Erlent
Formlegri leit hætt í Louisiana Yfirvöld í Louisiana hafa formlega hætt leit að fórnarlömbum fellibylsins Katrínar sem reið yfir suðurríki Bandaríkjanna fyrir um fimm vikum. Opinber tala látinna í ríkinu er nú 964 en upphaflega var óttast að hátt í tíu þúsund manns hefðu látist í hamförunum. Leit er hins vegar ekki alveg hætt þar sem einkafyrirtæki hefur verið ráðið til að leita fólks ef tilkynningar um lík berast yfirvöldum. Erlent 23.10.2005 15:02
ESB-viðræður við Tyrki hafnar Samninganefnd Tyrkja í aðildarviðræðum við Evrópusambandið hélt til Lúxemborgar í gærkvöld. Þær frestuðust vegna deilna um samningsumboð ESB. Erlent 23.10.2005 15:02
Sýkti sjálfan sig af magasári Vísindamenn á sviði ljósfræða hrepptu nóbelsverðlaunin í eðlisfræði sem afhent voru í gær. Í fyrradag fengu tveir Ástralir læknisfræðiverðlaunin fyrir að sýna fram á að bakteríur valda magasári. Erlent 23.10.2005 15:02
Ráðherra lifið af morðtilraun Olíumálaráðherra Íraks slapp naumlega undan morðtilraun á mánudag en þrír lífvarða hans fórust í tilræðinu. Gærdagurinn var þriðji dagur árása Bandaríkjamanna á skæruliða al-Kaída í vesturhluta Íraks. Erlent 23.10.2005 15:02
Milljón manns á götunum Um ein milljón verkamanna lagði niður vinnu og gekk um götur borga í Frakklandi í dag til þess að mótmæla fyrirhuguðum efnahagsumbótum ríkisstjórnarinnar. Erlent 23.10.2005 15:02
Dularfullur póstur til sendiráða Sendiráð Japans í Malasíu var rýmt í morgun eftir að dularfullar póstsendingar bárust til sex sendiráða í höfuðborginni Kúala Lúmpúr. Sendiráðum Japans, Kanada, Þýskalands, Singapúr, Filippseyja og Taílands barst öllum sams konar lítill pakki með olíukenndum vökva og geisladiski. Erlent 23.10.2005 15:02
Hlutu Nóbelsverðlaun í eðlisfræði Tveir Bandaríkjamenn og Þjóðverji hlutu Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í dag. Verðlaunin fengu þeir fyrir rannsóknir sínar í ljósfræðum, sem leitt hafa til mikilla umbóta á nákvæmum tímamælingum, staðsetningarkerfum og leisertækni - og í framtíðinni má búast við að þrívíddarsjónvörp verði byggð á tækni sem rannsóknir þeirra byggja á. Erlent 23.10.2005 15:02
Samgönguvandi vegna verkfalls Almenningssamgöngur fóru úr skorðum í Frakklandi í dag þegar nokkur stærstu launþegasamtök landsins lýstu yfir sólarhringsverkfalli. Erlent 23.10.2005 15:02
Áhöfnin ekki fullmönnuð Áhöfn ferjunnar sem hvolfdi á sunnudaginn í New York ríki í Bandaríkjunum, með þeim afleiðingum að tuttugu manns létust, var ekki fullmönnuð. Samkvæmt reglugerð um ferjur af þeirri tegund sem um var að ræða eiga minnst tveir að vera í áhöfninni. Hins vegar var skipstjórinn aðeins einn um borð þegar slysið átti sér stað. Erlent 23.10.2005 15:02
Hvattir til að hunsa kosningar Armur hryðjuverkasamtakanna al-Qaida í Írak hvatti í dag súnníta til þess að sniðganga þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá Íraks sem fram á að fara 15. október næstkomandi. Í yfirlýsingu frá samtökunum sem birt voru á heimasíðu á Netinu segja þau að stjórnarskráin muni aðeins leiða til þess að tök Bandaríkjamanna á landinu muni harðna. Erlent 23.10.2005 15:02
Sameinuðu þjóðirnar gagnrýna Íraka Sjíar og Kúrdar á Íraksþingi hafa knúið fram breytingar á kosningalöggjöf landsins svo að nær ómögulegt er að fella drög að stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslunni 15. október. Sameinuðu þjóðirnar fordæma breytingarnar. Erlent 23.10.2005 15:02
Mótmæltu einkavæðingu í Frakklandi Um milljón verkamenn lögðu niður vinnu og gengu um götur borga í Frakklandi í dag til þess að mótmæla fyrirhuguðum efnahagsumbótum í landinu. Mótmælendur andmæltu einkavæðingu ýmissa ríkisfyrirtækja auk þess sem sífellt lakari lífskjörum í landinu var mótmælt. Tafir urðu á lestar- og strætósamgöngum víða í Frakklandi og sömuleiðis tafir á flugi til og frá París. Erlent 23.10.2005 15:02
Tyrkir fagna aðildarviðræðum Athöfnin sem átti að marka upphaf aðildarviðræðna Tyrkja við Evrópusambandið klukkan þrjú í gærdag var haldin í nótt. Tyrkir fagna og það gera Króatar einnig því lausn Tyrkjadeilunnar þýðir pláss við samningaborðið fyrir þá. Erlent 23.10.2005 15:02
Vilja skilja systurnar að Bandarískur barnaskurðlæknir, Benjamin Carson, hefur boðist til að skilja að indversku systurnar Saba og Farah, tíu ára, en þær eru samvaxnar á höfði. Erlent 23.10.2005 15:02
Rýmd vegna meints hryðjuverkamanns Flugvél danska flugfélagsins Mærsk var rýmd á flugvellinum í Vín í morgun vegna misskilnings. Farþegar ýttu á neyðarhnapp vegna þess að þeir sáu mann sem þeim fannst líta grunsamlega út. Erlent 23.10.2005 15:02
Vildi ekki samlokur á matseðil Eigandi lúxushótelsins D´Angleterre í Kaupmannahöfn hefur rekið meistarakokkinn Rasmus Kofoed fyrir að neita að setja meðal annars smurbrauð samlokur á matseðilinn. Í viðtali við danska dagblaðið <em>Berlingske Tidende</em> segir Kofoed að sér hafi verið hent út af hótelinu á föstudag vegna mótmæla sinna, en hann varð í þriðja sæti á heimsmeistarmót matreiðslumanna í Frakklandi í vor. Erlent 23.10.2005 15:02
Vefsíður varasamari en áður Fréttavefur Breska ríkisútvarpsins greinir frá því að tæknilega sinnaðir glæpamenn hafi horfið frá því að nota vírusa sem sendir eru í tölvupósti, yfir í að nota vefsíður til að fanga fórnarlömb. Þá nota tölvuþrjótar í auknum mæli njósnaforrit til að stelast í persónuleg gögn sem þeir geta ýmist selt eða notað sjálfir. Erlent 23.10.2005 15:02
ESB refsar Úsbekum Ríki Evrópusambandsins hafa stöðvað sölu á vopnum til Mið-Asíuríkisins Úsbekistans eftir fjöldamorð öryggislögreglu á óbreyttum borgurum í vor. Auk þess verður úsbeskum embættismönnum neitað um vegabréfsáritun til Evrópu. Erlent 23.10.2005 15:02
Með líkið heima í 20 ár Háskólaprófessor á Indlandi sem lést nýlega var jarðsettur í sömu gröf og móðir hans. Það sem er enn athyglisverðara er að móðir mannsins lést fyrir tuttugu árum og hafði hann geymt líkið í glerkistu á heimili sínu öll þessi ár. Erlent 23.10.2005 15:02
Tveir í vörslu lögreglunnar á Balí Lögreglan á Indónesíu hefur tvo aðila í sinni vörslu í tengslum við rannsóknina á sjálfsmorðssprengjuárásinni á Balí síðastliðinn laugardag þar sem nítján létust og meira en hundrað manns særðust. Í gær voru birtar myndir af mönnum sem talið er að séu árásarmennirnir Erlent 23.10.2005 15:02
Fengu Nóbelinn í eðlisfræði Tveir Bandaríkjamenn og Þjóðverji hlutu Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í dag. Verðlaunin fengu þeir fyrir rannsóknir sínar í ljósfræðum, sem leiddu til mikilla framfara í fjarskiptum og geimrannsóknum. Erlent 23.10.2005 15:02
Minnkar líkur á heilabilun Regluleg hreyfing fólks á miðjum aldri minnkar líkurnar á heilabilun í ellinni. Niðurstöður nýrrar rannsóknar sænskra lækna benda til þess að þeir sem hreyfi sig í hálftíma minnst tvisvar í viku á fimmtugsaldri minnki líkurnar á heilabilun á eldri árum um helming. Menning 23.10.2005 15:02
Samvaxnir tvíburar fá styrk Bandarískur skurðlæknir hefur gefið tíu ára indverskum síamstvíburum von um að mögulegt sé að aðskilja þá. Farah og Saba eru samfastar á höfði og deila að auki nýrum og hjartaslagæð. Erlent 23.10.2005 15:02
Þrjú þúsund sagt upp í New Orleans Ray Nagin, borgarstjóri í New Orleans, tilkynnti í dag að þrjú þúsund starfsmönnum á vegum borgarinnar yrði sagt upp í kjölfar þess að fellibylirnir Katrín og Ríta riðu yfir borgina. Gríðarlegur fjáhagsvandi blasir við borgaryfirvöldum og telja þau að með uppsögnunum muni borgin spara á bilinu 300-500 milljónir króna á mánuði. Erlent 23.10.2005 15:02
Líkin flutu á vatninu Alls tuttugu af 47 farþegum létu lífið er skemmtisiglingabát hvolfdi á George-vatni í New York-ríki á sunnudag. Erlent 23.10.2005 15:02
Þrýst á Schröder að draga sig í hlé Angela Merkel segist "reiða sig á skynsemisöfl" í jafnaðarmannaflokki Schröders eftir að íhaldsflokkur hennar jók þingstyrksforskot sitt. Flokkarnir halda þreifingum um ríkisstjórnarmyndun áfram á morgun. Erlent 23.10.2005 15:02
Viðbúnaður vegna fellibylsins Stan Ekkert lát virðist vera á fellibyljum úti fyrir ströndum Bandaríkjanna, en í dag gekk fellibylurinn Stan inn á Mexíkóflóa með tilheyrandi stormviðri og úrhelli. Þótt Stan sé aðeins flokkaður sem fyrsta stigs fellibylur á Saffir-Simpson kvarðanum, hafa yfirvöld í Mexíkó brugðist við og lokað tveimur af helstu olíuútflutningshöfnum sínum af ótta við að skemmdir verði á olíuvinnslutækjum. Erlent 23.10.2005 15:02
Flaga til að fylgjast með hjartanu Vísindamenn í Finnlandi vinna nú að því að þróa örflögu sem hugmyndin er að koma undir húð hjartasjúklinga þannig að hægt verði að fylgjast með hjartslætti þeirra og gera læknum viðvart ef eitthvað er að. Hópur manna við Tækniháskólann í Tampere hefur unnið að þróun flögunnar í nokkur ár og hyggst prófa frumgerð hennar á kúm síðar á þessu ári. Erlent 23.10.2005 15:02
57 uppreisnarmenn fallnir Minnst fimmtíu og sjö uppreisnarmenn hafa fallið í árásum bandaríska hersins í norðvesturhluta Íraks undanfarna þrjá daga. Áhlaup hersins á vígi uppreisnarmanna hófst í borginni Sadah á laugardaginn en hefur síðan færst yfir til borganna Karabíla og Rúmana. Erlent 23.10.2005 15:02
Leit hætt að fórnarlömbum Yfirvöld í Louisiana hafa hætt formlegri leit að fórnarlömbum fellibylsins Katrínar sem reið yfir suðurríki Bandaríkjanna i ágústlok. Erlent 23.10.2005 15:02