Innlent
Slasaðist alvarlega í bílveltu Karlmaður um tvítugt slasaðist alvarlega í bílveltu í Fossvogi nú síðdegis. Maðurinn, sem var ökumaður bifreiðarinnar, gekkst undir aðgerð vegna brjóstholsáverka. Hann fer í aðgerð vegna tveggja brotinna hryggjarliða í kvöld eða á morgun en er ekki í lífshættu. Innlent 19.3.2006 18:30
Slasaðist í bílveltu Umferðarslys varð á Kringlumýrarbrautinni, við göngubrúnna í Fossvogi nú síðdegis. Að því er næst verður komist var bifreið ekið á ljósastaur eða brúarstólpa svo hún valt. Innlent 19.3.2006 16:37
Stöðvaður á tvöföldum hámarkshraða Lögreglan á Húsavík stöðvaði ungan ökumann á mikilli hraðferð í nótt. Mest mældist bíll piltsins á eitt hundrað áttatíu og eins kílómetra hraða, rétt norðan við Húsavík. Innlent 19.3.2006 14:56
Kokkar berjast Kokkar frá fjórum heimsálfum reyna að slá hverjum öðrum við í matargerðarlist og búist er við harðri keppni í uppvaski á sýningunni Matur 2006 sem haldin verður undir lok mánaðarins. Innlent 19.3.2006 14:40
Varnarmálin rædd á morgun Jaap de Hoop Schaeffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins mun á morgun hitta George Bush Bandaríkjaforseta þar sem varnir Íslands verða til umræðu. Innlent 19.3.2006 12:14
Sér ekkert athugavert við ritstjórnina Oddviti Framsóknarmanna í Reykjavík sér ekkert athugavert við framferði ritstjóra Framsóknarvefsíðunnar Hriflu, sem neitaði að birta pistil borgarfulltrúa flokksins um lýðræði á vefsíðunni. Innlent 19.3.2006 12:17
Líkamsárás á Laugaveginum í morgun Tveir menn um tvítugt réðust á mann frá Marokkó á Laugaveginum í morgun. Tildrög árásarinnar liggja ekki fyrir. Innlent 19.3.2006 11:56
Hálka víða fyrir norðan og austan Hálka, hálkublettir og éljagangur er víða á Norðaustur- og Austurlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Aðrir þjóðvegir landsins eru nokkuð greiðfærir en mjög víða gilda þungatakmarkanir. Innlent 19.3.2006 11:30
Þrír teknir við ölvunarakstur Þrír voru teknir ölvaðir við akstur í umdæmi Keflavíkurlögreglunnar í nótt og í morgun. Þá voru nokkrir stöðvaðir vegna smávægilegri umferðarlagabrota. Innlent 19.3.2006 10:04
Blandar flokkspólitík í uppsagnir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ furða sig á því að fyrsti fundur forsætisráðherra um málefni starfsmanna varnarliðsins eftir að herinn tilkynnti að hann hefði sig á brott verði haldinn á kosningaskrifstofu A-listans. Innlent 19.3.2006 10:05
Tveir gistu fangageymslur Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt vegna ölvunar og óláta. Þá var einn ökumaður tekinn grunaður um ölvun við akstur og tveir fyrir að keyra réttindalausir, báðir eru aðeins sextán ára og virtist liggja meira á að setjast undir stýri en svo að þeir gætu beðið eftir að fá bílpróf. Innlent 19.3.2006 10:03
Tekinn tvisvar á ellefu mínútum Nítján ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á hálftíma á Akureyri. Allir voru á 50 kílómetra hraða eða meira þar sem er 30 kílómetra hámarkshraði. Einn þeirra sem lögreglan tók fyrir of hraðan akstur var stöðvaður aftur ellefu mínútum síðar og þá fyrir að tala í síma undir stýri. Innlent 18.3.2006 17:37
Oddur Helgi leiðir Lista fólksins Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi leiðir L-lista, Lista fólksins, við bæjarstjórnarkosningar á Akureyri. Þetta er í þriðja skipti sem listinn býður fram og hefur Oddur helgi leitt listann í öll þrjú skiptin. Innlent 18.3.2006 17:25
Vilja starfslokasamning frá hernum Undirskriftasöfnun er hafin meðal starfsmanna Varnarliðsins þar sem farið er fram á að þeir fái starfslokasamning vegna uppsagna allra starfsmanna Varnarliðsins. Samkvæmt kjarasamningum eiga starfsmenn ekki rétt á öðrum greiðslum við uppsögn en þær sem felast í uppsagnarfresti. Innlent 18.3.2006 16:55
Verðlaunuð fyrir stærðfræðikunnáttu 24 börn á aldrinum níu til tólf ára hafa varið frítíma sínum í vetur við að leysa stærðfræðiþrautir sem reyndust flestum fullorðnum einstaklingum um megn. Útskriftarhátíð þeirra var haldin í Háskólanum í Reykjavík í gær. Innlent 18.3.2006 14:53
Hyggja á sókn í sveitarstjórnum Markmið Vinstri-grænna í sveitarstjórnarkosningunum í maí er að stórefla Vinstrihreyfinguna - grænt framboð í sveitarstjórnum landsins segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins. Innlent 18.3.2006 14:46
Átak vegna geðfatlaðra skilar samfélaginu arði Það átak sem gera á í búsetu- og stoðþjónustumálum geðfatlaðra á næstu árum mun skila samfélaginu arði ef stjónvöld standa sína sína pligt, segir framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Hann segir að ekki dugi að taka til í búsetumálunum, styðja þurfi við bakið á geðfötluðum í samræmi vilja þeirra og getu en ekki forskrift embættismanna. Innlent 17.3.2006 23:00
Viðræður boðaðar við íslensk stjórnvöld. Scott McClellan, talsmaður Hvíta hússins, kvaðst á fréttamannafundi í gær búast við að viðræður myndu senn hefjast á milli íslenskra og bandarískra stjórnvalda um framtíðarfyrirkomulag varna landsins. Erlent 18.3.2006 11:39
Eldri maður barinn og rændur Karlmaður á sjötugsaldri var fluttur á slysadeild eftir að tveir menn réðust á hann og rændu hann í Vesturbænum í gærkvöldi. Maðurinn var á göngu nærri gatnamótum Hringbrautar og Suðurgötu þegar mennirnir réðust á hann, börðu hann í jörðina og létu höggin dynja á honum. Innlent 18.3.2006 11:17
Árið 2006 eitt mesta framkvæmdaár Íslandssögunnar Útlit er fyrir að árið 2006 verði eitt mesta framkvæmdaár sögunnar á vegum hins opinbera þar sem gert er ráð fyrir framkvæmdum fyrir um áttatíu milljarða á árinu. Þá horfa verktakar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð fram á áframhaldandi gósentíð miðað við áætlaðar framkvæmdir á næstu árum. Innlent 17.3.2006 22:55
Börn stöðvuð við drykkju Keflavíkurlögreglan batt enda á unglingagleðskap í Vogunum í nótt þar sem sex ungmenni á fjórtánda og fimmtánda aldursári höfðu neytt áfengis. Innlent 18.3.2006 09:18
Styrk staða áréttuð Landsbanki Íslands sendi í gær upplýsingar um stöðu bankans til Kauphallar Íslands, en það var sagt gert í ljósi nýlegrar umræðu í erlendum fjölmiðlum og greininga á íslenskum efnahagsmálum og bankakerfinu hér. Viðskipti innlent 17.3.2006 20:14
Íslensku bankarnir endurheimta traust í Evrópu Vaxtaálag á bréf íslensku bankanna á eftirmarkaði skuldabréfa í Evrópu lækkaði dag frá degi í síðustu viku. Þróunin endurspeglar heldur jákvæðari tón í skrifum greiningardeilda og viðleitni bankanna til að leiðrétta misskilning. Viðskipti innlent 17.3.2006 20:14
Dræmar viðtökur á yfirtökutilboði Actavis Group hefur sent stjórnendum króatíska semheitalyfjafyrirtækisins PLIVA óformlegt tilboð um kaup á öllu hlutafé félagsins, sem skráð er í kauphöllinni í Króatíu og London. Tilboðið kveður á um að greitt verði HRK 570 fyrir hvern hlut í félaginu, sem er um 35 prósenta yfirverð miðað við meðalgengi hlutabréfa félagsins síðustu þrjá mánuði. Markaðsvirði félagsins, að teknu tilliti til yfirverðs, er sagt vera um 1,6 milljarðar dollara eða um 110 milljarðar króna. Viðskipti innlent 17.3.2006 20:14
Bush styður lokun herstöðvarinnar Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu nú síðdegis greindi Scott McClellan, talsmaður Bandaríkjaforseta, frá því að Bush væri sammála ráðleggingum landvarnaráðuneytisins um lokun herstöðvarinnar. Innlent 17.3.2006 19:11
Samþykktu áætlun vegna loftslagsbreytinga á Norðurslóðum Umhverfisráðherrar Norðurlandanna samþykktu í gær áætlun vegna loftslagsbreytinga og mengunar á Norðurslóðum á fundi sínum í Kaupmannahöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu. Innlent 17.3.2006 17:10
Dæmdur fyrir að hrækja á lögreglumann Tímamótadómur féll í Héraðsdómi Austurlands í dag þegar maður var dæmdur fyrir að hrækja á lögreglumann. Var sakborningurinn dæmdur til að greiða þrjátíu þúsund krónur í sekt fyrir athæfið. Innlent 17.3.2006 17:06
Aldrei fleiri byggingar jafnaðar við jörðu en í fyrra Aldrei hafa fleiri byggingar verið jafnaðar við jörðu í Reykjavík en í fyrra og hefur niðurrif bygginga í borginni aukist jafnt og þétt frá árinu 2001. Þetta kemur fram í erindi sem Erpur Snær Hansen hjá Menungarvörnum Reykjavíkur flytur á ráðstefnunni Verk og vit á morgun. Innlent 17.3.2006 16:20
Verður þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtækið ef af kaupum verður Actavis Group gæti orðið þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi innan nokkurra mánaða ef óformlegu tilboði félagsins í króatíska samheitalyfjafyrirtækið PLIVA verður tekið. Velta Actavis myndi aukast um 70 prósent og starfsmönnum fjölga um ríflega helming við kaupin. Innlent 17.3.2006 16:03
SUS ályktar um varnarsamstarfið Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna skorar á íslensk stjórnvöld að hvika hvergi frá þeirri stefnu sinni að tryggja varnir Íslands, þrátt fyrir einhliða breytingar af hálfu Bandaríkjastjórnar á varnarsamstarfi ríkjanna. Innlent 17.3.2006 15:55