
Sport

Kane reyndi að róa menn meðan sjúkraþjálfari ýtti leikmanni
Slagsmál brutust út í leik Stjörnunnar og Grindavíkur í kvöld. DeAndre Kane setti sig í hlutverk sáttamiðlara meðan sjúkraþjálfari Grindavíkur ýtti í leikmann Stjörnunnar.

Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 104-98 | Stjörnumenn taplausir á toppi deildarinnar
Stjarnan vann Grindavík 104-98 í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ. Heimamenn hafa unnið alla fimm leikina í upphafi tímabils og sitja í efsta sæti Bónus deildar karla.

Viðar um vandræði Hattar: „Hugarfarslegt og andlegt, þetta er á báðum endum vallarins“
Viðar Hafsteinsson þjálfari Hattar var vonsvikinn eftir leik sinna manna á móti Tindastól í kvöld. Fjörutíu stiga 99-59 tap varð niðurstaðan.

„Sóknarlega vorum við að taka alveg kexaðar ákvarðanir oft á tíðum“
Njarðvík tók á móti Val í 5. umferð Bónus deild karla í IceMar-höllinni í kvöld. Bæði lið hafa verið á mikilli siglingu en það voru heimamenn í Njarðvík sem höfðu betur með sjö stigum í kvöld 101-94.

„Vorum ógeðslega góðir sóknarlega í tvo leikhluta“
Ísak Wium þjálfari ÍR sagði lengsta góða kafla liðsins í vetur ekki hafa dugað gegn Álftnesingum í kvöld. ÍR tapaði sínum fimmta leik í röð eftir skelfilegan fjórða leikhluta.

Uppgjörið: Álftanes - ÍR 93-87 | Hræðilegur fjórði leikhluti varð ÍR-ingum að falli
Álftanes vann sinn annan sigur í röð í Bónus-deild karla eftir 93-87 sigur á ÍR í Forsetahöllinni í kvöld. ÍR er enn án sigurs eftir fimm leiki í deildinni.

ÍBV með stórsigur gegn ÍR meðan KA og Stjarnan skildu jöfn
ÍBV heimsótti ÍR og vann 41-31 stórsigur í Olís deild karla. KA tók á móti Stjörnunni og kastaði frá sér sigri, 27-27 lokaniðurstaðan.

Albert ekki með gegn Genoa er Fiorentina vann fjórða leikinn í röð
Fiorentina hefur fagnað frábæru gengi undanfarið í ítölsku úrvalsdeildinni, þrátt fyrir að Albert Guðmundsson sé frá vegna meiðsla. Liðið vann fjórða deildarleikinn í röð í dag, 1-0 gegn Genoa, liðinu sem Albert kom á láni frá.

Uppgjörið: ÍR - Grótta 30-18 | Fyrsti sigur ÍR-inga
ÍR vann sinn fyrsta sigur í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld er liðið hafði betur gegn Gróttu í botnslag umferðarinnar.

Haukur og félagar skammt frá toppliðunum eftir sterkan sigur
Haukur Þrastarson og félagar í Dínamó Búkarest unnu 38-31, sterkan sjö marka sigur gegn Füchse Berlin í Meistaradeild karla í handbolta. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Fredericia máttu þola tveggja marka tap eftir að hafa verið yfir í hálfleik gegn RK Eurofarm Pelister.

Uppgjörið: Njarðvík - Valur 101-94 | Héldu meisturunum í skefjum
Njarðvík tók á móti Val í IceMar höllinni í kvöld þegar fimmta umferð Bónus deild karla hóf göngu sína. Bæði lið hafa verið á flottri siglingu í síðustu leikjum og var það Njarðvík sem hafði betur 101-94 í kvöld.

Leik lokið: Tindastóll - Höttur 99-59 | Fjórði sigurinn í röð vannst með fjörutíu stigum
Tindastóll vann fjórða leikinn í röð í Bónus deild karla með fjörutíu stiga stórsigri gegn Hetti, sem hefur tapað þremur leikjum í röð. Lokaniðurstaða 99-59.

Kane steig á andlit en slapp við rautt: „Augljóst að dómarinn var í Bayern treyju“
Bayern Munchen vann öruggan 4-0 sigur á Mainz í þýsku bikarkeppninni í gærkvöldi. Jamal Musiala skoraði þrennu, en var rangstæður í öðru markinu, Harry Kane bætti svo fjórða markinu við en hefði ekki átt að vera inni á vellinum, að mati leikmanna Mainz.

Kallað eftir afsögn Gerrards
Pressan á Steven Gerrard, knattspyrnustjóra Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu, jókst verulega eftir bikartap fyrir B-deildarliði Al-Jabalain í gær. Kallað hefur verið eftir afsögn hans.

Guardiola segist bara vera með þrettán heilbrigða leikmenn
Englandsmeistarar Manchester City glíma við mikil meiðsli þessa dagana en liðið datt út úr enska deildabikarnum í gærkvöldi eftir tap á móti Tottenham.

LeBron stoltur af stráknum eftir fyrstu stigin hans í NBA
Bronny James, sonur LeBrons, er kominn á blað í NBA. Hann skoraði sín fyrstu stig í deildinni þegar Los Angeles Lakers tapaði fyrir gamla liði pabba hans, Cleveland Cavaliers, 134-110.

Hefur ekki efni á sjálfum sér: „Þeir sögðu nei“
Bandaríkjamaðurinn Antonee Robinson, vinstri bakvörður Fulham, fékk hart nei frá tölvuleikjaframleiðandanum EA þegar hann bað um að fá að spila sjálfum sér.

Gagnrýnir Verstappen harðlega og líkir honum við illmenni
Fyrrum heimsmeistari ökuþóra í Formúlu 1, Bretinn Damon Hill, gagnrýnir ríkjandi heimsmeistara, Hollendinginn Max Verstappen harðlega fyrir tilburði hans í Mexíkó kappakstrinum um síðastliðna helgi og líkir honum við illmennið Dick Dastardly út teiknimyndaþáttunum Vaskir vagnar (e.Wacky Races.)

Gaz-leikur Pavels: Að gerjast einhver geggjuð liðsheild þarna
„Ég fann nafn og vil koma því út strax. Þetta er eitthvað að gerjast leikurinn,“ segir Pavel Ermolinskij um Gaz-leik kvöldsins, þar sem Valsmenn fá Njarðvíkinga í heimsókn á Hlíðarenda. Bæði liðin hafa verið að komast á skrið í síðustu umferðum.

Stuðaði Keflavík og Friðrik kallaði „fuck off“
Það var hiti í fólki eftir dramatískan endi á leik Grindavíkur og Keflavíkur í Bónus-deild kvenna í körfubolta, og þjálfari Keflvíkinga kallaði „fuck off!“ að leikmanni Grindavíkur.

Viggo Mortensen hraunar yfir Vinicius
Danski leikarinn Viggo Mortensen, sem er hvað þekktastur fyrir að leika Aragorn í Lord of the Rings þríleiknum, skammast sín herfilega fyrir framkomu Real Madrid í kringum afhendingu Gullknattarins í vikunni.

Þessar taka upp þráðinn eftir eins árs bið
Benedikt Guðmundsson hefur valið fimmtán leikmenn fyrir leikina við Slóvakíu og Rúmeníu í undankeppni Evrópumóts kvenna í körfubolta. Fimm leikmenn hafa gengið úr skaftinu frá síðasta leik í keppninni.

Haraldur hættir hjá Víkingi
Eftir að hafa verið framkvæmdastjóri Víkings í fjórtán ár hefur Haraldur Haraldsson ákveðið að hætta hjá félaginu.

Áfall fyrir Cloé Eyju og enginn fótbolti næstu mánuði
Kanadadíska-íslenska knattspyrnukonan Cloé Eyja Lacasse varð fyrir miklu óláni í bandarísku kvennadeildinni á dögunum.

Jürgen Klopp: Ég vil ekki stíga á neinar tær
Jürgen Klopp hefur komið fram og varið þá ákvörðun sína að taka við starfi hjá Red Bull fótboltasamsteypunni. Hann hefur fengið hörð viðbrögð og mikla gagnrýni í heimalandi sínu ekki síst frá stuðningsmönnum hans gömlu félaga í heimalandinu, Mainz og Dortmund.

Svona endurheimti Breiðablik titilinn: Upprisan, kaflaskilin og breyttar áherslur
Eftir að hafa verið 25 stigum á eftir Víkingi í fyrra tryggði Breiðablik sér Íslandsmeistaratitilinn eftir sannfærandi sigur í úrslitaleik liðanna á sunnudaginn. En hvernig fóru Blikar að því að endurheimta titilinn? Tímabilið 2024 í Kópavoginum er meðal annars saga af upprisu leikmanna, lykilbreytingu á miðju tímabili, breyttum áherslum og draumaendi.

Alexander endurnýjar kynnin við Óskar
Knattspyrnumaðurinn Alexander Helgi Sigurðarson hefur skrifað undir samning til þriggja ára við KR. Hann kemur til félagsins frá Breiðabliki.

„Gaman að fá að vera partur af stóru skrefi í íslenskri fótboltasögu“
Glódís Perla Viggósdóttir segist vera stolt af því að vera valin besti miðvörður heims en að sama skapi ekki hrifin af einstaklingsverðlaunum í knattspyrnu. Fótbolti sé hópíþrótt.

Lítur út fyrir að United þurfi að bíða eftir Amorim
Manchester United stefndi á það að Ruben Amorim myndi stýra liðinu á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Það er hins vegar mjög ólíklegt úr þessu.

Liverpool, Arsenal og Manchester United sluppu við hvert annað
Sextán liða úrslit enska deildabikarsins í fótbolta kláruðust í gærkvöldi þar sem lið eins og Manchester City og Chelsea duttu út úr keppni. Það var líka dregið í átta liða úrslitin.