Erlent
David keppir við David Tveir menn með sama fornafn berjast um leiðtogaembættið hjá breska Íhaldsflokknum. David Cameron og David Davis fengu flest atkvæði í kjöri þingmanna flokksins um hverjir skyldu fá að vera í framboði þegar 300 þúsund félagar í Íhaldsflokknum velja sér leiðtoga. Erlent 23.10.2005 17:51
Dánartalan gæti tvöfaldast Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir dánartölu vegna jarðskjálftanna í Pakistan og Indlandi tvöfaldast á næstunni, verði hjálp til fórnarlamba hamfaranna ekki aukin. Nú þegar hafa 80 þúsund látist. Erlent 23.10.2005 17:51
Kosið milli Camerons og Davis Keppinautum um flokksleiðtogastólinn í breska Íhaldsflokknum fækkaði í gær niður í tvo. Á næstu sex vikum skera almennir flokksmenn úr um hvor þeirra skuli leiða flokkinn í næstu þingkosningum. Erlent 23.10.2005 17:57
Vindurinn úr Wilmu Nokkuð hefur dregið úr vindhraða fellibylsins Wilmu. Engu að síður hafa þúsundir yfirgefið heimili sín í Flórída og í ríkjum Mið-Ameríku. Erlent 23.10.2005 17:57
Abbas og Bush funda Leiðtogi Palestínumanna, Mahmoud Abbas, kom til Washington í gær til að eiga fund með George Bush Bandaríkjaforseta en í enn eitt skiptið á að reyna að finna leiðir svo friður geti orðið á milli Ísraels og Palestínu. Abbas vill að Bush pressi á Ísraela til að hörfa frá öllum landnemasvæðum og að Palestínumenn fái að halda frjálsar kosningar. Erlent 23.10.2005 17:51
Þróa bóluefni gegn flensuveirum Danskir vísindamenn segjast hafa fundið fljótvirka aðferð til að þróa bóluefni gegn flensuveirum hvers konar. Þeir vonast til að hægt verði að nota þessa aðferð til að þróa bóluefni gegn fuglaflensunni áður en kemur til faraldurs. Þetta kemur fram í grein í <em>Berlingske Tidende</em>. Erlent 23.10.2005 17:51
Grunuðum hryðjuverkmönnum sleppt Fjórir menn frá Norður-Afríku sem bíða þess að vera vísað frá Bretlandi vegna gruns um aðild að hryðjuverkum verða leystir úr haldi lögreglu gegn tryggingu. Sérstakur dómstóll sem fjallaði um mál mannanna ákvað þetta í dag en neitaði fimm um lausn og máli eins var frestað. Erlent 23.10.2005 17:51
20 þúsund enn í neyðarskýlum Enn er ekki ljóst hvernig koma á upp heimilum fyrir þá einu milljón manna, kvenna og barna sem misstu heimili sín þegar fellibylurinn Katrína reið yfir suðurríki Bandaríkjanna fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan. 20 þúsund manns hafast enn við í neyðarskýlum. Erlent 23.10.2005 17:51
Laug til um árásina Anne-Lise Jønch Pedersen, frambjóðandi danska Framfaraflokksins í héraðskosningum á Sjálandi, er í vondum málum eftir að upp komst að hún laug því að hópur innflytjenda hefði ráðist á sig. Erlent 23.10.2005 17:57
Norðmenn sækja ekki um ESB-aðild Utanríkisráðherra Noregs segir nýja atlögu að því að koma landinu í Evrópusambandið ekki á dagskrá á kjörtímabilinu. Áfram verði byggt á EES-samningi. Erlent 23.10.2005 17:57
Gripið til víðtækra ráðstafana Í dag lést tæplega fimmtugur Taílendingur úr fuglaflensu. Í Indónesíu virðist heil fjölskylda hafa smitast sem vekur ótta um stökkbreytingu vírussins. Bretar ætla að kaupa bóluefni fyrir hvern einasta íbúa Bretlandseyja. Austurríkismenn og Þjóðverjar hafa bannað lausagöngu alifugla. Erlent 23.10.2005 17:51
Laun verða að hækka Laun verða að hækka meira en sem nemur verðbólgu, segja forystumenn ETUC, heildarsamtaka sextíu milljóna launþega í ríkjum Evrópusambandsins. Þeir segja engu skipta þó stjórnendur Seðlabanka Evrópu láti að því liggja að þeir bregðist við launahækkunum umfram verðbólgu með því að hækka vexti. Erlent 23.10.2005 17:51
Fjórir féllu í sjálfsmorðsárás Að minnsta kosti fjórir féllu og um tuttugu slösuðust þegar maður sprengdi sig í loft upp í borginni Bakuba í 65 kílómetra fjarlægð frá Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Engin samtök hafa lýst verknaðinum á hendur sér en talið er að menn Al-Qaida hafi verið að verki, nú sem svo oft áður. Erlent 23.10.2005 17:51
Öflugasti fellibylur sögunnar Tugþúsundir íbúa og ferðamanna í Mexíkó og Kúbu leituðu í gær skjóls undan fellibylunum Wilmu en bylurinn fer yfir Yucatan-skaga í Mexíkó í vikulokin. Bandaríska fellibyljamiðstöðin í Miami hefur staðfest að Wilma sé öflugasti fellibylur sem sögur fara af á Atlantshafi en hann mælist nú af stærðinni fimm á Saffír-Simpson kvarða um stærð fellibylja. Erlent 23.10.2005 17:50
Vilja draga úr tryggingum Stærstu tryggingafélög heims á sviði flugmála íhuga að hætta að tryggja flugfélög fyrir árásum á farþegaflugvélar þar sem notuð eru efnavopn og geislavirk efni. Láti þau verða af þessu þurfa Evrópuríki væntanlega að gangast í ábyrgðir fyrir flugfélögin líkt og þau gerðu eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001. Erlent 23.10.2005 17:51
Símasambandi komið á Símasambandi hefur verið komið á milli pakistanska og indverska hluta Kasmírhéraðs eftir að jarðskjálfti reið þar yfir í síðustu viku. Margir íbúar svæðanna báðum megin við landamærin geta því nú í fyrsta skipti haft samband við ættingja sína og hafa stjórnvöld ákveðið að símtölin verði ókeypis. Erlent 23.10.2005 17:51
Éta það sem býðst Því meiri matur sem fólki er boðið upp á þeim mun meira borðar það, nema maturinn sé grænmeti. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu bandarískra vísindamanna sem leita leiða til að draga úr offitu. Erlent 23.10.2005 17:51
Býður almenningi á ball Haraldur Noregskonungur hefur ákveðið að bjóða fimm hundruð og fimmtíu þegnum sínum, víðs vegar að úr Noregi og úr öllum stéttum, til dansleiks í næsta mánuði. Haraldur, sem hefur átt til rölta um götur Oslóar og líta í verslanir án þess að mikið sé um sýnilega öryggisgæslu, telur dansleikinn tækifæri til að auka enn tengsl sín við landsmenn. Erlent 23.10.2005 17:51
Þingmaður drepinn í Kirgistan Kirgiskur þingmaður var drepinn á fangasjúkrahúsi í Kirgistan fyrir stundu. Hann var fyrr í dag tekinn sem gísl ásamt tveimur úr fylgdarliði sínu þegar hann heimsótti fangelsið sem er skammt norðvestur af höfuðborginni, Bishkek. Erlent 23.10.2005 17:51
Tugþúsundir enn í hættu Ríki heims hafa einungis reitt fram einn áttunda hluta af þeirri neyðaraðstoð sem Sameinuðu þjóðirnar fara fram á. Óttast er að með útbreiðslu farsótta og versnandi veðri muni tala látinna á hamfarasvæðunum hækka enn frekar. Erlent 23.10.2005 17:57
Ungabörn auglýst til sölu á Netinu Lögreglan í Sjanghæ í Kína rannsakar nú mál þar sem ungabörn voru auglýst til sölu á Netinu. Auglýsingin birtist síðastliðinn sunnudag á vefsíðu sem er í eigu uppboðsvefjarins E-Bay. Að sögn lögreglu höfðu um fimmtíu manns skoðað auglýsinguna þegar málið komst upp en enginn reynt að ganga frá kaupum. Erlent 23.10.2005 17:50
Forðast óþarfa hræðsluáróður Ríkisstjórnir og fjölmiðlar verða að vara sig á spám um yfirvofandi fuglaflensufaraldur því alls er enn óvíst hvort að faraldur brjótist út. Þetta segja alþjóðlegu ferðamálasamtökin sem óttast mikinn samdrátt á næstunni. Erlent 23.10.2005 17:51
Vill handtaka hermenn vegna morðs Dómari við dómstól á Spáni hefur gefið út alþjóðlega handtökuskipun á hendur þremur bandarískum hermönnum í tengslum við dauða spænsks myndatökumanns í Írak. Maðurinn léstn í apríl 2003 þegar skotið var úr skriðdreka á Palestine-hótelið í Bagdad sem var aðsetur flestra blaðamanna skömmu eftir innrás bandamanna í Írak. Erlent 23.10.2005 17:50
Kominn inn í rússneska landhelgi Rússneski togarinn Elektron, sem tekinn var við ólöglegar veiðar við Svalbarða á laugardag en stakk síðan af með tvo norska strandgæslumenn, er kominn inn í rússneska landhelgi. Togarinn er á leið til Múrmansk í fylgd rússnesks herskips sem beið hans við landhelgismörkin. Erlent 23.10.2005 17:50
Simpsons komin til arabaheimsins Nú er hægt að horfa á þættina um bandarísku Simpson-fjölskylduna í arabísku sjónvarpi. Þrátt fyrir að bandarísk utanríkisstefna njóti ekki beint mikilla vinsælda í arabaheiminum þá er talið að fjölskyldan ástsæla gæti slegið þar í gegn. Lífið 23.10.2005 17:50
Flensa í evrópska hluta Rússlands Óttast er að fuglaflensa hafi borist til evrópska hluta Rússlands. Yfirvöld í héraðinu Tula hafa fyrirskipað sóttkví. Erlent 23.10.2005 17:50
Mótmæla lausn fanganna Hundruð komu saman við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í borginni Trípoli í Líbíu í gær til að mótmæla ákvörðun Bandaríkjaforseta að láta lausa fimm búlgarska hjúkrunarfræðinga sem í maí árið 2004 voru dæmdir til dauða fyrir að sýkja yfir 400 börn af HIV-veirunni í tilraunaskyni til að finna lækningu við alnæmi. Erlent 23.10.2005 17:50
Blóðugasta tímabil frá innrásinni Fjórir létust og þrír særðust í árásum í suðurhluta Afganistans í gærkvöldi. Um ellefu hundruð manns hafa fallið í átökum í Afganistan það sem af er þessu ári, sem er þar með það blóðugasta síðan Bandaríkjamenn réðust inn í landið fyrir fjórum árum. Erlent 23.10.2005 17:50
Alheimsfaraldur ekki í nánd Markos Kyprianou, sem fer með heilbrigðis- og neyslumál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, segir fuglaflensutilvikin sem komið hafi upp í suðausturhluta Evrópu í vikunni ekki gefa tilefni til að ætla að alheimsfaraldur sé í nánd. Erlent 23.10.2005 17:50
Fá að sækja strandgæslumenn Norska strandgæslan hefur fengið leyfi til að sækja tvo strandgæslumenn um borð í rússneska togarann Elektron. Igor Dygalo, talsmaður rússneska norðurflotans, tilkynnti fyrir stundu að norska strandgæslan hefði fengið leyfi til að fara um inn í rússneska lögsögu til að sækja strandgæslumennina. Þeir mega þó ekki sækja þá fyrr en á morgun. Erlent 23.10.2005 17:50