Fjárhættuspil

Fréttamynd

Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks

Formaður SÁÁ hefur áhyggjur af því að enn fleiri muni ánetjast veðmálum vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta og þróa með sér spilafíkn. Veðmálastarfsemi hafi verið venjubundin af stanslausri auglýsingaherferð og umræðu þrátt fyrir skaðlegar afleiðingar.

Innlent
Fréttamynd

„Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“

Sálfræðingur og tónlistarmaður segir að áhrifavaldar sem auglýsi veðmálasíður verði að líta í eigin barm. Ungir menn eigi auðvelt með að sogast inn í spilafíkn, sem geti síðan leitt til sjálfsvígshugsana. Það orki einnig tvímælis að tónlistarmenn sem syngi um það hve erfitt er að alast upp í kringum fíkn auglýsi sjálfir veðmálasíður.

Innlent
Fréttamynd

Hluti af þriðja vinningi lenti á Ís­landi

Þátttakandi á Íslandi deildi þriðja vinningi í EuroJackpot kvöldsins með fjórtán öðrum og fékk tæpar tíu milljónir króna í sinn hlut. Enginn var með fyrsta vinning í EuroJackpot í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Gaf barnabarninu vinninginn

Eldhress amma vann eina milljón króna í Happdrætti Háskóla Íslands. Hún reyndist hafa keypt miðann fyrir barnabarnið sitt sem fær allan peninginn.

Innlent
Fréttamynd

Milljónum í reiðu­fé stolið

Grunur er um að allt að 3,3 milljónum króna hafi verið stolið í innbroti í Spin 108 sportbar á Grensásvegi aðfaranótt sunnudagsins 3. maí.

Innlent
Fréttamynd

Hand­taka her­mann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn

Bandarískur hermaður sem er grunaður um að hafa nýtt sér innherjaupplýsingar til þess að veðja á að forseti Venesúela yrði handsamaður var handtekinn í gær. Grunur um innherjasvik hefur ítrekað komið upp í tengslum við aðgerðir Bandaríkjastjórnar.

Erlent
Fréttamynd

Fjárhættuspilarar hóta blaða­manni líf­láti

Þriðjudaginn 10. mars birti ísraelskur blaðamaður færslu í vaktarfrétt miðilsins Times of Israel sem átti eftir að draga dilk á eftir sér. Þá hafði írönsk skotflaug lent í borginni Beit Shemesh, skammt frá Jerúsalem. Fljótt kom í ljós að skotflaugin hafði lent á óbyggðu svæði í um fimm hundruð metra fjarlægð frá íbúðarhúsum og sakaði engan.

Erlent
Fréttamynd

Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happ­drætti Há­skóla Ís­lands

Íslensk kona hefur játað fyrir að hafa stolið rúmum sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands en hún starfaði þar sem sumarstarfsmaður árið 2023. Hún hefur verið dæmd í 30 daga fangelsisvist skilorðsbundið og henni verður gert að greiða allan sakarkostnað málsins sem og milljónirnar sjö til baka. 

Innlent
Fréttamynd

Spila­kassar í skjóli mann­úðar og björgunar

Þorsteinn Þorkelsson hjá Landsbjörgu og Ingvar Örn Ingvarsson hjá Rauða krossi Íslands skrifuðu nýverið sameiginlega grein í Morgunblaðið í nafni Íslandsspila. Í stað þess að fjalla um ábyrgð sína á þeim spilakössum sem Íslandsspil eiga og reka, beina þeir athyglinni að einum fyrrverandi ráðherra málaflokks fjárhættuspila. Skrif þeirra eru augljóslega tilraun til að afvegaleiða umræðuna.

Skoðun
Fréttamynd

„Við hjá ZoloIceland leggjum á­herslu á spila­víti“

„Við hjá ZoloIceland leggjum áherslu á spilavíti sem bjóða upp á fjölbreytt úrval leikja,“ stendur undir stórum vélþýddum flipa á heimasíðu rafskútuleigunnar Zolo sem margir Reykvíkingar kannast eflaust við. Félagið hætti starfsemi í byrjun árs en hefur ekki hafið innreið inn á netfjárhættuspilamarkaðinn, enda kom fyrrverandi eiganda og framkvæmdastjóra félagsins af fjöllum þegar blaðamaður bar þetta undir hann.

Innlent
Fréttamynd

Hjálpum spilafíklum

Það hefur varla farið frammhjá þeim sem lesa fréttir, hvort sem það er Vísir, MBL eða aðrir miðlar að fíkn er ekki djók og fíkn hrjáir samfélagið okkar. Fíkn er ekki bara áfengi og eiturlyf, ímynd sem Íslendingar hafa búið við of lengi, ímynd sem er þægileg og við höfum getað sætt okkur við.

Skoðun
Fréttamynd

Verð og vöru­úr­val

Fyrirkomulag markaða hefur afgerandi áhrif á kjör neytenda, bæði hvað varðar verðlagningu og aðgengi að vörum og þjónustu.

Skoðun