Erlent

Étinn lifandi af risaslöngu

Paul Rosolie, náttúrufræðingur, verður étinn lifandi af risaslöngu fyrir þáttinn Eaten Alive á Discovery sjónvarpsstöðinni.

Erlent

Skattaparadísin Lúxemborg

Umfangsmikil rannsókn hefur leitt í ljós að hin ýmsu alþjóðlegu stórfyrirtæki hafa nýtt sér glufur í skattkerfi Lúxemborgar til að minnka skattbyrði sína og auka hagnað.

Erlent

Þjóðverjar krefjast gagna

Nýjar tölur frá Facebook sýna að þýsk stjórnvöld biðja um meiri upplýsingar um notkun þegna sinna á síðunni miðað við fjölda notenda en nokkur önnur þjóð.

Erlent

Repúblikanar með yfirhöndina í báðum deildum

Repúblikanar á Bandaríkjaþingi náðu meirihluta í kosningum til öldungadeildarinnar sem fram fóru í gær og þeir juku einni við meirihluta sinn sem þeir höfðu fyrir í fulltrúadeildinni. Flokkurinn vann sæti í Arkansas, Colorado, Iowa, Norður Karólínu, Suður Dakóta og í Vestur Virginíu og búist er við frekari fylgisaukningu þegar talið hefur verið upp úr öllum kjörkössum, síðar í dag.

Erlent

Vígasveitir pynta börn

Mannréttindasamtök segja fjölda barna hafa orðið fyrir pyntingum og misþyrmingum á Kúrdasvæðunum í norðanverðu Sýrlandi, fyrst af hálfu hersveita Assadstjórnarinnar og síðan af hálfu vígasveita Íslamska ríkisins.

Erlent

Enginn verði ríkisfangslaus

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna kynnti í gær metnaðarfulla herferð gegn ríkisfangsleysi. Stefnt verði að því að innan áratugar verði enginn maður ríkisfangslaus.

Erlent

Repúblikönum spáð góðu gengi

Milljónir Bandaríkjamanna ganga að kjörborðinu í dag þegar kosið er um fulltrúa í fulltrúadeild og öldungadeild þingsins. Líklegt þykir að óvinsældir Bandaríkjaforseta komi til með að bitna á frambjóðendum demókrata.

Erlent