Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 06:31 Myndband af handtöku Benjy Taylor fór á flug á samfélagsmiðlum. @GoodmanHoops Benjy Taylor, þjálfari karlakörfuboltaliðs Tuskegee-háskólans, var leiddur af velli í handjárnum eftir atvik sem átti sér stað að leik loknum um helgina.
Myndbönd á samfélagsmiðlum sýna Taylor í orðaskiptum við öryggisvörð á meðan leikmenn Tuskegee og erkifjendanna í Morehouse College tókust í hendur og þökkuðu hvor öðrum fyrir leikinn á laugardag. Eftir stutt orðaskipti setti öryggisvörðurinn Taylor í handjárn og leiddi hann af vellinum og inn á gang á Forbes Arena, heimavelli Morehouse. Benjy Taylor, the men's basketball coach at Division II Tuskegee University, was escorted off the court in handcuffs by a security officer after a postgame incident in the handshake line with Morehouse College Saturday.Taylor and Tuskegee athletic director Reginald Ruffin both… pic.twitter.com/BxrMbrc6rG— ESPN (@espn) February 2, 2026 Bæði Taylor og Reginald Ruffin, íþróttastjóri Tuskegee, sögðu að Taylor hefði beðið öryggisvörðinn um að fjarlægja nokkra ruðningsleikmenn Morehouse úr handabandslínunni. Taylor sagði í yfirlýsingu að ruðningsleikmennirnir hefðu verið að „öskra blótsyrði“ á meðan Ruffin bætti við að þeir hefðu ógnað öryggi allra. „Ég er orðlaus og misboðið“ „Ég er orðlaus og misboðið yfir því hvernig brotið var á mér og hvernig komið var fram við mig í dag,“ sagði Taylor í yfirlýsingu til margra fjölmiðla. „Það er átakanlegt fyrir mig að leikmenn mínir, fjölskylda mín og fólk frá Tuskegee hafi orðið vitni að þessu,“ sagði Taylor. „Ég var einfaldlega að reyna að koma ruðningsliðinu úr handabandslínunni þar sem þeir fylgdu fast á eftir mér og liðinu og öskruðu blótsyrði! Þetta var mjög hættulegt ástand,“ sagði Taylor. Hann ætlar að leita réttar síns fyrir dómstólum. Ósammála mati lögreglumannsins Ruffin sagði við HBCU Gameday að öryggisvörðurinn hefði gefið aðra lýsingu á atvikinu og haldið því fram að Taylor hefði verið „mjög árásargjarn“. Ruffin sagðist ósammála mati lögreglumannsins og vísaði til „öryggisráðstafana“ sem væru „fyrirskipaðar af deildinni“ og bætti við að honum fyndist Taylor hafa brugðist við á skynsamlegan hátt. „Hann spurði öryggisvörðinn: ‚Geturðu vinsamlegast fjarlægt þá úr línunni?‘ Það var það sem hann bað öryggisvörðinn um,“ sagði Ruffin við HBCU Gameday. Tuskegee head coach Benjy Taylor was handcuffed by police after the loss at Morehouse. Here’s his statement to @TheFieldOf68:“I am at a loss for words and I am upset about how I was violated and treated today. For my players, my family and people of Tuskegee to witness that… pic.twitter.com/2AQRNCu1Dd— Jeff Goodman (@GoodmanHoops) February 1, 2026
Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Fótbolti „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira