Innlent Tólf vilja sæti á Í-lista Tólf eru í framboði í prófkjöri Í-listans, sameiginlegs framboðs Frjálslynda flokksins, Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Ísafirði sem fram fer í dag. Innlent 25.2.2006 09:59 Víðast góð færð Góð færð er víðast hvar um landið en þó eru hálkublettir á nokkrum stöðum. Vegfarendur sem eiga leið um Hellisheiði, Þrengsli og Vatnaleið ættu að vara sig á hálkublettum og sömu sögu er að segja á Hrafnseyrarheiði, í Vatnsskarði, á Öxnadalsheiði og í Víkurskarði og Oddskarði. Innlent 25.2.2006 09:24 Óhagstæð um 11,4 milljarða Halli á viðskiptum við útlönd í janúar nam tæpum 11,4 milljörðum króna. Á sama tíma í fyrra nam hallinn rúmum 4,3 milljörðum. Samkvæmt tölum Hagstofunnar nam útflutningur í janúar 14,1 milljarði króna, en innflutningur 25,5 milljörðum. Á sama tíma í fyrra nam útflutningur 12,9 milljörðum, en innflutningur tæpum 17,3. Miðað er við fast gengi. Viðskipti innlent 24.2.2006 21:37 Fjórir úr stjórninni Sparisjóðir Fjórir af fimm stjórnarmönnum í Sparisjóði Hafnarfjarðar gengu úr stjórn á aðalfundi sem haldinn var á dögunum. Nýir stjórnarmenn eru Jón Auðunn Jónsson, Magnús Ármann, Matthías Imsland, sparissjóðsstjórinn Magnús Ægir Magnússon og Þórður Magnússon, sem átti sæti í gömlu stjórninni. Viðskipti innlent 24.2.2006 21:37 Útlán drógust mikið saman
Tólf vilja sæti á Í-lista Tólf eru í framboði í prófkjöri Í-listans, sameiginlegs framboðs Frjálslynda flokksins, Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Ísafirði sem fram fer í dag. Innlent 25.2.2006 09:59
Víðast góð færð Góð færð er víðast hvar um landið en þó eru hálkublettir á nokkrum stöðum. Vegfarendur sem eiga leið um Hellisheiði, Þrengsli og Vatnaleið ættu að vara sig á hálkublettum og sömu sögu er að segja á Hrafnseyrarheiði, í Vatnsskarði, á Öxnadalsheiði og í Víkurskarði og Oddskarði. Innlent 25.2.2006 09:24
Óhagstæð um 11,4 milljarða Halli á viðskiptum við útlönd í janúar nam tæpum 11,4 milljörðum króna. Á sama tíma í fyrra nam hallinn rúmum 4,3 milljörðum. Samkvæmt tölum Hagstofunnar nam útflutningur í janúar 14,1 milljarði króna, en innflutningur 25,5 milljörðum. Á sama tíma í fyrra nam útflutningur 12,9 milljörðum, en innflutningur tæpum 17,3. Miðað er við fast gengi. Viðskipti innlent 24.2.2006 21:37
Fjórir úr stjórninni Sparisjóðir Fjórir af fimm stjórnarmönnum í Sparisjóði Hafnarfjarðar gengu úr stjórn á aðalfundi sem haldinn var á dögunum. Nýir stjórnarmenn eru Jón Auðunn Jónsson, Magnús Ármann, Matthías Imsland, sparissjóðsstjórinn Magnús Ægir Magnússon og Þórður Magnússon, sem átti sæti í gömlu stjórninni. Viðskipti innlent 24.2.2006 21:37
Sóknarfæri í hestaútflutningi Landbúnaðarráðherra segir mikil sóknarfæri opnast í hestaútflutningi með undirritun samnings við Evrópusambandið um niðurfellingu tolla. Að auki verða felldir niður tollar á hreindýrakjöti, tómötum, agúrkum og frosnu grænmeti svo eitthvað sé nefnt. Innlent 24.2.2006 22:42
Óásættanleg framkoma við aldraða Um fimmtíu pör fá ekki að eiga síðustu ævidagana saman af því þau fá ekki inni á sömu stofnun. Þetta er óásættanleg framkoma við eldri kynslóðina segir forseti Íslands. Innlent 24.2.2006 23:08
Mikil stemming hjá eldri borgurum Það var þétt setinn bekkurinn í Gerðubergi í dag þegar menningarhátíð eldri borgara var sett. Í salnum voru fleiri en eldri borgarar enda hefur verið unnið að því hörðum höndum í Breiðholtinu að brúa kynslóðabilið. Innlent 24.2.2006 23:06
Hluti þýfisins fundið Lögreglan á Englandi hefur fundið hluta þýfisins sem ræningjar höfðu á brott með sér þegar þeir rændu peningageymslu í Kent í fyrradag. Þetta er eitt stærsta ránið í sögu Bretlands en ræningjarnir náðu um 50 milljónum punda eða sem nemur hátt í sex milljörðum íslenskra króna. Lögreglan hefur ekki viljað gefa út hversu mikið af fénu er fundið en það fannst í sendiferðabíl Erlent 24.2.2006 22:20
Kaffið sötrið í kolniðamyrkri Gestir kaffihúss eins í miðbænum helltu í dag niður meira kaffi en almennt gerist og áttu í vandræðum með að finna góðgætið sem hafði verið borið á borð fyrir þá. Allt átti þetta sér þó eðlilegar skýringar eins. Innlent 24.2.2006 22:37
Einn maður slasaðist í bílveltu Einn maður slasaðist þegar bíll sem hann ók fór út af veginum í Fljótsdal. Svo virðist sem maðurinn hafi misst stjórn á bílnum til hægri og við það kippt í stýrið með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af veginum vinstra megin og valt niður bratta hlíð. Sjúkraflugvél frá Akureyri var send til að sækja manninn og að sögn vakthafi læknis á slysadeild Fjörðungssjúkrahússins á Akureyri er maðurinn fótbrotinn og með brotið herðablað og gengst nú undir aðgerð. Innlent 24.2.2006 22:10
Flestir komnir úr ungliðastarfinu Sjö af hverjum tíu ráðherrum Sjálfstæðisflokksins frá lýðveldistöku hafa unnið sig upp í gegnum flokksstarfið og hafið ferilinn í ungliðahreyfingu flokksins. Þetta kemur fram í lokaritgerð Jóhanns Bjarna Kolbeinssonar, nema í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Innlent 24.2.2006 22:29
Eins og beljur að vori Svo virðist sem vor sé í lofti því að sögn lögreglunnar á Blönduósi láta ökumenn nú eins og beljur að vori og gefa í. Tuttugu og átta ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur af Blönduós lögreglu seinni partinn í dag og svo virðist sem öll flóran af ökumönnum auki hraðann eftir því sem nær dregur sumri. Innlent 24.2.2006 22:07
Engin samræmd stúdentspróf í vor Engin samræmd stúdentspróf verða í vor. Menntamálaráðherra ætlar að leggja fram tillögu á þingi um að samræmd stúdentspróf í framhaldsskólum verði lögð niður í núverandi mynd. Starfshópur sem menntamálaráðherra setti á laggirnar var sammála um að leggja ætti niður núverandi fyrirkomulag á samræmdum stúdentsprófum og kanna ætti möguleikann á að tekin yrði upp einstaklingsmiðuð tölvuvædd könnunarpróf. Innlent 24.2.2006 19:12
Tvö hundruð bíða greiningar Um 200 börn bíða greiningar hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Vonir standa til að jafnvægi verði komi á biðlistann eftir tvö ár. Aldrei hafa fleiri greinst einhverfir en nú. Innlent 24.2.2006 18:00
Ætla að veita styrki til ættleiðinga Ríkisstjórnin ætlar að gera ráð fyrir styrkjum til fjölskyldna sem ættleiða börn erlendis frá, í fjárlagagerð fyrir árið 2007. Innlent 24.2.2006 17:50
Flugumferðastjórn útskrifar úr grunnnámi Þrettán útskrifuðust úr grunnnámi í flugumferðarstjórn hjá Flugmálastjórn í dag en það er fyrsta slíka útskrifin hér á landi í sjö ár. Meirihluti útskriftarnemanna er frá Kosovo. Innlent 24.2.2006 18:10
Baugsmálið kostar nærri 1.500 milljónir Málsvarnarlaun sexmenninganna sem ákærðir eru í Baugsmálinu, rannsóknarvinna, almannatengsl og annar kostnaður Baugs vegna málaferlanna.,- nema eitt þúsund og tvö hundruð milljónum króna. Kostaður hins opinbera vegna málsóknarinnar nemur að minnsta kosti 200 milljónum. Innlent 24.2.2006 18:44
Dýrast í Garðabæ Garðabær er dýrasta sveitarfélag landsins þegar kemur að því að fá leikskólavist og skóladagvist fyrir börn. Skiptir þá engu hvort um er að ræða hjón eða einstætt foreldri. Þetta kemur fram í nýrri verðlagskönnun Alþýðusambands Íslands. Innlent 24.2.2006 18:05
Sáttafundi lauk án árangurs Sáttafundi slökkviliðsmanna og viðsemjenda þeirra hjá Ríkissáttasemjara lauk án árangurs nú fyrir stundu. Annar fundur hefur verið boðaður á morgun. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykktu í gærkvöldi heimild til boðun verkfalls um allt land. Innlent 24.2.2006 17:35
Gæsluvarðhald framlengt vegna afmfetamínsmygls Búið er að framlengja gæsluvarðhald yfir tveimur Litháum vegna gruns um amfetamínsmygl. Gæsluvarðhald yfir öðrum manninum var framlengt til 7. apríl og yfir hinum til 2. mars. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í morgun Litháa á fertugsaldri í farbann til tuttugasta og fjórða mars næstkomandi vegna málsins. Innlent 24.2.2006 17:05
Frítt dagblað kemur út í haust Dagsbrún stefnir á að hefja útgáfu nýs dagblaðs í Danmörku í haust blaðinu verður dreift frítt. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagbrúnar, staðfesti þetta í viðtalið á fréttavaktinni eftir hádegi í dag. Búið er að stofna vinnuhóp til að kanna með hvaða leiðum hagkvæmast er að dreifa blaðinu. Innlent 24.2.2006 16:42
Samræmd stúdentspróf heyra sögunni til Ákveðið hefur verið að fella niður samræmd stúdentspróf í framhaldsskólum í núverandi mynd. Menntamálaráherra hyggst leggja fram frumvarp á vorþingi þar sem þetta verður lagt til. Ýmsir vankantar hafa verið á framkvæmd prófana að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu og hafa framhaldskólarnir átt í erfiðleikum með að bæta samræmdu prófunum við prófahald sem þar hefur tíðkast um árabil. Innlent 24.2.2006 15:47
Liggur þungt haldinn á gjörgæslu Maðurinn sem féll af þaki við Lyngás í Garðabæ í gærdag liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hann er með alvarlega áverka og er haldið sofandi í öndunarvél. Maðurinn var við störf á þakinu þegar slysið átti sér stað. Vinnueftirltið vinnur nú að rannsókn málsins. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði mun fallið hafa verið nokkuð hátt. Innlent 24.2.2006 15:43
Ekki samstaða um hvort að vændiskaup eigi að vera refsiverð Ekki náðist samstaða um hvort gera ætti kaup á vændi refsiverð í starfshóp sem dómsmálaráðherra skipaði árið 2004 og farið hefur yfir málið. Starfshópurinn kannaði mismunandi löggjöf um vændi á Norðurlöndum og víðar. Innlent 24.2.2006 15:32
Vöruskipti óhagstæð um 11,4 milljarða Halli á viðskiptum við útlönd í janúar nam tæpum 11,4 milljörðum króna. Á sama tíma í fyrra nam hallinn rúmum 4,3 milljörðum. Mest jókst innflutningur neysluvara og flutningatækja, um 23,6 og 14,2 prósent, meðan innflutningur á mat og drykkjarvöru dróst saman um 5,4 prósent. Viðskipti innlent 24.2.2006 13:14
Lithái úrskurðaður í farbann Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í morgun Litháa á fertugsaldri í farbann til 24. mars næstkomandi vegna rannsóknar á amfetamínsmygli. Maðurinn er búsettur hér á landi. Gæsluvarðhald yfir tveimur Litháum, sem einnig eru taldir tengjast málinu, rennur út klukkan fjögur í dag. Fyrir þann tíma verður tekin afstaða til þess hvort óskað verður eftir að það verði framlengt. Innlent 24.2.2006 13:09
Styrkir vegna ættleiðinga frá útlöndum Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að veita styrki vegna ættleiðinga frá útlöndum frá og með næsta ári. Kostnaður para sem ættleiða börn erlendis frá er gjarnan um ein milljón króna. Innlent 24.2.2006 13:04
Banaslys í Garðabæ Stúlkan sem lést eftir að hafa orðið fyrir bíl á Bæjarbraut í Garðabæ fimmtánda þessa mánaðar hét Halla Margrét Ásgeirsdóttir. Minningarathöfn um Höllu Margréti fer fram í Vídalínskirkju klukkan 18 í dag. Innlent 24.2.2006 12:21
Rask á þjónustu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna Þegar hefur orðið rask á þjónustu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna í morgun þótt þeir hafi ekki gripið til formlegra hópaðgerða. Eftir því sem NFS kemst næst, mættu slökkvililðs- og sjúkraflutningamenn ekki á endurmennturnarnámskeið í morgun, en þar var skyldumæting. Þá hafa þeir hafanð yfirvinnu, en menn í yfirvinnu manna svonefnda dagbíla, sem eru tveir sjúkrabílar, sem flytja fólk á milli sjúkrahúsam á daginn vegna myndatöku og annara rannsókna. Innlent 24.2.2006 12:16