Stjarnan

Þetta var skemmtilegur leikur og erfiður leikur
„Ég er stolt og glöð. Frábær sigur og ég er ótrúlega ánægð að hafa klárað þennan leik. Þetta var skemmtilegur leikur og erfiður leikur en rosalega sterkt að klára með sigri,“ sagði Rakel Dögg Bragadóttir, þjálfari Stjörnunnar eftir sigur á ÍBV í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - ÍBV 28-26 | Hörkuleikur í Mýrinni
Stjarnan vann góðan tveggja marka sigur á ÍBV í Mýrinni í dag og kom þar með í veg fyrir að Eyjastúlkur kæmust í 3. sæti Olís-deildarinnar. Lokatölur 28-26.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Stjarnan 30-30 | Jafntefli í hörkuleik í Krikanum
FH og Stjarnan mættust í hörkuleik í Olís-deild karla í kvöld. Einar Örn Sindrasson jafnaði leikinn á síðustu sekúndunni og staðan því 30-30 í leikslok.

Umfjöllun: Stjarnan - Njarðvík 82-70 | Njarðvíkingar sitja á botninum
Njarðvík situr á botni Dominos-deildar karla í körfubolta eftir 82-70 tap gegn Stjörnunni í Garðabæ í kvöld á meðan að Höttur og Haukar fögnuðu bæði sigri.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KA/Þór 25-25 | Jafnt í æsispennandi leik
Stjarnan og KA/Þór gerðu jafntefli í æsispennandi leik í Olís-deild kvenna í kvöld, lokatölur 25-25. Liðin voru að mætast í endurteknum leik eftir mistök á ritaraborði Stjörnunnar í fyrri leiknum, sem KA/Þór vann.

Mæta með óbragð í munni í Garðabæinn í kvöld
Stjarnan og KA/Þór mætast í Garðabæ í kvöld, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, í leik sem þegar er hægt að kalla umtalaðasta handboltaleik keppnistímabilsins.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 79-74 | Stjörnumenn náðu fram hefndum
Stjarnan vann góðan sigur á Grindavík í kvöld. Stjörnumenn höfðu fyrir leik kvöldsins tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum og voru að missa af toppsætunum en náðu fram hefndum eftir tapið í fyrri leiknum gegn Grindavík.

Tandri Már tekinn inn í landsliðshópinn - Stjörnumenn án hans í tveimur leikjum
Tandri Már Konráðsson, leikmaður Stjörnunnar í Olís-deild karla, var í dag kallaður upp í A-landsliðshóp karla í handbolta. Tveir leikmenn eru í sóttkví og þurftu að segja sig úr hópnum.

Pepsi Max-spáin 2021: Ætla að skína skærar en spár segja til um
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Stjörnunni 6. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar.

Patrekur: Bjöggi átti stórkostlegan leik
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var kátur eftir sigurinn góða á Aftureldingu í kvöld. Lokatölur 35-33 í miklum markaleik.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan – Afturelding 35-33 | Stjörnusókn þegar Garðbæingar hoppuðu upp um fimm sæti
Sóknarleikurinn var í fyrirrúmi þegar Stjarnan sigraði Aftureldingu, 35-33, í Olís-deild karla í kvöld. Með sigrinum hoppuðu Stjörnumenn upp um fimm sæti og í 4. sæti deildarinnar. Mosfellingar eru áfram í því þriðja.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Stjarnan 100-81 | Flugeldasýning í boði Keflavíkur
Keflavík vann sinn sjöunda leik í röð þegar liðið kjöldró Stjörnuna. Keflavík bjuggu sér snemma leiks til gott forskot sem þeir slepptu aldrei takinu á og niðurstaðan 100-81 sigur.

Keflvíkingar hafa harma að hefna eftir rassskellinn í Garðabænum í janúar
Stórleikur kvöldsins er viðureign Keflavíkur og Stjörnunnar í sautjándu umferð Domino´s deildar karla í körfubolta en heimamenn í Keflavík fara langt með að tryggja sér endanlega deildarmeistaratitilinn með sigri.

Hilmar Árni framlengir í Garðabæ
Sóknartengiliðurinn Hilmar Árni Halldórsson skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við Stjörnuna í dag. Fram undan er sjötta tímabil hans með Garðabæjarliðinu.

Gunnar Steinn semur við Stjörnuna
Handknattleiksdeild Stjörnunnar tilkynnti í dag að Gunnar Steinn Jónsson muni ganga til liðs við félagið í sumar eftir 12 ár í atvinnumennsku. Ásamt því að leika með liðinu mun hann sinna hlutverki aðstoðarþjálfara.

Stjarnan býðst til að taka þátt í ferðakostnaði en ráðning lögfræðings á ábyrgð KA/Þórs
Handknattleiksdeild Stjörnunnar segir að kvennaráð KA/Þórs eigi ekki að þurfa að sitja uppi með allan kostnað af því að endurtaka leik liðanna í Olís-deild kvenna. Stjarnan hefur boðist til að greiða helming ferðakostnaðar Akureyringa vegna leiksins.

Tekur tíma að búa til góð lið en segir Stjörnuna vinna markvisst að því
Rætt var við Patrek Jóhannesson, þjálfara Stjörnunnar, í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld en hann er með metnaðarfullt verkefni í gangi í Garðabænum. Markmiðið er að koma Stjörnunni í hóp þeirra bestu á Íslandi.

„Ekki sanngjarnt að KA/Þór sitji uppi með fjárhagslegan skaða“
KA/Þór ætti ekki að þurfa að sitja uppi með aukinn kostnað vegna ferðalags í endurtekinn leik við Stjörnuna, segir Róbert Geir Gíslason framkvæmdastjóri HSÍ. Lokaumferðirnar í Olís-deild kvenna fara ekki fram fyrr en botn fæst í málið.

Íhuga að kæra HSÍ og Stjörnuna og segja kostnaðinn nálgast milljón króna
„Mér þykir líklegt að við leitum áfram réttar okkar eftir þeim leiðum sem eru í boði,“ segir Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA. Hann telur afar ólíklegt að leikur KA/Þórs og Stjörnunnar í Olís-deild kvenna verði leikinn á ný í þessum mánuði.

Stjarnan svarar fyrir sig: Sigur fyrir handboltann
Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur sent frá sér yfirlýsingu og segir dóm áfrýjunardómstóls HSÍ, um að leikur liðsins við KA/Þór skuli endurtekinn, vera sigur fyrir handboltaíþróttina.

Íþróttinni ekki til heilla og aðför að landsbyggðinni
„Takk fyrir þetta Stjarnan og HSÍ. Þetta er og verður handboltaíþróttinni ekki til heilla,“ segir í yfirlýsingu frá KA/Þór eftir að áfrýjunardómstóll HSÍ komst að þeirri niðurstöðu að endurtaka ætti leik liðsins við Stjörnuna.

Draugamarksleikurinn verður endurtekinn
Leikur Stjörnunnar og KA/Þórs í Olís-deild kvenna í handbolta verður endurtekinn. Endurskipaður áfrýjunardómstóll staðfesti fyrri dóm dómstólsins.

Yfirlýsing Stjörnunnar vegna draugamarksins: Það sem gerist inni á vellinum á að ráða úrslitum
Handknattleiksdeild Stjörnunnar sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem farið er yfir ástæður þess að hún kærði úrslit leiksins gegn KA/Þór í Olís-deild kvenna 13. febrúar.

Stjarnan fær leikmann að láni frá Danmörku
Daninn Magnus Anbo mun leika með Stjörnunni í Pepsi Max-deild karla frá knattspyrnu í sumar. Hann kemur á láni frá danska félaginu AGF.

Telur að mótunum sé lokið ef æfingar fara ekki af stað á nýjan leik þann 15. apríl
Æfinga- og keppnisbannið sem er í gildi á Íslandi er óskiljanlegt. Sérstaklega meðan æfingar og keppni séu leyfð í sambærilegum deildum á Norðurlöndum segir Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar í Dominos-deild karla í körfubolta.

Stjarnan fær grjótharðan línumann úr Þorpinu
Stjarnan hefur samið við línumanninn Þórð Tandra Ágústsson. Hann kemur til liðsins frá Þór í sumar.

Patrekur fær aukna ábyrgð í Garðabænum
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar í Olís-deild karla í handbolta, var í dag ráðinn nýr íþrótta- og rekstrarstjóri handknattleiksdeildar Stjörnunnar. Hann mun sinna starfinu samhliða þjálfun meistaraflokks karla.

Stjarnan fær enskan vinstri bakvörð
Stjarnan tilkynnti á Facebook-síðu sinni í dag að félagið hefði sótt enskan vinstri bakvörð að nafni Oscar Borg. Mun hann leika með Stjörnunni í Pepsi Max deildinni í knattspyrnu í sumar.

Vilja að dómurinn í draugamarksmálinu verði ógildur og nýir dómarar taki það fyrir
KA/Þór hefur óskað eftir því að dómur áfrýjunardómstóls HSÍ vegna leiks liðsins gegn Stjörnunni í Olís-deild kvenna verði ógildur. KA/Þór furðar sig jafnframt á vinnubrögðum áfrýjunardómstólsins og skrifstofu HSÍ. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá KA/Þór.

„Sagði honum að ég hefði bullandi trú á honum“
„Frábær leikur hjá okkur,“ voru fyrstu viðbrögð Patreks Jóhannessonar, þjálfara Stjörnunnar, eftir fimm marka sigurinn á KA fyrir norðan í dag.