Fótbolti

Úrslitaleikurinn á Wembley: Gamli og nýi tíminn mætast

Þjálfari Man Utd, Sir Alex Ferguson, hyggur vafalítið á hefndir fyrir 2-0 tapið gegn Barcelona í úrslitaleiknum í Róm fyrir tveimur árum. Ferguson þótti tapið sérstaklega sárt en hann hefur lítið viljað ræða leikinn við fjölmiðla síðan. Sjaldan hefur lið hans verið jafn yfirspilað og gegn liðsmönnum Guardiola það kvöld. Ljóst er að Ferguson vill ekki upplifa slíka niðurlægingu aftur.

Fótbolti

Mótframbjóðandi Sepp Blatter flæktur í mútumál

FIFA hefur sett af stað rannsókn vegna ásakanna á hendur tveimur stjórnarmanna FIFA sem eiga að hafa brotið siðareglur FIFA á fundi hjá karabíska fótboltasambandinu. Fundurinn var haldinn í tengslum við komandi forsetakosningar FIFA.

Fótbolti

Fimm út og fimm inn hjá Chelsea í sumar

Guardian fer í dag yfir stöðu mála hjá Chelsea-liðinu sem er að leita sér að nýjum knattspyrnustjóra og nýjum íþróttastjóra. Það er búist við því að fimm leikmenn fari frá félaginu í sumar og að um fimm nýir leikmenn verði keyptir í staðinn. Chelsea er farið á fullt í leikmannamálin þótt að enginn viti hver setist í stjórastólinn.

Enski boltinn

Gylfi og Eiður saman í fyrsta sinn?

Íslenskir knattspyrnuáhugamenn vonast til þess að upplifa tvennt á Laugardalsvellinum laugardaginn 4. júní næstkomandi sem hefur ekki gerst áður í sögu karlalandsliðsins.

Fótbolti

ÍBV og Stjarnan með fullt hús stiga

Annarri umferð Pepsi-deildar kvenna lauk í gær með fjórum leikjum og var nokkuð um óvænt úrslit. Fylkir gerði 1-1 jafntefli við Íslands- og bikarmeistara Vals á heimavelli og þá vann KR 2-1 sigur á Breiðabliki.

Íslenski boltinn

Úrslitaleikurinn á Wembley: Messi og Chicharito markahæstir

Barcelona frá Spáni og Manchester United frá Englandi mætast í úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Wembley leikvanginum á laugardaginn. Argentínumaðurinn Lionel Messi er markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar með 11 mörk og Barcelonamaðurinn verður án efa í stóru hlutverki gegn Man Utd. Markahæsti leikmaður enska liðsins í Meistaradeildinni er Javier Hernández eða Chicharito með 4 mörk.

Fótbolti

Ólafur: Það fór enginn þeirra í frí

Ólafur Jóhannsson tilkynnti landsliðshóp sinn fyrir Danaleikinn í dag en Ólafur valdi 23 manna hóp og ætlar að kalla hann tímanlega saman. Liðið mun því vera í viku saman fyrir leikinn og Ólafur lagði auk þess áherslu á það við leikmenn að þeir héldu sér í góðu formi eftir að tímabili þeirra lauk.

Íslenski boltinn

Dani Alves: Meiri samstaða í United-liðinu eftir að Ronaldo fór

Daniel Alves, bakvörður Barcelona, segir að það hafi haft góð áhrif Manchester United liðið að selja Cristiano Ronaldo til Real Madrid. Síðasti leikur Ronaldo fyrir UNited var þegar liðið tapði 2-0 fyrir Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2009 en liðin mætast aftur í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Wembley á laugardaginn.

Fótbolti

Geir vonast til þess að komast til London í kvöld

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, var á blaðamannafundi KSÍ í dag þegar Ólafur Jóhannesson, þjálfari A-landsliðs karla, tilkynnti hópinn sinn fyrir Danaleikinn. Þetta var væntanlega síðasta verkefni Geirs fyrir KSÍ í þessari viku því hann er á leiðinni til Lundúna þar sem hann verður eftirlitsmaður UEFA á úrslitaleik Meistaradeildarinnar á milli Barcelona og Manchester United sem fram fer á Wembley á laugardaginn.

Fótbolti

Beckham: Ferguson getur stoppað Barcelona-liðið

David Beckham hefur mikla trú á liði Manchester United á móti Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fer fram á Wembley á laugardaginn. Beckham telur að ef einhver getur stoppað Barcelona-liðið þá sé það hinn 69 ára gamli stjóri United, Sir Alex Ferguson.

Fótbolti

Messi: Hernandez myndi sóma sér vel í Barcelona-liðinu

Lionel Messi er á því spænsku stórliðin Barcelona og Real Madrid hljóti að hafa áhuga Javier Hernandez eftir frábæra frumraun hans með Manchester United á þessu tímabili. Hernandez hefur verið lykilmaður í góðum árangri United og Messi hefur hrifist af mexíkóska landsliðsframherjanum.

Fótbolti

Arsenal vill fá tíu milljónir evra fyrir Bendtner

Nicklas Bendtner mun fá leyfi til að yfirgefa Arsenal í sumar fái félagið tíu milljónir evra fyrir danska landsliðsframherjann eða rétt rúmlega 1,6 milljarð kr. Bendtner hefur sagt Arsene Wenger, stjóra Arsenal, að hann vilji komast í burtu frá félaginu.

Enski boltinn