Málefni heimilislausra

Einn deyr úr ofneyslu á tíu klukkustunda fresti í San Francisco
Alls létust 200 einstaklingar af völdum ofneyslu fíkniefna í San Francisco fyrstu þrjá mánuði ársins en um er að ræða 41 prósent aukningu frá fyrra ári. Þetta jafngildir því að einstaklingur látist úr ofneyslu á um tíu klukkustunda fresti.

„Þetta er bara að fara að versna og þetta mun versna hratt“
Yfirstandandi ópíóðafaraldur mun versna hratt ef ekki er brugðist við honum, segir deildarstjóri málaflokks heimilislausra hjá Reykjavíkurborg. Hún segir núverandi refsistefnu auka á jaðarsetningu notenda, meðferðarmöguleikar séu fáir og einhæfir og að umbylta þurfi núverandi löggæslustefnu.

Hrafnarnir mínir
Ég hef rætt um hvað stuðningur ykkar kæru Íslendingar hefur skipt sköpum á þeirri vegferð sem ég ákvað að halda varðandi heimilislausa og fíknsjúkdóminn.

Opið bréf til íslensks almennings
Kæru Íslendingar og samlandar. Mig langar að hefja þetta bréf á því að óska öllum gleðilegrar hátíðar. Það er von mín að flestir séu að eiga ánægjulegar stundir í faðmi fjölskyldu og ástvina. Það eru lífsgæði sem ég óska öllum og samgleðst innilega fyrir hönd ykkar að eiga í hlý hús að venda og í faðm þeirra sem elska ykkur.

Erfitt að meta þjónustuþörfina í gistiskýlum og þörf á fleiri úrræðum
Fjölgað hefur í hópi heimilislausra með fjölþættan vanda sem leita í gistiskýli borgarinnar en takmarkað er hversu mikla þjónustu hægt er að veita þar. Framkvæmdastjóri hjá borginni segir þörf á fleiri úrræðum og kallar eftir aðkomu ríkis og sveitarfélaga. Stórefla þurfi heilbrigðisþjónustu fyrir hópinn en heilbrigðisráðherra boðar meðal annars varanlegt neyslurými.

Heilbrigðisráðherra telur þörf á morfínklíník
Heilbrigðisráðherra telur þörf á skaðaminnkandi úrræði þar sem fólk með alvarlegan vímuefnavanda getur fengið og notað morfín undir eftirliti heilbrigðisstarfsfólks. Hann mun stofna starfshóp um aðgerðaáætlun fyrir hópinn og vonast til að geta lagt afraksturinn fyrir þingið næsta vetur.

Smáhýsi í garðinum mínum!
Kæru íbúar í Laugardal. Nú er búið að koma fyrir Húsnæði fyrst (e. Housing first) húsum í útjaðri hverfisins og munu þau fyrr en síðar verða heimili fólks sem bíður óþreyjufullt eftir að fá þak yfir höfuðið. Vonin er sú að þessi nýju heimili komi samfélaginu öllu til góða með því að útvega öruggt húsnæði fyrir þau sem eru í neyð.

Missti allt í bruna og fær enga hjálp: „Mig langar ekki að vera fastur þar sem ég kemst ekkert áfram“
Heimilislaus karlmaður sem missti allt sitt í bruna í smáhýsi á Granda í síðasta mánuði segist ekki eiga í nein hús að venda og upplifa mikið óöryggi. Hann þrái að vinna í sínum málum en komist ekki áfram þar sem úrræðaleysið sé algjört. Öruggt húsnæði myndi gera honum kleift að fá átta ára son sinn í heimsókn, vinna í eigin bata og fara í skóla.

Óraunhæft að Reykjavíkurborg leysi ein úr vandanum
Það er óraunhæft að leggja þá kröfu á Reykjavíkurborg að halda nánast ein úti þjónustu við heimilislausa, segir sérfræðingur í skaðaminnkun. Yfirfull neyðarskýli sýni fram á brýna þörf á fleiri búsetuúrræðum og ríkið þurfi að koma að borðinu til þess að bæta stöðuna.

Smáhýsin fimm komin upp í Laugardal
Fimm smáhýsum fyrir heimilislausa var komið upp á svæði milli Engjavegs og Suðurlandsbrautar í Reykjavík á dögunum. Framkvæmdir hafa staðið yfir á svæðinu síðustu mánuði, en húsin sjálf voru flutt á staðinn um miðjan mánuðinn.

Rannsaka eigi gagnsemi þess að gefa veikasta hópnum morfín
Hrinda ætti af stað rannsókn hér á landi þar sem fólki með alvarlegan og langvarandi ópíóíðavanda væri gefið morfín undir eftirliti heilbrigðisstarfsfólks, að mati sérfræðings í skaðaminnkun. Sambærileg viðhaldsmeðferð hafi gefið mjög góða raun í nágrannalöndum.

Ísland aftarlega á merinni þegar kemur að skaðaminnkandi stefnu
Ísland er aftarlega á merinni þegar kemur að skaðaminnkandi stefnu og úrræðum fyrir heimilislausa að sögn talskonu Rótarinnar. Mikil endurskoðun hafi þó átt sér stað í málaflokknum síðustu ár.

„Hann var gjörsamlega búinn að berja allt vit úr mér og lífsvilja“
„Fólk gerir sér ekki grein fyrir hve þetta er ógeðslega erfitt. Endalaust í þessu harki einhvern veginn, vera í morfínfráhvörfum, bara ógeðslega lasin úti í kuldanum.“

„Gætu losnað undan hælnum á þeim sem útvegar efnin“
Fleiri konur og með þyngri vímuefnavanda leita nú í Konukot en áður. Forstöðukona segir þær lifa undir hælnum á fólki sem útvegar þeim efnin og telur brýna þörf á sérhæfðari úrræðum og nýrri nálgun gagnvart fólki með fíknisjúkdóm.

„Við erum að sjá að fólk er að deyja“
Það er lífsnauðsynlegt að opna dagsetur fyrir heimilislausa þar sem menn geta leitað skjóls, ræktað áhugamálin sín og fengið viðeigandi aðstoð. Þetta segir foringi hjá Hjálpræðishernum sem gagnrýnir stjórnmálamenn fyrir seinagang.

Þarf stórfellt átak ríkis og sveitarfélaga fyrir heimilislausa
Það vantar stórfellt og samræmt átak ríkis og sveitarfélaga í málefnum heimilislausra að mati hjúkrunarfræðings.

„Mig langar ekki að vera skaðvaldur í þjóðfélaginu“
Í Kompás kynnumst við Maríönnu og Ragnari. Fáum innsýn í þeirra daglega líf á götunni og lífsbaráttuna sem einkennir hvern einasta dag.

Kalla eftir upplýsingum um hvernig leiguverð í smáhýsum er ákveðið
Formaður Velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir þau hafa kallað eftir upplýsingum frá Félagsbústöðum um leiguverð í smáhýsum fyrir heimilislausa sem bæði íbúar og fulltrúi stjórnarandstöðunnar segja of hátt. Húsnæðisstuðningur komi þó upp á móti og oft greiði fólk ekki meira en 50 þúsund á mánuði. Ýmislegt er til skoðunar og gert er ráð fyrir að auka þurfi stuðning almennt.

Þjónusta við íbúa félagslegs húsnæðis í borginni „eitthvað sem þarf að laga algjörlega“
Borgarfulltrúi Sósíalista segir ljóst að þjónusta við íbúa í húsnæðisúrræðum á vegum Reykjavíkurborgar sé langt frá því að vera viðunandi. Hún undrast hátt leiguverð sem þjónustunotendur eru rukkaðir um og hyggst knýja á um úrbætur.

„Það bara flytja inn á mann menn hérna“
Maður sem býr í smáhýsi á vegum Reykjavíkurborgar segir aðbúnað þar ekki góðan. Veturinn, sem er óvenjulega kaldur, hafi verið mjög erfiður. Dæmi séu um að íbúar hafi hrakist burt af heimilum sínum því aðrir hreinlega ryðjist inn á þá.

Koma á fót nýjum áfangaheimilum og vilja fækka neyðarskýlum
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að koma á fót nýju millistigs úrræði fyrir heimilislausa, meðal annars í formi áfangahúsnæðis. Markmiðið er að takmarka þann tíma sem fólk dvelur í neyðarskýlum en formaður velferðarráðs vonar að í framtíðinni verði ekki þörf á slíkum skýlum. Ríki og sveitarfélög þurfi að marka sér stefnu í málaflokknum.

Árangur fyrir heimilislausar konur
Það er viðurkennt vandamál að heimilisleysi kvenna er mjög dulið sökum þess að talningar byggja einungis á gögnum um alla þá sem hafa einhvern tímann leitað í þjónustu borgarinnar vegna heimilisleysis, fyrir vikið er alltaf sá fyrirvari settur í öllum úttektum að líklegast sé umfangið vanáætlað.

Neyðarskýlin í Reykjavík verða opin í dag og á miðvikudag
Dagopnun verður í neyðarskýlunum í Reykjavík í dag. Þau verða jafnframt opin á miðvikudag, gangi spár um mikinn kulda eftir. Skýlin hafa verið opin um helgina.

Sólarhringsopnun í neyðarskýlum vegna fimbulkulda
Sólarhringsopnun verður í neyðarskýlum Reykjavíkurborgar um helgina vegna veðurs. Mikill kuldi er í kortunum og frost nær tveggja staða tölu í Reykjavík samkvæmt spám.

Vilja frekar vera í fangelsi en á götunni
Dæmi eru um að fangar vilji ekki ljúka afplánun þar sem þeir hafa ekki í nein hús að venda eftir fangelsisvist. Þeir sæki því ekki um reynslulausn og í einstaka tilvikum brjóti viljandi af sér í fangelsinu til að lengja dóminn. Verkefnastjóri Rauða krossins segir skort á húsnæði stærsta vandamál sem þessi hópur fólks glími við.

Neyðarskýlin ekki lengur opin allan sólarhringinn
Reykjavíkurborg hyggst ekki halda áfram með sólarhringsopnanir neyðarskýla borgarinnar, nú þegar nýtt ár er gengið í garð og kuldakast desembermánaðar yfirstaðið.

Ragnar Erling kominn með vinnu og horfir fram á veginn
Ragnar Erling Hermannsson hefur látið að sér kveða í umræðunni um málefni heimilislausra undanfarin misseri. Hann fékk vinnu á dögunum og á nú sér þann draum heitastan að eignast heimili.

Ljóst að einhverjir kvíða því að starfsemi færist í fyrra horf
Sólarhringsopnun er í neyðarskýlum heimilislausra nú þegar viðbragðsáætlun vegna veðurs er í gildi. Upplýsingafulltrúa á velferðarsviði Reykjavíkurborgar segir gesti ánægða með að hafa aðgengi að skýlunum allan sólarhringinn og ljóst að einhverjir kvíði því að starfsemin færist í sitt fyrra horf.

Neyðarskýli borgarinnar verða opin fram yfir áramót
Sólarhringsopnun verður í neyðarskýlunum að Grandagarði og á Lindargötu til og með 1. janúar.

Ekki bara jólaboð heldur félagsskapur fyrir hátíðarnar
Á fimmta hundrað sótti jólaboð Hjálpræðishersins sem fór fram í dag. Gestir sögðust þakklátir fyrir boðið, sem sé mikilvæg samvera fyrir marga sem finna fyrir einmanaleika yfir hátíðarnar.