Innlent

Fréttamynd

Hannes Hlífar í undanúrslit á Glitnismótinu

Glitnismótinu í hraðskák, sem nú fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur er senn að ljúka en eftir eru tvær skákir í átta manna úrslitum. Hannes Hlífar Stefánsson komst í undanúrslit fyrir nokkrum mínútum þegar hann lagði Tatíönu Vasilevich í spennandi viðureign þá er heimsmeistarinn í hraðskák, Indverjinn Vishy Anand, einnig kominn í undanúrslit.

Innlent
Fréttamynd

Ekki þörf á sýnilegum loftvörnum

Íslendingar þurfa ekki sýnilegar loftvarnir, segir forstöðumaður sænsku friðarrannsókna- stofnunarinnar SIPRI. Íslendingar verði að sætta sig við að engin þjóð muni senda hingað tæki og mannafla í líkingu við þann sem verið hefur í Keflavík.

Erlent
Fréttamynd

Athuga þarf varnarsamstarf við nágrannaþjóðir

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir brottflutning hersins ekki koma á óvart heldur sé nýtt í málinu hvaða tími sé til stefnu. Hann vill gera samninga við aðrar þjóðir eins og til dæmis Dani, Norðmenn eða Breta samhliða varnarsamningnum.

Innlent
Fréttamynd

Vatnalög samþykkt frá Alþingi

Vatnalagafrumvarp iðnaðarráðherra, sem mikill styr hefur staðið um síðustu daga, var samþykkt sem lög frá Alþingi á fimmta tímanum í dag með 26 atkvæðum gegn 19.

Innlent
Fréttamynd

Fallinn á fyrsta prófi

Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í umræðum um varnarsamninginn á Alþingi í dag, að Geir H. Haarde, utanríkisráðherra hefði fallið á fyrsta prófi sínu í embætti.

Innlent
Fréttamynd

Kemur út sex daga vikunnar í 700-900 þúsund eintökum

Dagsbrún stefnir að því að hefja útgáfu fríblaðs í Danmörku á þessu ári. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, segir að miðað sé við að upplag blaðsins verði 700-900 þúsund eintök og það komi út sex daga vikunnar.

Innlent
Fréttamynd

Glitnir hækkar vexti á húsnæðislánum

Glitnir, áður Íslandsbanki, hefur ákveðið að hækka vexti sína á verðtryggðum húsnæðislánum um 0,13%. Breytingin hefur ekki áhrif á kjör þeirra sem þegar hafa tekið húsnæðislán hjá Glitni. Vextir nýrra lána hækka úr 4,35% í 4,48%. KB-banki tilkynnti um hækkun á vöxtum á húsnæðislánum sínum í gær. En vextir lánanna hjá KB-banka eru nú 4,3% en voru áður 4,15%.

Innlent
Fréttamynd

Gengið frá kaupum á Strætólóðinni

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, og Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, undirrituðu í dag samning um kaup bankans á byggingarrétt á hluta Strætólóðarinnar við Kirkjusand. Bankinn hyggst nýta lóðina til frekari uppbyggingar fyrirtækisins hér á landi. Glitnir greiðir um einn milljarð króna fyrir bygginarréttinn og fær svæðið afhent í tveimur áföngum, haustið 2006 og haustið 2007.

Innlent
Fréttamynd

Hrokafullur stjórnunarstíll

Valur Ingimundarson, sérfræðingur í varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna, segir það koma sér á óvart hve mild viðbrögð íslenskra stjórnvalda séu við ákvörðun Bandaríkjamanna að draga stórlega úr umsvifum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Hann segir Bandaríkjamenn beita hrokafullum stjórnunarstíl.

Innlent
Fréttamynd

Hraða þarf viðræðum

Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, gerði þingheimi í hádeginu grein fyrir ákvörðun Bandaríkjamanna frá í gær um að draga úr starfsemi varnarliðsins í Keflavík á næstu mánuðum. Hann sagði að hraða þyrfti viðræðum um áframhaldandi samstarf. Formaður Samfylkingarinnar segir viðræður hingað til augljóslega ekki hafa skilað neinu.

Innlent
Fréttamynd

Fyrstu skref í átt að útgáfu fríblaðs í Danmörku

Dagbrún hefur tekið fyrstu skrefin í átt að stofnun fríblaðs í líkingu við Fréttablaðið í Danmörku með stofnun 365 Media Scandinavia þar í landi. Dagsbrún hefur áður lýst yfir að það hefði uppi áform um útrás á erlenda markaði með áherslu á Norðurlönd og Bretland.

Innlent
Fréttamynd

365 Media Scandinavia stofnað

Dagsbrún hf. hefur stofnað félagið 365 Media Scandinavia A/S í Danmörku. Í tilkynningu til Kauphallar Íslands segir að stofnun félagsins marki fyrstu skref félagsins í átt að útgáfu fríblaðs í líkingu við Fréttablaðið í Danmörku.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Undirbúningsframkvæmdir hafnar

Hafnar eru undirbúningsframkvæmdir í Austurhöfn í Reykjavík og gætu nærliggjandi fyrirtæki og íbúar farið að finna fyrir nokkru raski fljótlega. Kostnaður við undirbúningsframkvæmdirnar er yfir 1,3 milljarðar króna.

Innlent
Fréttamynd

Lánshæfi ríkissjóðs staðfest

Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor’s staðfesti í dag lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs á langtímaskuldbindingum í erlendri mynt AA- og AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum. Einnig var staðfest einkunnin A-1+ fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum. Horfur um lánshæfismatið eru stöðugar, að mati Standard & Poor’s.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hugtakið lán og trúverðugleiki vitna réð úrslitum

Sýknudómur Héraðsdóms Reykjavíkur í Baugsmálinu byggir aðallega á skilgreiningu á hugtakinu lán og trúverðugleika vitna eins og Jóns Geralds Sullenbergers. Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að vitnisburður Jóns Geralds hafi verið ótrúverðugur þar sem hann beri kala til Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans.

Innlent
Fréttamynd

Ákvörðun Bandaríkjamanna þarf ekki að koma á óvart

Sú ákvörðun ráðamanna í Bandaríkjunum að draga stórlega úr starfsemi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli þarf ekki að koma á óvart í ljósi atburða vorið 2003 þegar einhliða ákvörðun Bandaríkjamanna um brotthvarf þotna og þyrlna var kynnt forsætisráðherra. Síðan þá hefur legið ljóst fyrir að Bandaríkjamenn vildu breyta rekstri sínum hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Krónubréfaútgáfa þrátt fyrir neikvæða umfjöllun

Þýski ríkisbankinn Rentenbank gaf út krónubréf fyrir 2 milljarða krónur í gær. Útgáfan er til tveggja ára og bera bréfin 9 prósenta vexti. Þetta er fyrsta útgáfa krónubréfa í mars og þriðja útgáfan frá því Fitch breytti horfum á lánshæfismati ríkisins úr stöðugum í neikvæðar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ratsjárstöðvum lokað innan tíðar

Margt bendir til þess að ratsjárstöðvunum hér á landi verði lokað innan tíðar því hernaðarlegum tilgangi þeirra lýkur í raun þegar herþoturnar verða fluttar frá Keflavíkurflugvelli í haust.

Innlent
Fréttamynd

Geta átt von á uppsögnum

Allir starfsmenn, bæði íslenskir og bandarískir voru boðaðir á fund í stóra flugskýlinu á Keflavíkurflugvelli í morgun vegna frétta um stórfellda fækkun hjá varnarliðinu. Á fundinum var starfsmönnum kynnt að það mætti eiga von á uppsögnum.

Innlent
Fréttamynd

Hermönnum í Keflavík fækkað um 60% á 15 árum

Bandarískum hermönnum í varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli hefur fækkað um rúm 60% frá endalokum kalda stríðsins fyrir fimmtán árum og enn frekari fækkun þýðir að ýmsum þjónustustofnunum á vellinum verður lokað.

Innlent
Fréttamynd

Frávísunartillaga felld

Frávísunartillaga stjórnarandstöðuflokkanna um vatnalagafrumvarp iðnaðarráðherra var felld á Alþingi í morgun með 28 atkvæðum gegn 23.

Innlent
Fréttamynd

Bónus fékk Neytendaverðlaunin

Handhafi Neytendaverðlauna Neytendasamtakanna og Bylgjunnar 2006 er verslunin Bónus. Verðlaunin voru afhent í gær í tilefni af alþjóðadegi neytendaréttar.

Innlent
Fréttamynd

Dómsmálaráðherra spurður hvað Baugsmálið kostaði

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, var spurður að því á Alþingi í morgun hvort hann gæti svarað til um hvað málareksturinn í Baugsmálinu hefði kostað ríkið. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingar, spurði hvort ráðherra gæti svarða því hve mikill tími og mannafli hefði farið í málið og hvaða önnur mál hefðu beðið hjá Ríkislögreglustjóra á meðan rannsóknin stóð.

Innlent
Fréttamynd

Baugsmálið rætt á þingi

Sigurjón Þórðarsons, þingmaður Frjálslynda flokksins, ynnti dómsmálaráðherra við upphaf þings í morgun eftir viðbrögðum við sýknudómi í Baugsmálinu. Hann taldi rétt að farið yrði yfir málið enda hafi kostnaður vegna þess verið gríðarlegur. Hann spurði dómsmálaráðherra hvort hann myndi axla pólitíska ábyrgð vegna málsins. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, sagði ræðu Sigurjóns vera fyrir neðan virðingu þingsins og að hann myndi ekki ræða Baugsmálið í sölum Alþingis.

Innlent
Fréttamynd

Óvissa með verð fyrir grásleppuhrogn

Það er af sem áður var þegar allir trillukarlar, sem vettlingi gátu valdið, lögðu net sín strax á fyrsta degi grásleppuvertíðar, í von um gull og græna skóga. Aðeins einn bátur réri til dæmis frá Húsavík, þegar vertíðin hófst á noðrausturlandi um helgina, og á öllu svæðinu frá Grenivík austur til Vopnafjarðar, réru aðeins fjórir bátar.

Innlent
Fréttamynd

Utanríkisráðherra gefur Alþingi skýrslu

Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, mun gera þingheimi grein fyrir stöðu varnarmála á þingfundi sem hefst á Alþingi kl. 10:30 í dag. Á fundinum mun ráðherra gefa munnlega skýrslu um varnarviðræður Íslands og Bandaríkjanna í ljósi þeirra frétta frá í gær að Bandaríkjamenn ætli að flytja þotur sínar og þyrlur frá Keflavíkurflugvelli í síðasta lagi í september og draga verulega úr starfsemi varnarliðsins þar.

Innlent
Fréttamynd

8 mánaða dómur fyrir líkamsárás og bílþjófnað

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær karlmann á þrítugsaldri í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og bílþjófnað. Maðurinn hafði áður komist í kast við lögin. Honum er einnig gert að greiða fórnarlambi skaðabætur og allan málskostnað.

Innlent
Fréttamynd

Íslensk teiknimyndaþáttaröð fjármögnuð

Breska fyrirtækið Upland Entertainment Investments og Brú Venture Capital hafa hvor um sig keypt 10% hlut í fyrirtækinu CAOZ, sem sérhæfir sig í framleiðslu tölvugerðra teiknimynda fyrir alþjóðamarkað. Auk þess munu fyrirtækin taka þátt í fjármögnun sjónvarpsþáttaraðar sem CAOZ er með í undirbúningi.

Innlent
Fréttamynd

Groddalega staðið að brottflutningnum

Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna segja það einstaklega groddalegt hvernig bandarísk stjórnvöld standa að brottflutningi varnarliðsins frá Íslandi. Niðurstaðan hafi þó legið lengi í loftinu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir tíðindi gærdagsins ekki koma sér á óvart.

Innlent