Erlent
Snyrtivörur unnar úr líkum fanga Snyrtivörur með kollageni, sem unnið er úr líkum kínverskra fanga, eru seldar í Evrópu og Bandaríkjunum. Þetta er fullyrt í breska dagblaðinu <em>Guardian</em>. Erlent 14.10.2005 06:42
Ný rússnesk fréttasjónvarpsstöð Ný rússnesk fréttasjónvarpsstöð hóf tilraunaútsendingar í dag. Sjónvarpsstöðin, sem sendir út allan sólarhringinn, er þó ekki send út á rússnesku heldur á ensku. Ástæðan er sú að henni er ætlað að bæta orðspor Rússlands á alþjóðavettvangi. Erlent 14.10.2005 06:42
Flugrisar nærri gjaldþroti Tvö af fjórum stærstu flugfélögum Bandaríkjanna fengu í gær greiðslustöðvun samkvæmt bandarískum lögum um gjaldþrot til að freista þess að vinna sig út úr fjárhagsörðugleikum og koma í veg fyrir gjaldþrot. Erlent 14.10.2005 06:42
New Orleans að vakna af dvala Ray Nagin, borgarstjóri New Orleans, lýsti því yfir í gær að stórir hlutar borgarinnar yrðu opnaðir fyrir aðgangi íbúa í næstu viku. Gamli bærinn, Franska hverfið, yrði opnaður viku síðar. George W. Bush Bandaríkjaforseti var væntanlegur til New Orleans í gærkvöld til að flytja þaðan sjónvarpsávarp, það fyrsta frá því hamfarirnar dundu yfir. Erlent 14.10.2005 06:42
50 þúsund manns án rafmagns Fellibylurinn Ófelía skall á Norður-Karólínu í Bandaríkjunum í gærkvöldi og hefur þegar valdið töluverðum usla. Fimmtíu þúsund manns eru án rafmagns á svæðinu, mörgum skólum hefur þegar verið lokað og fjöldi fólks hefur þurft að yfirgefa heimili sín. Erlent 14.10.2005 06:42
Leiðtogarnir undirbúa samninga Margir leiðtoganna hundrað og fimmtíu, sem sækja afmælisfund Sameinuðu þjóðanna, hafa notað tækifærið til að undirbúa tvíhliða samninga um hin ýmsu málefni. Í gær funduðu til að mynda Pútín Rússlandsforseti og Jalal Talabani, forseti Íraks, og eins átti Ariel Sharon fund með Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands. Erlent 14.10.2005 06:42
SÞ-umbætur andvana fæddar Vonir stóðu til að á sextugasta afmælisári Sameinuðu þjóðanna yrðu samþykktar víðtækar umbætur á stofnuninni. Ágreiningur um þær reyndist of mikill til að það tækist. Erlent 14.10.2005 06:42
Sjítum sagt stríð á hendur Írakski hryðjuverkamaðurinn Al-Zarqawi hefur sagt sjítum stríð á hendur. Liðsmenn hans hafa myrt á annað hundrað þeirra á síðustu tveim sólarhringum. Erlent 14.10.2005 06:42
Katrín: Fá að snúa heim Fyrirtækjaeigendur í franska hverfinu í New Orleans fá að huga að fyrirtækjum sínum um helgina og íbúar fá að snúa aftur til heimila sinna fljótlega eftir það. Ray Nagin, borgarstjóri í New Orleans, segir heimamenn reiðubúna að hefjast handa við enduruppbyggingu borgarinnar og takast á við lífið eftir fellibylinn Katrínu. Erlent 14.10.2005 06:42
Írak: Meira en 20 látnir í morgun Meira en tuttugu manns biðu bana og aðrir tuttugu særðust í sjálfsmorðsárás í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Flestir þeirra sem létust voru lögreglumenn. Tilræðismaðurinn keyrði bíl hlöðnum sprengiefni inn í hlið lítils flutningabíls sem í voru lögreglumenn. Erlent 14.10.2005 06:42
Héraðshöfðingjar strengja sín heit Forsætisráðherrar ellefu af sextán sambandslöndum Þýskalands, sem allir eru í flokki með Angelu Merkel, hétu því í gær að leggjast á eitt með henni, verði hún kanslari, við að koma nauðsynlegum efnahagsumbótaráðstöfunum í gegn um þingið. Tilgangurinn með yfirlýsingunni var að telja kjósendur á að kjósa stjórnarskipti í kosningunum á sunnudag. Erlent 14.10.2005 06:42
Fæðingarorlofið verði 15 mánuðir Karl Petter Thorwaldsson, þingmaður á sænska þinginu, hefur lagt fram frumvarp þess efnis að fæðingarorlof sænskra foreldra verði samanlagt fimmtán mánuðir. Samkvæmt frumvarpinu myndi orlofið skiptast þannig að móðir fái fimm mánuði, faðir fimm og síðustu fimm mánuðunum geti foreldrarnir skipt á milli sín eins og þeir vilja. Innlent 14.10.2005 06:42
Páfa boðið til Tyrklands Tyrkir hafa formlega boðið Benedikt XVI páfa í opinbera heimsókn á næsta ári. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem utanríkisráðuneyti Tyrklands sendi frá sér í dag. Þorri Tyrkja er múslimatrúar. Erlent 14.10.2005 06:42
Erfinginn enn í móðurkviði Mary Danmerkurprinsessa er ekki enn orðin léttari en hún fékk hríðir í gær, sex vikum á undan áætlun, og var flutt með hraði á sjúkrahús. Ekki er vitað hvors kyns það verður en ef Mary, sem er frá Ástralíu, fæðir stúlku þarf að breyta stjórnarskránni svo að hún geti orðið drottning. Lífið 14.10.2005 06:42
Bygging múrsins lögleg Hæstiréttur Ísraels hefur fellt þann úrskurð að bygging hins umdeilda varnarmúrs sé að hluta til ólögleg og að breyta verði legu hans á nokkrum stöðum. Ríkisstjórn landsins segir að múrinn sé nauðsynlegur til þess að hindra að hryðjuverkamenn geri árásir í borgum landsins. Erlent 14.10.2005 06:42
Harry mun ekki breyta um lífsstíl Harry prins, sem heldur upp á tuttugu og eins árs afmæli sitt í dag, segist ekki ætla að breyta um lífsstíl þó að sumum þyki hann skemmta sér heldur mikið. Harry hefur undanfarin ár oftar komist í fréttirnar af óheppilegum ástæðum heldur en Vilhjálmur bróðir hans. Lífið 14.10.2005 06:42
Prinsinn segir Camillu yndislega Harry prins segir Camillu, stjúpu sína, yndislega konu. Prinsinn fékk heilmikla fjölmiðlaathygli í dag í tilefni af því að hann hélt upp á tuttugu og eins árs afmælið sitt. Breskir fjölmiðlar halda vart vatni yfir því hversu umhyggjusamur hann er. Lífið 14.10.2005 06:42
Aðrar kosningar í Þýskalandi? Verða kosningar strax að loknum kosningunum í Þýskalandi? Það er meðal þess sem þarlendir stjórnmálamenn velta fyrir sér enda bendir flest til þess að niðurstöður kosninganna næstkomandi sunnudag verði einmitt þær sem enginn þeirra vill sjá. Erlent 14.10.2005 06:42
Aspirín kemur hugsanlega að gagni Smáir skammtar af aspiríni koma hugsanlega í veg fyrir aukaverkanir af völdum gigtarlyfsins Vioxx sem var tekið af markaði í fyrra. Aukaverkanirnar voru svo alvarlegar að talið er að um hundrað þúsund manns hafi látist í Bandaríkjunum eftir að hafa tekið lyfið. Erlent 14.10.2005 06:42
Allir Íslendingarnir komnir fram Allir Íslendingarnir sem saknað var eftir að fellibylurinn Katrín gekk yfir suðurströnd Bandaríkjanna eru komnir fram heilir á húfi. Rita Godin hafði samband við ættingja sína í gær og lét vita að ekkert amaði að henni og syni hennar. Erlent 14.10.2005 06:42
Varnargirðing sett upp? Ríkisstjórn Afganistans hefur fagnað tillögum Pakistana um að reisa varnargirðingu á landamærum ríkjanna til þess að hindra að skæruliðar Al Qaida og talíbana komist yfir landamærin. Afganar halda því fram að fjölmargir liðsmenn hryðjuverkasamtakanna hafi leitað hælis í Pakistan, geri árásir yfir landamærin og flýi svo þangað aftur. Erlent 14.10.2005 06:42
Blóðbað í hverfi sjía-múslima Á annan tug sprenginga urðu í miðborg Bagdad í gær, sem bönuðu að minnsta kosti 152 manns og særðu minnst 542. Spreningarnar byrjuðu með stórri sjálfsmorðs-bílsprengjuárás sem beint var gegn daglaunamönnum sem safnast höfðu saman á þessum stað í borginni í von um að fá vinnu þann daginn. Íraksdeild Al Kaída lýsti ábyrgð á tilræðunum á hendur sér. Erlent 14.10.2005 06:42
Milljón börn munaðarlaus Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, ítrekaði í dag að leggja yrði allt kapp á að enda borgarastyrjöldina í Úganda hið fyrsta. Hátt í milljón börn hafa orðið munaðarlaus í kjölfar styrjaldarinnar og 25 þúsund drengir og stúlkur hafa verið hneppt í þrælahald. Erlent 14.10.2005 06:42
Reiðubúinn að aflétta öllum tollum George Bush Bandaríkjaforseti sagði í ræðu sinni á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna síðdegis að stjórnvöld í Wahsington væru reiðubúin að aflétta öllum tollum og viðskiptahömlum ef aðrar þjóðir gerðu það sama. Innlent 14.10.2005 06:42
114 látnir eftir sjálfsmorðsárás Minnst 114 manns létust og156 eru særðir eftir sjálfsmorðsárás í hverfi sjíta í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Þetta er næst mannskæðasta sjálfsmorðsárás í landinu frá stríðslokum. Erlent 14.10.2005 06:42
Mannskæð aurskriða í Noregi Einn maður fórst og níu slösuðust, þar af kona og lítil stúlka lífshættulega, þegar aurskriða féll á íbúðahverfi í Bergen í Noregi í nótt. Fjöldi íbúa var fluttur frá heimilum sínum af ótta við að fleiri skriður féllu en svo hefur þó ekki orðið enn. Erlent 14.10.2005 06:42
Katrín: Ákærðir fyrir vanrækslu Eigendur hjúkrunarheimilis í New Orleans voru í gær ákærðir fyrir að hafa sýnt vítaverða vanrækslu með því að skilja ósjálfbjarga sjúklinga heimilisins eftir þar í kjölfar fellibylsins Katrínar. Erlent 14.10.2005 06:42
160 milljarða tap vegna Katrínar Tryggingafyrirtækið Lloyds í London hefur gefið það út að áætlað tap fyrirtækisins vegna fellibylsins Katrínar væri nær hálfur annar milljarður sterlingspunda sem jafngildir um 160 milljörðum íslenskra króna. Erlent 14.10.2005 06:42
Öllum Íslendingum líklega óhætt Skriða féll á íbúðahverfi í Björgvin í Noregi í nótt. Kona á sextugsaldri lést og fjögurra ára barn er slasað. Óttast er að súlur séu að hrynja í verslunarmiðstöð. Talið er að Íslendingar hafi ekki lent í skriðunni. Erlent 14.10.2005 06:42
Dauðadómur vegna Jakarta-árása Dómstóll í Jakarta á Indónesíu dæmdi í morgun mann til dauða fyrir aðild að hryðjuverkaárásum á ástralska sendiráðið í borginni á síðasta ári. Í gær hlaut maðurinn sem skipulagði árásirnar einnig dauðadóm. Erlent 14.10.2005 06:42