Innlent
Hlýjasti febrúarmánuður í 40 ár Nýliðinn febrúarmánuður var sá hlýjasti í Reykjavík í fjörutíu ár, samkvæmt mælingum Veðurstofunnar. Meðalhitinn mældist 3,3 gráður, eða tæpum þremur gráðum yfir meðallagi. Innlent 3.3.2006 07:29
Leggja blóm og kerti við slysstað Mikill fjöldi blóma og kerta hefur verið lagður að ljósastaur á mótum Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar til minningar um Guðrúnu Jónsdóttur sem lést þar í bílslysi aðfaranótt þriðjudags. Innlent 3.3.2006 07:18
Álftanesvegur boðinn út í haust Um það bil hálfum milljarði króna verður varið í endurbyggingu Álftanesvegar frá Engidal að vegamótum Bessastaðavegar. Verkið verður boðið út seint á þessu ári en ekki er þó gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist fyrr en á næsta ári. Innlent 3.3.2006 06:39
Fjórir dæmdir fyrir misþyrmingar Héraðsdómur Norðurlands Eystra hefur dæmt mennina fjóra, sem réðust á 17 ára pilt á Akureyri fyrir ári, misþyrmdu honum og skildu eftir klæðalítinn í húsasundi í frosti. Innlent 3.3.2006 07:14
Varð til happs að lenda í fullu fiskikari Sjómaður á netabáti slapp ótrúlega vel þegar hann féll fimm metra ofan í lest bátsins þegar verið var að landa í Þorlákshöfn í gærkvöldi. Það varð honum til happs að lenda ofan í fullu fiskikari og tók fiskurinn af honum mesta höggið. Innlent 3.3.2006 07:11
Vetrarfærð víða fyrir norðan og austan Vetrarfærð er víða á Norðurlandi eystra og Austurlandi, hálka, hálkublettir eða snjóþekja, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hvergi er þó fyrirstaða á vegum. Innlent 3.3.2006 07:57
Fundahlé í kjaradeilu slökkviliðsmanna Samningafundi Landssambands slökkviliðs-og sjúkrafutningamanna við fulltrúa ríkisins, var frestað hjá Ríkissáttasemjara um klukkan ellefu í gærkvöldi , eftir að hafa staðið í tíu klukkustundir. Fundi verður fram haldið eftir hádegi. Innlent 3.3.2006 07:07
Ljósmæður áhyggjufullar vegna stöðu mála Ljósmæður eru áhyggjufullar með að kjarabarátta þeirra muni dragast á langinn en enn hefur enginn fundur verið ákveðinn milli þeirra og sanminganefndar skipaðri af heilbrigðisráðherra, sem semur við sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn. Innlent 2.3.2006 21:41
Fjölmennir minningartónleikar Hátt á tvöhundrað manns sóttu góðgerðartónleika í Ísafjarðarkirkju í gærkvöldi, sem haldnir voru til minningar um Þóreyju Guðmundsdóttir sem lést í bílslysi á Hnífdalsvegi í janúar. Innlent 2.3.2006 20:25
Hæstiréttur staðfestir úrskurð Héraðsdóms Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að fresta máli Jóns Ólafssonar gegn Hannesi Hólmsteini Gissurasyni á meðan endurupptökubeiðni Hannesar er til meðferðar fyrir enskum dómstóli en málið verður tekið fyrir þar á morgun. Innlent 2.3.2006 20:10
Undirrituðu samstarfssamning Landhelgisgæslan og ríkislögreglustjóri gerðu með sér formlegan samstarfssamning í dag. Stofnanirnar tvær hafa lengi átt gott og mikið samstarf en formlegur samningur hefur ekki verið gerður fyrr en nú. Þau verkefni með kveðið er á í samningnum er meðal annars leit, björgun og almannavarnir, sameiginlegt bátaeftirlit, gagnkvæmur stuðningur stofnanna við lögregluaðgerðir á sjó og landi, siglingavernd og sameiginleg þjálfun. Innlent 2.3.2006 19:32
Samtökin Forma fá Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins Forma, samtökum átröskunarsjúklinga á Íslandi, var veitt Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í dag. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti Ölmu Geirdal og Eddu Ýr Einarsdóttur, stofnendum Forma, verðlaunin alls eina milljóna króna. Lífið 2.3.2006 19:19
Skipað í embætti prests í Hallgrímskrikju Sr. Birgir Ásgeirsson hefur verið veitt embætti prests í Hallgrímskirkjuprestakalli. Alls sóttutíu umsækjendur um um embættið en umsóknarfrestur rann út 17. febrúar síðastliðinn. Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára í senn að fenginni niðurstöðu valnefndar. Nefndin er skipuð fimm fulltrúum úr prestakallinu auk vígslubiskupsins í Skálholti. Innlent 2.3.2006 17:18
Búið að slökkva eld á Lynghálsi Búið er að slökkva eld í húsakynnum Stöðvar 2 og verið er að reykræsta húsið. Allt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út þegar eldsins varð vart um fjögurleitið. Talið er að eldur hafi kviknað í eldhúsi en mikill reykur var í húsinu. Starfsfólk komst út í tæka tíð og enginn var fluttur á slysadeild. Allar útvarpsstöðvar duttu út vegna eldsins. Innlent 2.3.2006 16:57
Rúm fyrir álver og stækkun Forsætisráðherra gaf lítið fyrir hvatningar stjórnarandstæðinga um hægja á uppbyggingu álvera á Alþingi í dag. Hann sagði álver á Húsavík og stækkun í Straumsvík rúmast innan marka Kyoto bókunarinnar en efast um að orka fáist fyrir álver á Reykjanesi. Innlent 2.3.2006 16:51
Þrír stærstu bankar landsins styrkja stöðu sína gagnvart sveiflum Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings segir í nýrri skýrslu um næmi þriggja stærstu banka landsins, KB banka, Landsbankans og Íslandsbanka, að þeim hafi á síðastliðnum þremur árum tekist að bregðast með betri hætti við sveiflum á gengis- og vaxtamarkaði hér á landi. Segir m.a. í skýrslunni að fjölbreytt starfsemi bankanna hafi orðið til þess að þeir eru ekki jafn viðkvæmir fyrir breytingum og áður. Viðskipti innlent 2.3.2006 16:14
Eldur í húsakynnum Stöðvar 2 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað úr rétt í þessu vegna elds í húsakynnum Stöðvar 2 á Lynghálsi. Allt starfólk komst út við illan leik en talið er að eldur hafi kviknaði í í eldhúsi, hugsanlega út frá loftræstingu, en frá eldhúsinu leggur mikinn reyk. Allar útvarpsstöðvar eru dottnar út vegna eldsins. Reykkafarar eru komnir inn í húsið og verið er að slökkva eldinn. Innlent 2.3.2006 16:11
Gullæði á Norðurlandi Gullæði hefur gert vart við sig á Norðurlandi í kjölfar fyrirætlana Alcoa um álver á Húsavík. Mikið verður byggt, fasteignaverð þýtur upp og samgöngur verða bættar. Innlent 2.3.2006 15:54
Eigið fé Stoða jókst á milli ára Hagnaður fasteignafélagsins Stoða hf. nam rúmum 2 milljörðum króna á síðasta ári, að því er fram kemur í ársuppgjöri félagsins. Þetta er 766 milljónum króna minna en árið á undan. Í árslok gerði félagið samning um kaup á öllu hlutafé í danska fasteignafélaginu Atlas Ejendomme A/S og varð félagið hluti af samstæðureikningi Stoða hf. frá yfirtökudegi, sem var 6. janúar sl. Þá hafa kaupin og lánveitingar til Atlas verið færðar í ársreikninginn. Viðskipti innlent 2.3.2006 15:25
DV braut siðareglur blaðamanna Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur úrskurðað að DV hafi gerst brotlegt á þriðju grein siðareglna Blaðamannafélagsins þegar það birti forsíðufyrirsögnina „Hafnfirskur gleraugnasali selur tæki sem á að lækna fuglaflensu" og fyrirsögn á bls. 8 þar sem stóð ,,Lækning við fuglaflensu í Hafnarfirði". Kemst Siðanefndin að þeirri niðurstöðu að brotið sé ámælisvert. Innlent 2.3.2006 14:41
Kemur til greina að nota tálbeitur Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir það koma sterklega til greina að lögregla beiti tálbeitum til að koma upp um barnaníðinga. Dómsmálaráðherra sagði þetta í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Innlent 2.3.2006 14:37
Forstjóraskipti hjá Tæknivali Magnús V. Snædal hefur verið ráðinn forstjóri Tæknivals í stað Sigrúnar Guðjónsdóttur. Hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá þekkingu. Ráðningin kemur í kjölfar eigendaskipta á Tæknivali, þar sem eignarhaldsfélagið Byr keypti félagið af Fons. Viðskipti innlent 2.3.2006 14:20
Umsókn Bauhaus frestað vegna athugasemda Borgarráð frestaði enn einu sinni afgreiðslu á umsókn bygginarvörukeðjunnar Bauhaus um lóð undir verslun í landi Úlfarsfells, í þetta sinn vegna lögfræðiálits sem barst frá BYKO og mótmæla frá Mosfellsbæ. BYKO ásælist einnig lóðina þrátt fyrir að hafa fengið úthlutað lóð skammt frá. Innlent 2.3.2006 14:07
Opnaði nýja starfsstöð Actavis Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, opnaði í dag nýja starfsstöð fyrir dótturfélag Actavis Group, Lotus Labs, í borginni Bangalore á Indlandi. Nýskipaður sendiherra Íslands á Indlandi, Sturla Sigurjónsson, og viðskiptasendinefnd frá Íslandi voru einnig viðstödd opnunina. Starfsstöðin mun hýsa skrifstofur, rannsóknarstofur og aðstöðu fyrir frásogsrannsóknir. Vel á þriðja hundrað manns munu starfa í starfsstöðinni sem Actavis segir mjög mikilvæga fyrir starfsemina á Indlandi. Innlent 2.3.2006 13:07
Stórtækar hugmyndir um framkvæmdir á Norðurlandi Ný brú yfir Skjálfandafljót, uppbygging Húsavíkurflugvallar, og jarðgöng undir Vaðlaheiði eru meðal þeirra hugmynda sem fá byr undir báða vængi eftir undirritun viljayfirlýsingar um byggingu álvers við Húsavík. Menn sjá fyrir sér að Húsavík og Akureyri verði eitt atvinnusvæði með tilkomu álversins, en göngin myndu stytta leiðina á milli um 16 kílómetra og með nýjum vegkafla og nýrri brú yfir Skjálfandafljót myndi leiðin styttast enn. Innlent 2.3.2006 12:26
Ragnhildur Inga færð úr fimmta sæti í það þriðja í Garðabæ Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ ákvað á fundi sínum í gærkvöld að færa Ragnhildi Ingu Guðbjartsdóttur úr fimmta sæti í það þriðja á framboðslista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Innlent 2.3.2006 12:03
Lögregla rannsakar landhelgisbrot Lögregla hefur í allan morgun vaktað íslenskt fiskiskip sem kom til Sandgerðis undir morgun, eftir að hafa verið staðið að ólöglegum línuveiðum suðvestur af landinu í gær. Þegar Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar var að fljúga yfir svæðið í gær tók áhöfnin eftir því að skipið var á lista Fiskistofu yfir skip, sem svipt hafa verið veiðileyfi, en slíkt er landhelgisbrot. Innlent 2.3.2006 12:24
Mikill missir vegna lítils penings Stjórnarliðar jafnt sem stjórnarandstæðingar lýstu miklum áhyggjum af því við upphaf þingfundar í dag að heimaþjónusta ljósmæðra hefði fallið niður vegna kjaradeilu þeirra við heilbrigðisráðuneytið. Innlent 2.3.2006 12:11
Borgarráð ræðir um lóð handa Bauhaus Borgarráð kom saman til fundar klukkan ellefu þar sem meðal annars átti að taka fyrir umsókn byggingarvöruverslunarkeðjunnar Bauhaus um lóð undir verslun undir Úlfarsfelli. Innlent 2.3.2006 12:06
Vegur lokaður milli Egilsstaða og Seyðisfjarða Vegurinn á milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar er lokaður og verður það næsta klukkutímann eða svo á meðan verið er að reyna að ná flutningabíl sem valt þar í gær upp á veginn. Innlent 2.3.2006 12:03