefur það gerst að ljósleysir hafi truflað flugmann svo mjög að þurft hafi að hætta við lendingu eða aðstoðarflugmaður hafi neyðst til þess að taka við stjórn flugvélarinnar.

Erlent

Tortryggnir gagnvart íslam

Þriðji hver Dani er þeirrar skoðunar að takmarka eigi rétt múslíma til að iðka trú sína opinberlega. 29 prósent segja að banna eigi blæjur og slæður múslíma.

Erlent

Palestínskum föngum sleppt í Ísrael

Ísraelar hafa sleppt nokkrum palestínskum föngum en náðanirnar eru hluti af samningum sem gerðir voru til þess að koma friðarviðræðum á skrið að nýju. Allt í allt stendur til að sleppa um hundrað föngum og var 26 sleppt í gær.

Erlent

Clapper segir nauðsynlegt að njósna um leiðtogana

Yfirmaður leyniþjónustumála í Bandaríkjunum segir það eitt af aðaláhersluatriðum bandarískra njósnara að komast að því hvað leiðtogar annarra ríkja hyggjast fyrir. Yfirmaðurinn, James Clapper, var kallaður á teppið hjá þingnefnd í fulltrúadeildinni í gær þar sem hann svaraði fyrir þær ásakanir að Bandaríkjamenn hafi síðustu misserin hlerað símana hjá fjölda þjóðarleiðtoga, þar á meðal hjá Angelu Merkel Þýskalandskanslara.

Erlent

Fyrstu göngin sem tengja Evrópu og Asíu

Lestargöng sem liggja undir Bospórusund í Tyrklandi verða opnuð síðar í dag. göngin eru þau fyrstu sem grafin hafa verið á milli heimsálfa, en Bospórusundið liggur á milli Evrópu og Asíu.

Erlent

Þrýstingur eykst á Obama vegna hlerana NSA

Vaxandi þrýstingur er nú á forseta Bandaríkjanna að hann útskýri betur hinar umfangsmiklu hleranir Þjóðaröryggisstofnunarinnar, NSA, og hvernig geti staðið á því að sjálfur forsetinn hafi ekki vitað hve víðtækar aðgerðirnar hafa verið.

Erlent

Stormurinn stefnir nú á Eystrasaltslöndin

Sex fórust í í Þýskalandi, fimm á Bretlandseyjum og í Danmörku lést einn og tugir eru slasaðir. Nú stefnir óveðurslægðin nú á Eystrasaltsríkin. Vindhraðinn fór upp í 54 metra á sekúndu á einni mælistöð í Danmörku, sem er met frá upphafi mælinga þar í landi. Vegir lokuðust víða í Danmörku og síðan í Suður Svíþjóð og í báðum löndum trufluðust lestarsamgöngur þannig að fjöldi farþega þurfti að hafast við í lestum fram á nótt. Lestarasmgöngur komast ekki í samt lag fyrr en líður á daginn.

Erlent