

Teitur Örlygsson nýtti tækifærið í Bónus Körfuboltakvöldi og spurði Pavel Ermolinskij hvaða íslenska félag, sem hann spilaði með eða þjálfaði, honum þætti vænst um.
Atli Aðalsteinsson mun ekki endurnýja samning sinn sem þjálfari karlaliðs Skallagríms í körfuboltanum og aðstoðarmaður hans Hafþór Ingi Gunnarsson er einnig á förum.
Þór vann Skallagrím 85-80 í oddaleik í 8-liða úrslitum 1. deildar karla í körfubolta.
Hamar tryggði sér í kvöld sæti í Subway deild karla á næstu leiktíð með sigri á Skallagrími í oddaleik. Lokatölur í Hveragerði 93-81 og Hamar komið aftur upp í deild þeirra bestu.
Hamar og Skallagrímur mætast í oddaleik um sæti í Subway deild karla í körfubolta á næstu leiktíð. Spennan er gríðarleg fyrir leik kvöldsins en rimma liðanna hefur verið hreint út sagt mögnuð.
Stuðningsmenn Skallagríms tóku upp dagblöð og þóttust ekki vera að fylgjast með þegar leikmenn Hamars gengu inn á völlinn fyrir leik liðsins við Skallagrím í úrslitakeppni fyrstu deildar í körfubolta. Áhorfandi á leiknum vakti athygli á gjörningnum í Facebook-færslu sem hefur þegar verið deilt 345 sinnum.
Álftanes mun leika í efstu deild karla í körfubolta á næsta tímabili í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir öruggan 13 stiga sigur gegn Skallagrím í kvöld, 96-83.
Bikarmeistarar Stjörnunnar urðu í dag fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum VÍS-bikars karla í körfubolta er liðið vann sex stiga sigur á 1. deildarliði Skallagríms, 98-92.
Dómarinn Davíð Guðmundsson segist hafa orðið fyrir svo miklu aðkasti af hálfu fulltrúa FC Árbæjar, eftir að hafa dæmt leik liðsins gegn Skallagrími í sumar, að hann hafi ekki þorað að ferðast til Reykjavíkur og átt erfitt með einbeitingu í vinnu.
Þá halda 16-liða úrslitin í Kviss áfram en á laugardagskvöldið mættust KA og Skallagrímur í hörkuviðureign.
Forráðamenn knattspyrnuliðsins FC Árbæjar ætla að leita réttar síns hjá KSÍ eftir að hafa komist að því að dómari í fyrsta leik þeirra í 4. deildinni í sumar, gegn Skallagrími í Borgarnesi í gærkvöld, hefur leikið með Skallagrími síðustu ár.
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir varð bikarmeistari með Skallagrími í febrúar árið 2020. Þegar hún gekk í raðir Fjölnis í haust taldi hún engar líkur að félagið myndi draga sig úr keppni í Subway-deild kvenna í körfubolta skömmu síðar.
Skallagrímur hefur ákveðið að draga lið sitt úr keppni í Subway-deild kvenna í körfubolta. Tilkynning þess efnis birtist á Facebook-síðu félagsins fyrr í kvöld.
Fjölnir vann sinn fjórða leik í röð þegar liðið mætti Skallagrími í Borgarnesi. Fjölnir fór illa með Skallagrím strax í fyrri hálfleik og var 34 stigum yfir í hálfleik. Fjölnir vann leikinn á endanum 70-105.
Embla Kristínardóttir, leikmaður Skallagríms, ber Goran Milijevic, fyrrverandi þjálfara liðsins, ekki vel söguna í hlaðvarpsþættinum Undir körfunni.
Öllum leikjum dagsins í Subway-deild kvenna er nú lokið. Í síðustu tveimur leikjunum fór það svo að Grindavík lagði nágranna sína í Keflavík og Breiðablik sá til þess að Skallagrímur er enn án stiga.
Botnlið Subway-deildar kvenna, Skallagrímur, hafði ekki erindi sem erfiði þegar þær sóttu Íslandsmeistara Vals heim í Origo höllina í kvöld. Valskonur lentu fjórum stigum undir í blábyrjun leiksins en eftir að hafa náð vopnum sínum var stigið á bensíngjöfina og keyrt fram úr Skallagrím. Öruggur sigur Vals staðreynd þar sem lokatölur urðu 92-47.
Barátta gulu liðanna í Subway-deild kvenna í körfubolta fór fram í Grindavík í kvöld þar sem Skallagrímur var í heimsókn. Fór að það svo að heimakonur unnu einkar sannfærandi sigur, lokatölur 88-61.
Nebojsa Knezevic hefur verið ráðinn þjálfari Skallagríms í Subway-deild kvenna í körfubolta.
Goran Miljevic er hættur sem þjálfari kvennaliðs Skallagríms í körfubolta. Hann stýrði því í síðasta sinn þegar það tapaði fyrir Njarðvík, 31-86, á heimavelli í Subway-deildinni í gær.
Njarðvík vann stórsigur á Skallagrím í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld en lokatölur leiksins urðu 31-86
Fjölniskonur unnu öruggan sigur á Skallagrími í Subway deildinni í körfubolta í Dalhúsum í kvöld.
Keflavík lagði Grindavík með 20 stiga mun er liðin mættust í Subway-deild kvenna í kvöld, lokatölur 105-85. Þá vann Breiðablik 30 stiga sigur á Skallagrími í Borgarnesi.
Óhætt er að segja leikmenn Skallagríms hafi ekki fundið sóknartaktinn gegn Haukum í Subway-deild kvenna í gær. Borgnesingar skoruðu aðeins 29 stig í leiknum, þar af bara eitt í 2. leikhluta.
Haukar tóku á móti Skallagrím í þriðju umferð Subway-deildar kvenna í kvöld. Óhætt er að segja að yfirburður Haukakvenna hafi verið algjörir, en lokatölur urðu 93-29.
Njarðvíkingar og Valskonur unnu sigra í Subway-deild kvenna í kvöld. Njarðvíkingar fengu Fjölniskonur í heimsókn og unnu tíu sti-ga sigur, 71-61, og á sama tíma unnu Valskonur 22 stiga útisigur gegn Skallagrími, 92-70.
Formaður KKÍ segir vandamál íþróttahreyfingarinnar kristallast í því neyðarástandi sem nú ríkir hjá Skallagrími sem gæti þurft að draga körfuboltalið sín úr keppni vegna skorts á sjálfboðaliðum og fjárhagslegum styrkjum. Ekkert lið kæmi í stað Skallagríms í úrvalsdeild kvenna ef liðið hætti við keppni og ekkert lið myndi þá falla í vor.
Körfuknattleiksdeild Skallagríms berst nú fyrir tilverurétti sínum. Boðað hefur verið til neyðarfundar til að ræða stöðuna sem upp er komin. Svo gæti farið að draga þurfi lið Skallagríms úr leik á Íslandsmótinu.
Fjölnir hefur heldur betur styrkt sig fyrir komandi tímabil í efstu deild kvenna í körfubolta. Hin 32 ára gamla Sigrún Sjöfn Ámundadóttir mun leika með liðinu á komandi leiktíð.
Þrír leikir fóru fram í Domino’s deild kvenna í kvöld. Haukar höfðu betur gegn Keflavík, Fjölnir burstaði KR og Breiðablik vann góðan sigur á Skallagrím á heimavelli.