Íþróttir

Fréttamynd

Lokeren í undanúrslit

Íslendingaliðið Lokeren tryggði sér sæti í undanúrslitum belgísku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær þegar liðið lagði Gent, 1-0, á útivelli í síðari leik liðanna í fjórðungsúrslitum og samanlagt 3-1 í báðum leikjum. Rúnar Kristinsson, sem ekki gaf kost á sér í landsleikina við Króatíu og Ítalíu, skoraði sigurmark Lokeren.

Sport
Fréttamynd

HK Íslandsmeistari í kvöld?

HK getur í kvöld tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla en rétt í þessu hófst leikur HK og Stjörnunnar í Digranesi. HK vann fyrsta leikinn 3-2 og takist þeim að sigra aftur í kvöld verða þeir Íslandsmeistarar.

Sport
Fréttamynd

Reglum breytt í Formúlunni

Lið BAR Honda í Formúlu 1 gæti átt yfir höfði sér refsingu fyrir að nýta sér glufu í nýjum reglum í keppninni í Ástralíu fyrir 10 dögum.

Sport
Fréttamynd

Sigurbjörn Árni ráðinn til FRÍ

Stjorn Frjálsíþróttasambands Íslands hefur náð samkomulagi við Sigurbjörn Árna Arngrímsson um að hann hafi yfirumsjón með landsliðsmálum hjá sambandinu en hann mun aukinheldur gegna formennsku í Íþrótta- og Afreksnefnd FRÍ.

Sport
Fréttamynd

HK Íslandsmeistari í blaki

HK varð í kvöld Íslandsmeistari í blaki karla er liðið sigraði Stjörnuna 3-1 í öðrum úrslitaleik liðanna, en leikið var í Digranesi. HK vann einnig fyrri leikinn, þá 3-2, og sigruðu því einvígið 2-0.

Sport
Fréttamynd

HK vann fyrstu viðureignina

HK sigraði Stjörnuna í fyrsta leiknum í úrslitum um Íslandsmeistaratitil karla í blaki í gærkvöldi. Stjarna vann tvær fyrstu hrinurnar en HK tryggði sér sigur með því að vinna þrjár hrinur í röð. Liðin eigast við á miðvikudaginn og með sigri verður HK Íslandsmeistari.

Sport
Fréttamynd

Lennox í lagaflækju

Hnefaleikarinn Lennox Lewis, fyrrverandi heimsmeistari í þungavigt var í hæstarétti í morgun þar sem hann er að fylgja eftir fjárkröfu á hendur fyrrverandi umboðsmanni sínum. Umboðsmaðurinn fyrrverandi ætlar að láta Lewis hafa fyrir því að innheimta bæturnar.

Sport
Fréttamynd

Davenport vann Shaughnessy

Lindsay Davenport komst í fjórðu umferð Pacific Life Open mótsins þegar hún lagði Meghann Shaughnessy í gær.

Sport
Fréttamynd

Klitschko frestar bardaganum

Vitali Klischko meiddist á læri á æfingu og mun því titilvörn hans gegn Hasim Rahman, sem upphaflega átti að fara fram 30. apríl, verða seinkað um óákveðinn tíma. Talsmaður Klischko, Shelly Finkel, greindi frá þessu í dag og sagði að heimsmeistarinn hefði meitt sig við æfingar, en hann er þessa dagana í ströngum æfingum í Kænugarði fyrir bardagann.

Sport
Fréttamynd

Malasía verður prófraunin

Giancarlo Fisichella, ökumaður Renault liðsins í Formúlu 1, spáir því að kappaksturinn í Malasíu um næstu helgi verði mikil prófraun á liðin og að þar muni koma betur í ljós hvernig þau standa að vígi í keppnum ársins.

Sport
Fréttamynd

Fyrsti sigur Harringtons í PGA

Írinn Padraig Harrington sigraði á Honda Classic mótinu í golfi á Flórída í gær. Harrington hafði betur í umspili við Vijay Singh og Joe Ogilvie en þeír léku allir holurnar 72 á 274 höggum. Þetta var fyrsti sigur Harringtons í PGA-mótaröðinni en þrisvar hefur hann orðið í öðru sæti.

Sport
Fréttamynd

Þróttur nær Íslandsmeistaratitli

Þróttur Reykjavík sigraði KA 3-0 í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitil kvenna í blaki í gær, en leikið var á Akureyri. Liðin mætast aftur í Reykjavík á þriðjudagskvöld og með sigri tryggir Þróttur sér Íslandsmeistaratitilinn. KA verður að vinna til þess að knýja fram oddaleik á fimmtudagskvöld á Akureyri.

Sport
Fréttamynd

Nissan ekki með í Dakar 2006

Lið Nissan hefur dregið sig úr keppni fyrir París-Dakar rallið á næsta ári.  Þetta þýðir það að skotinn Colin McRae þarf að finna sér nýtt keppnislið, en hann hefur verið aðalökumaður liðsins síðustu ár.

Sport
Fréttamynd

Kínverjar sigursælir á All England

Kínverjar unnu 4 af 5 titlum á All England badmintonmótinu sem lauk í Birmingham í gær. Af þeim 16 sem komust í úrslit áttu Kínverjar 10 badmintonmenn. Það var aðeins í tvenndarleik sem enska parið Nathan Robertson og Gail Emms tryggðu sér sigur. Kínverjar unnu í einliðaleik og tvíliðaleik karla og kvenna.

Sport
Fréttamynd

Solberg bestur í Mexíkó

Norðmaðurinn Petter Solberg sigraði í Mexíkórallinu um helgina. Hann varð 34,5 sekúndum á undan Finnanum Markus Grönholm sem varð í öðru sæti. Marko Martin frá Eistlandi varð þriðji. Solberg náði forystu í keppni um heimsmeistaratitil ökumanna er með 20 stig, er stigi á undan Marko Martin.

Sport
Fréttamynd

10 ára heimsmet loks slegið

10 ára gamalt heimsmet bandaríska hlauparans Michael Johnson í 400 metra hlaupi innanhúss var slegið í gær af 19 ára gömlum srták úr Florida háskóla á bandaríska háskólameistaramótinu í Fayetteville í Arkansas. Kerron Clement sem er fæddur í Trinidad hljóp 400 metrana á 44.57 sekúndum.

Sport
Fréttamynd

Logi horfði á Lokeren

Logi Ólafsson landsliðsþjálfari fór til Belgíu í gær til að sjá Íslendingaliðið Lokeren spila gegn Beeschot á heimavelli í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Lokeren tapaði 1-0. Arnar Þór Viðarsson og Rúnar Kristinsson léku allan leikinn í liði Lokeren og Arnar Grétarsson síðari hálfleikinn.

Sport
Fréttamynd

Williams sér fram á betri árangur

Lið Williams í Formúlu 1 kappakstrinum hefur fullyrt að bíll þess verði betri í næstu keppni sem fram fer í Kúala Lúmpúr í Malasíu 20. mars næstkomandi.

Sport
Fréttamynd

Sölvi skoraði fyrir Djurgården

Sænska knattspyrnuliðið Djurgården gerði 2-2 jafntefli við Åtvidaberg í æfingæleik í gær. Sölvi Ottesen og Kári Árnason, fyrrverandi Víkingar, voru báðir í liði Djurgården og skoraði Sölvi annað mark liðsins.

Sport
Fréttamynd

Solberg jók forskot sitt

Norski rallökuþórinn Petter Solberg jók forskot sitt í Mexíkórallinu í gær þegar tvær sérleiðir eru eftir af 14. Hann hefur 29,6 sekúndna forskot á Finnann Marcus Grönholm. Eistlendingurinn Markko Martin er þriðji.

Sport
Fréttamynd

Heimsmet í 50 metra flugsundi

Anna Karin Kammerling frá Svíþjóð sló eigið heimsmet í 50 metra flugsundi á sænska meistaramótinu í sundi í gær. Kammerling sló metið sitt um þrjá hundraðs hluta úr sekúndu, synti á 25,33 sekúndum.

Sport
Fréttamynd

Breiðablik áfram á sigurbraut

Breiðablik hélt áfram sigurgöngu sinni í deildarbikarnum í gær þegar liðið sigraði ÍA með tveimur mörkum gegn einu. Valur skellti Víkingi 5-2 þar sem Matthías Guðmundsson skoraði þrennu fyrir Val.

Sport
Fréttamynd

Stefnir á Peking 2008

Taekwondo-maðurinn Björn Þorleifsson úr Fimleikafélaginu Björk hefur átt góðu gengi að fagna síðan hann byrjaði að æfa taekwondo fyrir 15 árum síðan. Björn er sigursælasti taekwondo-maður okkar Íslendinga. Hann tók nýlega þátt í US Open í Bandaríkjunum og bar sigur úr býtum.

Sport
Fréttamynd

Gerpla vann 11 bikara

Gerpla úr Kópavogi vann tvöfaldan sigur á Bikarmeistaramóti FSÍ í áhaldafimleikum sem fór fram um síðustu helgi og það voru ekki bara meistaraflokkar félagsins sem stóðu sig vel því Gerplan eignast einnig bikarmeistara í níu af ellefu fimleikastigum yngra fimleikafólksins.

Sport
Fréttamynd

Miller tryggði sér heimsbikarinn

Bandaríkjamaðurinn Bode Miller tryggði sér heimsbikarinn í risasvigi þegar hann bar sigur úr býtum á heimsbikarmóti í Sviss í morgun ásamt landa sínum Daron Rahlves en þeir voru með sama tíma.

Sport
Fréttamynd

Grobbelar rekinn öðru sinni

Bruce Grobbelar, fyrrverandi markvörður Liverpool, var rekinn öðru sinni á þessari leiktíð sem knattspyrnustjóri í Suður-Afríku. Umtala Bush Bucks gáfu Grobbelaar reisupassann eftir dapurt gengi en liðið er neðst í suðurafrísku úrvalsdeildinni.

Sport
Fréttamynd

Þór kærir Keflavík

Þór á Akureyri hefur kært knattspyrnudeild Keflavíkur fyrir að setja sig í samband við samningsbunda leikmenn Þórs. Skrifstofa KSÍ staðfesti í morgun að kæra hefur borist frá Þór og verður hún tekin fyrir hjá samninga- og félagaskiptanefnd KSÍ í næstu viku.

Sport
Fréttamynd

Stefán varði titilinn

Stefán Gíslason varði Evrópumeistaratitil sinn í fimmtaþraut í flokki 55 til 59 ára í gær á Evrópumóti öldunga í frjálsum íþróttum innanhúss í Eskilstuna í Svíþjóð. Hann er jafnframt heimsmeistari í fimmtaþrautinni. Stefán fór í sex vikna æfingabúðir til Kaliforníu til þess að undirbúa sig fyrir Evrópumótið.

Sport