ÍA

Markaregn og þrenna er ÍA vann botnslaginn
ÍA vann mikilvægan 4-3 sigur er liðið tók á móti Fylki í botnslag Lengjudeildar kvenna í kvöld.

Stúkan: Átti annað mark ÍA að standa og hver skoraði?
ÍA sótti 0-2 sigur gegn Vestra í fyrsta leiknum undir stjórn Lárusar Orra Sigurðssonar. Vestramenn hleyptu þar inn marki sem þeir eru ekki vanir að fá á sig en nokkrum spurningum er enn ósvarað, svosem hver skoraði markið og hefði það yfirhöfuð átt að standa?

Sjáðu tvennur Eiðs og Nikolaj, aukaspyrnu Kjartans og öll hin mörkin
Fjölmörg flott mörk voru skoruð í leikjunum fjórum sem fóru fram í Bestu deild karla í gærkvöldi. Þau má öll sjá í spilurunum hér fyrir neðan.

Uppgjörið: Vestri - ÍA 0-2 | Sigur í fyrsta leik Lárusar Orra
Skagamenn sóttu spútniklið Vestra heim í Bestu deildinni í fótbolta í dag, í fyrsta leik ÍA undir stjórn Lárusar Orra Sigurðssonar sem á dögunum var ráðinn í stað Jóns Þórs Haukssonar. Uppskeran var fyrsti sigur liðsins síðan 29. maí.

Hverju breytir Lárus Orri hjá Skagaliðinu?
Lárus Orri Sigurðsson stýrir Skagamönnum í fyrsta sinn í dag þegar liðið mætir á Kerecisvöllinn á Ísafirði.

Furðar sig á fjarveru Lárusar Orra: „Finnst þetta skrítið“
Baldur Sigurðsson, sérfræðingur í Stúkunni, furðaði sig á fjarveru nýráðins þjálfara ÍA, Lárusar Orra Sigurðssonar í leik Skagamanna gegn Stjörnunni um síðastliðna helgi sem tapaðist 3-0. Ef að Lárus, sem var sérfræðingur í Stúkunni áður, hefði verið í setti hefði hann spurt sig hvaða kjaftæði væri í gangi.

Sjáðu mörkin úr Bestu þar sem Gylfi Þór fór mikinn og glæsimark var skorað
Sjö mörk voru skoruð í þremur leikjum í Bestu deild karla í fótbolta í gær þegar að 12.umferð fór af stað. Gylfi Þór Sigurðsson kom að báðum mörkum Víkings Reykjavíkur fyrir norðan, glæsimark leit dagsins ljós á Kaplakrikavelli og vandræði Skagamanna halda áfram.

Uppgjör: ÍA-Stjarnan 0-3 | Stjarnan upp í þriðja sætið eftir sigur á botnliðinu
Vandræði Skagamanna halda áfram en þeir steinlágu 3-0 á heimavelli á móti Stjörnumönnum í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld.

Fékk símtal á fimmtudaginn og komst að samkomulagi sólarhring síðar
Lárus Orri Sigurðsson var ráðinn þjálfari ÍA í gær eftir fremur stuttar samningaviðræður við stjórnarmenn félagsins. Hann tekur við uppeldisliðinu í erfiðri stöðu, á ærið verkefni fyrir höndum þar og segir blendnar tilfinningar fylgja því að kveðja samstarfsfélaga í Stúkunni.

Lárus sagði leikmenn ÍA hætta og stjórnendur sofa á verðinum
„Það kæmi mér á óvart ef þeir myndu fara aftur í Jóa Kalla,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson í Stúkunni á mánudagskvöld, þegar rætt var um þjálfaramálin hjá ÍA. Nú hefur hann verið ráðinn þjálfari liðsins.

Lárus Orri stýrir ÍA út tímabilið
Lárus Orri Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs ÍA í fótbolta. Hann tekur við starfinu af Jóni Þór Haukssyni sem lét af störfum í byrjun vikunnar.

Gæti gerst hratt hjá ÍA en varaplanið er klárt
„Þetta er bara í vinnslu,“ segir Eggert Herbertsson, formaður Knattspyrnufélags ÍA, um leitina að nýjum þjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu eftir viðskilnaðinn við Jón Þór Hauksson.

Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu
Íþróttabandalag Akraness (ÍA) og Terra hafa hafið formlegt samstarf um markvissari úrgangsflokkun á íþróttaviðburðum. Byrjað verður á Norðurálsmótinu sem fer fram á Akranesi í vikunni og um helgina.

Gummi Ben: Erum við að fara að sjá Jóhannes Karl snúa aftur í Skagaliðið?
Guðmundur Benediktsson og sérfræðingar hans í Stúkunni ræddu stóru fréttirnar frá Akranesi í nýjast þætti sínum um Bestu deildar karla í fótbolta.

Flýta tveimur leikjum KA-manna í næsta mánuði
Breyta þurfti tveimur leikjum KA í Bestu deild karla í fótbolta vegna þátttöku Akureyrarliðsins í Evrópukeppninni.

Leita arftaka Jóns Þórs: „Hann tók þessu með mikilli reisn“
Skagamenn töldu sér þann kost einn nauðugan að skipta um þjálfara vegna afar slæmrar stöðu ÍA í Bestu deild karla í fótbolta. Eggert Herbertsson, formaður Knattspyrnufélags ÍA, segir Jón Þór Hauksson hafa verið sammála því og að nú fari vinna á fullt við að finna arftaka hans.

Jón Þór hættur hjá ÍA
Jón Þór Hauksson hefur látið af störfum sem þjálfari ÍA í fótbolta karla. Í tilkynningu frá Skagamönnum segir að ákvörðunin hafi verið tekin í samráði milli Jóns Þórs og stjórnar félagsins.

Markaveisla Mosfellinga, Blikar á toppi, sigurmark Vestra og öll mörkin í Bestu
Nú er hægt að sjá öll mörkin úr fimm fyrstu leikjum elleftu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta. Fjórir leikir fóru fram í gær og einn á laugardagskvöldið.

„Hef alltof margar aðrar áhyggjur til að pæla í því“
„Svekktur, mjög svekkjandi tap. Svekkjandi niðurstaða,“ sagði Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, eftir að hans menn töpuðu 4-1 fyrir Aftureldingu í botnslag Bestu deildar karla í fótbolta. Hann hefur eðlilega áhyggjur af stöðu sinni hjá liðinu.

Uppgjörið: Afturelding - ÍA 4-1 | Mosfellingar upp úr fallsæti
Botnliðin Afturelding og ÍA mættust í kvöld í fjörugum leik á Malbikstöðinni við Varmá í Mosfellsbæ í 11. umferð Bestu deild karla. Afturelding sem hafa verið öflugir á heimavelli í sumar sigruðu leikinn 4-1.

„Verður ekkert frí í þessu landsleikjahléi“
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, var brúnaþungur að loknu 3-0 tapi Skagaliðsins á móti ÍBV í 10. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta í leik liðanna á Akranesi í kvöld.

Uppgjörið: ÍA - ÍBV 0-3 | Eyjamenn fara með tvo sigurleiki á bakinu inn í hléið
ÍBV vann sannfærandi 3-0 sigur þegar liðið sótti ÍA heim á Elkem-völlinn á Akranes í tíundu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta í kvöld. Sverrir Páll Hjaltested skoraði tvö marka Eyjaliðsins sem hefur nú haft betur í tveimur deildarleikjum í röð og fikrar sig upp töfluna á meðan Skaginn situr fastur á botninum.

Bjarki var næstum því farinn í Val áður en gullöld ÍA hófst
Sumarið 2009 lék Bjarki Gunnlaugsson einn leik með Val. Litlu munaði að hann færi til félagsins fyrir tímabilið 1991, þegar gullöld ÍA á 10. áratug síðustu aldar hófst, eftir að hafa lent upp á kant við Guðjón Þórðarson, nýráðinn þjálfara ÍA.

Uppgjörið: Breiðablik - ÍA 1-4 | Skagamenn völtuðu yfir Blika
ÍA vann sannfærandi sigur, 1-4, þegar liðið sótti Breiðablik heim í níundu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld.

Sjáðu mörkin úr endurkomu Vestra og þrumufleyg Hallgríms
Heimasigrar unnust í öllum fjórum leikjum gærdagsins í Bestu deild karla. Vestri, Víkingur, Valur og KA unnu öll sína leiki.

Uppgjörið: Víkingur - ÍA 2-1 | Víkingar tylltu sér á toppinn
Víkingur vann 2-1 gegn ÍA á Víkingsvelli í 8. umferð Bestu deildar karla. Bæði mörk Víkinga voru keimlík og markið sem þeir fengu á sig var afar klaufalegt. Víkingar tylla sér á toppinn með sigrinum en Skagamenn eru í neðsta sæti deildarinnar.

Jón Þór: Höldum áfram að fá á okkur ódýr mörk
Skagamenn hafa fengið á sig 18 mörk í fyrstu sjö leikjum sínum í Bestu-deild karla í fótbolta en eftir 3-1 tap liðsins gegn FH í sjöundu umferð deildarinnar uppi á Skipaskaga í dag er liðið í næstneðsta sæti deildarinnar með sex stig.

Uppgjörið: ÍA - FH 1-3 | FH spyrnti sér af botninum með sigri á Skaganum
FH kom sér upp úr botnsæti Bestu-deildar karla í fótbolta með 3-1 sigri sínum gegn ÍA í sjöundu umferð deildarinnar á Elkem-vellinum á Akranesi í kvöld. Kjartan Kári Halldórsson skoraði tvö marka FH í leiknum en þetta voru fyrstu mörk hans í deildinni í sumar.

„Við verðum bara að horfast í augu við sannleikann“
Skagamenn fengu heldur betur skell á Hlíðarenda í kvöld þegar þeir heimsóttu Valsmenn í sjöttu umferð Bestu deild karla. Valsmenn kjöldrógu Skagamenn og fóru með sannfærandi 6-1 sigur af hólmi. Þung niðurstaða fyrir gestina.

Uppgjörið: Valur - ÍA 6-1 | Valsmenn tóku pirringinn út á Skagamönnum
Valur tók á móti ÍA í sjöttu umferð Bestu deild karla á N1 vellinum á Hlíðarenda í kvöld. Eftir vonbrigðar tap í síðustu umferð mættu Valsmenn heldur betur einbeitir til leiks í kvöld gegn Skagamönnum og fóru með öruggan sigur af hólmi 6-1.