Íslenski boltinn

Sjáðu hvernig Eyjakonur kváðu falldrauginn í kútinn og öll hin mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Olga Sevcova skoraði tvö mörk í afar mikilvægum sigri ÍBV á Stjörnunni.
Olga Sevcova skoraði tvö mörk í afar mikilvægum sigri ÍBV á Stjörnunni. vísir/bára

ÍBV og Keflavík unnu afar mikilvæga sigra í botnbaráttu Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta í gær. Staða Tindastóls er hins vegar orðin afar erfið.

Þrír síðustu leikirnir í 16. umferð Pepsi Max-deildarinnar fóru fram í gær en þeir voru allir afar mikilvægir í botnbaráttunni. Mörkin úr leikjunum þremur má sjá hér fyrir neðan.

ÍBV kvað falldrauginn endanlega í kútinn með 3-1 sigri á Stjörnunni á Hásteinsvelli. Olga Sevcova skoraði tvö mörk fyrir Eyjakonur og Þóra Björg Stefánsdóttir eitt. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir gerði mark Stjörnukvenna.

Eftir sigurinn er ÍBV í 6. sæti deildarinnar með nítján stig, sex stigum frá fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir. Stjarnan er í 5. sætinu með 23 stig.

Keflavík sigraði Tindastól, 0-1, í nýliðaslag á Sauðárkróki. Aeriel Chavarin skoraði eina mark leiksins strax á 9. mínútu. 

Keflvíkingar hafa náð í sjö stig í síðustu þremur leikjum sínum og eru í 8. sæti deildarinnar með sextán stig, þremur stigum frá fallsæti. Stólarnir eru aftur á móti á botninum með ellefu stig, fimm stigum frá öruggu sæti. Tindastóll getur fallið á laugardaginn þegar liðið sækir Selfoss heim.

Þá gerðu Fylkir og Þróttur jafntefli, 1-1, í Árbænum. Hildur Egilsdóttir kom Þrótturum yfir á 24. mínútu en Helena Ósk Hálfdánardóttir jafnaði fyrir Fylkiskonur í upphafi seinni hálfleiks. Fylkir fékk vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks en Íris Dögg Gunnarsdóttir varði spyrnu Þórhildar Þórhallsdóttur. Íris Una Þórðardóttir, varnarmaður Fylkis, fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt í uppbótartíma.

Fylkir er í níunda og næstneðsta sæti deildarinnar með þrettán stig, þremur stigum frá öruggu sæti. Þróttur, sem hefur ekki tapað í síðustu fimm deildarleikjum sínum, er áfram í 3. sætinu.

Klippa: Pepsi kvk mörk gærdagsins

Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.


Tengdar fréttir

Er svo mikil­vægt fyrir þetta Eyjalið að sýna Eyja­hjarta

ÍBV vann góðan 3-1 sigur á Stjörnunni í Pepsi Max deild kvenna í gær. Ian Jeffs, þjálfari liðsins, var mjög sáttur með sigurinn en hann var hvað ánægðastur með Eyjahjartað sem lið hans spilaði með. „Eyjahjartað“ var rædd í Pepsi Max Mörkunum að leik loknum.

Umfjöllun: Tinda­stóll - Kefla­vík 0-1| Aerial Chavarin hetja Keflavíkur

Keflavíkurstúlkur hafa verið að spila vel í undanförnum leikjum. Þær hafa nú safnað sjö stigum í síðustu þremur leikjum.Aerial Chavarin gerði eina mark leiksins og reyndist hetja Keflavíkur þegar liðið vann 0-1 sigur á botnliði Tindastóls sem var fyrir leik aðeins tveimur stigum frá Keflavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×