Erlent

Fréttamynd

Hættir við kaup á Liverpool

Norsku viðskiptajöfrarnir Øystein Stray Spetalen og Petter Stordalen eru sagðir hættir við að gera tilboð í ráðandi hlut í breska knattspyrnufélagið Liverpool. Að sögn norska viðskiptablaðsins Dagens Næringsliv þótti þeim félagið ekki álitlegur kostur í bili.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Gengi hlutabréfa lækkaði í Japan

Gengi hlutabréfabréfa lækkaði nokkuð í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 2,8 prósent og er það mesta lækkun vísitölunnar á einum degi síðan í janúar á þessu ári. 18. janúar sl. lækkaði vísitalan um 2,9 prósent.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Björgólfur Thor 32. auðugasti maður Bretlands

Breska blaðið Sunday Times metur eignir Björgólfs Thors Björgólfssonar á liðlega 214 milljarða króna og segir þær hafa fjórfaldast á einu ári. Hann er samkvæmt þessu þrítugasti og annar ríkasti maður Bretlandseyja.

Erlent
Fréttamynd

Aparnir fá að fara til heimkynna sinna

Allt útlit er fyrir að fimmtíu og fjórir órangútan-apar, sem taldir eru vera frá Indónesíu, fái loks að snúa aftur til heimkynna sinna. Taílensk yfirvöld fundu apana í þarlendum safarí-dýragarði fyrir nokkrum misserum en þá höfðu þeir verið látnir stunda hnefaleika, gestum garðsins til skemmtunar.

Erlent
Fréttamynd

Góð kosningaþátttaka í Ungverjalandi

Allgóð kjörsókn hefur verið í síðari umferð ungversku þingkosninganna sem hófst í morgun. Útlit er fyrir að ríkisstjórnin haldi meirihluta sínum. Þegar kjörstaðir voru opnaðir snemma í morgun höfðu þegar myndast biðraðir fyrir utan og það sem af er degi hefur kjörsókn verið býsna góð. Stöðugleiki hefur hingað til ekki verið helsta einkenni ungverskra stjórnmála því síðan járntjaldið féll árið 1990 hefur sitjandi ríkisstjórn aldrei náð að halda völdum.

Erlent
Fréttamynd

Enn mótmælt í Nepal

Enn einn daginn í röð fylktu mótmælendur liði í Katmandú, höfuðborg Nepals. Andófsmennirnir höfðu útgöngubann yfirvalda að engu heldur reyndu að komast inn á bannsvæði í miðborginni þar sem konungshöllin er.

Erlent
Fréttamynd

Bin Laden segir Vesturlönd í krossför gegn islam

Arabíska sjónvarpsstöðin al-Jazeera birti í morgun ávarp frá Osama bin Laden, leiðtoga al-Kaída hryðjuverkanetsins. Í ávarpinu sagði hann tilraunir ríkisstjórna á Vesturlöndum til að einangra Hamas-samtökin og átökin í Darfur dæmi um krossför Vesturlanda gegn íslam. Bin Laden bætti því við að almenningur á Vesturlöndum bæri einnig ábyrgð á þessari aðför gegn trú sinni.

Erlent
Fréttamynd

Skotið á nepalska mótmælendur

Nepalska lögreglan réðst í morgun gegn andófsmönnum sem reyndu að komast að konungshöllinni í Katmandú, höfuðborg landsins. Sáttatilboð konungs virðist hafa fallið í afar grýttan jarðveg hjá þegnum hans.

Erlent
Fréttamynd

Rekin frá CIA vegna uppljóstrana

Bandaríska leyniþjónustan CIA hefur leyst hátt settan starfsmann sinn frá störfum fyrir að leka upplýsingum um leynifangelsi erlendis og fangaflutninga þeim tengdum til fjölmiðla.

Erlent
Fréttamynd

Al-Maliki verður forsætisráðherra

Vonast er til að fjögurra mánaða stjórnarkreppa í Írak sé á enda eftir að samkomulag náðist um hver tæki við embætti forsætisráðherra landsins. Jalal Talabani var endurkjörinn forseti á íraska þinginu í dag.

Erlent
Fréttamynd

Bruni í Þrándheimi

Stórbruni varð í miðborg Þrándheims í Noregi í gærkvöld. Enginn slasaðist en nokkur hús gjöreyðilögðust.

Erlent
Fréttamynd

Sýkt kjöt í dönskum verslunum

Dönsk heilbrigðisyfirvöld rannsaka nú hvernig á því standi að níu tonn af ítölsku kalkúnakjöti hafi ratað í 173 danskar matvöruverslanir án tilskildrar vottunar.

Erlent
Fréttamynd

Rangar líkamsleifar afhentar

Chilesk yfirvöld hafa beðið ættingja 126 fórnarlamba herforingjastjórnarinnar illræmdu afsökunar eftir að í ljós kom að þeim voru afhentar rangar líkamsleifar.

Erlent
Fréttamynd

Al-Maliki í stað al-Jaafari

Vonast er til að höggvið hafi verið á hnútinn í stjórnarmynduninni í Írak eftir að tilkynnt var um að Jawad al-Maliki, yrði forsætisráðherraefni fylkingar sjía, í stað Ibrahims al-Jaafari, núverandi forsætisráðherra.

Erlent
Fréttamynd

Skotið á mótmælendur nærri konungshöll

Lögregla í Nepal skaut á mótmælendur í miðbæ Katmandú í morgun og særði að minnsta kosti átta menn. Tugþúsundir manna hundsuðu útgöngubann og gengu um götur borgarinnar í átt að konungshöllinni.

Erlent
Fréttamynd

Bauð ókeypis brjóstaskoðun án þess að vera læknir

Lögregla á Florída handtók í gær mann á áttræðisaldri sem hafði gengið hús úr húsi í gervi læknis og boðið konum uppá ókeypis brjóstaskoðun. Upp um manninn komst þegar kona sem hann var að skoða grunaði að eitthvað misjafnt væri á ferðinni þegar maðurinn bað hana um að fara úr öllum fötunum

Erlent
Fréttamynd

Sturtaði seðlunum niður

Í Þýskalandi eru ekki allir með það á hreinu hvort enn sé hægt að skipta þýska markinu í Evrur. Það var í það minnsta ekki elllilífeyrisþegi einn í Berlín sem fleygði andvirði 30.000 Evra í klósettið heima hjá sér og sturtaði niður.

Erlent
Fréttamynd

Gyanendra vill sættir

Ekkert útlit er fyrir að ólgunni í Nepal linni á næstunni þrátt fyrir að konungur landsins hafi heitið því í dag að koma á lýðræði þar á ný. Stærsti flokkur landsins segir sáttatilboð kóngsins ganga alltof skammt og því verði mótmælum haldið áfram.

Erlent
Fréttamynd

Vill konur í stjórn A. P. Møller-Mærsk

Jess Søderberg, forstjóri dönsku fyrirtækjasamteypunnar A. P. Møller-Mærsk, er sagður hafa á takteinum að fjölga konum í stjórn fyrirtækisins. Danskir karlar hafa frá upphafi verið einráðir í stjórninni og hafa konur þar aldrei átt sæti.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Minni hagnaður hjá McDonald´s

Hagnaður bandarísku skyndibitakeðjunnar McDonald´s dróst saman um 14 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2006. Þetta er mesti samdráttur keðjunnar í fjögur ár. Hagnaðurinn nam 625,3 milljónum Bandaríkjadala eða 49 sentum á hlut. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaðurinn 727,9 milljónum eða 56 sentum á hlut.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Deilt um skipan þingforseta á Ítalíu

Hveitibrauðsdagar sigurvegara þingkosninganna á Ítalíu urðu töluvert færri en búist var við. Brestir eru komnir í Ólívubandalag mið- og vinstri flokka, sem staðfest var í vikunni að náð hefði naumum meirihluta í báðum deildum þings.

Erlent
Fréttamynd

Stjórnarandstæðingar fá að bjóða fram í Nepal

Gyanendra, konungur Nepals, hefur ákveðið að leyfa stjórnarandstöðuflokkum í landinu að bjóða fram eigin forsætisráðherraefni. Hann segir þó að starfandi ríkisstjórn verði áfram við völd enn um sinn. Nepal hefur logað í óeirðum í rúman hálfan mánuð og hafa fjórtán fallið í átökum við öryggissveitir á þeim tíma. Mótmælendur hafa krafist þess að konungur afsalaði sér alræðisvaldi sem hann tók sér fyrir rétt rúmu ári.

Erlent
Fréttamynd

Nígerumenn ætla að gera upp við lánadrottna

Stjórnvöld í Nígeríu stefna að því að greiða margra milljarða skuld sína við hinn svokallaða Parísarklúbb sem nítján lánadrottnar tilheyra, þar á meðal Bretar, Rússar og Þjóðverjar. Þar með yrðu Nígeríumenn fyrsta Afríkuríkið til að gera upp alþjóðlega lánadrottna. Um er að ræða greiðslu sem nemur jafnvirði rúmlega 350 milljarða íslenskra króna. Eftir það skulda þó Nígeríumenn áfram jafnvirði tæplega 400 milljarða króna.

Erlent
Fréttamynd

Hlutabréf hækkuðu í Evrópu

Gengi hlutabréfa hækkaði á mörkuðum í Evrópu í dag í kjölfar hækkunar á Dow Jones hlutabréfavísitölunni í gær, sem hefur ekki verið hærri í sex ár. Gengi bréfa í ítalska bifreiðaframleiðandanum Fiat hækkaði um 2 prósent í eftir að greint var frá góðri afkomu fyrirtækisins á árinu. Þá hækkaði gengi finnska farsímaframleiðandans Nokia um 1,5 prósent.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Olíuverð nálægt sögulegu hámarki

Olíuverð fór í sögulegt hámark í helstu mörkuðum í dag þegar það fór yfir 73 dollara á tunnu. Sérfræðingar spá því að olíuverð haldi áfram að hækka á næstu vikum vegna minni olíubirgða í Bandaríkjunum og óvissu um aðgerðir gegn kjarnorkuáætlun Írana, en það er næststærsta olíuframleiðsluríkið innan OPEC. Þá hafa árásir skæruliða á olíuvinnslustöðvar í Nígeríu dregið mikið úr olíuframleiðslu þar í landi.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Tveir létust í eldsvoða

Að minnsta kosti tveir stúdentar létu lífið og fjórir slösuðust þegar eldur kviknaði í Ríkisháskólanum í Moskvu í morgun. Byggingin er eitt eftirtektarverðasta kennileiti höfuðborgar Rússlands. Greiðlega gekk að slökkva eldinn sem kviknaði á tótfu hæð í heimavist skólans.

Erlent