Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs
Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Snör handtök lögreglu eru talin hafa skipt sköpum í Höfðatorgsmálinu svokallaða. Mannslíf var í húfi eftir að ekið var kröftuglega á karlmann og hann síðar stunginn þar sem hann lá í blóði sínu. Maðurinn er kominn úr lífshættu. Ellefu hafa verið handteknir í tengslum við málið. Innlent 26.3.2026 18:44
Áfram í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar í Túnunum Karlmaður var úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. apríl í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag í tengslum við rannsókn á alvarlegri líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík í síðustu viku. Innlent 25.3.2026 15:18
Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að ekkert bendi til þess að menn, sem handteknir voru í tengslum við alvarlega líkamsárás í Túnunum í Reykjavík í síðustu viku hafi tengsl við Hamas-samtökin þvert á það sem fullyrt var í umfjöllun Morgunblaðsins í morgun. Innlent 25.3.2026 12:15
Sýnileiki öryggisgæslu aukinn eftir hópaárás Sýnileiki öryggisgæslu í bílakjallara Höfðatorgs hefur verið aukinn eftir hópárás sem átti sér stað í kjallaranum aðfaranótt 17. mars. Innlent 24.3.2026 11:24
Einn handtekinn til viðbótar í tengslum við hópárásina Annar maður var handtekinn í gær eftir alvarlega hópárás í bílakjallari undir Höfðatorgi í Reykjavík. Hann hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðahald. Innlent 21.3.2026 16:07
Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fjórum karlmönnum sem handteknir voru í tengslum við alvarlega hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi í Reykjavík hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Einn er enn í gæsluvarðhaldi en ekki var farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum. Innlent 20.3.2026 21:44
Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi er rannsökuð sem tilraun til manndráps en þar var eggvopni og kylfum beitt ásamt því að ekið var á einn brotaþola. Samkvæmt heimildum fréttastofu var um uppgjör í undirheimunum að ræða en tuttugu til þrjátíu manns komu saman í bílastæðahúsinu. Innlent 18.3.2026 21:01
Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Alvarleg hópárás sem átti sér stað í bílakjallara í Borgartúni aðfaranótt þriðjudags er rannsökuð sem tilraun til manndráps og er komin á borð miðlægrar deildar lögreglunnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu var eggvopni og kylfum beitt við árásina. Innlent 18.3.2026 12:00
Lífshættuleg líkamsárás: Fimm úrskurðaðir í gæsluvarðahald Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði fimm karla í gæsluvarðhald í gærkvöldi, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fjórir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudags og sá fimmti til miðvikudags í næstu viku. Innlent 18.3.2026 08:22
Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Sjömenningarnir sem handteknir voru í nótt í tengslum við stórfellda líkamsárás verða yfirheyrðir í dag. Gera má ráð fyrir að yfirheyrslurnar taki nokkurn tíma og standi jafnvel yfir fram á kvöld, að sögn lögreglu. Innlent 17.3.2026 10:51
Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Sjö menn voru handteknir í póstnúmerinu 105 í gærkvöldi eða nótt, í tengslum við meiriháttar líkamsárás. Allir voru vistaðir í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. Þá voru tveir aðrir handteknir í tengslum við aðrar líkamsárásir, báðir í annarlegu ástandi. Innlent 17.3.2026 06:15