Íslenski boltinn

ÍBV vann annan 5-0 sigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Ólafur Daníelsson er þjálfari ÍBV.
Jón Ólafur Daníelsson er þjálfari ÍBV. Mynd/Vilhelm
ÍBV hefur farið mjög vel af stað í Pepsi-deild kvenna en liðið vann í kvöld 5-0 sigur á Aftureldingu á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.

Kristín Erna Sigurlásdóttir og Danka Podovac skoruðu tvö mörk hvor fyrir Eyjamenn í kvöld og Berglind Björg Þorvaldsdóttir eitt.

ÍBV er með fullt hús stiga í deildinni en liðið vann Þór/KA á útivelli í fyrstu umferðinni, einnig 5-0.

Annarri umferð deildarinnar lýkur í kvöld en þrír leikir hófust klukkan 19.15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×