Erlent

Fréttamynd

6 létust í flugslysi í Írak á fimmtudaginn

Sex lík fundust í morgun í braki lítillar flugvélar sem hrapaði í norðurhluta Íraks á fimtudaginn. Um borð í vélinni voru þrír Þjóðverjar og einn Íraki, en þjóðerni hinna tveggja sem létust er ekki þekkt.

Erlent
Fréttamynd

Tveir fundust á lífi

Tveir fundust á lífi í morgun í rústum þorpsins Guinsaugon á Filippseyjum, eftir aurskriðurnar á föstudag. Vinna er hafin við að grafa upp barnaskóla þorpsins, þar sem 250 börn urðu undir tíu metra þykkri eðjunni. Útilokað þykir að nokkurt þeirra sé á lífi.

Erlent
Fréttamynd

Þúsundir kjúklinga aflífaðir

Heilbrigðisstarfsmenn aflífuðu þúsundir kjúklinga í vesturhluta Indlands í gærkvöldi, eftir að fyrsta tilfelli fuglaflensu var greint þar í landi.

Erlent
Fréttamynd

Gekk í bol með skopteikningu úr Jótlandspóstinum

Ítalskir ráðamenn reyna nú hvað þeir geta að lægja öldurnar meðal múslima, eftir að einn ráðherra ríkisstjórnarinnar móðgaði múslima með því að ganga í bol með einni af skopteikningu Jótlandspóstsins framan á.

Erlent
Fréttamynd

Lítil von með að finna fólk á lífi

Björgunarsveitir eygja litla von til að finna fleiri á lífi eftir aurskriðurnar í Guinsaugon á Filippseyjum. Aðstæður til leitar eru afar erfiðar og enn er hætta á fleiri aurskriðum.

Erlent
Fréttamynd

Mannfall í mótmælum í Líbíu

Ekki er vitað hve margir létu lífið í átökum mótmælenda og lögreglu fyrir utan ræðismannsskrifstofu Ítala í borginni Benghazi í Líbíu í kvöld. Fyrstu fregnir hermdu að níu hefðu látið lífið og hátt í 60 særst en það hefur ekki fengist staðfest.

Erlent
Fréttamynd

Rúmlega 8 tonn af kókaíni haldlögð

Portúgalska lögreglan lagði í dag hald á meira en átta tonn af kókaíni sem er það mesta sem hefur verið haldlagt þar í landi í einu. Lögreglan lagði til atlögu gegn glæpagengi á Algarve í suður hluta landsins.

Erlent
Fréttamynd

Olíuleiðsla í Írak sprengd

Sprenging varð í dag í olíuleiðslu sem flytur hráolíu frá olíusvæðum í Kirkuk í Írak til olíuhreinsunarstöðvar í höfuðborginni Bagdad. Þetta er aðal olíuleiðslan á þessu svæði og segir íraska lögreglan að uppreisnarmenn beri ábyrgð á sprengingunni.

Erlent
Fréttamynd

Leikskóli fyrir pandabirni

Leikskóli fyrir pandabirni var opnaður í Suður-Kína í gær. Það eru aðstandendur stærstu uppeldisstöðvar pandabjarna þar í landi sem reka skólann og segja hann þann fyrsta sinnar tegundar í heimi.

Erlent
Fréttamynd

Fuglaflensan komin til Frakklands

Fuglaflensa hefur greinst í andarhræi í Austur-Frakklandi. Talið er líklegt að flesan sé af hinum hættulega H5N1 stofni en það hefur ekki fengist staðfest.

Erlent
Fréttamynd

Orkla til sölu

Norska, fjölmiðlafyrirtækið Orkla Media, sem rekur meðal annars dönsku blöðin Berlingske Tidene, BT og Weekendavisen, er til sölu. Að því er fram kemur á norska fréttavefnum NTB hefur stjórn félagsins ákveðið að hlusta á tilboð í samsteypuna í heild sinni eða að hluta. Dagsbrún, móðurfélag 365 miðla, og norska blaðið Dagbladet hafa sýnt fyrirtækinu áhuga.

Erlent
Fréttamynd

Leigja út Dick Cheney veiðigalla

Búningaleiga í Bandaríkjunum hefur hafið leigu á Dick Cheney veiðigöllum. Gallinn er leigður undir þeim formerkjum að vera hin fullkomna leið til að hræða veiðifélagana.

Erlent
Fréttamynd

Frjálst flæði vinnuafls dregur úr atvinnuleysi

Frjálst flæði vinnuafls úr tíu nýju löndum Evrópusambandsins virðist draga úr atvinnuleysi, þvert á það sem flestir bjuggust við. Eldri löndum sambandsins sem ekki hafa sett takmarkanir á flæði vinnuafls, farnast betur en öðrum.

Erlent
Fréttamynd

Sendiráði Dana lokað í Islamabad af öryggisástæðum

Danska sendiráðinu í Islamabad í Pakistan var í dag lokað af öryggisástæðum en mikil mótmæli hafa verið í landinu í vikunni vegna skopmyndanna af Múhameð spámanni. Jótlandspósturinn hefur eftir sendiherra Danmerkur í Pakistan að hann sé enn í landinu en hann vill ekki gefa upp hvar hann er.

Erlent
Fréttamynd

Engin fuglaflensa enn fundin í Danmörku

Engin fuglaflensa hefur verið greind í dauðum fuglum sem fundist hafa í Danmörku síðustu daga. Frá þessu greindu yfirvöld í dag. Búið er að rannsaka 30 svani ásamt mávi og önd sem fundust á Sjálandi, Lálandi og Falstri og engin flensa fannst í fuglunum.

Erlent
Fréttamynd

Tvö þorp á kafi í leðju eftir aurskriður

Tvö þúsund manns kunna að hafa farist í einhverjum mestu aurskriðum í sögu Filippseyja í nótt. Tvö þorp hafa nánast alveg grafist í kaf í leðju eftir ofsaveður undanfarna daga.

Erlent
Fréttamynd

Jöklar Grænlands bráðna hraðar en talið var

Jöklar Grænlands bráðna mun hraðar en vísindamenn bjuggust við. Tveir stærstu skriðjöklar á Austur-Grænlandi hafa tvöfaldað skriðhraða sinn á síðustu tveimur árum og skríða nú fram um fjórtán kílómetra á ári, samkvæmt nýlegri enskri rannsókn.

Erlent
Fréttamynd

Ismail Haniyeh forsætisráðherraefni Hamas

Ismail Haniyeh hefur verið útnefndur sem forsætisráðherraefni Hamas-samtakanna í Palestínu. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir háttsettum embættismanni innan samtakanna, sem segir jafnframt að þetta verði ekki tilkynnt formlega fyrr en um helgina.

Erlent
Fréttamynd

Bandaríkjamenn ættu að loka Guantanamo-búðunum

Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, segir að Bandaríkjamenn ættu að loka fangabúðunum við Guantanamo-flóa á Kúbu eins fljótt og auðið er. Þó að hann segist ekki sammála öllu sem fram hafi komið í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum styðji hann þá niðurstöðu að ekki sé verjandi að halda föngum án ákæru eins og gert sé í Guantanamo.

Erlent
Fréttamynd

Segist hafa fundið bóluefni gegn fuglaflensu

Stórt lyfjafyrirtæki í Ástralíu segist hafa fundið bóluefni gegn fuglaflensu. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum úr rannsókn á virkni hins nýja bóluefnis, ættu fimmtán míkrógrömm af efninu að duga til að koma í veg fyrir fuglaflensu hjá fullorðnu fólki.

Erlent
Fréttamynd

Óttast að 2000 manns hafi látist í aurskriðum á Filippseyjum

Tvö þúsund manns kunna að hafa farist í einhverjum mestu aurskriðum í sögu Fiippseyja í nótt. Tvö þorp hafa nánast alveg grafist á kaf í leðju eftir miklar rigningar og hávaðarok. Fréttir af svæðinu eru enn óljósar, en embættismenn telja víst að tala látinna skipti hundruðum og jafnvel þúsundum.

Erlent
Fréttamynd

200 Kúrdar handteknir í mótmælaaðgerðum í Tyrklandi

Um tvö hundruð Kúrdar voru handteknir í mótmælaaðgerðum í borgunum Adana og Batman í Tyrklandi í dag. Mótmælin upphófust í gær þegar sjö ár voru liðin frá handtöku kúrdíska andspyrnuleiðtogans Abdullah Ocalan. Mótmælendur hentu grjóti og múrsteinum að lögreglumönnum sem vörðust með kylfum og skjöldum.

Erlent
Fréttamynd

Gæti dregið 142 milljónir manna til dauða

Allt að 142 miljónir manna eiga á hættu að deyja úr fuglaflensu, stökkbreytist H5N1-veiran. CNN hefur þetta eftir sérfræðingum Lowy stofnunarinnar, álitsgjafa í Ástralíu. Fuglaflensan er komin til Ungverjalands en flensan fannst í þremur svönum sem drápust þar. Verið er að greina hvort veiran sé af gerðinni H5N1.

Innlent
Fréttamynd

Cheney segist bera fulla ábyrgð á slysaskoti

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, hefur viðurkennt að hann beri fulla ábyrgð á óhappinu sem varð í veiðiferð hans og félaga hans, milljarðamæringsins Harrys Whittingtons, um síðustu helgi. Cheney særði þá Whittington í andliti og á bringu.

Erlent
Fréttamynd

René Preval lýstur sigurvegari

Bráðabirgðaríkisstjórn Haítí hefur lýst René Preval sigurvegara í forsetakosningum sem fram fóru í landinu í síðustu viku. Áður hafði hún fyrirskipað endurskoðun á úrslitum talningar atkvæða eftir að Préval hélt því fram að umfangsmikil kosningsvik hefðu átt sér stað og útfylltir kjörseðlar fundist í sekkjavís á sorphaugum.

Erlent
Fréttamynd

Ætla að brenna danska fánann fyrir knattspyrnuleik

Arabískir knattspyrnuáhangendur í Ísrael ætla að brenna danska fánann fyrir vináttuleik Dana og Ísraela sem fram fer í Ísrael eftir um tvær vikur. Er þetta gert til þess að mótmæla skopteikningunum af Múhameð spámanni sem birtust fyrst í Jótlandspóstinum.

Erlent