Handbolti

Spáin fyrir Olís-deild karla 2021-22: Vonir og væntingar um toppbaráttu (4.-6. sæti)

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
ÍBV, Stjarnan og FH stefna öll hátt.
ÍBV, Stjarnan og FH stefna öll hátt. vísir/elín/hulda margrét/vilhelm

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild karla en keppni í deildinni hefst með fjórum leikjum á morgun, fimmtudaginn 16. september.

Í fyrradag tókum við fyrir liðin munu berjast um að halda sér í deildinni, í gær var kastljósinu beint að liðunum sem freista þess að komast í úrslitakeppnina og núna er komið að liðunum sem berjast um heimavallarrétt í úrslitakeppninni.

ÍBV, FH og Stjarnan eru öll vel mönnuð og ætla sér stóra hluti. ÍBV og Stjarnan komust í undanúrslit á síðasta tímabili og FH féll úr leik í úrslitakeppninni án þess að tapa leik. Eyjamenn eru svo enn ríkjandi bikarmeistarar. ÍBV og Stjarnan hafa fengið öfluga leikmenn heim úr atvinnumennsku á meðan FH missti tvo sterka leikmenn til KA.

Fyrirfram eru þessi lið svipuð að styrkleika og því enginn hægðarleikur að gera upp á milli þeirra.

ÍBV í 6. sæti: Rúnar kominn en er það nóg?

Dagur Arnarsson var langstoðsendingahæsti leikmaður Olís-deildarinnar á síðasta tímabili.vísir/hulda margrét

Á síðasta tímabil voru Eyjamenn ekkert sérstakir í deildarkeppninni, sérstaklega á heimavelli, og enduðu í 7. sæti annað árið í röð. En ÍBV í deildarkeppni og ÍBV í úrslitakeppni er tvennt ólíkt. Eyjamenn slógu FH-inga út á dramatískan hátt í átta liða úrslitunum og voru svo hársbreidd frá því að vinna Valsmenn í undanúrslitunum.

Litlar breytingar hafa orðið á liði ÍBV í sumar. Hákon Daði Styrmisson, næstmarkahæsti leikmaður Olís-deildarinnar á síðasta tímabili, er farinn í atvinnumennsku en Eyjamenn fengu Rúnar Kárason sem er kominn heim eftir langa dvöl í atvinnumennsku. Rúnar er gríðarlegur fengur fyrir ÍBV og styrkir liðið í stöðunni sem þurfti helst að styrkja. Eyjamenn fengu einnig Færeyinginn Danjál Ragnarsson sem eykur breiddina fyrir utan. Þá ætti Sigtryggur Daði Rúnarsson að stíga skref fram á við síðan í fyrra.

Vörn ÍBV var slök á síðasta tímabili en aðeins botnlið ÍR fékk á sig fleiri mörk í Olís-deildinni. Þar þarf að gera bragarbót á. Þá verður markvarslan að vera betri. Petar Jokanovic hefur átt frábæra leiki síðan hann kom til landsins, eins og í bikarúrslitaleiknum 2020, en slæmu leikirnir eru alltof margir.

Eyjamenn hafa barist um stóru titlana undanfarin ár og ætla að halda því áfram. Þeir eru allavega með lið sem enginn vill mæta þegar allt er undir.

Gengi ÍBV undanfarinn áratug

  • 2020-21: 7. sæti+undanúrslit
  • 2019-20: 7. sæti+bikarmeistari
  • 2018-19: 4. sæti+undanúrslit
  • 2017-18: Deildarmeistari+Íslandsmeistari+bikarmeistari
  • 2016-17: 2. sæti+átta liða úrslit
  • 2015-16: 4. sæti+undanúrslit
  • 2014-15: 7. sæti+átta liða úrslit+bikarmeistari
  • 2013-14: 2. sæti+Íslandsmeistari
  • 2012-13: B-deild (1. sæti)
  • 2011-12: B-deild (5. sæti)
Erlingur Richardsson er að hefja sitt fjórða tímabil við stjórnvölinn hjá ÍBV.vísir/hulda margrét

HB Statz tölurnar frá síðasta tímabili

  • Mörk skoruð - 29,0 (4. sæti)
  • Mörk fengin á sig - 28,0 (11. sæti)
  • Hlutfallsvarsla - 30,5% (9. sæti)
  • Skotnýting - 61,1 (3. sæti)
  • Tapaðir boltar - 11,6 (10. sæti)

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnir:

  • Rúnar Kárason frá Ribe-Esbjerg
  • Danjál Ragnarsson frá Neistanum

Farnir:

  • Hákon Daði Styrmisson til Gummersbach
  • Ívar Logi Styrmisson til Gróttu (á láni)
  • Fannar Þór Friðgeirsson hættur
  • Jonathan Wardelin til Danmerkur

Lykilmaðurinn

Rúnar Kárason lék lengi með íslenska landsliðinu.vísir/andri marinó

Eftir þrettán ár í atvinnumennsku er Rúnar Kárason kominn aftur heim og spilar með ÍBV næstu árin. Um er að ræða sannkallaðan hvalreka á fjörur ÍBV enda styrkir hann Eyjamenn í þeirra veikustu stöðu. Rúnar er frábær skytta með fallbyssuskot og kemur með kærkomna skotógn í útilínuna. Þá verður hann í stóru hlutverki í varnarleik Eyjaliðsins.

Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...

Ásgeir Örn Hallgrímsson fer yfir möguleika ÍBV.

Klippa: ÍBV 6. sæti

FH í 5. sæti: Kvarnast úr kjarnanum

Eins og undanfarin ár er Ágúst Birgisson í lykilhlutverki hjá FH.vísir/hulda margrét

FH hefur verið með eitt besta lið landsins undanfarin fimm ár, ekki síst vegna öflugs kjarna leikmanna sem hafa spilað lengi saman. Nú eru tveir úr þessum kjarna, Einar Rafn Eiðsson og Arnar Freyr Ársælsson, horfnir á braut og þeir skilja eftir sig stór skörð.

FH hefur lent í 2. sæti bæði tímabilin undir stjórn Sigursteins Arndal. Á síðasta tímabili féll liðið svo á grátlegan hátt úr leik fyrir ÍBV í átta liða úrslitunum á færri mörkum skoruðum á útivelli.

Þrátt fyrir brotthvarf Einars Rafns og Arnars Freys verða FH-ingar sterkir þótt þeir standi allra bestu liðum landsins aðeins að baki. Litháíska skyttan Gytis Smantauskas lítur vel út en FH hefði kannski þurft aðeins meiri liðsstyrk. Mikið mun mæða á Agli Magnússyni en heilsan á honum er alltaf stórt spurningarmerki.

Phil Döhler átti fínt tímabil í fyrra en vörnin hjá FH var ekki jafn öflug og vanalega og aðeins tvö lið fengu á sig fleiri mörk í Olís-deildinni. Sigursteinn horfir væntanlega aðallega í að laga varnarleikinn því sóknarleikurinn var góður og ekkert lið skoraði fleiri hraðaupphlaupsmörk. Heimavöllurinn gaf vel í fyrra en FH tapaði aðeins einum leik í Kaplakrika og bara Haukar fengu fleiri stig á heimavelli.

Gengi FH undanfarinn áratug

  • 2020-21: 2. sæti+átta liða úrslit
  • 2019-20: 2. sæti
  • 2018-19: 4. sæti+átta liða úrslit+bikarmeistari

  • 2017-18: 3. sæti+úrslit

  • 2016-17: Deildarmeistari+úrslit

  • 2015-16: 6. sæti+átta liða úrslit

  • 2014-15: 4. sæti+átta liða úrslit+bikarúrslit

  • 2013-14: 4. sæti+undanúrslit

  • 2012-13: 2. sæti+undanúrslit

  • 2011-12: 2. sæti+úrslit

Egill Magnússon hefur verið meiðslum hrjáður síðustu ár en þegar hann er heill standast fáar skyttur í Olís-deildinni honum snúning.vísir/hulda margrét

HB Statz tölurnar frá síðasta tímabili

  • Mörk skoruð - 29,5 (2. sæti)
  • Mörk fengin á sig - 27,6 (10. sæti)
  • Hlutfallsvarsla - 31,9% (4. sæti)
  • Skotnýting - 61,1% (3. sæti)
  • Tapaðir boltar - 10,3 (6. sæti)

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnir:

  • Gytis Smantauskas frá Dragunas
  • Svavar Ingi Sigmundsson frá KA

Farnir:

  • Einar Rafn Eiðsson til KA
  • Benedikt Elvar Skarphéðinsson til Víkings
  • Arnar Freyr Ársælsson til KA
  • Gísli Jörgen Gíslason til Víkings
  • Birkir Fannar Bragason hættur

Lykilmaðurinn

Ásbjörn Friðriksson kann fátt betur en að stjórna handboltaliði.vísir/vilhelm

Gæðastjórinn í Kaplakrika undanfarin ár. Ásbjörn Friðriksson er einn allra besti leikmaður sem hefur spilað fyrir FH og hefur átt risastóran þátt í öllum titlunum sem liðið hefur unnið á þessari öld. Fluglæs á leikinn, skynsamur og gerir aðra leikmenn betri. Ásbjörn skilar alltaf gommu af mörkum sjálfur og er frábær vítaskytta. Hefur hins vegar átt það til að gefa eftir þegar líða tekur á veturinn.

Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...

Theodór Ingi Pálmason fer yfir möguleika FH.

Klippa: FH 5. sæti

Stjarnan í 4. sæti: Patti búinn að hleypa lífi í draugahúsið

Stjörnumenn brutu blað í sögu félagsins þegar þeir komust í undanúrslit úrslitakeppninnar á síðasta tímabili.vísir/elín

Patrekur Jóhannesson kom með ferska vinda inn í Stjörnuna á síðasta tímabili. Liðið lenti í 5. sæti, komst í undanúrslit í fyrsta sinn í sögunni og var glettilega nálægt því að fara í úrslit. Og áhuginn á liðinu í Garðabænum jókst og það var ekki jafn tómlegt um að litast í stúkunni í TM-höllinni og undanfarin ár.

Patrekur hefur gefið sér þrjú ár til að koma Stjörnunni á toppinn og liðið sem hann teflir fram núna virðist vera sterkara en í fyrra. Í því samhengi munar mestu um Gunnar Stein Jónsson sem er kominn aftur á klakann eftir að hafa leikið sem atvinnumaður erlendis síðan 2008. 

Arnór Freyr Stefánsson kominn í markið og mun létta undir með hinum bráðefnilega Adam Thorstensen. Þá styrkir Þórður Tandri Ágústsson línustöðuna umtalsvert. Síðan tók Björgvin Hólmgeirsson skóna af hillunni og miðað við frammistöðu hans í bikarleiknum gegn Gróttu gleymdi hann engu á þeim fjóru vikum sem hann var hættur.

Stjörnumenn stefna hátt og með þennan mannskap og Patrek við stjórnvölinn er innistæða til bjartsýni í Garðabænum. Búið er að leggja grunninn og nú þarf bara að byggja ofan á hann.

Gengi Stjörnunnar undanfarinn áratug

  • 2020-21: 5. sæti+undanúrslit
  • 2019-20: 8. sæti+bikarúrslit
  • 2018-19: 8. sæti+átta liða úrslit
  • 2017-18: 7. sæti
  • 2016-17: 9. sæti
  • 2015-16: B-deild (1. sæti)
  • 2014-15: 9. sæti
  • 2013-14: B-deild (2. sæti)
  • 2012-13: B-deild (2. sæti)
  • 2011-12: B-deild (3. sæti)
Björgvin Hólmgeirsson lék mjög vel á síðasta tímabili og ákvað að taka slaginn í vetur eftir að hafa hætt í mánuð.vísir/hulda margrét

HB Statz tölurnar frá síðasta tímabili

  • Mörk skoruð - 28,5 (5. sæti)
  • Mörk fengin á sig - 27,5 (9. sæti)
  • Hlutfallsvarsla - 28,9% (10. sæti)
  • Skotnýting - 60,8% (5. sæti)
  • Tapaðir boltar - 9,2 (3. sæti)

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnir:

  • Gunnar Steinn Jónsson frá Göppingen
  • Arnór Freyr Stefánsson frá Aftureldingu
  • Þórður Tandri Ágústsson frá Þór

Farnir:

  • Arnar Máni Rúnarsson
  • Goði Ingvar Sveinsson til Fjölnis
  • Gunnar Hrafn Pálsson til Gróttu
  • Brynjar Darri Baldursson hættur

Lykilmaðurinn

Tandri Már Konráðsson var einn allra besti leikmaður Olís-deildarinnar á síðasta tímabili.vísir/Elín

Ekki erfitt val. Tandri Már Konráðsson er bæði besti varnar- og sóknarmaður Stjörnunnar og leiðtogi liðsins. Lék mjög vel í fyrra og var markahæsti leikmaður Garðabæjarliðsins með 93 mörk. Tandri er frábær í vörn og öflug skytta og áhugavert verður að sjá samvinna hans og Gunnars Steins.

Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...

Theodór Ingi Pálmason fer yfir möguleika Stjörnunnar.

Klippa: Stjarnan 4. sæti

Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×