Íþróttir

Fréttamynd

Þrír jafnir á Hong Kong mótinu

Þrír kylfingar eru jafnir fyrir síðasta hringinn á Hong Kong mótinu í golfi. Írinn Predraig Harrington, Spánverjinn Miguel Angel Jiminez og Suður-Afríkumaðurinn James Kingston eru allir á tíu höggum undir pari. Aðeins einu höggi á eftir koma fjórir kylfingar: Daninn Thomas Björn, Englendingarnir Nick Faldo og David Howell og Taílendingurinn Thammanoon Srirot.

Sport
Fréttamynd

Kappakstur á Stade de France

Klukkan hálffjögur í dag verður sýnt beint á Sýn frá kappakstri sem fram fer á Stade de France fótboltavellinum í París. Þarna keppa margir af bestu ökumönnum heims, bæði rallíkappar, formúlumenn og einnig keppendur úr öðrum greinum akstursíþrótta. Þetta er bæði einstaklingskeppni og liðakeppni sem núna fer fram í sautjánda sinn.

Sport
Fréttamynd

Bandarískir skíðamenn sigursælir

Bandarískir skíðamenn hrósuðu sigri í heimsbikarnum á skíðum í gærkvöldi. Tvítug stúlka frá Vail í Colorado, Lindsay Kildow, náði bestum tíma í bruni í Lake Louise í Alberta-fylki í Kanada. Carole Montille Frakklandi varð önnur og Hilde Gerg Þýskalandi þriðja.

Sport
Fréttamynd

Goergl sigraði í risasviginu

Austurríkismaðurinn Stephan Goergl sigraði í gærkvöldi í risasvigi heimsbikarkeppninnar á skíðum í Beaver Creek í Colorado í Bandaríkjunum. Þetta var fyrsti sigur þessa 26 ára Austurríkismanns í heimsbikarnum en hann kom jafnframt í veg fyrir að Bandaríkjamaðurinn Bode Miller sigraði á fjórða mótinu í röð. Miller varð annar og Austurríkismaðurinn Mario Scheiber þriðji.

Sport
Fréttamynd

Fimm fara á EM í sundi

Fimm íslenskir sundmenn keppa á Evrópumótinu í sundi í 25 metra laug í Vínarborg um aðra helgi. Fulltrúar Íslands verða Jakob Jóhann Sveinsson og Anja Ríkey Jakobsdóttir Ægi, Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir ÍA, Eva Hannesdóttir KR og Erla Dögg Haraldsdóttir Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar.

Sport
Fréttamynd

Fordómar á íslenskri grundu

"Það er ekki nokkur spurning um að kynþáttafordómar fyrirfinnast í fótboltanum hér á landi og engin þörf á að fara til Englands eða Spánar til að upplifa slíkt," segir Ólafur Jóhannesson, kvikmyndagerðarmaður.

Sport
Fréttamynd

Úrslit leiksins ákveðin?

Knattspyrnusamband Evrópu ætlar að rannsaka hvort óhreint mjöl hafi verið í pokahorninu þegar gríska fótboltaliðið Panionios vann Dinamo Tiblisi frá Georgíu með fimm mörkum gegn tveimur í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu í gærkvöldi. Nokkur veðmálafyrirtæki tóku eftir því að skömmu fyrir leik voru óvenju margir sem veðjuðu á úrslit leiksins.

Sport
Fréttamynd

Ekki meðal þeirra efstu

Björgvin Björgvinsson skíðamaður náði 30. sæti á Evrópubikarmóti sem fram fór í Finnlandi í vikunni. Gekk honum ekki jafn vel og vonir stóðu til

Sport
Fréttamynd

Jiminez hefur forystu

Spánverjinn Miguel Angel Jiminez hefur forystu þegar keppni er hálfnuð á opna Hong Kong mótinu í golfi en þetta mót er annað í Evrópsku mótaröðinni. Jiminez lék í morgun á sex undir pari og er samtals á ellefu höggum undir pari.

Sport
Fréttamynd

Jones á lyfjum í Sidney

Bandaríska frjálsíþróttakonan Marion Jones var á lyfjum þegar hún vann til fimm verðlauna á Ólympíuleikunum í Sidney fyrir fjórum árum. Þetta staðhæfir yfirmaður lyfjafyrirtækisins BALCO, Victor Conde, í blaði sem sjónvarpsstöðin ABC gefur út. Hann segist hafa séð Marion Jones sprauta sig í annan fótinn með hormónalyfjum.

Sport
Fréttamynd

Gunnar skoraði eftir 4 mínútur

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fjórum mínútum eftir að hann kom af varamannabekknum þegar Halmstad gerði 2-2 jafntefli við Odense í Norrænu fótboltadeildinni í gærkvöldi. Íslendingaliðunum gekk ágætlega í leikjum kvöldsins.

Sport
Fréttamynd

Vala á nóg inni ennþá

"Ég tel mig enn eiga nóg inni og vonast til að þessar breytingar verði til þess að ég nái árangri á ný," segir Vala Flosadóttir frjálsíþróttamaður, en hún og unnusti hennar, Magnús Aron Hallgrímsson kringlukastari, eru að flytja búferlum frá Gautaborg í Svíþjóð til Árósa í Danmörku.

Sport
Fréttamynd

Erfiðasta árið fram undan

Næsta keppnistímabil í Formúlu 1 kappakstrinum verður það erfiðasta hingað til fyrir meistaralið Ferrari, að mati eins æðsta tækniráðgjafa liðsins, Nigel Stepney.

Sport
Fréttamynd

Báðir féllu úr keppni

Björgvin Björgvinsson, skíðamanni frá Dalvík, gekk illa á skíðamóti sem fram fór í Levi í Finnlandi í gær en mótið var liður í Evrópumótaröðinni í alpagreinum.

Sport
Fréttamynd

Hafnaboltamyndir á 50 millur

Pakki af hafnaboltamyndum frá árinu 1914, seldist nýlega á uppboði á 800 þúsund dollara eða sem nemur rúmlega 50 milljónum íslenskra króna.

Sport
Fréttamynd

Í víking til Afríku

"Ég hef notað undanfarnar vikur til hvíldar og er bjartsýnn fyrir þetta mót í Afríku," segir Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.

Sport
Fréttamynd

Zeta-Jones kaupir knattspyrnufélag

Kvikmyndastjarnan Catherine Zeta-Jones, sem er fædd í Wales, ætlar að kaupa knattspyrnufélagið Llanelli AFC sem situr í neðsta sæti welsku deildarinnar og þarf á fjármagni að halda. Verðmiðinn er 350 þúsund pund eða 45 milljónir króna.

Sport
Fréttamynd

Smith tekur við Skotum

Walter Smith verður næsti landsliðsþjálfari Skota í knattspyrnu en hann hefur átt í viðræðum við Skoska knattspyrnusambandið undanfarna daga. Ráðning Smith verður staðfest opinberlega eftir stjórnarfund hjá knattspyrnusambandinu á fimmtudaginn. Smith tekur við af Þjóðverjanum Berti Vogts sem var rekinn.

Sport
Fréttamynd

Samningur Helenu runninn út

Knattspyrnusamband Íslands hefur enn ekki gengið frá ráðningu á landsliðsþjálfara A-landsliðs kvenna í kanttspyrnu. Samningur Helenar Ólafsdóttur sem landsliðsþjálfara er runninn út.

Sport
Fréttamynd

Íþróttaviðburðir kvöldsins

Einn leikur er á dagskrá Íslandsmóts karla í handbolta í kvöld en í Norður-riðli mætast KA og Íslandsmeistar Hauka fyrir norðan. Leikurinn hefst kl 19.15 en með sigri geta Haukar náð 4 stiga forskoti á toppi riðilsins en KA getur náð Haukum að stigum með sigri. Tveir leikir er á dagskrá ensku deildarbikarkeppninnar í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Miller vann í Lake Louise

Bode Miller frá Bandaríkjunum bar sigur úr bítum á risasvigmóti sem fram fór í Lake Louise í Kanada í gærkvöld en hann vann einnig brunmót á sama stað á laugardaginn. Austurríkismaðurinn Hermann Maier varð annar í risasvigsmótinu og Michael Walchhofer varð þriðji.

Sport
Fréttamynd

Hasar fyrir norðan

Talsverður hiti var í leikmönnum íshokkíliða Skautafélags Akureyrar og Bjarnarins þegar liðin mættust á Íslandsmótinu í íshokkí í gær og varð dómari leiksins að hafa sig frammi við að skilja að einstaka leikmenn allan leikinn. Norðanmenn höfðu engu að síður góðan sigur 8-4.

Sport
Fréttamynd

Kostelic sigraði í sviginu

Janica Kostelic sigraði í svigi heimsbikarkeppninnar á skíðum í Aspen í Colorado í gærkvöldi.  Þetta var sautjándi sigur króatísku stúlkunnar. Kostelic er 22 ára og vann fyrsta heimsbikarsigur sinn fyrir 4 árum. Í Lauke Louise í Albertafylki í Kanada var keppt í bruni karla í heimsbikarkeppninni þar sem Bandaríkjamaðurinn Bode Miller sigraði.

Sport
Fréttamynd

Bæði lið KR úr leik í bikarnum

Fjöldinn allur af leikjum fer fram í 32 liða úrslitum bikarkeppni körfuknattsleiksambandsins nú um helgina og í gær fóru fram 6 leikir og lýkur 32 liða úrslitunum á mánudagskvöld með leik ÍS og Njarðvíkur. Helstu tíðindin eftir úrslit laugardagsins eru þau að bæði lið KR eru úr leik. Úrvalsdeildarlið KR tapaði á heimavelli fyrir Hamri/Selfossi 83-86.

Sport
Fréttamynd

NBA: Lebron James sló met Kobe

Átta leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Orlando vann Philadelphia, 105-99.  Þetta var fjórði sigur Orlando í síðustu fimm leikjum liðsins. Cleveland sigraði Chicago 96-74.  Lebron James skoraði 26 stig og varð þar með yngsti leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar til þess að skora 2000 stig í deildinni.

Sport
Fréttamynd

Golf: Dodd sigraði á fyrsta mótinu

Walesverjinn Steven Dodd sigraði á fyrsta mótinu á nýrri keppnistíð í Evrópumótaröðinni í golfi en keppt var í Kína.  Dodd hafði þriggja högga forystu fyrir síðasta hring og hélt því forskoti til loka.  Dodd lék á 12 höggum undir pari en annar varð Daninn Thomas Björn.

Sport
Fréttamynd

Box: Barrera lagði Morales

Marco Antonio Barrera sigraði Erik Morales í hörkubardaga um heimsmeistaratitil WBO sambandsins í fjaðurvigt í nótt en bardaginn var í beinni útsendingu á Sýn.  Mexikóinn Barrera vann á stigum en bardaginn fór í 12 lotur. Fleiri boxbardagar fóru einnig fram í nótt.

Sport
Fréttamynd

Fyrsti sigur Íslands í Póllandi

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik sigraði Tyrki með 33 mörkum gegn 32 í undankeppni heimsmeistaramótsins en leikið var í Póllandi.  Íslendingar höfðu þriggja marka forystu í leikhléi, 18-15.  Þetta var fyrsti sigur liðsins í keppninni.  Hrafnhildur Skúladóttir var markahæst, skoraði 8 mörk en Ásdís Sigurðardóttir kom næst með 7.  Íslendingar mæta Pólverjum í síðasta leiknum í dag.

Sport
Fréttamynd

Lætur ekki deigan síga

"Mér líður mun betur núna og er farin að anda léttar en ég gerði þegar þessi ósköp dundu yfir," segir Ragnheiður Ragnarsdóttir, sunddrottning úr Sundfélagi Hafnarfjarðar. Ragnheiður er á batavegi eftir slæma byltu á hálkubletti í vikunni sem varð til þess að hún þríbrotnaði á ökkla. Hún verður klár í slaginn á ný eftir sex vikur.

Sport
Fréttamynd

Það var allt vitlaust

Það var líf og fjör í leik Þórs og Fram í Norðurriðli Íslandsmótsins á laugardag. Upp úr sauð í lokin þegar Framarinn Ingólfur Axelsson braut illa á Þórsaranum Gorani Gusic. Ingólfur uppskar rautt spjald fyrir vikið og á leið sinni til búningsherbergja stjakaði Ingólfur við leikmönnum 3. flokks Þórs sem ögruðu honum.

Sport