Vegagerð

Fréttamynd

Öku­menn séu of ó­þolin­móðir fyrir steypta vegi

Oddur Sigurðsson Hagalín, forstöðumaður stoðdeildar Vegagerðarinnar, segir að þó svo að það sé svipaður kostnaður við að steypa og malbika götur taki steypan lengri tíma að þorna og vegfarendur hafi litla þolinmæði. Hann telur mikilvægara að gera upp allt vegakerfið en að fara núna að steypa vegi.

Innlent
Fréttamynd

Þing­nefnd breytir ekki for­gangs­röð jarð­ganga

Stjórnarmeirihlutinn í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis leggur til í nefndaráliti um samgönguáætlun að staðið verði við þá forgangsröðun jarðganga að Fljótagöng verði í fyrsta sæti en Súðavíkurgöng og Fjarðagöng í öðru til þriðja sæti. Talsmaður meirihlutans segir kaflaskil framundan í samgöngumálum á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Sund­laugar opnar til mið­nættis og ótak­mörkuð bíla­stæði

Hildur Björnsdóttir tók formlega við sem borgarstjóri í dag. Hún segir starfinu fylgja mikil ábyrgð og að hún muni skera niður í stjórnkerfinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að leggja niður bæði mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráð. Í tillögum nýs meirihluta er gert ráð fyrir að lengja opnunartíma sundlauga um helgar á sumrin til miðnættis og afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. 

Innlent
Fréttamynd

Fræsa og mal­bika Vestur­lands­veg í kvöld

Frá klukkan 19 í kvöld og til tvö í nótt er stefnt á að fræsa og malbika kafla á Vesturlandsvegi við Esjumela og annan kafla við Kollafjörð klukkan 21. Hringvegurinn verður því að hluta til lokaður í kvöld og í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir

Stefnt er að því að nýi Arnarnesvegurinn um Vatnsendahæð verði opnaður að hluta í lok næsta mánaðar og vegurinn í heild í október í haust. Þetta tíu milljarða króna verkefni er stærsta vegagerð á höfuðborgarsvæðinu hin síðari ár.

Innlent
Fréttamynd

Birta um­hverfis­mat vegna Sunda­brautar fyrir lok þessa mánaðar

HMS stefnir á að birta álit sitt á umhverfismati vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar. Vegna umræðu um tafir sem orðið hafa á umhverfismati Sundabrautar vill HMS árétta að tímarammi umhverfismatsins er á forræði framkvæmdaraðila. Framvinda málsins ræðst af því hvenær hann leggur fram gögn til yfirferðar HMS.

Innlent
Fréttamynd

Ó­sáttur í bíla­lest á Suður­lands­vegi

Vegagerðin stýrir umferð á Suðurlandsvegi við Hólmsá rétt fyrir utan Reykjavík vegna vegaframkvæmda. Ökumaður er verulega ósáttur við að sitja fastur í umferð og telur verk sem þessi mega vinna í næturvinnu.

Innlent
Fréttamynd

Þetta er stefna flokkanna í sam­göngu­málum í Reykja­vík

Samgöngusáttmáli sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins er í algleymingi í stefnum flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík, ýmist stuðningur við sáttmálann, andstaða eða tillögur að endurskoðun hluta hans. Vísir tók saman stefnu flokkanna í málaflokknum en áhersla á bílastæði fer þar mikinn.

Innlent
Fréttamynd

Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár

Stefnt er á að kjarnaborunum - í tengslum við jarðgangagerð til Vestmannaeyja - ljúki í lok árs. Framkvæmdastjóri Eyjaganga er ekki í vafa um að göngin séu arðbær og segir að ef allt gangi að óskum verði hægt að keyra á milli lands og eyja eftir tíu ár.

Innlent
Fréttamynd

Hættum beit í bænum

Í Hafnarfirði eru tvö beitarhólf – annars vegar á Krýsuvíkurheiði sunnan Suðurstrandarvegar, liðlega12 km2, og hins vegar á sveitarfélagamörkum Hafnarfjarðar og Grindavíkur sunnarlega í Sveifluhálsi, um þrisvar sinnum stærra eða liðlega 35 km2.

Skoðun
Fréttamynd

Tvö­faldur verð­munur á Súðavíkurgöngum

Tólf til fjórtán milljörðum króna munar í kostnaði eftir því hvaða leið verður valin fyrir jarðgöng milli Súðavíkur og Ísafjarðar. Nokkrir valkostir hafa verið til skoðunar um hvar göngin eigi að liggja. Í tillögu að nýrri samgönguáætlun eru þau í öðru til þriðja sæti ásamt Fjarðagöngum fyrir austan en á eftir Fljótagöngum.

Innlent