Innlent

Fréttamynd

Aron Pálmi fær stuðning í vestri

RJF-hópurinn, sem vinnur að því að fá Aron Pálma Ágústsson lausan úr fangelsi í Texas, hefur fengið stuðning frá bandarískum safnara. Maðurinn, sem heitir Scott Smith, varð mikið um þegar hann las um sögu Arons Pálma og hefur ritað bréf vegna málsins bæði til ríkisstjórans í Texas og George Bush eldri sem er honum kunnugur.

Innlent
Fréttamynd

Fjögur fíkniefnamál á sólarhring

Kópavogslögreglan hefur komið upp um fjögur fíkniefnamál síðastliðinn sólarhring og hafa níu manns verið ákærðir. Grunur leikur á fíkniefnasölu í einu málanna. Upp komst um málin við reglubundið eftirlit á götum bæjarins en málin teljast öll upplýst.

Innlent
Fréttamynd

Von á fleiri uppsögnum

Útlitið er ekki gott fyrir fyrirtæki sem eru undir hælnum á áframhaldandi styrk krónunnar, segir greiningardeild Íslandsbanka. Búast megi við frekari uppsögnum og gjaldþrotum. Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, tekur undir þetta og hvetur stjórnvöld til að bregðast við með því að draga úr þenslu.

Innlent
Fréttamynd

Kjörinn í stjórn EUROSAI

Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi var kjörinn í stjórn Samtaka evrópskra ríkisendurskoðunarstofnana (EUROSAI) á sjötta þingi samtakanna sem haldið var dagana 30. maí til 2. júní í Bonn í Þýskalandi. Í stjórninni sitja átta manns og var Sigurður kjörinn til næstu sex ára.

Innlent
Fréttamynd

Grillhátíð Krafts á morgun

Árleg grillhátíð Krafts, stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein, verður haldin í Hellisgerði í Hafnarfirði á morgun, laugardag. Hátíðin hefst klukkan 14 og verður grillað og sungið fram eftir degi. Ættarbandið leikur og syngur fyrir gesti.

Lífið
Fréttamynd

Trúnaðarmál segir Bjarni

Það er trúnaðarmál hvernig stjórnendur Íslandsbanka fjármagna viðskipti sín með bréf í bankanum, segir forstjóri bankans. Bjarni Ármannsson segir að stjórnendum beri engin skylda til að upplýsa um fjármögnun viðskiptanna, hvorki nú né síðar, þar sem bankinn reiði ekki fram neina tryggingarvernd. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Níu ákærðir

Töluverður erill var hjá lögreglunni í Kópavogi í fyrrinótt og komu meðal annars upp fjögur fíkniefnamál.

Innlent
Fréttamynd

Stærðarinnar tískusýning Mosaic

Tískukeðjan Mosaic, sem er að mestum hluta í eigu Baugs, heldur tískusýningu í Skautahöllinni næstkomandi föstudag. Um 500 manns hefur verið boðið á sýninguna, þar á meðal 200 frá Bretlandi.

Lífið
Fréttamynd

Fjórir unglingspiltar fá dóm

Fjórir piltar, fæddir árin 1986 og 1987, voru dæmdir í sex til tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Piltarnir játuðu allir brot sín sem voru nokkur fjöldi innbrota auk minniháttar fíkniefnabrota. Haldi piltarnir skilorð í þrjú ár fellur refsing niður.

Innlent
Fréttamynd

Tveir mikið slasaðir

Alvarlegt umferðarslys varð á Austurvegi í fyrrinótt þegar bifreið keyrði á ljósastaur og valt nokkrar veltur utan vegar. Þrír voru í bílnum og slösuðust þau sem fram í sátu alvarlega.

Innlent
Fréttamynd

Átti ekki rétt á styrkveitingu

"Staða þessa einstaklings gagnvart sjúkrasjóði Eflingar var sú, að hann var fyrir nokkru farinn af vinnumarkaði og því höfðu vinnuveitendur ekki greitt af honum iðgjöld til sjóðsins. Þess vegna átti hann ekki rétt á styrkveitingu til kaupa á heyrnartækjum."

Innlent
Fréttamynd

Alvarlegt umferðarslys í Grindavík

Alvarlegt umferðarslys varð á Austurvegi í Grindavík í gærkvöldi. Bíl var ekið á ljósastaur og slösuðust bílstjóri og farþegi í framsæti alvarlega. Farþeganum er haldið sofandi í öndunarvél að sögn lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Óselt hrefnukjöt hleðst upp

Óselt hrefnukjöt hleðst upp í frystigeymslum og safnar geymslukostnaði. Þetta er niðurstaðan af markaðsstarfi hvalaafurða úr vísindaveiðum Íslendinga að mati Náttúruverndarsamtaka Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Árekstur við stórhval?

Áhöfn pólskrar skútu komst við illan leik í höfnina í Vestmannaeyjum í fyrrakvöld eftir að hafa lent í árekstri á hafi úti. Vildi fólkið meina að skútan hefði lent í árekstri við hval en hlið skútunnar er löskuð og tók hún á sig vatn alla leiðina til Vestmannaeyja.

Innlent
Fréttamynd

Höggvum á flugvallarhnútinn

Alfreð Þorsteinsson telur að ekki verði vikist undan því að ákvarða sem fyrst framtíð Reykjavíkurflugvallar. Alfreð kveðst óttast að Sjálfstæðismenn einkavæði Orkuveitu Reykjavíkur komist þeir til valda eftir næstu borgarstjórnarkosningar.

Innlent
Fréttamynd

Rjómaslettur flugu á Lækjartorgi

Rjómasletturnar flugu í allar áttir á Lækjartorgi um hádegisbilið í dag þegar komið var að ögurstundu hjá Strákunum á Stöð 2. Þeir ákváðu að gefa öllum þeim sem töldu sig eiga harma að hefna - og reyndar öðrum eins og handboltalandsliðinu - kost á að hefna sín með rjómatertukasti.

Lífið
Fréttamynd

Boltavakt Vísis - Dregið í leiknum

Dregið hefur verið í leik sem Vísir efndi til í tilefni opnunar Boltavaktarinnar. Tveir heppnir þátttalendur fengu miða fyrir tvo á landsleiki Íslands í undankeppni HM 2006, við Ungverjaland og Möltu. Fyrri leikurinn er á laugardag, 4. júní en sá síðari á miðvikudag, 8.júní. Vísir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar öllum þátttökuna í leiknum.

Sport
Fréttamynd

Straumur fólks út á land

"Við vitum ekkert hvert við ætlum að fara á þessari stundu en þannig eru líka skemmtilegustu ferðalögin," sögðu þeir Hörður Unnarsson og Jóhann Arnórsson, sem voru í hópi þeirra þúsunda höfuðborgarbúa sem héldu úr bænum um helgina.

Innlent
Fréttamynd

Haldið sofandi í öndunarvél

Karlmaður um tvítugt er alvarlega slasaður og í öndunarvél eftir bílslys við Grindavík í gærkvöldi. Bílstjórinn og tveir aðrir farþegar slösuðust einnig. 

Innlent
Fréttamynd

Lykilstjórnendur fá lán

Íslandsbanki lánar lykilstjórnendum bankans rúma þrjá milljarða til að auka við hlut sinn í bankanum. Kaupverðið hefur enn ekki verið innt af hendi en bréfin hafa hækkað um fimmtíu milljónir frá því á mánudag þegar kaupin voru innsigluð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Reykjanesbær greiði 5 milljónir

Hæstiréttur dæmdi í gær Reykjanesbæ til að greiða fyrrverandi starfsmanni bæjarins tæpar fimm milljónir króna. Maðurinn vann hjá Vatnsveitu Suðurnesja en þegar sú starfsemi færðist undir Hitaveitu Suðurnesja hf. rýrnuðu lífeyrisréttindi mannsins og tókst Reykjanesbæ ekki að sýna fram á að starfið sem hann fékk við breytingarnar væri sambærilegt fyrra starfi hvað ráðningarkjör varðar.

Innlent
Fréttamynd

40 daga fangelsi fyrir úlnliðsbrot

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi fyrir stundu tvítugan karlmann í fjörutíu daga fangelsi, skilorðsbundið, fyrir að ráðast á unga konu á veitingastað í Grindavík með þeim afleiðingum að hún brotnaði á báðum úlnliðum. Atvikið átti sér stað á Sjávarperlunni fyrir rúmu ári.

Innlent
Fréttamynd

Monopoly kastað á milli

Brask og bruðl er aðalmálið í spilinu Monopoly, eða Matador eins og flestir kalla það. Af þessum sökum þótti ungum sjálfstæðismönnum tilvalið að senda Alfreð Þorsteinssyni, stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur, spilið í dag. Honum finnst það hins vegar betur komið hjá Davíð Oddssyni, guðföður Perlunnar.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdir fyrir hass

Fjórir piltar á aldrinum 18 til 19 ára voru í gær dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í sex til tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaðarbrot og brot á fíkniefnalöggjöf.

Innlent
Fréttamynd

Stýrivextir hækkaðir um 0,5%

Seðlabankinn hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,5% frá og með 7. júní nk. eða í 9,5%. Seðlabankinn hefur þá hækkað stýrivexti sína um 4,2% síðan í maí 2004.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Atvinnugrein leggst af á Akureyri

Nær öllum starfsmönnum Skinnaiðnaðar á Akureyri verður sagt upp um næstu mánaðamót en flestir þeirra eru með þriggja mánaða uppsagnarfrest. Fimm starfsmenn munu starfa áfram við hrávinnslu skinna á Sauðárkróki og hugsanlega einn eða tveir starfsmenn á skrifstofu félagsins.

Innlent
Fréttamynd

PC World verðlaunar Opera vafrann

Greint var frá því í gær að Opera netvafrinn hafi unnið til sérstakra verðlauna tölvutímaritsins PC World, annað árið í röð. Blaðið hampar þar nýjustu útgáfu vafrans, sem kallast Opera 8 og segir hann bæði aðlaðandi og haganlega sniðinn þar sem notagildi fengi að njóta sín.

Innlent
Fréttamynd

Fáir öryrkjar aftur á vinnumarkað

Einungis 12 prósent kvenna og 9 prósent þeirra karla sem metnir voru til örorku árið 1992, voru að líkindum komin aftur á vinnumarkað 30. nóvember 2004. Fyrrnefnda árið voru samtals 725 metnir til örorku, 428 menn og 297 konur.

Innlent
Fréttamynd

Aka í sólarhring án svefns

Trukkabílstjórar eru farnir að hunsa lög um hvíldartíma eftir að Hæstiréttur komst að því að refsiheimildir skorti. Dæmi eru um að menn hafi verið teknir á þjóðvegum eftir að hafa ekið hátt í sólarhring án þess að fá lögboðna hvíld.

Innlent
Fréttamynd

Átak ASÍ gengur vel

Átak Alþýðusambands Íslands gegn félagslegum undirboðum og ólöglegri atvinnustarfsemi gengur vel en það hefur nú staðið yfir í rúman mánuð.

Innlent