Erlent
Þúsundir flýja yfirvofandi eldgos Þúsundir íbúa á eynni Vanuatu, í Suður-Kyrrahafi, hafa verið fluttir frá heimilum sínum vegna yfirvofandi eldgoss. Óttast er að flytja þurfi alla íbúa eyjarinnar á brott. Erlent 7.12.2005 11:50
Dæmdur í 11 ára fangelsi fyrir kynferðisglæpi gegn fjölda barna Finnskur maður á fimmtugsaldri var dæmdur í 11 ára fangelsi fyrir yfir 160 kynferðisglæpi gegn börnum. Dómurinn þykir sérlega þungur en maðurinn, Juoko Petri Jaatinen, framdi fleiri tugi glæpa gegn fjöldamörgum börnum á 10 ára tímabili. Kynferðisglæpirnir, sem flestir voru framdir á taílenskum vændisbörnum, þóttu sérlega grófir og niðurlægjandi í mörgum tilfellum og voru 6 fórnarlamba hans yngri en 10 ára. Samkvæmt finnskum lögum má sækja fólk til saka fyrir barnaníð þótt það hafi framið glæpinn í öðru ríki. Erlent 7.12.2005 08:15
Þeim seku verður refsað Kínversk stjórnvöld hafa heitið því að refsa þeim sem bera ábyrgð á sprengingu í efnaverksmiðju á dögunum sem varð til þess að hundrað tonn af eiturefnum láku í Songhua-ána og spilltu drykkjarvatni milljóna manna. Erlent 7.12.2005 09:33
Mesta veðurhamfaraár sögunnar Árið 2005 er mesta veðurhamfaraár sem skráð hefur verið samkvæmt skýrslu sem lögð var fram á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Montreal í Kanada. Erlent 7.12.2005 07:35
Banna pyntingar innan og utan Bandaríkjanna Bandarísk stjórnvöld hafa bannað öllum bandarískum erindrekum að beita fanga sína grimmd við yfirheyrslur, sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Úkraínu þar sem hún er í opinberri heimsókn. Erlent 7.12.2005 10:54
Sýknaður af hryðjuverkaákærum Bandarískur prófessor, Sami al-Arian, sem talað hefur fyrir réttindum Palestínumanna var sýknaður af hryðjuverkaákærum í Flórída í gær. Þetta er talinn mikill ósigur fyrir löggæsluna en bæði al-Arian og þrír aðrir sem tengdust málinu voru úrskurðaðir saklausir. Verjendur Arian segja málið vera fyrst og fremst pólitískt. Innlent 7.12.2005 07:30
Stríðsglæpir fortíðar skulu ekki hafa áhrif á framtíðina Japan á að hugsa um þann sársauka sem það hefur valdið Kína og Suður-Kóreu á árum áður en sagan á þó ekki að hindra framtíðarsamstarf, segir japanski utanríkisráðherrann Taro Aso. Samband Japan við Kína og Suður-Kóreu hefur beðið skaða að undanförnu vegna árlegra pílagrímsferða forsætisráðherrans, Junichiro Koizumi, til Yasukuni hofsins í Tókíó sem er tákn liðinna herátaka. Erlent 7.12.2005 07:24
Pakistanar búa sig undir veturinn Hundruð þúsunda Pakistana undirbúa sig nú fyrir kaldasta tíma vetrarins sem senn gengur í garð. Lítil sem engin hjálp hefur borist stórum hluta þessa fólks eftir jarðskjálftana í síðasta mánuði sem urðu um sjötíu þúsund manns að bana. Erlent 7.12.2005 07:29
Hvetur til árása á olíuvinnslustöðvar í múslímaríkjum Ayman al-Zawahri, næstæðsti maður hryðjuverkasamtakanna al-Qaida, hvetur til árása á olíuvinnslutstöðvar í löndum múslíma í nýju ávarpi sem birt er á heimasíðu á Netinu. Erlent 7.12.2005 07:25
Pyntingar eða háþróaðar yfirheyrslur? Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, viðurkenndi að CIA flytti grunaða hermdarverkamenn án dóms og laga á milli landa til yfirheyrslna en þvertók fyrir að þeir væru pyntaðir. Yfirheyrsluaðferðir CIA eru hins vegar vafasamar svo ekki sé meira sagt. Erlent 6.12.2005 21:21
Mikil sorg í Íran eftir flugslys Mikil sorg ríkir nú í Íran eftir að flugvél skall á íbúðarbyggingu í suðurhluta Teheran, höfuðborg landsins, í gær með þeim afleiðingum að 130 manns fórust. Flugvélin var nýtekin á loft þegar bilunar varð vart og ætlaði flugstjórinn að reyna nauðlendingu. Erlent 7.12.2005 07:11
Rice viðurkennir mistök Condoleezza Rice hóf för sína til fjögurra Evrópulanda í Berlín í gær þar sem hún átti viðræður við Angelu Merkel kanzlara. Rice hét því á fundinum að Bandaríkjastjórn myndi bæta úr þeim mistökum sem henni yrði á í stríðinu gegn hryðjuverkum. Merkel sagðist eftir fundinn vænta þess að leikreglur lýðræðisins væru virtar í baráttunni gegn hryðjuverkahættunni. Erlent 6.12.2005 21:21
Felldu níu talibana í Afganistan Afganskar lögreglusveitir felldu níu talibana í þriggja klukkustunda skotbardaga í suðurhluta landsins í gær. Þá voru sex uppreisnarmenn handteknir. Í nærliggjandi héraði keyrðu vígamenn upp að hópi lögreglumanna og vegfarenda og skutu á þá. Tveir vegfarendur féllu og einn lögregluþjónn. Þá særðust tveir í árásunum. Erlent 7.12.2005 07:10
Vesturbakka og Gaza lokað Ísraelsk yfirvöld hófu í gær refsiaðgerðir gegn Palestínumönnum fyrir sjálfsmorðsárás samtakanna Heilagt stríð í bænum Netanya í fyrradag sem kostaði fimm mannslíf. Vesturbakkanum og Gaza-svæðið voru lokuð af og fimmtán herskáir Palestínumenn voru teknir höndum. Erlent 6.12.2005 21:21
Setti svefnlyf í bananatertu Tæplega fertug kona í Óðinsvéum hefur verið handtekin fyrir tilraun til manndráps en hún stakk sextán ára son sinn með hníf í brjóstið. Konan hefur ítrekað reynt að myrða son sinn, meðal annars hefur hún sett svefnlyf í bananatertu og pottrétt. Erlent 6.12.2005 21:21
Rúmensk stjórnvöld hafa ekkert að fela Forseti Rúmeníu, Traian Basescu, segir engin fangelsi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, hafa verið í landinu. Sagði forsetinn að hann myndi leyfa utanaðkomandi rannsókn til að sanna að þarlens stjórnvöld hefðu ekkert að fela. Erlent 7.12.2005 07:02
Tillögu Breta illa tekið Það hitnaði í kolunum í fjárlagadeilu Evrópusambandsins er breska stjórnin, sem fer nú með formennskuna í sambandinu, lagði fram tillögu sína að fjárhagsáætlun þess fyrir tímabilið 2007-2013. Samkvæmt tillögunni á að skera útgjöld úr sameiginlegum sjóðum sambandsins niður um 24 milljarða evra, andvirði um 1.800 milljarða króna. Erlent 6.12.2005 21:21
Ekki konungleg hátign Nýfæddur sonur norska krónprinsins Hákons og Mette-Marit prinsessu hefur fengið nafnið Sverre Magnus eða Sverrir Magnús upp á íslensku. Hann fær hins vegar ekki titilinn hans konunglega hátign, að því er greint var frá í norskum fjölmiðlum. Erlent 6.12.2005 21:21
Á annað hundrað létust Í það minnsta 128 manns biðu í gær bana í flugslysi í Teheran í Íran. Talið er að vélarbilun hafi valdið því að herflugvél rakst utan í fjölbýlishús og hrapaði til jarðar. Mikið öngþveiti skapaðist á slysstaðnum. Erlent 6.12.2005 21:21
Ósamkvæmur sjálfum sér Þrýstingur á Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, um að segja af sér fer vaxandi eftir að yfirvöld voru gagnrýnd fyrir að bregðast ekki nógu hratt við flóðbylgjunni í Indlandshafi í fyrra. Sænskir fjölmiðlar vitnuðu í gær í ævisögu hans frá árinu 1997 þar sem hann ræðir um það hvers vegna stjórnmálamenn eigi að segja af sér eða ekki. Erlent 6.12.2005 21:21
Skelfilegum pyntingum lýst Í það minnsta 43 létu lífið og 73 særðust þegar tveir menn gyrtir sprengjubelti frömdu sjálfsmorðsárás í lögregluskóla í Bagdad í gær. Í fyrstu var talið að konur hefðu verið að verki en þær fregnir voru dregnar til baka. Erlent 6.12.2005 21:21
Álfyrirtækið Alcoa dregur úr útblæstri Bandaríski álrisinn Alcoa, sem byggir álverksmiðju á Reyðarfirði, er í fimmta sæti á nýjum lista tímaritsins Business Week yfir þau fyrirtæki sem þykja hafa staðið sig best þegar kemur að því að draga úr útblæstri lofttegunda sem meirihluti vísindamanna telur sannað að hafi mikil áhrif á hlýnun jarðar. Erlent 6.12.2005 21:21
Cameron blæs til sóknar Hinn 39 ára gamli David Cameron var í gær kjörinn leiðtogi breska Íhaldsflokksins. Hann blés strax til sóknar gegn Verkamannaflokknum. Erlent 6.12.2005 21:21
Bandaríkin og Bretland heilla Tæplega 82 prósent íbúa í héraðinu Cono Sur í Brasilíu dreymir um að flytjast búferlum til útlanda og þá sérstaklega til Bandaríkjanna, Bretlands eða Ítalíu. Þetta kemur fram í viðamikilli könnun sem þarlend stofnun hefur gert og sýnir að yfir 1,5 milljónir íbúa myndu grípa tækifærið til að búa í Evrópu eða Bandaríkjunum til langframa. Erlent 6.12.2005 21:21
Elska menn sína áfram Yfir áttatíu prósent þeirra kvenna sem orðið hafa fyrir ofbeldi af höndum eiginmanna sinna eða kærasta á heimilum sínum á Spáni telja ekki að ást eiginmanna sinna sé nokkuð minni fyrir vikið. Fyrst og fremst eru það ungar stúlkur, um og undir þrítugsaldrinum, sem eru á þessari skoðun en heimilisofbeldi gegn þeim hefur vaxið hvað hraðast í landinu á undanförnum árum. Erlent 6.12.2005 21:21
750 bókatitlar í bókasjálfsala Svíar eru líklega fyrsta Evrópuþjóðin til að setja upp bókasöfn í sjálfsölum. Borgarbókasafnið í Stokkhólmi ætlar að koma sér upp slíkum sjálfsölum á nokkrum stöðum þar sem umferð er mikil. Erlent 6.12.2005 21:21
Samísku börnin sögð harðari Samísk börn eru sögð harðari af sér en önnur norsk börn. Niðurstöður doktorsrannsóknar benda til að þau þoli líkamlegan sársauka mun betur en jafnaldrar þeirra í Noregi. Erlent 6.12.2005 21:21
Seldu Ísraelum þungt vatn Norsk stjórnvöld vissu af áformum Ísraela um að koma sér upp kjarnavopnum áður en samkomulag náðist milli þjóðanna um sölu á þungu vatni til Ísraels árið 1959. Þungt vatn er notað til að framleiða kjarnavopn. Erlent 6.12.2005 21:21
Sagði dómurunum að fara til fjandans Gríðarlegur viðbúnaður er vegna réttarhalda yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks. Réttahöldin héldu áfram í dag en í gær strunsuðu lögfræðingar hans út úr réttarsalnum eftir að hafa verið meinað að tjá sig um réttmæti réttarhaldanna. Erlent 6.12.2005 23:05
130 látnir eftir flugslysið í Íran Að minnsta kosti eitt hundrað og þrjátíu manns fórust í flugslysinu í Íran í dag þegar herflugvél skall á íbúðabyggingu í Teheran, höfuðborg landsins. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka enn frekar en fjölmargir eru slasaðir. Erlent 6.12.2005 22:22