Íþróttir
Jón Arnar hætti keppni Jón Arnar Magnússon tugþrautarkappi hætti keppni á árlegu móti Erki Nool í sjöþraut í Tallinn í Eistlandi um helgina. Sport 13.10.2005 15:32
Jón Arnar hættir keppni í Tallinn Jón Arnar Magnússon fjölþrautarkappi hefur hætt keppni á boðsmóti Erkis Nools í sjöþraut í Tallinn í Eistlandi vegna meiðsla. Jón Arnar var þrettándi eftir fyrri keppnisdag, en hann hljóp 60 metra í gær á 7,32 sekúndum, stökk 6,87 metra í langstökki, varpaði kúlu 15,32 metra og stökk 1,92 metra í hástökki. Sport 13.10.2005 15:32
Mickelson og Na efstir í Arizona Bandaríkjamaðurinn Phil Mickelson og Suður-Kóreumaðurinn Kevin Na hafa þriggja högga forystu eftir tvo hringi á Opna Phoenix-mótinu í golfi í Arizona en þeir eru á níu höggum undir pari. Phil Mickelson jafnaði vallarmetið í gær þegar hann lék hringinn á 11 höggum undir pari. Vijay Singh, stigahæsti kylfingur heims, er í 48.-56. sæti á einu höggi yfir pari. Sport 13.10.2005 15:31
Nær Els þeim fjórða í röð? Kylfingurinn Ernie Els frá Suður-Afríku er þremur höggum á eftir heimamanninum Nick O´Hearn fyrir lokadag Heinken Classic-mótsins sem fram fer í Melbourne, Ástralíu. Els lék á fimm höggum undir pari á þriðja hringnum í nótt en hann hefur unnið þetta mót þrjú á í röð og gæti því skráð nafn sitt í sögubækurnar með góðri spilamennsku á morgun. Sport 13.10.2005 15:31
Trulli viðurkennir vandræði Toyota Jarmo Trulli, ökumaður Toyota-liðsins í Formúlu 1 kappakstrinum, viðurkenndi í gær að liðið ætti í vandræðum með nýja bílinn sem Toyota ætlar að notast við á komandi tímabili. Trulli Sport 13.10.2005 15:31
Stærsti íþróttaviðburður ársins Í kvöld fer fram úrslitaleikurinn í amerísku NFL-deildinni þar sem keppt verður um ofurskálina svokölluðu, eða Super Bowl. Um er að ræða stærsta íþróttaviðburð ársins og fær úrslitaleikurinn í NFL öllu jöfnu gríðarlegt áhorf út um allan heim. Sport 13.10.2005 15:31
Miller tók gullið Bandaríski skíðakappinn Bode Miller vann í dag gull á heimsmeistaramótinu í bruni sem fór fram í Bormio á Ítalíu. Sport 13.10.2005 15:31
Ekki eðlileg vinnubrögð "Við náum samkomulagi við Víking um að fá að ræða við leikmanninn og að því loknu finnst mér eðlilegt að við fáum okkar tíma til að ræða við hann. Ég vissi af áhuga Keflavíkur og með þær upplýsingar til hliðsjónar fóru af stað samningaviðræður við leikmanninn. Síðan veit ég ekki fyrr en hann er allt í einu búinn að ná munnlegu samkomulagi við Val. Ég bara skil þetta ekki," segir Sigurður Helgason, framkvæmdastjóri KR-Sports, en hann er allt annað en sáttur við framkomu varnarmannsins Grétars Sigfinns Sigurðssonar í garð síns gamla félags, KR. Grétar skrifaði í gær undir lánssamning við Val sem gildir út tímabilið og segir Sigurður að með því hafi Grétar farið á bak við sitt gamla félag. "Mér finnst hann hafa komið mjög illa fram við okkur," segir Sigurður. Hann líkir vinnubrögðunum í þessu máli við uppboð þar sem hæstbjóðandi hreppi gullið. Sport 13.10.2005 15:31
Davenport og Sharapova í úrslit Tenniskonan Lindsay Davenport frá Bandaríkjunum komst í nótt í úrslit á Opna Pan Pacific-mótinu sem fram fer í Tókyo. Davenport, sem er efst á heimslistanum, vann hina rússnesku Svetlönu Kuznetzovu 6-1 og 7-6 í undanúrslitum en Davenport hefur titil að verja á mótinu. Davenport mætir Wimbledon-meistaranum Mariu Sharapovu í úrslitum. Sport 13.10.2005 15:31
Dragila ósigrandi á Millrose Stacy Dragila vann í nótt stangastökkskeppni Millrose-frjálsíþróttamótsins, sem fram fór í Madison Square Garden, New York, í sjöunda skiptið í röð. Dragila, sem er tvöfaldur heimsmeistari í greininni og Ólympíumeistari árið 2000, var þó nokkuð frá sínu besta en henni dugði 4,48 m til sigurs. Best á Dragila innanhúss 4,81. Sport 13.10.2005 15:31
Sharapova mætir Davenport Úrslitin á Pan Pacific Open tennismótinu í Tókíó ráðast í dag þegar Maria Sharapova og Lindsay Davenport eigast við í úrslitaleik. Sport 13.10.2005 15:31
Jón Arnar keppir í Tallinn Jón Arnar Magnússon, tugþrautarmaður úr FH, ætlar að taka þátt í hinu árlega boðsmóti Erkis Nools sem fram fer í Tallinn í Eistlandi um helgina. Þetta er í áttunda skipti sem boðsmót Erkis Nools er haldið og er Jón Arnar eini keppandinn sem verið hefur með frá upphafi. Sport 13.10.2005 15:31
Montgomerie og Lonard efstir Skotinn Colin Montgomerie og Ástralinn Peter Lonard hafa eins höggs forystu eftir tvo hringi á Opna meistaramótinu í golfi í Melbourne í Ástralíu. Montgomerie og Lonard eru samtals á 9 höggum undir pari. Suður-Afríkumaðurinn Trevor Immelman og Ástralíumaðurinn Jarrod Lyle koma næstir á 8 höggum undir pari. Sport 13.10.2005 15:31
NFL utan Bandaríkjanna? Forráðamenn bandaríska fótboltans, NFL-deildarinnar, eru að íhuga að færa leiki í deildarkeppninni til staða utan Bandaríkjanna á komandi árum. Frá þessu skýrði Paul Tagliabue, framkvæmdastjóri deildarinnar, á blaðamannafundi í dag. Fundurinn var haldinn í tilefni af úrslitaleik NFL-tímabilsins, Super Bowl, sem fram fer á sunnudaginn. Sport 13.10.2005 15:31
Kostelic varði gullið Króatíska skíðakonan Janica Kostelic varði í dag titil sinn á heimsmeistaramótinu í alpatvíkeppni sem fram fór í Santa Caterina á Ítalíu. Kostelic náði tímanum 2:53.70 eftir þrautir dagsins, sem samanstóðu af bruni um morguninn og tveimur svigferðum síðar um daginn. Hin sænska Anja Paerson varð önnur á 2:55.15. Sport 13.10.2005 15:31
Engir kynþáttafordómar í Madrid Forráðamenn Ólympíunefndar Madrídar, sem reyna að fá Ólympíuleikana árið 2012 til borgarinnar, segjast ekki hafa áhyggjur af því að það muni bera á kynþáttafordómum á leikunum, en slíkt hefur hefur ítrekað skotið upp kollinum á Santiago Bernabeu, heimavelli Real Madrid, á undanförnum mánuðum. Sport 13.10.2005 15:31
Sharapova í undanúrslit í Tókíó Tennisdrottningin Maria Sharapova bar sigurorð af hinni rússnesku Elenu Likhovtseva á Pan Pacific Open í Tókýó í fyrradag. Sport 13.10.2005 15:31
Smith hættur í NFL Emmitt Smith, leikmaður Arizona Cardinals í NFL-deildinni, ákvað að leggja skóna á hilluna eftir 15 ára feril. Sport 13.10.2005 15:31
O´Sullivan tapaði á Open Malta <font face="Helv"> Ronnie O´Sullivan, sem situr í efsta sæti heimslistans í snóker, beið afhroð gegn Graeme Dott á Opna Möltumótinu. </font> Sport 13.10.2005 15:31
Nýju tilboði í NHL hafnað Samtök leikmanna í NHL-deildinni í íshokkíi, höfnuðu tilboði frá samtökum liðseiganda í NHL og enn minnka líkurnar á að leikið verði í deildinni í vetur. Sport 13.10.2005 15:31
Owens ætlar að spila fótbrotinn Terrell Owens hjá Philadelphia Eagles í NFL verður að öllum líkindum orðinn heill þegar liðið mætir New England Patriots í Ofurskálinni á sunnudaginn. Sport 13.10.2005 18:45
Emmitt Smith að hætta í NFL? Emmitt Smith, leikmaður Arizona Cardinals í NFL-deildinni, er sagður ætla að hætta í bandaríska fótboltanum. Sport 13.10.2005 18:45
Kikkbox ekki á Ólympíuleikunum Íslendingar keppa ekki í kikkboxi á Ólympíuleikunum árið 2008 og ekki verður keppt í greininni yfirhöfuð að sögn framkvæmdastjóra ÍSÍ. Maður sem skipuleggur námskeið í kikkboxi fyrir fimm ára börn hélt þessu fram í fréttum Stöðvar 2 í gær til að réttlæta að litlum börnum væri kennd þessi íþrótt. Sport 13.10.2005 18:45
Heidfeld til BMW Williams Tilkynnt var um helgina að Þjóðverjinn Nick Heidfeld væri nýr liðsmaður BMW Williams í Formúlu 1 kappakstrinum. Sport 13.10.2005 15:29
Fyrsti sigur Leonards í tvö ár Bandaríkjamaðurinn Justin Leonard vann fyrsta titil sinn í tæp tvö ár þegar hann bar sigur úr býtum á Bob Hope golfmótinu á bandarísku mótaröðinni í gærkvöldi. Leonard lék á 67 höggum í gær og var samtals á 28 höggum undir pari. Sport 13.10.2005 15:29
Landsliðið í snóker valið A-landslið Íslands í snóker hefur verið valið fyrir Evrópumeistaramótið sem fer fram á Möltu í mars. Sport 13.10.2005 15:29
Setti Norðurlandamet öldunga Íslandsmótið í bekkpressu var haldið á Hlíðarenda í gær. María Guðsteinsdóttir vann sigur í kvennaflokki og Ingvar Jóel Ingvarsson varð stigahæstur í karlaflokki og setti nýtt Norðurlandamet öldunga þegar hann lyfti 280 kílóum. Sport 13.10.2005 15:29
Teresa sigraði í 50 m skriðsundi Besta sundkona Svía og ein besta sundkona heims, Teresa Alashamar, sigraði í 50 metra skriðusundi á alþjóðamóti Ægis, Reykjavík International, í nýju sundlauginni í Laugardal síðdegis gær. Hún kom í mark á 25,12. sekúndum en keppni lýkur í dag. Sport 13.10.2005 15:29
Rússi sigraði á opna ástralska Hinn 25 ára gamli Rússi, Marat Safin, sigraði í einliðaleik karla á opna ástralska mótinu í tennis sem fram fór í Melbourne Park nú um helgina. Keppni lauk nú rétt undir hádegið þegar Safin sigraði heimamanninn Lleyton Hewitt, 1-6, 6-3, 6-4, 6-4. Bandaríkjakonan Venus Williams tryggði sér sigur á mótinu í einliðaleik kvenna á laugardag þegar hún vann Lindsay Davenport. Sport 13.10.2005 15:29
Sunna sigraði í Malmö Sunna Gestsdóttir frjálsíþróttakona sigraði í 60 metra hlaupi á innanhússmóti í Malmö í Svíþjóð í gær þegar hún kom í mark á 7,70 sekúndum. Hún keppir í langstökki í dag. Sport 13.10.2005 15:29