Íþróttir

Fréttamynd

Svíar heimsbikarmeistarar

Svíar sigruðu Dani 27-22 í úrslitaleik heimsbikarmótsins í handknattleik nú rétt í þessu. Það eru því Svíar sem eru heimsbikarmeistarar en Íslendingar enduðu í fimmta sæti eftir sigur á Slóvenum fyrr í dag 39-34.

Sport
Fréttamynd

Ætla sér öll miklu lengra

Eyleifur Jóhannesson gerði Ægi að bikarmeisturum á fyrsta ári en hann komi til liðsins frá Akranesi í haust. "Þetta var sigur liðsheildarinnar, þetta var jafn sterkt hjá strákunum og stelpunum og þetta sýnir að það er stór hópur hjá Ægi að æfa á fullu.

Sport
Fréttamynd

Spánverjar leiða heimsbikarmótið

Miguel Angel Jomenez og Sergio Garcia náðu forystunni fyrir Spán á heimsbikarmótinu í Sevilla á Spáni í gær. Þeir léku á 61 höggi eða á ellefu höggum undir pari. England, með þá Paul Casey og Luke Donald, eru í öðru sæti, höggi á eftir, en þeir voru með fimm högga forystu fyrir þriðja hringinn í gær.

Sport
Fréttamynd

Tvö Íslandsmet í sundinu

Tvö Íslandsmet í sundi litu dagsins ljós í gær á bikarmóti Sundsambandsins. Anja Ríkey Jakobsdóttir úr Ægi bætti eigið met í 100 metra baksundi og synti á 1:02:94. Þá setti kvennasveit Ægis Íslandsmet í 4x100 metra fjórsundi og synti á 4:23:86 en gamla metið átti sveit SH.

Sport
Fréttamynd

Fimleikafólkið með silfur heim

Íslenska kvennalandsliðið í fimleikum náði mjög góðum árangri á Norður-Evrópumótinu í fimleikum sem fram fór í Nakskov í Danmörku um helgina.

Sport
Fréttamynd

Í hóp þeirra bestu á ný

"Ég er mjög stoltur af strákunum eftir þetta mót enda hafa þeir allir sem einn lagt sig virkilega fram og uppskera eftir því," segir Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, eftir sigur liðsins á Slóveníu á Heimsbikarmótinu sem lauk í gær. Ísland lenti þar í fimmta sæti en átta bestu handboltalið heims tóku þátt.

Sport
Fréttamynd

Golf: England heimsbikarmeistarar

Englendingarnir Paul Casey og Luke Donald sigruðu í dag á heimsbikarmótinu í golfi sem fram fór í Seville á spáni. Félagarnir, sem fengu níu fugla í dag, spiluðu í dag á átta undir pari, eða á 64 höggum og samtals á 31 höggi undir pari.  Casey, sem er 27 ára, spilaði sérstaklega vel og setti niður nokkur löng pútt.

Sport
Fréttamynd

Ísland vann Króatíu

Íslendingar unnu Króta í dag á heimsbikarmótinu í handknattleik sem fram fer í Svíþjóð. Lokatölur urðu 31-30 eftir að Króatar höfðu leitt í hálfleik, 18-16. Róbert Gunnarsson var enn og aftur atkvæðamestur í íslenska liðinu, skoraði 6 mörk en Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk. Ísland mætir Slóveníu í leik um 5. sæti á morgun.

Sport
Fréttamynd

England með 4 högga forskot

Paul Casey og Luke Donald eru með fjöggurra högga forskot fyrir England á heimsbikarmótinu í liðakeppni í golfi en leikið er í Sevilla á Spáni. Þeir eru á 20 höggum undir pari eftir þrjár holur á þriðja deginum. Bandaríkin eru í öðru sæti á 16 höggum undir pari eftir sex holur í dag. Scott Verplank og Bob Tway leika fyrir Bandaríkjamenn.

Sport
Fréttamynd

Woods eykur forystuna

Kylfingurinn Tiger Woods, sem er í 2. sæti heimslistans, er að rúlla upp andstæðingum sínum á Dunlop Phoenix-mótinu sem fer fram í Miyazaki, Japan. Woods lék frábærlega í gær og hefur 10 högga forystu fyrir lokahringinn, sem leikinn verður í dag. Woods lék 65 höggum í gær, 5 höggum undir pari, og er á 13 höggum undir í heildina.

Sport
Fréttamynd

Stúdínur í úrslit

ÍS vann í dag Hauka í undanúrslitum Hópbílabikars kvenna í körfuknattleik. Lokatölur urðu 77-70 eftir að Haukar höfðu leitt í hálfleik, 37-26. Þá fóru stúdínur í gang og unnu 3. leikhluta með 9 stigum og þann 4. með 7 stigum. ÍS mætir að öllum líkindum Keflavík í úrslitum en þær síðarnefndu eru að rúlla Grindvíkingum upp í síðari leik dagsins.

Sport
Fréttamynd

Þór gerði góða ferð í Fjörðinn

FH tapaði á heimavelli fyrir Þór 29-26 í Norðurriðli Íslandsmóts karla í handknattleik í gærkvöldi. Vonir FH-inga um að komast í úrvalsdeildina eru nánast úr sögunni eftir tapið. Fram burstaði Aftureldingu 40-28 í sama riðli. Fram og Þór eru með níu stig í 4. og 5. sæti, FH er með fimm stig og Afturelding tvö.

Sport
Fréttamynd

Snæfell Hópbílabikarmeistari

Snæfellingar unnu í dag sinn fyrsta stóra titil í körfubolta þegar þeir lögðu Njarðvíkinga í úrslitaleik Hópbílabikars karla, 84-79. Snæfellingar höfðu forystu stóran hluta leiksins, voru yfir í hálfleik, 48-37, og höfðu einnig 11 stiga forskot eftir þriðja leikhluta.

Sport
Fréttamynd

Snæfell yfir í hálfleik

Snæfell hefur yfir í hálfleik gegn Njarðvík í úrslitaleik Hópbílabikars karla í körfuknattleik. Staðan er 48-37 en Snæfellingar leiddu 27-22 eftir fyrsta leikhluta.

Sport
Fréttamynd

Fjórir efstu í undanúrslit

Í fyrsta skipti síðan 1990 komust 4 efstu menn heimslistans í tennis í undanúrslit á stórmóti. Þetta gerðist í nótt þegar þeir Andy Roddick (2), Marat Safin (4), Lleyton Hewitt (3) og Roger Federer (1) komust allir í undaúrslit á ATP Masters-mótinu í Houston, Bandaríkjunum.

Sport
Fréttamynd

Keppa við Króata

Íslendingar mæta Heims- og Ólympíumeisturum Króata í keppninni um 5.-8. sætið á heimsbikarmótinu í handknattleik í Scandinavium-höllinni klukkan tvö í dag. Svíar mæta Þjóðverjum í undanúrslitum klukkan fjögur og Danir og Frakkar eigast við klukkan 18. Undanúrslitaleikirnir verða í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Slógust við áhorfendur

Ron Artest, Stephen Jackson og Jermaine O´Neal, leikmenn Indiana Pacers í NBA-deildinni í körfuknattleik, slógust við stuðningsmenn Detroit Pistons á lokamínútu leiks Indiana og Detroit í gærkvöld en leikurinn fór fram í Auburn Hills, heimavelli meistara Detroit Pistons.

Sport
Fréttamynd

Yfirburðasigur Keflvíkinga

Keflavík vann  yfirburðarsigur á grönnum sínum í Grindavík í undanúrslitum Hópbílabikars kvenna í dag, 83-41, eftir að hafa verið 38-14 yfir í hálfleik. Ljóst var strax í byrjun hvert stefndi og höfðu stúlkurnar frá Keflavík yfirburði á öllum sviðum og voru 25-4 yfir eftir fyrsta leikhluta. Keflavík mætir ÍS í úrslitum á morgun.

Sport
Fréttamynd

Sörenstram leiðir í Flórída

Hins sænska Annika Sörenstram lék illa á öðrum hring ATD meistaramótsins í Palm Beach, Flórída, í gær en hefur engu að síður 3 högga forystu á þær Karrie Webb, Cristie Kerr og Laura Diaz.

Sport
Fréttamynd

Ægir með forystu

Sundfélagið Ægir er með forystu eftir tvær langsundsgreinar á bikarmóti Sundsambands Íslands sem hófst í gærkvöldi í Sundhöll Reykjavíkur. Ægir er með 2530 stig, Sundfélag Akraness er með 2268 stig, Sundfélag Hafnarfjarðar er í þriðja sæti með 2236 en Örn Arnarson syndir á nýjan leik fyrir SH.

Sport
Fréttamynd

Roddick vann Safin

Andy Roddick bar sigurorð af Marat Safin í annarri umferð ATP Masters Cup tennismótsins í fyrrakvöld.

Sport
Fréttamynd

Áhugi frá Skotlandi og Skandinavíu

Það er fátt sem bendir til þess að Þórarinn Kristjánsson leiki með Keflavík á næstu leiktíð. Hann hafnaði samningstilboði frá þeim í gær og er á förum til liða í Skotlandi og Skandinavíu á næstunni.

Sport
Fréttamynd

Tiger með þriggja högga forystu

Tiger Woods er enn með þriggja högga forystu á Dunlop Phoenix mótinu í Miyazaki í Japan. Tiger lék á 67 höggum, þremur undir pari, og er samtals á átta höggum undir pari eftir 36 holur. Kaname Yokoo frá Japan er í öðru sæti, þremur höggum á eftir Tiger. Daninn Thomas Björn er í 32. sæti en hann vann mótið í fyrra.

Sport
Fréttamynd

Iordanescu segir af sér

Anghel Iordanescu hefur sagt af sér sem langsliðsþjálfari Rúmeníu í knattspyrnu. Iordanescu, sem stýrði Rúmenum í átta liða úrslit á HM 1994, tilkynnti afsögn sína í kjölfar 1-1 jafnteflis við Armeníu á miðvikudaginn. Iordanescu, sem tók við Rúmenum í annað skipti árið 2002 en náði ekki að koma þeim á EM 2004, hefur verið mikið gagnrýndur fyrir að eyða of miklum tíma í pólitík, en hann er vel virkur á því sviði. Hann skrifaði undir nýjan samning í september, en eftir að lélegan árangur undanfarið hefur rúmenska knattspyrnusambandið þrýst á hann að segja af sér.

Sport
Fréttamynd

Stórleikir í Hópbílabikarnum

Undanúrslitin í Hópbílarbikar kvenna í körfuknattleik fer fram í Laugardalshöll í dag. Fyrst mætast ÍS og Haukar en í seinni leiknum munu Grindvíkingar keppa við Keflavík.

Sport
Fréttamynd

76ers með sex stig í 1. leikhluta

San Antonio Spurs lagði Philadelphia 76ers 88-80 í NBA-deildinni í körfubolta í gærkvöld. Tim Duncan skoraði 34 stig fyrir San Antonio og Allen Iverson skoraði 24 stig fyrir Philadelphia. 76ers skoraði aðeins sex stig í fyrsta leikhluta sem er met.

Sport
Fréttamynd

Úrslit úr handboltanum

Fram vann stórsigur á Aftureldingu í Norðurriðli 1. deildar karla í handknattleik í kvöld, lokatölur urðu 40-28. Í hinum leik kvöldsins sigraði Þór A. FH 29-26 í Krikanum

Sport
Fréttamynd

3 lönd jöfn á heimsbikarmótinu

England, Austurríki og Írland eru efst og jöfn á heimsbikarmótinu í golfi sem fram fer í Sevilla á Spáni. Tveir kylfingar leika saman frá 23 löndum. Spánn og Japan koma næst á tíu höggum undir pari en annar hringur af fjórum er nýhafinn.

Sport
Fréttamynd

Hálfleikstölur í handboltanum

Í kvöld fara fram fram tveir leikir í norðurriðli 1. deildar karla í handknattleik. Í hálfleik er staðan Fram 15-8 Afturelding og FH 11-13 Þór A.

Sport