Félagasamtök

Fréttamynd

Beint streymi frá opnum fundi Á­fram Ís­land

Nei-hreyfingin hefur efnt til útifundar á Austurvelli klukkan 17:00 í dag en í aðdraganda fundarins hafa símaskilaboð borist fjölda fólks þar sem því er boðið að mæta til að stilla saman strengi fyrir laugardaginn. Meðal ræðumanna eru Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fyrrverandi þingmaður og ráðherra. Hægt er að fylgjast með streymi á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá

SJÁ, hreyfing þeirra sem vilja segja „Já til að sjá“, heldur opinn viðburð í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Fundurinn fer fram klukkan 17:00 í dag í Tónabíói, Skipholti 33, og er öllum boðið að kíkja við en einnig verður hægt að fylgjast með streymi á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Ætlar ekki að láta kúga sig

Baráttukonan Sema Erla Serdaroglu hefur verið ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir. Hún neitar sök, segir málið skrípaleik og ætlar ekki að láta kúga sig.

Innlent
Fréttamynd

Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðs­dómi

Baráttukonan Sema Erla Serdaroglu hefur verið ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir. Hún mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur í gær þar sem ákæran var tekin fyrir, sem snýr að landssöfnun Solaris samtakanna fyrir Palestínu árið 2024. Solaris hélt utan um fjársöfnunina og ráðstafaði fénu sem safnaðist til aðstoðar flóttafólki frá Palestínu.

Innlent
Fréttamynd

Mikil­vægt að fatlaðir geti tekið þátt í um­ræðunni

Víða hafa verið haldnir fundir, pallborð og kappræður nú þegar þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um áframhaldandi viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu nálgast óðfluga. Félag fólks með þroskahömlun stóð fyrir einum slíkum í dag, þann 26. ágúst, og leit fréttamaður Sýnar þar við.

Innlent
Fréttamynd

Efna til söfnunar í minningu Hennings

Blásið hefur verið til söfnunar fyrir ungt fólk með fíknivanda á Norðurlandi. Foreldrar ungs manns sem sjálfur glímdi við fíknivanda segjast hafa fengið að finna sárt úrræðaleysið á eigin skinni.

Lífið
Fréttamynd

Ekki á dag­skrá að opna bók­haldið

Lítið sem ekkert eftirlit er með fjármögnun þeirra félagasamtaka sem heyja nú kosningabaráttu í kringum atkvæðagreiðslu 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar sem þau eru ekki skilgreind stjórnmálasamtök er ekkert þak á fjárframlögum til samtakanna og ekki þarf að birta bókhald þeirra opinberlega. 

Innlent
Fréttamynd

Evru-Ísland óskalandið hve­nær kemur þú?

Ræða Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta á stofnfundi Áfram Ísland, samtök sem berjast fyrir Nei-i í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, þykir á sumum bæjum einhver mesta þrumuræða sem haldin hefur verið á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er eins og á tón­listar­há­tíð“

Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, sótti stofnfund samtakanna Áfram Ísland í gær. Bæði félög munu tala fyrir málstað nei-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Haraldur fagnar stofnun samtakanna: „Þetta er algjörlega dásamlegt, bestu tíðindi vikunnar.“

Innlent
Fréttamynd

„Enginn búið til fleiri þjóðar­at­kvæða­greiðslur en ég“

Fjölsóttur stofnfundur samtakanna Áfram Ísland fór fram síðdegis. Um átta hundruð manns sóttu fundinn og var húsfyllir var í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Samkvæmt fyrsta ræðumanni og fundarstjóra, Halldóri Benjamín Þorbergssyni, hafa á þriðja þúsund skráð sig í samtökin.

Innlent
Fréttamynd

Guð­laugur segir Þor­gerði á hröðum flótta

Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður telur einsýnt að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra veigri sér við að mæta sér í kappræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við ESB sem fram eiga að fara í lok ágústmánaðar.

Innlent
Fréttamynd

Þor­gerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór

Gunnlaugur Jónsson, sem er aðalsprautan í Paradigm, hafði boðið Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrrverandi utanríkisráðherra til kappræðna um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Nú liggur fyrir að Þorgerður kemur því ekki við að mæta.

Innlent
Fréttamynd

„Skráningum rignir inn“

Áfram Ísland er ný hreyfing sem vill berjast gegn fullri aðild að Evrópusambandinu. Stofnfundur fer fram á mánudag. Halldór Benjamín Þorbergsson, einn stofnfélaga, segir að þó svo að baráttan fari fram um hásumar skynji hann mikinn áhuga. Skráningum rigni inn. Það sé ábyrgð þjóðar að kynna sér málið fyrir kosningar í ágúst.

Innlent
Fréttamynd

Fengju ekki að rústa verslunar­miðstöð ó­á­reittir

Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir óþolandi og óþarfi að erlendir ferðamenn séu staðnir að utanvegaakstri ár eftir ár. Hún segir þurfa að nýta heimildir til viðurlaga betur og það þurfi samstillt átak stjórnvalda og fyrirtækja í ferðaþjónustu um að gæta þess að allir sem heimsæki landið, innlendir og erlendir, gangi vel um það.

Innlent
Fréttamynd

Vetur í ís­lenskri kvik­mynda­gerð

Kurr er í kvikmyndagerðarkonum en þeim þykir heldur karllæg stjórn og formaður sem kosin voru á aðalfundi í gær. Gunnar Sigurðarson, starfsmaður Sambands íslenskra kvimyndaframleiðenda (SÍK) og Samtaka iðnaðarins, segist ekki geta túlkað þetta sem svo að kvikmyndageirinn sendi kaldar kveðjur til kvenna.

Innlent
Fréttamynd

Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum

Hannes Bjarnason, svæðisforingi Hjálpræðishersins, segir miður að loka hafi þurft frískápnum við Hjálpræðisherinn. Hópur fólks hafi setið um matinn sem var settur í skápinn og grunur hafi leikið á um að hópurinn væri að selja matinn áfram. Hjálpræðisherinn gefur matinn áfram en með öðrum leiðum.

Innlent
Fréttamynd

Al­þingi í sam­starfi við pólitísk fé­laga­sam­tök?

Athygli Samtaka hernaðarandstæðinga hefur verið vakin á því að Alþingi muni í haust, annað árið í röð, standa fyrir fundi og einhvers konar hlutverkaleik í Smiðju, nýju skrifstofuhúsnæði þingsins, í samvinnu við ýmsa aðila, s.s. Varðberg og ungliðahreyfinguna Skjöld-YATA.

Skoðun
Fréttamynd

Eru félaga­samtök sem boða eigið fagnaðar­erindi nóg til að upp­lýsa al­menning?

Skáld hafa öldum saman nýtt andstæður til að skapa merkingu og vídd. Hluti af íslenskunámi, jafnvel grunnskóla, er að læra bókmenntahugtök á borð við andstæður og fá þjálfun í því að koma auga á þær í texta.Skáld hafa öldum saman nýtt andstæður til að skapa merkingu og vídd. Hluti af íslenskunámi, jafnvel grunnskóla, er að læra bókmenntahugtök á borð við andstæður og fá þjálfun í því að koma auga á þær í texta.

Skoðun
Fréttamynd

Lokun gistiskýlis fyrir hælis­leit­endur sé á­fanga­sigur

Gistiskýli Rauða krossins í Borgartúni var lokað í dag og allir sem þar dvöldu fluttir í húsnæði ríkislögreglustjóra, RLS, í Bæjarhrauni. Heimferða- og fylgdardeild RLS ber nú ábyrgð á því að þjónusta hópinn sem þar dvaldi. Rauði krossinn segir um áfangasigur að ræða og viðurkenningu á rétti hópsins til lágmarksþjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára

Með fimmtíu milljóna styrk þriggja ráðuneyta til reksturs Hjálparsímans 1717 hefur tekist að tryggja fyrirsjáanleika í rekstri Hjálparsímans til næstu tveggja ára. Tilkynnt var í dag um styrkveitinguna og að stórauka eigi fræðslu um stafrænt ofbeldi. Um fjögur símtöl berast á dag í Hjálparsímann frá fólki með sjálfsvígshugsanir.

Innlent
Fréttamynd

„Það er mikið verið að suða“

Börn sem tóku þátt í ungmennaþingi Barnaheilla segjast finna fyrir skýru bakslagi í kynjajafnrétti og upplifa töluverða pressu til að uppfylla úr sér gengnar staðalmyndir. Ofbeldi í nánum samböndum er gríðarlega algengt að mati forsvarsmanna Barnaheilla. 

Innlent
Fréttamynd

Al­gengt að krafa sé gerð í sam­bandi um að deila stöðugt stað­setningu

Bakslag er í kynjajafnrétti á samfélagsmiðlum og fá kynin afar ólík skilaboð. Stelpur eigi að vera kvenlegar, heimavinnandi og setja sjálfar sig í annað sætið. Strákar eigi að vera sterkir og góð fyrirvinna. Algengt er að gerð sé krafa um að deila staðsetningu með maka og dæmi um að strákar deili nektarmyndum af kærustum með vinum.

Innlent
Fréttamynd

Sumar­búðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið

Núverandi húsnæði Reykjadals, sem hefur verið í notkun í hátt í 70 ár, er komið til ára sinna. Gló heldur úti þessum sumarbúðum sem eru fyrir fötluð börn en þar er einnig boðið upp á helgardvalir á veturnar. Söfnun hefur verið hafin fyrir nýjum matsal.

Innlent