„Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lovísa Arnardóttir skrifar 18. október 2026 18:00 Birgir við hlið hjóla sem samtökin söfnuðu eitt árið fyrir efnaminni. Aðsendar Birgir Birgisson formaður Reiðhjólabænda segir sorglegt að nú þegar þeim fjölgar sem nota hjólreiðar sem daglegan samgöngumáta lognist starf samtakanna út af. Samtökin missa húsnæði sitt um mánaðamótin en hann segir einnig verulega erfitt að fólk til starfa í slíkt grasrótarstarf og þess vegna hætti þau starfsemi.
Um mánaðamótin lýkur starfi tuttugu ára starfi félagasamtakanna Reiðhjólabænda. Samtökin hafa síðustu ár barist fyrir bættum hagsmunum hjólandi fólks, safnað hjólum og lagað þau fyrir þau sem efnaminni eru og aðstoðað við reiðhjólaviðgerðir án endurgjalds. Þá stóðu samtökin fyrir vaktaðri gæslu hjóla á menningarnótt í fyrra og stilltu upp gulum hjólum fyrr á árinu víða um höfuðborgarsvæðið til að vekja athygli á slysstöðum og öryggi gangandi og hjólandi. „Félagið sem hóf starfsemi sína fyrir um 20 árum sem óformlegur hópur vina í raunheimum, óx og dafnaði með hjálp Facebook-hóps og varð svo árið 2020 að skráðu félagi með kennitölu og var nýlega komið með rúmlega 200 skráða félagsmenn og konur. Félagið barðist á mörgum sviðum fyrir bættum hagsmunum hjólandi fólks, en nú er sem sagt komið að leiðarlokum,“ segir Birgir Birgisson formaður í aðsendri grein á Vísi í dag. Reiðhjólabændur voru með aðstöðu í Sævarhöfða. Vísir/Anton Brink Þar segir að í lok október missi samtökin aðstöðu sem þau hafa haft við Sævarhöfða 31 þar sem þau hafa haldið regluleg viðgerðarkvöld og aðra viðburði. Húsnæðið fengu þau afnot af í gegnum Hjólakraft sem var úrræði fyrir skapandi ungmennastarf. „Þar sem svona starfsemi er einfaldlega ekki möguleg ef hún á sér engan samastað er það mjög miður að nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur hafi ekki boðið félaginu og öðrum í svipaðri stöðu neitt samtal um aðra valkosti eða mögulegt framhald. Engin tilraun hefur verið gerð af hálfu þeirra sem stýra borginni til að kynna sér þessa grasrótarstarfsemi eða mikilvægi hennar fyrir samfélagið áður en henni var gert ómögulegt að lifa af. Og rétt eins og í raunheimum þá deyr sú grasrót sem enga næringu fær,“ segir Birgir í grein sinni. Þar vísar hann til þess þegar borgin sagði upp samningum við ýmis félagasamtök og listamenn víða um borg sem höfðu leigt af þeim rými fyrir hóflegt gjald. Samningum var sagt upp vegna ófullnægjandi brunavarna. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í borginni og formaður borgarráðs, sagði við lok síðasta mánaðar að niðurstaða eftirlits slökkviliðs hefði leitt í ljós að brunavörnum væri verulega áfátt og ekki hefði verið hagkvæmt að laga eða endurgera húsin. Búið að bregðast við Meðal þeirra sem misstu húsnæði sitt eru Sniglarnir, Hringleikur, sirkuslistafélag og fjöldi einyrkja og listamanna eins og Dagur Kári Pétursson kvikmyndagerðar- og tónlistarmaður og Birta Fróðadóttir arkitekt. Birgir segir í samtali við Vísi að búið hafi verið að bregðast við ábendingum brunaeftirlits en það hafi átt eftir að uppfæra teikningar og það hafi verið á ábyrgð borgarinnar. „Við erum búin að vera í húsinu í sex ár og það hefur aldrei komið neitt upp. Þær athugasemdir sem komu frá brunavarnaeftirlitinu snemma sumars, við vorum búin að gera allt sem við gátum til þess að breyta þeim hlutum sem var bent á,“ segir hann og að það hafi átt eftir að uppfæra teikningar sem þurfi að vera réttar svo slökkvilið hafi réttar upplýsingar komi eitthvað upp á. „Þannig að það lá algjörlega í höndum borgarinnar að uppfæra það.“ Þurfa rými fyrir hjólin og verkfærin Birgir skráði félagið formlega fyrir sex árum og hefur verið formaður þess allan tímann. Hann segir miður að það eigi að leggja félagið niður núna en það sé ekki annað hægt þegar þau missa húsnæðið. Það kosti töluvert að leigja rými þó að það sé ekki nema lítil geymsla og það séu fjármunir sem félagið eigi ekki til. „Félagið á alls konar verkfæri, gömul hjól og eitt og annað og ef við höfum ekki einhvern stað þá þurfum við að ráðstafa því einhvern veginn,“ segir hann og að á næstu dögum fari það í brotajárn sem enginn vill bjarga. „Við náttúrulega geymum þau verkfæri sem ennþá eru nothæf og en við höfum til dæmis safnað 50 til 60 hjólum sem gætu talist bara merkilegur kafli í samgöngusögunni. Það er til dæmis þarna hjól sem var framleitt hjá Fálkanum á eftirstríðsárunum þegar var ekki hægt að flytja inn nein hjól út af því að það var skortur á þeim í heiminum. Hannað og smíðað af íslensku fyrirtæki,“ segir hann og að samtökin hafi fengið það gefins í einni af mörgum hjólasöfnunum. Þá sé hjá þeim að finna ýmis hjól sem henti hreyfihömluðum og fötluðum einstaklingum og búnað á hjól sem ekki megi finna annars staðar. „Það kemst ekki venjulega í hjólageymslu. Það er bara leiðinlegt að horfa á eftir þessum hlutum í brotajárn.“ Birgir fer í aðsendri grein sinni vel yfir það sem samtökin hafa gert. Hjólasöfnunin sé líklega þekktasta verkefni þeirra en auk þess hafi þau lagfært hjól og gefið efnaminni en auk þess hafi samtökin rekið verkstæði í félagsheimili sínu að Sævarhöfða og aðstoðað þar erlenda hjólamenn, lánað skiptinemum hjól og gert upp kassabíla. Þá segir hann að í geymslum félagsins hafi orðið til vísir að reiðhjólasafni sem hefði getað orðið hluti af stærra samhengi í samgöngusögu landsins. Þá segir Birgir flest dagúrræði geðheilbrigðiskerfisins hafa á einhvern hátt notið góðs af starfsemi Reiðhjólabænda með aðstoð við yfirferð og viðhald á hjólum, gjafahjólum til einstaklinga innan kerfisins, gjafahjólum til gesta neyðarskýlanna í Reykjavík Grasrótarstarf erfitt Hann segir grasrótarstarfsemi eiga undir högg að sækja og að slík starfsemi lifi ekki á „lækinu“ einu. „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn eða leiguna með „like”-hnappnum. Fyrir svona félagsstarf er það miklu meira virði að fólkið sem nýtur góðs af starfinu mæti á staðinn einstaka sinnum og bjóði sína hjálp við að leysa þau verkefni sem þarf að leysa. Því verkefnin leysa sig ekki sjálf og af nógu er að taka.“ Hann segir ákveðinn hóp hafa mætt reglulega á Sævarhöfða en sá hópur sé of lítill til að viðhalda starfsemi félagsins og það séu takmörk fyrir því hversu mikið er hægt að leggja á fáa einstaklinga. Hann segir sorglegt að starfseminni sé að ljúka og segir að síðustu ár hafi verið erfiðara og erfiðara að fá fólk til starfa. „Það á við um grasrótarstarf almennt, ég veit ekki hvort þetta var Covid eða eitthvað annað en fólk hefur dregið sig rosalega mikið í hlé og svo með samfélagsmiðlavæðingunni þá er ofsalega mikið um að fólk styðji félagsstarf með því að smella á læk. Það mætir ekki, tekur ekki þátt, gerir ekki neitt, og svona grasrótarstarf lifir ekki þannig.“ Hann segir fólk yfirleitt gífurlega ánægt með það sem félagið hefur gert en færri og færri taki þátt í vinnunni. „Samfélagsmiðlavæðingin gerir það að verkum að allir geta sagt sína skoðun en enginn tekur þátt í neinu,“ segir hann og tekur sem dæmi átakið um gulu hjólin í vor. Ömurlegt að starfið lognist út af Hann hafi varla getað farið út úr húsi án þess að vera hrósað fyrir en þegar hann spurði hvort fólk vildi koma að aðstoð við að mála hjól eða koma þeim fyrir hafi verið lítið um svör. „Mér finnst náttúrulega ömurlegt að það þurfi að leggja niður samtökin, ekki mín vegna, ég er að fara að snúa mér að öðrum hlutum en akkúrat á þessum tíma, þegar það er að verða sprenging í því að fólk er farið að nota hjólið sem daglegan samgöngumáta, og akkúrat þegar þörfin fyrir málsvara er orðin meiri en hún hefur nokkru sinni verið, þá lognast þetta út af.“ Hann segir að auðvitað séu önnur samtök eins og Landssamband hjólreiðamanna og samtök um bíllausan lífsstíl en það sé ekki alveg það sama. Hann segir það umhugsunarvert að í Danmörku, þar sem er rík menning fyrir hjólreiðum, séu um 13 þúsund manns í samskonar samtökum.
Reykjavík Hjólreiðar Félagasamtök Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira