Fótbolti
Ramires er kallaður Ramidinho í búningsklefa Chelsea Ramires talar um það að stjóri hans hjá Chelsea, Ítalinn Carlo Ancelotti, segir honum að hann eigi möguleika á því að verða besti Brasilíumaðurinn sem hefur spilað í ensku úrvalsdeildinni frá upphafi. Betri en menn eins og Juninho, Emerson og Gilberto Silva. Enski boltinn 27.3.2011 10:00
Suarez: Hraðinn í enska boltanum er mun meiri en á HM Luis Suarez hefur stimplað sig vel inn hjá enska liðinu Liverpool og virðist finna sig vel á Englandi þrátt fyrir að tala sjálfur um það að hann hafi aldrei spilað í svona hröðum bolta áður. Suarez segist hinsvegar fá meira pláss til að athafna sig og það komi sér vel fyrir hann. Enski boltinn 27.3.2011 09:00
David Luiz: Torres er frábær persóna Brasilíumaðurinn David Luiz er sannfærður um að Fernando Torres muni fara að raða inn mörkum fyrir Chelsea þegar hann nær loksins að brjóta ísinn. David Luiz hefur slegið í gegn hjá Chelsea en það hefur lítið gengið hjá Torres síðan að þeir voru keyptir fyrir 71 milljón punda á síðasta degi félagsskiptagluggans. Enski boltinn 27.3.2011 08:00
Javier Hernández með tvö mörk í 3-1 sigri á Paragvæ Manchester United maðurinn Javier Hernández skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik í 3-1 sigri Mexíkó á Paragvæ í æfingaleik í Oakland í Kaliforníu í nótt og þessi 22 ára strákur er í miklu markastuði þessa daganna eins og hefur sést í leikjum með United að undanförnu. Fótbolti 27.3.2011 06:00
Adriano kemur í stað Ronaldo hjá Corinthians Brasilíski framherjinn Adriano hefur enn á ný sagt skilið við evrópska fótboltann og er á heimaleið frá Ítalíu. Roma sagði upp samningi hans eftir tíu mánuði fulla af eintómum vonbrigðum en Adriano fékk hinsvegar strax samning hjá brasilísla liðinu Corinthians. Fótbolti 26.3.2011 23:15
Klose og Müller báðir með tvö mörk í sigri á Kasakstan Miroslav Klose og Thomas Müller skoruðu báðir tvö mörk þegar Þýskaland vann 4-0 sigur á Kasakstan í A-riðli í undankeppni EM í Kaiserslautern í kvöld. Þýska liðið hefur unnið alla fimm leiki sína í undankeppninni og er með markatöluna 17-1. Fótbolti 26.3.2011 21:32
Stefán Logi: Lærði það hjá Gumma Hreiðars að verja víti Stefán Logi Magnússon fékk sitt fyrsta tækifæri í alvöru landsleik á Kýpur í kvöld og sá til þess öðrum fremur að íslenska liðið hélt marki sínu hreinu og náði í sitt fyrsta stig í undankeppni EM. Stefán Logi varði meðal annars vítaspyrnu á 21. mínútu leiksins og gerði það á glæsilegan hátt. Fótbolti 26.3.2011 21:13
Huseklepp tryggði Norðmönnum jafntefli á móti Dönum Norðmenn eru með þriggja stiga forskot á Portúgal og Danmörku í riðli Íslands eftir 1-1 jafntefli á móti Dönum á Ullevaal Stadion í Osló í kvöld. Danir urðu þó fyrstir til þess að taka stig af Norðmönnum í undankeppninni því norska liðið var búið að vinna þrjá fyrstu leiki sína. Fótbolti 26.3.2011 20:54
Eggert Gunnþór: Jákvætt að ná stigi út úr erfiðum leik Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leikinn á miðju íslenska liðsins í markalausu jafntefli á Kýpur í kvöld en þetta var fyrsta stig íslenska liðsins í undankeppni EM. Eggert var nokkuð sáttur með uppskeruna í leikslok. Fótbolti 26.3.2011 20:45
Hermann: Við töpuðum ekki og þú verður að byrja einhvers staðar Hermann Hreiðarsson, landsliðsfyrirliði Íslands, stóð í ströngu í markalausu jafntefli á móti Kýpur í kvöld en þetta var fyrsta stig íslenska liðsins í undankeppni EM. Kýpur fékk fullt af færum en íslenska vörnin með Hermann í fararbroddi hélt hreinu. Fótbolti 26.3.2011 20:35
Ólafur: Þetta var kærkomið stig Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari Íslands, fagnaði fyrsta stiginu í undankeppni EM eftir markalaust jafntefli á móti Kýpur í kvöld. Íslenska liðið hafði tapað fyrstu þremur leikjum sínum en náði nú í sitt fyrsta stig þó að liðið sitji ennþá á botni riðilsins. Fótbolti 26.3.2011 20:16
Fyrsta stigið í höfn - Stefán Logi bjargaði stiginu á Kýpur Íslenska karlalandsliðið í fótbolta náði sínu fyrsta stigi í undankeppni EM þegar liðið gerði markalaust jafntefli á Kýpur í kvöld. Íslenska liðið átti undir högg að sækja stærsta hluta leiksins en fékk samt nokkur færi og hefði því getað stolið sigrinum. Fótbolti 26.3.2011 17:50
Bæði mörk Englendinga á fyrstu 15 mínútunum í 2-0 sigri á Wales Englendingar komust á topp G-riðils í undankeppni EM í fótbolta eftir þægilegan 2-0 sigur á Wales á Millennium Stadium í Cardiff í dag. Englendingar litu út fyrir að ætla að bursta nágrana sína í upphafi leiks en létu sér nægja að skora tvö mörk á fyrstu fimmtán mínútunum. Fótbolti 26.3.2011 16:53
Mertesacker spenntur fyrir því að spila í enska boltanum Þýski landsliðsmiðvörðurinn Per Mertesacker hefur mikinn áhuga á því að fá að reyna sig í enska úrvalsdeildinni en þessi 26 ára gamli leikmaður spilar með Werder Bremen. Hann verður í byrjunarliði Þýskalands á móti Kasakstan í undankeppni EM í kvöld. Enski boltinn 26.3.2011 16:00
Ísland síðasta landsliðið til að ná stigi af Spáni Heims- og Evrópumeistarar Spánverja héldu áfram sigurgöngu sinni í undankeppni EM 2012 með því að vinna 2-1 sigur á Tékklandi í Granada í gær. David Villa gerði bæði mörkin í leiknum en þetta var átjándi sigur spænska liðsins í leik í undankeppnum HM eða EM. Fótbolti 26.3.2011 15:30
Ferdinand forðaðist það að hitta Capello Fabio Capello, þjálfari enska landsliðsins, segir að Rio Ferdinand hafi forðast sig þegar fréttist af því að Capello ætlaði taka af honum fyrirliðabandið í enska landsliðinu og láta John Terry fá það aftur. Capello þótti ekki skemmtilegt að horfa á hina ýmsu leikmenn liðsins skiptast á fyrirliðabandið á móti Dönum á dögunum á meðan Terry var enn inn á vellinum. Enski boltinn 26.3.2011 14:45
Scott Parker byrjar á móti Wales Michael Dawson, Scott Parker, Frank Lampard, Jack Wilshere, Ashley Young og Darren Bent eru allir í byrjunarliði Englendinga á móti Wales i undankeppni EM en leikurinn verður í sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 15.00. Enski boltinn 26.3.2011 14:19
David Villa hljóp til Pepe Reina þegar hann bætti markamet Raul David Villa sló í gær markamet Raul með spænska landsliðinu þegar hann skoraði sitt 45. og 46. mark fyrir landsliðið og tryggði liðinu 2-1 sigur á Tékkum í undankeppni EM. Villa náði þessu í sínum 72. landsleik en Raul skoraði á sínum tíma 44 mörk í 102 landsleikjum. Fótbolti 26.3.2011 14:15
Rúrik: Hermann geðbilaður í hausnum Stemningin hefur greinilega verið góð í herbúðum íslenska landsliðsins í knattspyrnu en það mætir í dag Kýpverjum ytra í undankeppni EM 2012. Fótbolti 26.3.2011 13:30
Óheppnasti maðurinn á Old Trafford - Hargreaves nú meiddur á öxl Það tekur eitt við af öðru hjá hinum óheppna Owen Hargreaves sem mun líklega ekki spila aftur með liði Manchester United. Hargreaves meiddist nú síðast á öxl á æfingu með United í gær og verður frá vegna þeirra meiðsla næstu fjórar vikurnar. Enski boltinn 26.3.2011 12:45
Guðjón sá eini sem hefur náð í stig í mars Það eru liðin tæp ellefu ár síðan að íslenska karlalandsliðið í fótbolta náði síðast í stig í marsmánuði í undankeppni EM eða HM. Liðið leikur sinn sjöunda mótsleik í mars á Kýpur í dag og reynir þar að ná í sín fyrstu stig í undankeppni EM 2012. Íslenski boltinn 26.3.2011 12:00
Eggert: Taflan lýgur ekki Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður íslenska landsliðsins, segir það tímabært að liðið nái í sín fyrstu stig í undankeppni EM 2012. Fótbolti 26.3.2011 10:00
Möguleikinn er til staðar á Kýpur Það er ekki oft að tveir markverðir meiðast með fótboltalandsliðinu í sömu ferðinni en þegar ljóst varð á æfingu í gær að ökklinn á Ingvari Kale þyldi ekki álagið varð þjálfarinn að grípa til þess ráðs að hringja í fjórða markvörðinn. Fótbolti 26.3.2011 09:00
Terry: Var í lífshættu síðast þegar ég spilaði hér John Terry rifjaði í gær upp þegar hann spilaði síðast á Millenium-leikvanginum í Cardiff þar sem að Wales og England munu mætast í undankeppni EM 2012 á morgun. Enski boltinn 26.3.2011 08:00
Aron vill losna frá Coventry Aron Einar Gunnarsson segir að það sé greinilega eitthvað misjafnt á gangi í félagi hans, Coventry í Englandi, og að hann vilji losna frá félaginu miðað við núverandi stöðu. Fótbolti 26.3.2011 07:00
Chelsea kaupir sautján ára Brasilíumann Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur staðfest að félagið hafi samið við brasilíska miðvallarleikmanninn Lucas Piazon sem leikur með Sao Paolo í heimalandinu. Enski boltinn 26.3.2011 06:00
Æstur hundur hoppar á Þóru landsliðsmarkvörð Þóra B. Helgadóttir landsliðsmarkvörður komst í hann krappann er hún stóð í marki liðs síns. LdB Malmö, gegn bandaríska liðinu Sky Blue FC í æfingamóti í Tyrklandi á dögunum. Þetta var æfingamót meistara. Fótbolti 25.3.2011 23:30
David Villa tryggði Spánverjum sigur í metleik Spánn lenti í vandræðum gegn Tékkum á heimavelli í kvöld en á lokum kom David Villa heims- og Evrópumeisturunum til bjargar með tveimur mörkum í síðari hálfleik. Fótbolti 25.3.2011 22:52
Leikbann Ibrahimovic stytt Zlatan Ibrahimovic, leikmaður AC Milan, þarf bara að taka út tveggja leikja bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í leik gegn Bari fyrir tveimur vikum síðan. Fótbolti 25.3.2011 22:30
Holland fór létt með Ungverjaland Holland er enn með fullt hús stiga í sínum riðli í undankeppni EM 2012 eftir 4-0 útisigur á Ungverjalandi í kvöld. Fótbolti 25.3.2011 21:57