Erlent
Sjúkrahúsin lömuð Erlent 18.11.2005 20:33 Féllust ekki á skilmálana Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna hafa hafnað boði Bandaríkjastjórnar um að heimsækja herstöðina í Guantanamo á Kúbu þar sem grunuðum hermdarverkamönnum er haldið án ákæru. Erlent 18.11.2005 20:32 Hryðjuverkamenn handteknir Þrír handteknir á Ítalíu Lögreglumenn í norsku víkingasveitinni tóku þátt í að taka höndum þrjá Alsíringa sem eru grunaðir um þátttöku í hryðjuverkastarfsemi. Að sögn Aftenposten hafa mennirnir búið í Noregi en voru handteknir á Ítalíu. Erlent 18.11.2005 20:33 Moskurnar vettvangur blóðbaðsins Sjálfsmorðssprengjumenn létu til skarar skríða í tveimur moskum í Írak í gær með þeim afleiðingum að í það minnsta áttatíu manns létu lífið. Þá var gerð bílsprengjuárás á hótel blaðamanna í Bagdad þar sem átta manns biðu bana. Erlent 18.11.2005 20:33 Rætt um aðstoðarborgarstjóra Samningaviðræðurnar um embætti borgarstjóra í Kaupmannahöfn héldu áfram í gær. Ritt Bjerregaard, sem verður yfirborgarstjóri í Kaupmannahöfn, segir viðræðurnar snúast um hver fái eitt af embættum aðstoðarborgarstjóra. Líklegt þykir að frambjóðandi Einingarlistans verði fyrir valinu. Erlent 18.11.2005 20:33 « ‹ ›
Vél sem lenti hér notuð til að flytja fanga til pyntingar CIA-vélin sem var í tæpan sólarhring á Reykjavíkurflugvelli hefur meðal annars verið notuð til að flytja Kanadamann til Jórdaníu þar sem hann var pyntaður. Erlent 20.11.2005 12:02
Át 67 hamborgara á átta mínútum Japanskur maður, Takeru Kobayashi, stendur uppi sem heimsmeistari í hamborgaraáti eftir að hafa torgað 67 hamborgurum. Heimsmeistarakeppni í hamborgaraáti fór fram í Chattanooga í Tennessee. Það tók hann átta mínútur að gleypa hamborgarana, en honum tókst þó ekki að slá heimsmetið, sem er 69 hamborgarar, en það á hann raunar sjálfur frá því í fyrra. Erlent 20.11.2005 10:26
Fara á mis við skólagöngu vegna fötlunar Fjöldi barna í Rússlandi fer á mis við skólagöngu vegna fötlunar. Þetta eru börn sem geta lært og vilja læra en skólarnir eru ekki hannaðir til þess að taka við fötluðum. Erlent 20.11.2005 10:08
Björguðu konu af syllu eftir langa dvöl Björgunarmenn í Kaliforníu náðu konu af klettasyllu í gær þar sem talið er að hún hafi verið í þrjá til fjóra daga. Konan var afar máttfarin og illa lemstruð eftir sextíu metra fjall af bjargbrún. Maður sem var á göngu á ströndinni fyrir neðan kom auga á konuna. Hann gerði lögreglu viðvart, sem kallaði á þyrlusveit til að ná konunni úr bjarginu. Erlent 20.11.2005 10:03
Lögreglumenn pynta og drepa með rafmagnsbor Írakskir lögreglumenn hafa drepið að minnsta kosti tvo menn og pyntað fjölda annarra með rafmagnsbor. Þessu er haldið fram í breska dagblaðinu Independent on Sunday í dag. Erlent 20.11.2005 10:01
Grunaður um kynferðisglæp Breski glysrokkarinn Gary Glitter var handtekinn á flugvelli í Ho Chi Minh borg í Víetnam í gær vegna gruns um ósæmilegt athæfi með barni. Glitter ætlaði um borð í flugvél á leið til Bangkok á Taílandi þegar hann var handtekinn. Erlent 19.11.2005 22:44
Líkfylgd varð fyrir sjálfsmorðsárás Enn ein ofbeldishrinan virðist hafin í Írak en í gær létust að minnsta kosti 33 í tveimur hryðjuverkaárásum. Til ósættis kom á ráðstefnu Arababandalagsins um frið í Írak sem fram fer í Kaíró. Erlent 19.11.2005 22:44
Íhuga rannsókn á Halliburton Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna tekur senn ákvörðun um hvort rannsaka eigi ásakanir um að fyrirtækið Halliburton, sem Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna stýrði eitt sinn, hafi fengið hagstæða samninga í Írak með vafasömum hætti. Erlent 19.11.2005 22:44
Alvarlega slasaður eftir bílslys Forsætisráðherrann í bílslysi Sergei Abramov, forsætisráðherra Tsjetsjeníu, slasaðist alvarlega í bílslysi í gær. Í fyrstu var talið að um hryðjuverk hefði verið að ræða en að sögn Interfax-fréttastofunnar leiddi rannsókn í ljós að aðgæsluleysi bílstjóra hefði verið orsök slyssins. Erlent 19.11.2005 17:34
ESB boðar nýtt umferðarkerfi Evrópusambandið hyggst koma upp nýju samhæfðu flugumferðarstjórnarkerfi í aðildarríkjunum til að bregðast við þeirri stórauknu flugumferð sem spáð er í álfunni á næstu árum. Gert er ráð fyrir að umferðin um helstu flugleiðir í Evrópu muni tvöfaldast á næstu 15 árum. Erlent 19.11.2005 17:34
Leiðbeiningar um hryðjuverk Lögregla í Indónesíu hefur lokað vefsíðu þar sem birtar eru ítarlegar leiðbeiningar um hvernig best sé að ráða útlendinga af dögum. Hún er talin runnin undan rifjum hryðjuverkamanna sem tengjast al-Kaída. Erlent 19.11.2005 17:34
Vélarnar hafa flogið til Guantanamo Hinar svokölluðu fangavélar bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, sem flogið hafa um danska lofthelgi, hafa meðal annars flogið til og frá fangelsi Bandaríkjahers á Guantanamo á Kúbu. Þetta kemur fram í Politiken í dag. Erlent 20.11.2005 10:27
Vinsældir Chiracs dvína eftir óeirðir Vinsældir Jacques Chiracs, forseta Frakklands, hafa dvínað nokkuð eftir að til óeirða kom í landinu ef marka má niðurstöðu skoðanakannanar sem gerð var fyri dagblaðið Le Journal du Dimance. Samkvæmt henni eru 35 prósent ánægð með störf forsetans nú en 38 prósent voru það í síðasta mánuði. Erlent 19.11.2005 17:50
Jarðskjálfti olli ekki flóðbylgju Nú er ljóst að skjálftinn sem skók jörð nærri Súmötru í Indónesíu olli ekki flóðbylgju eins og óttast var í fyrstu, en skjálftinn mældist um 6,5 ár Richter. Engar fregnir hafa enn borist af slysum á fólki eða af tjóni á mannvirkjum en jörð hefur oft skolfið á svæðinu eftir risaskjálftann á annan dag jóla í fyrra sem mældsit 9,15 á Richter og kom af stað flóðbylgju sem varð 232 þúsund manns að bana. Erlent 19.11.2005 17:33
Fimm handteknir vegna morðs í Bradford Lögregla í í Lundúnum hefur handtekið fimm mans í tenglsum við skotárás á tvær lögreglukonur í Bradford í gær. Konurnar, sem voru óvopnaðar, höfðu brugðist við neyðarkalli um að verið væri að ræna ferðaskrifstofu. Ræningjarnir, sem voru þrír, skutu á konurnar og lést önnur þeirra en hin særðist og flýðu svo af vettvangi. Erlent 19.11.2005 17:23
Skjálftinn gæti komið af stað flóðbylgju Bandaríska jarðfræðistofnunin US Geological Survey segir að skjálftinn sem mældist á Indónesíu nú síðdegis hafi orðið um 1500 kílómetra norðvestur af Jakarta. Vísindamenn sem fylgjast með skjálftum og flóðbylgjum í Kyrrahafi segja að skjálfti af þessari stærð geti hleypt af stað flóðbylgju en engar fréttir hafa borist af slíku. Erlent 19.11.2005 16:03
Öflugur jarðskjálfti skekur Indónesíu Öflugur jarðskjálfti mældist við Indónesíu fyrir stundu. Skjálftinn er sagður hafa mælst 6,5 á Richter. Ekki er vitað á þessari stundu um tjón af völdum skjálftans. Erlent 19.11.2005 15:32
Vínfagnaður leystist upp í slagsmál Hátíðarhöld og gleði til að fagna nýjum rauðvínsárgangi leystust upp í slagsmál í borginni Grenoble í Frakklandi í gær. Þrjátíu slösuðust í átökum lögreglu og æstra ungmenna, sem greinilega höfðu fengið sér aðeins of mikið af Beaujolais Nouveau. Raunar segir í frönskum fjölmiðlum að ungmenninn hafi verið dauðadrukkin. Erlent 19.11.2005 12:17
Leitað að ræningjum sem drápu lögreglukonu Mikil leit er nú gerð að ræningjum sem skutu lögreglukonu til bana í Bradford á Englandi í gær. Erlent 19.11.2005 12:12
Fuglaflensa breiðist út með ógnarhraða í Kína Fuglaflensa breiðist nú út með ógnarhraða í kínverskum hænsnfuglum og yfirvöld fá ekki rönd við reist, þrátt fyrir umfangsmiklar forvarnaraðgerðir. Erlent 19.11.2005 12:03
Eldar í Kaliforníu Eldar geysa nú um hluta Kaliforníuríkis, um sextíu kílómetra frá Los Angeles. Mikill fjöldi hefur þurft að yfirgefa heimili sín vegna eldsins sem þykir breiða óvenju hratt úr sér en vindasamt er á svæðinu. Berjast nú slökkviliðsmenn við að ráða niðurlögum hans og hefur allt tiltækt slökkvilið verið kallað á svæðið þar sem eldarnir eru. Erlent 19.11.2005 10:33
Nýr forseti segist munu ræða við Tamítígra Nýr forseti Srí Lanka var svarinn í embætti í morgun. Hann segist munu ræða við tígrana, uppreisnarmenn úr röðum Tamíla, og hyggst endurskoða þriggja ára gamalt vopnahlé. Erlent 19.11.2005 10:26
Árásir halda áfram í Írak Ellefu fórust þegar bílsprengja var sprengd á markaði í suðausturhluta Bagdad í morgun. Fimmtán særðust á árásinni og lögreglumenn á vettvangi segja allar líkur á að föllnum muni fjölga. Í gær fórust yfir áttatíu í árásum á tvær moskur í bænum Kanakín í norðausturhluta Íraks. Erlent 19.11.2005 10:07
Hannaði heimasíðu Ungur Svíi sem grunaður er um þátttöku í hryðjuverkastarfsemi heimsótti hryðjuverka-foringjann Abu Musab al-Zarqawi í Írak, að því er breska dagblaðið The Times hermir. Erlent 18.11.2005 20:33
CIA rekur net starfsstöðva um allan heim Bandaríska leyniþjónustan CIA rekur starfsstöðvar í samvinnu við leyniþjónustustofnanir ríflega tuttugu landa og er aðgerðum gegn grunuðum hryðjuverkamönnum stýrt þaðan. Þessi starfssemi hefur viðgengist í heilan áratug. Erlent 18.11.2005 20:32
Féllust ekki á skilmálana Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna hafa hafnað boði Bandaríkjastjórnar um að heimsækja herstöðina í Guantanamo á Kúbu þar sem grunuðum hermdarverkamönnum er haldið án ákæru. Erlent 18.11.2005 20:32
Hryðjuverkamenn handteknir Þrír handteknir á Ítalíu Lögreglumenn í norsku víkingasveitinni tóku þátt í að taka höndum þrjá Alsíringa sem eru grunaðir um þátttöku í hryðjuverkastarfsemi. Að sögn Aftenposten hafa mennirnir búið í Noregi en voru handteknir á Ítalíu. Erlent 18.11.2005 20:33
Moskurnar vettvangur blóðbaðsins Sjálfsmorðssprengjumenn létu til skarar skríða í tveimur moskum í Írak í gær með þeim afleiðingum að í það minnsta áttatíu manns létu lífið. Þá var gerð bílsprengjuárás á hótel blaðamanna í Bagdad þar sem átta manns biðu bana. Erlent 18.11.2005 20:33
Rætt um aðstoðarborgarstjóra Samningaviðræðurnar um embætti borgarstjóra í Kaupmannahöfn héldu áfram í gær. Ritt Bjerregaard, sem verður yfirborgarstjóri í Kaupmannahöfn, segir viðræðurnar snúast um hver fái eitt af embættum aðstoðarborgarstjóra. Líklegt þykir að frambjóðandi Einingarlistans verði fyrir valinu. Erlent 18.11.2005 20:33