Íþróttir

Fréttamynd

Spánverjar biðjast afsökunar

Enska knattspyrnusambandinu barst í gær afsökunarbeiðni frá spænska knattspyrnusambandinu eftir að spænskir áhorfendur höfðu kallað ókvæðisorð að leikmönnum enska landsliðsins í vináttuleik sem fram fór í Madríd á miðvikudaginn var.

Sport
Fréttamynd

Roddick vann Safin

Andy Roddick bar sigurorð af Marat Safin í annarri umferð ATP Masters Cup tennismótsins í fyrrakvöld.

Sport
Fréttamynd

Áhugi frá Skotlandi og Skandinavíu

Það er fátt sem bendir til þess að Þórarinn Kristjánsson leiki með Keflavík á næstu leiktíð. Hann hafnaði samningstilboði frá þeim í gær og er á förum til liða í Skotlandi og Skandinavíu á næstunni.

Sport
Fréttamynd

Tiger með þriggja högga forystu

Tiger Woods er enn með þriggja högga forystu á Dunlop Phoenix mótinu í Miyazaki í Japan. Tiger lék á 67 höggum, þremur undir pari, og er samtals á átta höggum undir pari eftir 36 holur. Kaname Yokoo frá Japan er í öðru sæti, þremur höggum á eftir Tiger. Daninn Thomas Björn er í 32. sæti en hann vann mótið í fyrra.

Sport
Fréttamynd

Iordanescu segir af sér

Anghel Iordanescu hefur sagt af sér sem langsliðsþjálfari Rúmeníu í knattspyrnu. Iordanescu, sem stýrði Rúmenum í átta liða úrslit á HM 1994, tilkynnti afsögn sína í kjölfar 1-1 jafnteflis við Armeníu á miðvikudaginn. Iordanescu, sem tók við Rúmenum í annað skipti árið 2002 en náði ekki að koma þeim á EM 2004, hefur verið mikið gagnrýndur fyrir að eyða of miklum tíma í pólitík, en hann er vel virkur á því sviði. Hann skrifaði undir nýjan samning í september, en eftir að lélegan árangur undanfarið hefur rúmenska knattspyrnusambandið þrýst á hann að segja af sér.

Sport
Fréttamynd

Stórleikir í Hópbílabikarnum

Undanúrslitin í Hópbílarbikar kvenna í körfuknattleik fer fram í Laugardalshöll í dag. Fyrst mætast ÍS og Haukar en í seinni leiknum munu Grindvíkingar keppa við Keflavík.

Sport
Fréttamynd

76ers með sex stig í 1. leikhluta

San Antonio Spurs lagði Philadelphia 76ers 88-80 í NBA-deildinni í körfubolta í gærkvöld. Tim Duncan skoraði 34 stig fyrir San Antonio og Allen Iverson skoraði 24 stig fyrir Philadelphia. 76ers skoraði aðeins sex stig í fyrsta leikhluta sem er met.

Sport
Fréttamynd

Úrslit úr handboltanum

Fram vann stórsigur á Aftureldingu í Norðurriðli 1. deildar karla í handknattleik í kvöld, lokatölur urðu 40-28. Í hinum leik kvöldsins sigraði Þór A. FH 29-26 í Krikanum

Sport
Fréttamynd

Snæfell spilar til úrslita

Fyrri undanúrslitaleik Hópbílabikarsins í körfubolta lauk nú rétt í þessu er Snæfell frá Stykkilshólmi sigraði Grindavík 82-75 í Laugardagshöll. Desmond Peoples var atkvæðamestur fyrir Snæfell í kvöld með 18 stig og Pierri Green setti 17. Hjá Grindavík átti Þorleifur Ólafsson góðan dag og setti niður 29 stig og Darrel Lewis skoraði 21. Nú er nýbyrjaður leikur Njarðvíkur og keflavíkur en sigurliðið úr þeim leik spilar við Snæfell í úrslitum Í Laugardagshöll á morgun.

Sport
Fréttamynd

Þórður Þórðarson framlengir hjá ÍA

Þórður Þórðarson, markvörður Skagamanna í knattspyrnu, skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Þetta hljóta að teljast gríðarlega góð tíðindi fyrir Skagamenn en Þórður spilaði alla leiki liðsins í sumar og var valinn besti leikmaður liðsins.

Sport
Fréttamynd

Kvennalandsliðið til Póllands

Íslenska kvennlandsliðið í handknattleik er á leið til Kielce í Póllandi þar sem þær taka þátt í undankeppni HM 23.-28. nóvember. Það verður ekki auðvelt verk fyrir stúlkurnar að tryggja sér sæti á HM því riðillinn sem þær spila í er geysisterkur. Ásamt liði heimamanna eru í riðlinum Tyrkir, Slóvakía, Makedónía og Litháen.

Sport
Fréttamynd

Spurs vann fimmta í röð

Tim Duncan fór fyrir sínum mönnum þegar San Antonio Spurs vann sinn fimmta leik í röð í NBA-deildinni.

Sport
Fréttamynd

Vince Carter til Portland?

Það þurfti ekki meira en fjóra tapleiki í röð til að orðrómur færi af stað um Vince Carter hjá Toronto Raptors í NBA-körfuboltanum.

Sport
Fréttamynd

Landsliðshópurinn valinn

Stefán Arnarson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, valdi í gær landsliðshóp sem tekur þátt í forkeppni að undankeppni heimsmeistaramótsins í Póllandi á sunnudag. Einn nýliði er í hópnum, Kristín Clausen úr Stjörnunni.

Sport
Fréttamynd

Lið Grants Hill að gera góða hluti

Grant Hill og félagar hans í Orlando Magic, eru að gera góða hluti í NBA-körfuboltanum í Bandaríkjunum. Magic vann hið fríska lið Utah Jazz, 107-92, sem hafði aðeins tapað einum leik í deildinni og unnið sex af síðustu sjö leikjum.

Sport
Fréttamynd

Fyrsta tap Keflvíkinga

Keflvíkingar máttu þola sitt fyrsta tap í Bikarkeppni Evrópu í kvöld er danska liðið Bakken Bears sótti þá heim. Keflavík hafði þó forystu nær allan leikinn og 10 stiga forystu fyrir síðasta leikhluta en Danirnir reyndust sterkir í blálokin og náðu að tryggja sér sigurinn með tveimur vítaskotum 5 sekúndum fyrir leikslok, 80-81. 

Sport
Fréttamynd

Shevchenko á stórmót

Serbía-Montenegro vann góðan sigur 0-2 á Belgum í Brussel, sigurinn kom þeim á toppinn í riðlinum og rændi Belga nánast öllum möguleikum um að komast áfram. Seinna markið skoraði Mateja Kezman sem hafði komið inn á sem varamaður fyrir fyrirliðann Savo Milosevic sem meiddist í fyrri hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Stjarnan lagði Breiðablik

Stjarnan vann í kvöld mikilvægan sigur á Breiðabliki á útivelli í 1.deild karla í körfuknattleik.  Lokatölur urðu 76-79 eftir að heimamenn í Breiðabliki höfðu leitt í hálfleik, 51-46. Eiríkur Sigurðsson var stigahæstur í liði Stjörnunnar með 20 stig en Jónas P. Ólason í liði heimamanna, einnig með 20 stig.

Sport
Fréttamynd

Fyrsti sigur Viggós

Allt er þegar þrennt er. Fyrsti sigur Viggós Sigurðssonar með handboltalandsliðið kom í gær þegar strákarnir hans keyrðu yfir Ungverja. Á ýmsu hafði gengið í fyrstu tveim leikjum Íslands á mótinu en í gær small allt saman. Sigur íslenska liðsins hefði getað verið stærri því strákarnir náðu mest níu marka forystu. Þeir slökuðu á undir lokin, Ungverjar gengu á lagið, skoruðu fjögur síðustu mörkin og björguðu andlitinu.

Sport
Fréttamynd

Sárt tap á heimavelli

Klúður á lokasekúndum Evrópuleiks Keflavíkur og danska liðsins Bakken Bears varð til þess að Danirnir mörðu sigur, 80-81, í leik sem Keflvíkingar áttu með húð og hári nánast frá upphafi til enda. Þeir náðu þó aldrei að stinga Danina af að ráði og með seiglu jöfnuðu þeir á lokamínútunum og unnu með því að skora úr tveimur vítaskotum í blálokin.

Sport
Fréttamynd

Vörnin í molum

Íslenska handboltalandsliðið náði ekki að fylgja eftir góðum leik gegn Þjóðverjum á World Cup er þeir mættu Frökkum á miðvikudag. Frakkar voru mikið mun sterkari frá upphafi og unnu stórsigur, 38-29.

Sport
Fréttamynd

Keflavík yfir í hálfleik

Keflvíkingar hafa forystu í hálfleik gegn danska liðinu Bakken Bears í Bikarkeppni Evrópu í körfuknattleik, 43-41. Keflvíkingar leiddu 27-14 eftir fyrsta leikhluta og mest 34-22 en Danirnir komu sterkir til baka undir lok fyrri hálfleiks. Gunnar Einarsson hefur skorað 17 stig, þar af 14 í fyrsta leikhluta, og Nick Bradford 14 fyrir Keflvíkinga.

Sport
Fréttamynd

Írland og Austurríki í forystu

Írarnir Padraig Harrington og Paul McGinley, lykilmenn í sigurliði Evrópumanna í Ryder Cup, er efstir eftir fyrsta keppnisdaga á síðasta heimsmeistaramóti ársins í golfi. Þeir félagar léku á samtals 12 höggum undir pari í dag, eins og lið Austurríkis sem þeir Martin Wiegele og Markus Brier skipa.

Sport
Fréttamynd

Verðum að halda einbeitingunni

Undanúrslitin í Hópbílabikarnum í körfubolta fara fram í Laugardalshöll í kvöld. Í fyrri leiknum mætast Snæfell og Grindavík en í þeim síðari eigast við erkifjendurnir frægu í Njarðvík og Keflavík.

Sport
Fréttamynd

Anthony sleppur við ákæru

Carmelo Anthony, framherji Denver Nuggets í NBA-deildinni í körfuknattleik, verður ekki ákærður fyrir að hafa marijúana í fórum sínum. Saksóknari í Denver, Colorado, ákvað að falla frá ákæru þar sem honum þótt ekki líklegt að Anthony yrði sakfelldur. Vinur Anthony, James Cunningham, hafði viðurkennt að fíkniefnið væri hans eign.

Sport
Fréttamynd

Ísland að sökkva Ungverjum

Íslenska landsliðið í handbolta er yfir í leikhléi 18-12 gegn Ungverjum á World Cup mótinu sem fram fer í Svíþjóð. Liðið náði mest fimm marka mun um miðjan fyrri hálfleik en Ungverjar minnkuðu muninn þegar líða fór að hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Henman sigraði Coria

Enski tenniskappinn Tim Henman er á góðri leið með að tryggja sér sæti í undanúrslitum á ATP Masters-mótinu sem fram fer Houston í Bandaríkjunum. Henman vann Guillermo Coria örugglega í dag, 6-2 og 6-2 og er þar með næsta öruggur áfram, en tveir efstu leikmenn úr hvorum riðli komast í undanúrslit. Sama er einnig að segja um Andy Roddick

Sport
Fréttamynd

Góður sigur á Ungverjum

Íslenska landsliðið í handbolta spilaði einn sinn besta leik um langa hríð þegar liðið bar sigurorð af Ungverjum í þriðja leik liðsins á World Cup í Svíþjóð. Lokatölur urður 33-29 Íslandi í vil en munurinn á liðunum var lengstum leiks meiri.

Sport
Fréttamynd

Frakkar yfir í hálfleik 19-13

Frakkar eru með sex marka forskot gegn okkar mönnum í hálfleik á heimsbikarmótinu í handknattleik sem fram fer í Svíþjóð. Eftir góða byrjun Íslendinga hafa Frakkar verið sterkari, en okkar menn geta þó nagað sig í handabökin því þeir hafa farið mjög illa með nokkur úrvals færi. Atkvæðamestur í íslenska liðinu er Markús Máni Michaelsson með sex mörk.

Sport