Innlent

Fréttamynd

Vilja reykingabann eftir tvö ár

Á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar, sem nú stendur yfir, leggur vinnuhópur veitingamanna fyrir fundinn í dag að tekið verði upp algert reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum 1. júní 2007.

Innlent
Fréttamynd

Vilja frekar stytta grunnskólanám

Á fimmta hundrað framhaldsskólanema mótmælti fyrirhugaðri styttingu náms til stúdentsprófs á Austurvelli í dag. Það var Hagsmunaráð íslenskra framhaldsskólanema sem stóð fyrir mótmælunum, en að ráðinu standa sex framhaldsskólar. Þar telja menn eðlilegra að stytta nám á grunnskólastigi og hafna þeim rökum að fara eigi að fordæmi annarra norrænna ríkja.

Innlent
Fréttamynd

Vilja viðræður um reykingabann

Hótel- og veitingamenn samþykktu á fundi sínum á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar í morgun að ganga til viðræðna við stjórnvöld um að reykingar verði bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum frá og með 1. júní 2007. Í tilkynningu frá veitingamönnum kemur fram að miklar breytingar hafi orðið síðustu árin á reykingavenjum fólks og tillitssemi aukist til muna.

Innlent
Fréttamynd

11 milljónir barna deyja

Áætlað er að ellefu milljónir barna fimm ára og yngri deyi í ár vegna einhvers sem koma má í veg fyrir. Þetta kom fram á fundi á Nordica hótelinu í gær, sem haldinn var í tilefni af Alþjóðaheilbrigðisdeginum.

Innlent
Fréttamynd

Fagna Mjólku

Heimdellingar fagna stofnun Mjólku ehf, nýs mjólkursamlags sem stendur fyrir utan styrkjakerfi landbúnaðarins.

Innlent
Fréttamynd

Varað við sænsku fyrirtæki

Samtök atvinnulífsins vara á heimasíðu sinni við sænska félaginu Nordisk Industri, sem hefur skrifað íslenskum fyrirtækjum og óskað eftir almennum upplýsingum um þau. Samtökin telja að þarna séu svikahrappar á ferð og segja að nokkuð hafi borið á því að að íslenskum fyrirtækjum hafi borist erindi frá sænska fyrirtækinu þar sem óskað er skriflegrar staðfestingar á faxi á upplýsingum, meðal annars um símanúmer og heimilisfang.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tillögur varða alla einkafjölmiðla

Ef tillögur fjölmiðlanefndarinnar verða að lögum, líkt og menntamálaráðherra boðar, verður skylt að breyta eignaraðild á öllum stærstu einkareknu fjölmiðlunum á landinu, 365 miðlum, Morgunblaðinu og Skjá einum. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

80% hagnaðaraukning á árinu

Hagnaður helstu félaganna í Kauphöllinni á fyrstu þremur mánuðum ársins eykst um tæp 80 prósent milli ára ef afkomuspá greiningardeildar Íslandsbanka gengur eftir. Munar þar mestu um 11,3 milljarða króna hagnað KB banka en hagnaður KB banka á sama tíma í fyrra var 2,65 milljarðar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tæp hálf milljón vegna móðurmissis

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða systkinum tæplega hálfa milljón króna í bætur vegna andláts móður þeirra, sem lést af völdum læknamistaka.

Innlent
Fréttamynd

Alþjóðaheilbrigðisdagurinn í dag

Alþjóðaheilbrigðisdagurinn er í dag og er hann haldinn undir kjörorðinu Sérhver móðir - sérhvert barn. Í tilefni dagsins var efnt til morgunverðarfundar á Nordica-hótelinu í á morgun að því er segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Innlent
Fréttamynd

Rafmagn olli ekki eldi á Króknum

Engar skýringar liggja fyrir um upptök eldsvoðans sem varð ungum manni að bana á Sauðárkróki utan þess að útilokað hefur verið að rafmagn hafi ollið eldinum.

Innlent
Fréttamynd

Niðurstöður nefndar kynntar

Blaðamannafundur menntamálaráðherra hófst í Þjóðmenningarhúsinu nú klukkan þrjú þar sem niðurstöður fjölmiðlanefndarinnar eru kynntar. Nefndin lauk störfum í nótt, en meðal þess sem hún leggur til að er að einstaklingar eða fyrirtæki megi ekki eiga meira en fjórðung í fjölmiðlafyrirtækjum sem eru með meira en þriðjungs markaðshlutdeild.

Innlent
Fréttamynd

Enn stækkar Norðurál

Norðurál hefur gert samkomulag við Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja um kaup á 70 MW viðbótarraforku fyrir álver fyrirtækisins á Grundartanga.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt aðalsímanúmer borgarinnar

Nýtt aðalsímanúmer Reykjavíkurborgar 4 11 11 11 var tekið í notkun í gær. Við sama tækifæri tók Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri í notkun símaver borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Fylgi stjórnarflokkanna eykst

Fylgi við stjórnarflokkanna eykst en minnkar að sama skapi við stjórnarandstöðuflokkana, nema við Frjálslynda, þegar niðurstöður úr nýjustu skoðanakönnun Gallups eru bornar saman við næstsíðustu könnun í febrúar. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einu prósentustigi og Framsóknarflokkurinn einu og hálfu en Samfylkingin tapar þremur, Vinstri - grænir einu en Frjálslyndir bæta við sig tveimur prósentustigum og mælast nú með sex prósenta fylgi.

Innlent
Fréttamynd

Til Afganistan með breytta jeppa

Tíu til fimmtán íslenskir friðargæsluliðar fara til starfa í Norður-Afganistan í ágúst. Þeir taka með sér tvo eða þrjá jeppa sem breytt verður hérlendis til að nota við þær erfiðu aðstæður sem eru á þessum slóðum.

Innlent
Fréttamynd

Samstaða um takmörkun eignarhalds

Þverpólitísk samstaða er um að setja hömlur á eignarhald á fjölmiðlum. Fjölmiðlanefndin mun leggja til bann við því að nokkur geti átt meira en fjórðungs eignarhlut í fjölmiðlafyrirtæki með tiltekna markaðshlutdeild. Nefndin lýkur störfum í dag.</font />

Innlent
Fréttamynd

Telja hættu á risaeldgosi

Vísindamenn telja að viðsnúningur geti orðið á segulsviði jarðar innan fárra ára og að risaeldgos yrði samfara því, sem gæti orðið á Íslandi. Slíkt eldgos yrði hundrað þúsund sinnum stærra en gosið í Grímsvötnum í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Nýr vegur yfir Svínahraun

Unnið er að nýjum veg á Hellisheiði. Um er að ræða sex kílómetra kafla sem nær frá Litlu Kaffistofunni og yfir í Hveradalabrekkur, að sögn Sigurðar Jóhannssonar deildarstjóra nýframkvæmda hjá Vegagerðinni.

Innlent
Fréttamynd

Mikil ásókn í Lambaselslóðir

Nú hafa 3893 sótt um einbýlishúsalóð í Lambaseli í Breiðholti en 994 sóttu um í dag. Barist er um 30 lóðir og voru umsækjendur í dag misbjartsýnir á að verða dregnir út.

Innlent
Fréttamynd

Fimm mál valda deilum á Ísafirði

Kennarar í Menntaskólanum á Ísafirði segja ekki deilt um hvort skólameistarinn hafi tekið réttmætar eða rangar ákvarðanir heldur hvernig hún hafi fylgt þeim eftir. Félag skólameistara segir Ólínu ekki hafa farið út fyrir verksvið sitt.</font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Féll þrjá metra í körfu

Vinnuslys varð í fyrirtækinu Gúmmívinnslunni á Akureyri um klukkan tvö í dag þegar maður féll rúmlega þrjá metra niður í svokallaðri mannkörfu. Að sögn lögreglunnar á Akureyri eru meiðsli mannsins enn óljós en hann var fluttur á sjúkrahús.

Innlent
Fréttamynd

Nær 300 börn bíða greiningar

Samtals 266 börn eru á biðlista eftir greiningu og íhlutun hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Þetta kom fram í svari Árna Magnússonar félagsmálaráðherra við fyrirspurn Þuríðar Backman á Alþingi í gær. Rúmlega 80 þessara barna hefur beðið í meira en sex mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Yfir 250 í meðferð vegna kókaíns

Á síðasta ári fóru 217 í sína fyrstu meðferð vegna kókaínfíknar og 258 alls. Flestir sem fóru í fyrsta sinn eru á milli tvítugs og þrítugs eða um 120 manns.

Innlent
Fréttamynd

Um 150 bíða vímuefnameðferðar

Um 150 einstaklingar eru á biðlista meðferðarsjúkrahússins á Vogi. Þórarinn Tyrfingsson segir að hver meðferð taki tíu daga og því sé biðin mánuður.

Innlent
Fréttamynd

Menntaverðlaun veitt að vori

Skólastarf, góðir kennarar og gott kennsluefni fær verðlaun um mánaðamótin maí - júní næstkomandi en þá verða í fyrsta sinn veitt Íslensku menntaverðlaunin.

Innlent
Fréttamynd

Fjórtán mánaða fangelsisdómur

Kona var í gær dæmd til fjórtán mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnabrot og þjófnað en brotaferill viðkomandi er langur og útskýrir það lengd dómsins. Dómurinn frestaði þó fullnustu tólf af þeim fjórtán mánuðum sem dómurinn hljóðaði upp á haldi viðkomandi skilorð næstu þrjú ár.

Innlent
Fréttamynd

Gengur vonandi upp hjá Mjólku

Skiptar skoðanir eru um það hvort hægt sé að reka mjólkursamlag utan greiðslumarkskerfis landbúnaðarins eins og stefnt er að með mjólkursamlaginu Mjólku. Samkeppnisstaðan verður skökk vegna beingreiðslna ríkisins en á móti kemur að osturinn nýtur innflutningsverndar. Mjólka mun framleiða ost. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Mælt með takmörkun á eignaraðild

Fjölmiðlanefnd lýkur vinnu sinni eftir síðasta fund sinn í dag þar sem rætt verður um hversu lágt eigi að setja markið um leyfilegan eignarhlut í fjölmiðlum. Þverpólitísk sátt er um að hámarkseignaraðild einstaklings eða fyrirtækis í fjölmiðli með tiltekna markaðshlutdeild verði miðuð við 25 prósent. </font /></b />

Innlent