Erlent
Rallökumaður lést í Bretlandi Breskur rallökumaður lést í slysi á lokadegi Bretlandsrallsins í dag. Michael Park, sem var aðstoðarökumaður Eistans Markkos Martins, lést þegar Martin ók bílnum á tré á fimmtándu sérleið keppninnar. Martin slapp ómeiddur úr árekstrinum. Rallið er liður í heimsmótaröð rallökumanna og var síðustu tveimur sérleiðunum aflýst sem og verðlaunaafhendingu vegna andláts Parks. Sport 14.10.2005 06:43
Aldrei minni munur á fylkingum Sextíu og tvær milljónir Þjóðverja geta í dag ákveðið hver verður kanslari landsins næstu fjögur ár. Aldrei í nútímastjórnmálasögu Þýskalands hefur munurinn á milli fylkinga verið jafn lítill og kosningabaráttan virðist halda áfram þar til kjörstöðum verður lokað. Erlent 14.10.2005 06:43
Fyrstu kosningar í áratugi Fyrstu þingkosningar í margra áratugi fara fram í Afganistan í dag. Þrátt fyrir hótanir talibana um að beita þá ofbeldi sem ekki hunsa kosningarnar eru margir mættir á kjörstaði, en óttast er að til átaka komi á nokkrum stöðum. Hamid Karzai, forseti landsins, brýnir fyrir kjósendum að nýta rétt sinn en hann segir kosningarnar geta ráðið úrslitum um framtíð landsins og uppbyggingu þess. Erlent 14.10.2005 06:43
Stjórnarskrá Íraks loks samþykkt Íraksþing samþykkti í dag síðustu drög að stjórnarskrá landins sem leggja á fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu eftir mánuð. Stjórnarskránni verður nú komið til Sameinuðu þjóðanna sem munu prenta fimm milljónir eintaka af henni og dreifa til íbúa landsins. Erlent 14.10.2005 06:43
Breskir lögreglumenn of skotglaðir Margir breskir lögreglumenn eru svo skotglaðir að þeir ættu ekki að bera skotvopn. Þetta fullyrðir fyrrverandi breskur hermaður í viðtali við blaðið <em>Sunday Times</em> í dag, en hann gegnir því starfi að þjálfa lögreglumenn. Hann segir að um leið og þrýstingur aukist á lögreglumennina í starfi, til dæmis í hættuástandi, og adrenlínið flæði um líkama þeirra, þá gleymi þeir hlutverki sínu sem laganna verðir. Erlent 14.10.2005 06:43
Kristilegum demókrötum spáð sigri Kosningar til þýska sambandsþingsins hófust í morgun og eru rúmlega 60 milljónir manna á kjörskrá. Samkvæmt síðustu könnunum fyrir kjördag er flokki Angelu Merkel, Kristilegum demókrötum, spáð sigri með um ríflega 40 prósentum atkvæða og bendir því allt til þess að hún verði næsti kanslari Þýskalands og taki við embættinu af Gerhard Schröder, leiðtoga Jafnaðarmanna. Erlent 14.10.2005 06:43
Erfitt gæti orðið að mynda stjórn Samsteypa stóru fylkinganna tveggja þykir eftir þýsku kosningarnar í gær líklegri en þriggja flokka stjórn. Tíma gæti þó tekið að ná þeirri lendingu. Nýi Vinstriflokkurinn vill frekar vera í minnihluta en styðja stjórn jafnaðarmanna og græningja. Erlent 14.10.2005 06:43
Lítið mannfall á kosningadag Þingkosningar fóru fram í Afganistan í dag án þess að uppreisnarmenn næðu að valda miklum skaða. Kjörstöðum var lokað klukkan fjögur að afgönskum tíma og segja yfirvöld að kjörsókn hafi verið jöfn og stöðug allan daginn þótt ekki sé talið að jafnmargir hafi kosið og nú og í forsetakosningunum í fyrra, en þá var kjörsókn rúmlega 70 prósent. Erlent 14.10.2005 06:43
Hamas-liðar gengu um götur Þúsundir Hamas-liða gengu um götur Gasaborgar í dag og virtu að vettugi bann palestínskra stjórnvalda um vopnaburð á götum úti. Hamas-liðarnir gengu um með riffla, eldflaugar og sprengjur og var ákaft fagnað af tugum þúsunda manna sem fylgdust með þeim. Mótmælin verða viku eftir að Ísraelar drógu sig algjörlega út af Gasaströndinni í samræmi við samkomulag Ísraela og Palestínumanna. Erlent 14.10.2005 06:43
Sökuð um aðskilnaðarstefnu Forseti Írans segir þjóð sína hafa fullan rétt til að framleiða kjarnorku. Hann sakar vesturveldin um kjarnorkuaðskilnaðarstefnu, þar sem sumum löndum sé heimilt að auðga úran og öðrum ekki. Erlent 14.10.2005 06:43
Vara við hugsanlegum fellibyl Veðurfræðingar við Mexíkóflóa fylgjast nú með hitabeltislægð sem hugsanlega getur orðið að hitabeltisstormi síðar í dag og jafnvel að fellibyl á næstu dögum. Lægðin gæti breyst í hitabeltisstorminn Ritu í kvöld og fellibyl á þriðjudag þegar hún fer á milli Florida Keys eyjanna og Kúbu, eftir því sem Fellibyljastofnun Bandaríkjanna greinir frá. Erlent 14.10.2005 06:43
Fyrstu þingkosingar í um 30 ár Um tugur manna féll í átökum sem brutust út við kjörstaði í Afganistan í dag. Kosið var til þings í landinu í fyrsta skipti í um þrjá áratugi. Erlent 14.10.2005 06:43
Hermönnum fjölgað ef þurfa þykir Bresk yfirvöld greindu frá því í dag að þau myndu fjölga hermönnum í Írak ef þörf væri á, en ótti manna við borgarastyrjöld í landinu fer vaxandi. Í sjónvarpsviðtali í dag sagði John Reid, varnarmálaráðherra Bretlands, að ekki væri þörf á meiri mannskap þessa stundina en ef ástandið í Írak versnaði yrði hermönnum fjölgað. Erlent 14.10.2005 06:43
Erfitt verður að mynda stjórn Yfir 60 milljónir kjósenda höfðu kost á að greiða atkvæði til klukkan sex að staðartíma og metfjöldi nýtti sér það. Fyrstu útgönguspár benda til að niðurstaðan verði önnur en menn bjuggust við og það gæti reynst erfitt að mynda stjórn. Erlent 14.10.2005 06:43
Sharon og Abbas funda 2. október Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, greindi frá því í ræðu í New York í dag að hann myndi hittast Mahmoud Abbas, leiðtoga Palestínumanna, 2. október næstkomandi. Þar sagðist Sharon ætla hvetja Abbas til að standa við þær skuldbindingar sem kveðið væri á um í hinum svokallaða vegvísi til friðar, ellegar myndi ekkert þokast í friðarátt og ekki hylla undir sjálfstætt ríki Palestínu. Erlent 14.10.2005 06:43
Vinna að ályktun vegna Írans hafin Evrópusambandsríkin þrjú sem staðið hafa í samningaviðræðum við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra hafa þegar hafið vinnu að ályktun um að vísa málinu til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir erindreka innan ESB sem vinnur að málinu. Erlent 14.10.2005 06:43
Naumur sigur stjórnarandstöðu Kristilegir demókratar, flokkur Angelu Merkel, fá flest atkvæði í þingkosningunum í Þýskalandi en ekki nóg til þess að mynda stjórn hægri- og miðflokka, ef marka má útgönguspár sem birtar voru í Þýskalandi fyrir stundu. Stjórn Gerhards Schröders virði því fallin en möguleikar á stjórnarmyndun eru ekki margir. Erlent 14.10.2005 06:43
Fólk snúi ekki strax til baka Thad Allen, yfirmaður björgunarmála á hamfarasvæðunum við suðurströnd Bandaríkjanna, ráðleggur fólki frá því að snúa strax aftur til New Orleans, en það er þvert á yfirlýsingar borgarstjórans Rays Nagins sem tilkynnti í gær að til stæði að hleypa um 200 þúsund manns aftur inn í borgina á næstu tíu dögum. Erlent 14.10.2005 06:43
Spunameistari í vandræðum Fyrrverandi spunameistari danska forsætisráðherrans vill endurgreiða ráðuneytinu símreikning vegna einkasímtala sinna, sem nemur rúmum tveimur milljónum íslenskra króna. Forsætisráðuneytið telur sér ekki heimilt að taka við peningunum og þess vegna fer danska fjármálaráðuneytið í málið í fyrramálið. Erlent 14.10.2005 06:43
Skýstrókur í München Nokkuð óvenjuleg sjón blasti við íbúum í grennd við München í Þýskalandi í dag. Skýstrókur gekk yfir svæðið við Starnberger-vatn og reyndist það töluvert sjónarspil. Þrátt fyrir að strókurinn væri nokkuð öflugur á tímabili olli hann ekki alvarlegu tjóni. Veðurfræðingar höfðu varað við að skýstrókur kynni að ganga yfir vegna slæms veður. Erlent 14.10.2005 06:43
Skógareldar blossa upp í Portúgal Skógareldar blossuðu upp á ný í Portúgal í nótt. Ríflega 200 slökkviliðsmenn hafa verið kallaðir út til þess að berjast við verstu eldana í norðurhluta landsins auk þess sem þrjár flugvélar eru notaðar við slökkvistarfið. Alls hafa um 70 manns neyðst til að yfirgefa heimili sín vegna eldanna. Erlent 14.10.2005 06:43
Hægri- og miðstjórn ekki mynduð Angela Markel, leiðtogi Kristilegra demókrata, sagðist búast við því að henni yrði falið að mynda nýja ríkisstjórn í Þýskalandi, en samkvæmt útgönguspám virðist stjórn Gerhards Schröders kanslara fallin. Hún viðurkenndi þó að kristilegir demókratar virtust ekki ætla að ná markmiði sínu um meirihlutastjórn hægri- og miðflokka því samkvæmt útgönguspám fá Kristilegir demókratar og Frjálslyndir demókratar aðeins 47 prósent atkvæða. Erlent 14.10.2005 06:43
Hætta ekki kjarnorkuframleiðslu Forseti Íran, Mahmoud Ahmadinejad, nýtti sér vettvang þings Sameinuðu þjóðanna til þess að lýsa því yfir að Íranar myndu ekki þiggja tilboð Evrópuþjóða um efnahagsaðstoð samþykki Íranar að hætta framleiðslu á auðguðu úraníumi sem nota má til framleiðslu kjarnorkuvopna. Erlent 14.10.2005 06:43
Þingmaður myrtur í Írak Byssumenn myrtu írakskan þingmann og særðu annan í Írak í gærkvöld. Þingmaðurinn Faris Hussein féll ásamt þremur lífvörðum sínum fyrir hendi byssumannanna en hann var á ferð ásamt öðrum þingmanni nærri bænum Dujail á leið til höfuðborgarinnar Bagdad. Erlent 14.10.2005 06:43
Tala látinna nálgast 900 Tala látinna í hamförunum í suðurríkjum Bandaríkjanna nálgast nú 900 og enn finnast lík á þeim svæðum þar sem vatn flæddi yfir allt. Yfirvöld í Louisana, sem varð verst úti í hamförunum, tilkynntu í dag að 646 hefðu látist af völdum fellibylsins Katrínar, en tæplega 70 manns hafa fundist látnir síðustu tvo daga. Þá eru 218 sagðir hafa látist í Mississippi og 19 í Flórída, Alabama, Georgíu og Tennessee. Erlent 14.10.2005 06:43
Merkel bíða mörg verkefni Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, verður næsti kanslari Þýskalands ef marka má útgönguspár eftir þingkosningar. Hennar bíða mörg verkefni. Erlent 14.10.2005 06:43
Blóðugur sólarhringur í Írak Að minsta kosti 30 manns féllu þegar bílsprengja sprakk á markaði í hverfi sjíta í skammt frá Bagdad í gærkvöldi. Þá myrtu byssumenn írakskan þingmann í gærkvöldi. Erlent 14.10.2005 06:43
Íranar haldi áfram framleiðslu Forseti Írans varði rétt Írana til þess að framleiða kjarnorku þegar hann ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í gær. Vonir manna um sátt í kjarnorkudeilu Írana og vesturveldanna dvínuðu við það og er hugsanlegt að málinu verði skotið til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Erlent 14.10.2005 06:43
Blair aftur upp á kant við BBC Svo virðist sem Tony Blair, forsætisráðherra Bretlans, sé aftur kominn upp á kant við breska ríkissútvarpið BBC og þetta sinn vegna frétta BBC af fellibylnum Katrínu. Fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch, sem á meðal annars götublaðið Sun og Sky-sjónvarpsstöðvarnar, greindi frá því í ræðu í New York í gær að Blair hefði tjáð sér á dögunum að honum fyndist umfjöllun BBC um náttúruhamfarirnar í suðurríkjum Bandaríkjanna uppfull af hatri í garð Bandaríkjanna. Erlent 14.10.2005 06:43
Talibanar mótmæla kosningum Glæpa- og ofbeldisalda hefur gengið yfir Afganistan að undanförnu vegna kosninganna sem haldnar eru í dag. Tuttugu Talibanar voru staðnir að verki þegar þeir reyndu að koma fyrir sprengju hjá stíflu. Hefði hún sprungið hefði mörgum þúsundum mannslífa verið stofnað í hættu. Erlent 14.10.2005 06:43