
Breiðablik

Breiðablik, ÍR, og Haukar í átta liða úrslit
Alls fóru fjórir leikir fram í 16-liða úrslitum VÍS-bikars kvenna í körfubolta í kvöld. Snæfell hafði þegar tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum og nú er ljóst að Breiðablik, ÍR og Haukar eru einnig komin þangað.

Umfjöllun: Breiðablik - Keflavík 106-107 | Taplausir Keflvíkingar mörðu nýliðana
Nýliðar Breiðabliks fengu sterkt lið Keflavíkur í heimsókn í Smárann í kvöld. Blikarnir spiluðu sinn leik og voru vítakasti frá því að hafa sigurinn. Leiknum lauk með eins stigs sigri Keflavíkur, 106-107.

Hjalti Þór: Ég held við eigum eftir að geta gert góða hluti í vetur
Keflavík heimsótti Breiðablik í Smárann í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Leikurinn var mjög spennandi allt til enda en að lokatölur urðu 106-107, Keflavík í vil. Hjalti Þór, þjálfari Keflavíkur var ánægður með sigurinn en fannst sitt lið ekki spila sinn besta leik.

Fjölniskonur snéru leiknum við í þriðja leikhluta | Keflvíkingar unnu stórt
Keflavík og Fjölnir unnu sigra í seinni tveim leikjum kvöldsins í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Fjölniskonur snéru blaðinu við í þriðja leikhluta gegn Grindavík og unnu góðan fimm stiga sigur, 89-84, og Keflvíkingar unnu Breiðablik með 21 stigi, 80-59.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Breiðablik 120-117 | Stólarnir unnu þriðja leikinn í röð í háspennuleik
Tindastóll vann sinn þriðja leik í röð í Subway-deildinni þegar þeir mættu Breiðablik í Síkinu á Sauðárkróki í æsispennandi leik. Ekki vantaði stigin á töfluna, en lokatölur urðu 120-117, Tindastól í vil.

Sóknarleikurinn allsráðandi er Keflavík lagði Grindavík | Breiðablik sótti sigur í Borgarnes
Keflavík lagði Grindavík með 20 stiga mun er liðin mættust í Subway-deild kvenna í kvöld, lokatölur 105-85. Þá vann Breiðablik 30 stiga sigur á Skallagrími í Borgarnesi.

Körfuboltakvöld um hinn síunga Richardson: Svo góður mótor í honum miðað við hann er orðinn gamall
Farið var yfir aðrar hliðar á hinum Everage Lee Richardson en oft áður í síðasta þætti Körfuboltakvölds, að þessu sinni voru það sendingarnar hans og hvað hann sér völlinn vel.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - ÍR 107-92 | Fyrsti sigur Blika í efstu deild í þrjú ár
Breiðablik vann ÍR, 107-92, í Smáranum í fyrri leik dagsins í Subway-deild karla í körfubolta.

Pétur: Vonandi verða sigrarnir fleiri en síðast
Pétur Ingvarsson, þjálfari Breiðabliks, gat leyft sér að brosa eftir sigurinn á ÍR í kvöld. Þetta var fyrsti sigur Blika í efstu deild í þrjú ár.

Umfjöllun, mörk og myndir: Real Madrid - Breiðablik 5-0 | Blikar áttu aldrei möguleika í hitanum í Madríd
Þrenna dönsku landsliðskonunnar Caroline Møller Hansen í fyrri hálfleik gerði út um leik Real Madríd og Breiðabliks í Meistaradeild Evrópu. Ekki hjálpaði mark strax í upphafi síðari hálfleiks, lokatölur 5-0 heimakonum í vil.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Breiðablik 73-70 | Íslandsmeistararnir enn ósigraðir
Íslandsmeistarar Vals unnu þriðja leikinn í röð er Breiðablik kom í heimsókn á Hlíðarenda í Subway-deild kvenna í kvöld. Sigurinn var einkar naumur en aðeins munaði þremur stigum á liðunum, lokatölur 73-70.

„Förum á fullu inn í leikinn og höfum fulla trú á okkur“
Agla María Albertsdóttir segir að leikmenn Breiðabliks mæti fullir sjálfstrausts til leiks gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

„Óneitanlega svolítið sérstakt að byrja gegn Real Madrid“
Ásmundur Arnarsson, nýr þjálfari kvennaliðs Breiðabliks, viðurkennir að það sé nokkuð sérstakt að stýra liðinu í fyrsta sinn gegn stórliði Real Madrid í Meistaradeild Evrópu.

Blikar mæta stórliði sem var ekki til í fyrra
Blikakonur mæta liði eins þekktasta knattspyrnufélags heims í kvöld í öðrum leik sínum í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Kvennalið Real Madrid varð hins vegar ekki til fyrr en í fyrrasumar.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Grindavík 69-83 | Fyrsti sigur nýliðanna
Nýliðar Grindavíkur unnu sinn fyrsta sigur í Subway-deild kvenna þegar að liðið heimsótti Breiðablik í kvöld. Lokatölur 83-69, en Blikar eru enn án sigurs.

Hafa meiri trú á Breiðablik en Vestra
Subway deildin í körfubolta fór af stað með pompi og pragt fyrir helgi.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Breiðablik 128-117 | Lítill varnarleikur, ótrúlegt magn stiga og framlengt er KR vann Breiðablik
Það fór ekki mikið fyrir varnarleiknum þegar KR vann Breiðablik í fyrstu umferð Subway deildar karla í körfuknattleik fyrr í kvöld. Leikar enduðu 128-117 eftir framlengdan leik.

„Frábært að sjá Kópavogsvöllinn fullan“
Áhorfendamet var slegið á kvennaleik hjá Breiðabliki á Kópavogsvelli þegar liðið mætti Paris Saint-Germain í 1. umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gær. PSG vann 0-2 sigur.

Önd stal senunni á Kópavogsvelli
Undir lok fyrri hálfleiks í leik Breiðabliks og Paris Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu í gær setti óvæntur gestur skemmtilegan svip á viðureignina.

„Erum ekki komnar á þennan stað til að leika okkur gegn þessum liðum heldur sækja stig“
Frammistaða Breiðabliks gegn Paris Saint-Germain kom fyrirliðanum Ástu Eiri Árnadóttur ekki á óvart. Blikar spiluðu stórvel en urðu að játa sig sigraðar, 0-2, í fyrsta leik sínum í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.

„Fullkomin kvöldstund hefði verið 1-1 en ég er mjög ánægður með frammistöðuna“
Vilhjálmur Kári Haraldsson stýrði kvennaliði Breiðabliks í síðasta sinn þegar það tapaði fyrir Paris Saint-Germain, 0-2, í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hann kvaðst stoltur af sínu liði í leikslok.

Umfjöllun og myndir: Breiðablik - PSG 0-2 | Frábær frammistaða Blika gegn frönsku meisturunum
Breiðablik tapaði fyrir Frakklandsmeisturum Paris Saint-Germain, 0-2, í fyrsta leik sínum í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á Kópavogsvelli í kvöld. Léa Khelifi og Grace Geyoro skoruðu mörk PSG.

Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - Breiðablik 75-71 | Naumur sigur heimakvenna í Grafarvogi
Fjölnir fór með sigur af hólmi gegn Breiðablik í fyrstu umferð Subway-deildarinnar í körfubolta kvenna í kvöld en lokatölur voru 75-71

Segir leikinn í kvöld hjálpa landsliðinu eftir tíu ár og rifjar upp sögu frá Hvolsvelli
Ætli verðandi fulltrúar Íslands á HM 2031 í fótbolta verði meðal áhorfenda á Kópavogsvelli í kvöld? Úlfar Hinriksson, yfirmaður afreksþjálfunar hjá Breiðabliki, er í það minnsta sannfærður um að leikir Breiðabliks við PSG, Real Madrid og Kharkiv hjálpi íslenska kvennalandsliðinu í framtíðinni.

Síðasti leikur þjálfarans verður sá stærsti
Vilhjálmur Kári Haraldsson er í sérstakri stöðu í kvöld. Hann er að stýra Blikaliðinu í síðasta skiptið en um leið er liðið að spila sinn fyrsta leik í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Ásta Eir: „Þetta er náttúrulega bara stærsta sviðið“
Ásta Eir Árnadóttir, leikmaður Breiðabliks, spilaði með liðinu gegn Paris Saint-Germain fyrir tveimur árum og hún er aftur í liðinu þegar að PSG heimsækir Breiðablik í Meistaradeild Evrópu á morgun. Hún segir að bæði Blikar og PSG séu mep breytt lið frá því seinast, og að franska liðið sé jafnvel sterkara nú en þá.

Blikar skrúfa upp í ljósunum og fá að spila á Kópavogsvelli
Breiðablik hefur fengið undanþágu frá UEFA til að spila leikinn gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu á Kópavogsvelli.

Ásmundur tekur við bikarmeisturum Breiðabliks
Bikarmeistarar Breiðabliks gáfu frá sér tilkynningu í dag þess efnis að Ásmundur Arnarsson væri nýr þjálfari liðsins. Er hann ráðinn til þriggja ára.

Sjáðu mörkin sem tryggðu Blikastúlkum þrettánda bikarmeistaratitilinn
Breiðablik vann í gær sinn þrettánda bikarmeistaratitil þegar að liðið lagði Þrótt 4-0 í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna á Laugardalsvelli.

„Samstarfsfélagi minn sagði að ég skuldaði eitt mark þannig að ég henti bara í tvö“
Karítas Tómasdóttir gleymir kvöldinu í kvöld eflaust ekki í bráð. Hún skoraði tvö mörk þegar Breiðablik vann 4-0 sigur á Þrótti í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.