Innlent
Minni Fríhöfn ógnar atvinnulífi á Suðurnesjunum Framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar segir það ógna atvinnulífi á Suðurnesjum verði bannað að selja annað en áfengi og tóbak í komufríhöfninni. Ef af verður þarf að segja um fimmtíu starfsmönnum upp störfum. Innlent 31.1.2006 21:25
Borgin ætlar í mál vegna samráðs olíufélaganna Borgarstjóri ætlar að sýna olíufélögunum tennurnar. Hann hefur skipað lögmanni borgarinnar að fara í mál vegna samráðsins. Innlent 31.1.2006 21:14
Starfsmannaleigum gæti fækkað með tilkomu nýrra laga Vinnumálastofnun reiknar með að ný lög um starfsmannaleigur verði til þess að margar þeirra leggi upp laupana. Hinar verði undir ströngu eftirliti og verði lokað ef þær misstígi sig. Innlent 31.1.2006 21:03
Virðingarleysi að birta teikningarnar af Múhameð spámanni Fræðslufulltrúi þjóðkirkjunnar segir að það beri ekki vott um þroska að smána minnihlutahóp í landinu. Formaður félags múslima á Íslandi segir að bannað sé í Íslam að myndgera spámennina. Innlent 31.1.2006 21:00
Bahá'íar sækjast ekki eftir að gefa samknynhneigða saman Bahá' íar á Íslandi segjast ekki munu sækjast eftir að gefa samkynhneigða saman í hjónaband en segja fordóma gagnvart samkynhneigðum vera í andstöðu við trú sína. Þetta kemur fram í umsögn sem Andlegt þjóðarráð bahá' ía á Íslandi sendi nýverið Alsherjanefnd Alþingis sem hafði áður óskað eftir umsögn trúfélagsins um frumvarp til laga um réttarstöðu samkynhneigðra. Innlent 31.1.2006 19:51
Menntamálaráðuneyti veitir styrki til atvinnuleikhópa Styrkir til atvinnuleikhópa og starfslaun úr listamannasjóði voru afhent við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag. Það er Menntamálaráðuneyti og listasjóður sem veitir styrkina sem ætlaðir eru til að styrkja starfsemi atvinnuleikhópa. Innlent 31.1.2006 19:28
Þorsteinn nýr ritstjóri Fréttablaðsins Þorsteinn Pálsson hefur verið ráðinn nýr ritstjóri Fréttablaðsins og mun starfa þar við hlið Kára Jónassonar. Innlent 31.1.2006 19:25
Umræður um varnarmál hefjast á ný Stefnt er að því að viðræður um varnarmál milli Íslands og Bandaríkjanna hefjist að nýju á fimmtudag í Washington. Þetta var ákveðið á fundi Geirs H. Haarde, utanríkisráðherra og Nick Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna í London í dag. Innlent 31.1.2006 19:20
Sprengjuhótun barst Jótlandspóstinum Byggingar Jótlandspóstsins í Árósum og Kaupmannahöfn í Danmörku voru rýmdar fyrr í dag, eftir að sprengjuhótun barst á ritstjórn blaðsins. Hringt var á blaðið og sagt að sprengju hefði verið komið fyrir. Mikil reiði ríkir meðal múslima í garð blaðsins, eftir að það birti tólf skopmyndir af Múhameð spámanni síðastliðið haust. Innlent 31.1.2006 17:43
Reykingar bannaðar með öllu á veitinga- og skemmtistöðum Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, mælti fyrir frumvarpi um reykingarbann á Alþingi í dag. Frumvarpið felur það í sér að reykingar á veitinga- og skemmtistöðum verði bannaðar með öllu frá og með 1. júní 2007. Innlent 31.1.2006 17:30
Þoturnar eftir en þyrlurnar á brott? Svo gæti farið að björgunarþyrlur varnarliðsins yrðu fluttar á brott en herþotur Bandaríkjamanna yrðu hér áfram. Valur Ingimundarson, sagnfræðingur, fullyrðir að Bandaríkjamenn séu tilbúnir að skilja að rekstur á þyrlum og þotum til þess að svo megi verða en það hafi ekki verið gert hingað til. Þetta sé nýr flögur á varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjamanna. Innlent 31.1.2006 17:20
Arnarfell bauð lægst Í dag voru opnuð tilboð í Hraunveitu, sem er einn áfangi í byggingu Kárahnjúkavirkjunnar. Var það verktakafyrirtækið Arnarfell sem bauð lægst eða tæpar 980 milljónir sem svarar til um sjötíu prósenta af kostnaðaráætlun. Innlent 31.1.2006 17:18
Methagnaður Íslandsbanka Íslandsbanki kynnti í dag uppgjör sitt fyrir árið 2005. Var hagnaður fyrirtækisins rúmir nítján milljarðar eftir skatta og arðsemi eigin fjár 30 prósent. Hagnaðurinn jókst um 60 prósent á milli ára en var 12 milljarðar árið 2004. Fyrirtækið skilaði skatttekjum upp á um 4,3 milljarða til ríkissjóðs. Innlent 31.1.2006 16:40
Tveir nýir metanvagnar Strætó bs. kynnti í dag tvo nýja almenningsvagna, sem ganga fyrir metani. Þar með hefur fyrirtækið stigið enn eitt skrefið í þá átt að draga úr útblástursmengun á höfuðborgarsvæðinu. Áður hafði Strætó bs. verið frumkvöðull í notkun vetnisknúinna bifreiða hér á landi. Innlent 31.1.2006 16:27
Fundað um fuglaflensu Stjórnendur Landbúnaðarstofnunar hafa ákveðið að fara í fundaferð um landið til að kynna bændum og dýralæknum varnir gegn fuglaflensu og viðbrögð ef sjúkdómurinn berst hingað. Innlent 31.1.2006 13:37
Verkalýðsfélag Húsavíkur fagnar tillögu launanefndar Verkalýðsfélag Húsavíkur fagnar tillögum Launanefndar sveitarfélaga um að hækka lægstu laun sérstaklega umfram ákvæði kjarasamninga. Samþykktin nær til starfsmanna sveitarfélaga sem hafa 140 þúsund krónur á mánuði eða minna. Reiknað er með að lægstu laun hækki um 12%. Innlent 31.1.2006 13:50
Tíu ritverk koma til greina Tíu ritverk hafa verið tilnefnd af Reykjvíkurakademíunni sem afburðar fræðirit að mati Viðurkenningarráðs Hagþenkis á síðasta ári. Koma þessi rit til greina við veitingu viðurkenningar Hagþenkis sem afhent verður í lok febrúar en viðurkenningin nemur um sjöhundruð og fimmtíu þúsundum króna. Innlent 31.1.2006 13:35
Íslensk kvikmynd tilnefnd til Óskarsverðlauna "Síðasti bærinn" í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar er tilnefnd til Óskarsverðlauna í flokki leikinna stuttmynda. Í aðalhlutverki er gamla leikarakempan Jón Sigurbjörnsson. Þetta er í annað sinn sem íslensk kvikmynd er tilnefnd til Óskarsverðlauna. Aðeins einu sinni áður hefur íslensk kvikmynd verið tilnefnd til óskarsverðlauna en það var fyrir fjórtán árum þegar mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börn náttúrunnar var tilnefns í flokki erlendra kvikmynda. Innlent 31.1.2006 14:11
Afskipti Alþingis orsaka stjórnskipulegan vanda Halldór Halldórsson, dómstjóri Héraðsdóms Norðurlands vestra, segir það ekki gott að Alþingi grípi fram fyrir hendur Kjaradóms eins og gert var varðandi úrskurð Kjaradóms um laun æðstu embættismanna. Dómarar íhuga nú lögsókn vegna málsins. Innlent 31.1.2006 13:56
Framboðslisti VG í Kópavogi Á félagsfundi Vinstri grænna í Kópavogi í gærkvöldi var framboðslisti hreyfingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor samþykktur. Í prófkjöri sem hreyfingin hélt í nóvember síðast liðnum hlaut Ólafur Þór Gunnarsson flest atkvæði í fyrsta sæti og leiðir því flokkinn í vor. Fyrstu fjögur sætin voru bundin eftir kosninguna og í örðu sæti listans er Guðbjörg Sveinsdóttir, í þriðja Emil Hjrövar Petersen og fjórða sætið skipar Lára Jóna Þorsteinsdóttir. Innlent 31.1.2006 13:10
Verða að greiða fyrrum starfsmanni laun G.P.G fiskvinnsla verður að greiða fyrrum stjórnanda fiskvinnslunnar Jökuls á Raufarhöfn hálfa þriðju milljón króna sem hann á hjá félaginu í ógreiddum launum. Innlent 31.1.2006 13:16
Ný göngudeild opnuð á LSH á morgun Ný göngudeild fyrir átröskunarsjúklinga verður opnuð á Landspítalanum Háskólasjúkrahúsi á morgun. Talsmenn Spegilsisns, samtaka aðstandenda átröskunarsjúklinga segja deildina stökk fram á við í meðferð sjúkdómsins. Þeir segja þó mikl aþörf á frekari úrræðum. Allt að 5.000 einstaklingar þjást af átröskunum á Íslandi í dag en aðeins 60 prósent sjúklinganna ná sér að fullu. Innlent 31.1.2006 13:02
Hafnar öllum kröfum olíufélaganna Samkeppniseftirlitið hafnar öllum kröfum olíufélaganna um að úrskurður Áfrýjunarnefndar samkeppnismála um ólöglegt samráð félaganna verði ógiltur. Það hafnar líka þeirri kröfu félaganna að sektir á þau verði felldar niður eða lækkaðar til muna. Innlent 31.1.2006 12:54
Forsetahjónin heimsóttu Grundaskóla Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsóttu Grundaskóla á Akranesi í morgun. Forsetahjónin kynntu sér starfsemi skólans, en hann fékk Íslensku menntaverðlaunin í fyrra fyrir að sinna nýsköpunarstarfi vel. Innlent 31.1.2006 12:23
Ísland ekki skotmark hryðjuverkamanna Ísland skiptir ekki lengur nokkru máli í hernaðarlegu tilliti og engin sannfærandi rök hafa verið færð fyrir því að Ísland sé mögulegt skotmark hryðjuverkamanna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein eftir Val Ingimundarson sagnfræðing, sem birtist á dögunum í virtu erlendu fræðiriti um öryggis- og varnarmál. Innlent 31.1.2006 12:12
Eldur í bíl Halla í Botnleðju Eldur kom upp í bíl við Kennaraháskóla Íslands rétt upp úr klukkan hálftíu í morgun. Eigandi bílsins, Halli í Botnleðju, var staddur í skólanum þar sem hann stundar nám, þegar eldur blossaði upp í bíl hans sem stóð mannlaus á bílastæði skólans. Bíllin gjöreyðilagðist í eldinum en eldsupptök eru ókunn. Innlent 31.1.2006 10:10
Röð óhappa á Reykjanesbraut Tvennt slasaðist, en hvorugt alvarlega, þegar fimm bílar lentu í msimunandi miklum ógöngum í skyndilegri ísingu og þoku á Reykjanesbrautinni upp úr klukkan sjö í morgun, á móts við afleggjarann að Innri-Njarðvík. Fyrst ók sendibíll á ljósastaur. Innlent 31.1.2006 09:52
Styrkur veittur úr minningarsjóði Dagsbrúnarformanns Stjórn Alþýðusambandsins hefur ákveðið að veita styrk úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar 1. maí næstkomandi og verður það í fyrsta skipti sem styrkur er veittur úr sjóðnum. Styrkurinn verður að hámarki hálf milljón króna. Innlent 31.1.2006 06:14
Seinkun á kalkþörungaverksmiðju Þriggja mánaða seinkun hefur orðið á byggingu kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal. Þetta kemur fram á fréttavefnum BB.is. Ástæður fyrir seinkuninni eru meðal annars þær að gögn vantaði í sambandi við hönnun hússins og einnig var lóðin ekki eins aðgengileg og haldið var. En vonast er til að byrjað verði á framkvæmdunum innan tíu daga og að verksmiðjan taki til starfa seinnipart sumars. Innlent 31.1.2006 08:58
Sáu tvær hvalatorfur Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson, sem verið hefur við loðnuleit fyrir austan land að undanförnu, siglir nú fulla ferð í átt að svæði, þar sem flugvél Landhelgisgæslunnar sá tvær stórar hvalatorfur í gær. Það var um 75 sjómílur austur af mynni Vopnafjarðar og er talið að hvalirnir séu þar í æti, og að ætið sé loðna. Innlent 31.1.2006 07:53