
Hús og heimili

Sjarmerandi miðbæjaríbúð listapars
Listaparið Leifur Ýmir Eyjólfsson og Katrína Mogensen hafa sett sjarmerandi íbúð við Freyjugötu í Reykjavík á sölu. Ásett verð er 64,9 milljónir.

Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið
Hjúin Sigga Ólafsdóttir og Hilmar Mathiesen hafa sett bjarta og fallega íbúð sína á Tryggvagötu á sölu. Íbúðin er tæplega 85 fermetrar í hjarta miðbæjarins og ásett verð er 93,9 milljónir.

Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi
Hjónin Vigdís Hrefna Pálsdóttir leikkona og Örn Úlfar Höskuldsson þýðandi hafa sett fallegt hús við Bergstaðastræti í Reykjavík á sölu. Húsið var reist árið 1902 en hefur nýverið verið endurbyggt af alúð með virðingu fyrir upprunalegri hönnun. Heildarstærð hússins er 228 fermetrar og skiptist í þrjár hæðir. Það er til sölu sem tvær aðskildar eignir.

Sara Björk og Árni kaupa í Urriðaholti
Knattspyrnuparið Sara Björk Gunnarsdóttir og Árni Vilhjálmsson hafa fest kaup á glæsilegri útsýnisíbúð við Brekkugötu í Urriðaholti. Kaupverðið nam 88,5 milljónum króna.

Þarf ekki stóra íbúð til að gera heimilið fallegt
Það þarf ekki stóra íbúð til að vera með töff heimili. Hönnuðurinn og innanhússarkitektinn Auður Gná Ingvarsdóttir hefur tekið nokkrar íbúðir og endurhannað frá grunni.

Óttar keypti 320 milljóna króna þakíbúð
Óttar Pálsson, hæstaréttarlögmaður og einn af eigendum lögfræðistofunnar Logos, hefur fest kaup á 210 fermetra íbúð á sjöundu hæð í nýlegu og vönduðu lyftuhúsi við Vesturgötu í Reykjavík, á svokölluðum Héðinsreit. Kaupverðið nam 320 milljónum króna.

Eva Laufey og Haraldur selja húsið á Skaganum
Hjónin, Eva Laufey Kjaran, dagskrárgerðarkona og markaðs-og upplifunarstjóri Hagkaups, og Haraldur Haraldsson deildarstjóri Icelandair Cargo, hafa sett fallegt einbýlishús við Reynigrund á Akranesi á sölu. Ásett verð er 119 milljónir.

Nadía og Arnar selja fallegt hús í Hafnarfirði
Knattspyrnukonan Nadía Atladóttir og kærastinn hennar, Arnar Freyr Ársælsson markaðsstjóri Core, hafa sett parhús sitt við Þrastarás í Hafnarfirði á sölu. Húsið var byggt árið 2003 en hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum. Ásett verð er 145,9 milljónir króna.

Keyptu glæsihús Atlanta-hjónanna á undirverði
Hjónin Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju, og Edda Björk Kristjánsdóttir, mannauðsstjóri Húsasmiðjunnar, hafa fest kaup á glæsilegu húsi við Stórakur í Garðabæ. Kaupverðið var 370 milljónir króna.

Eggert Gunnþór og Elsa selja einbýlið
Knattspyrnukappinn Eggert Gunnþór Jónsson og eiginkona hans Elsa Harðardóttir, rekstrarstjóri Eventum, hafa sett einbýlishús sitt við Sævang í Hafnarfirði á sölu. Ásett verð er 169,9 milljónir.

Eitt fallegasta hús Reykjavíkur komið á sölu
Við Öldugötu stendur eitt glæsilegasta hús Reykjavíkur. Húsið er tæplega 230 fermetrar að stærð, á þremur hæðum, og var reist árið 1928. Þrátt fyrir umfangsmikla endurnýjun á undanförnum árum hefur verið lögð sérstök áhersla á að varðveita hinn sterka karakter og heillandi arkitektúr sem einkennir húsið. Óskað er eftir tilboði í eignina.

Heillandi heimili Hönnu Stínu
Innanhússarkitektinn Hanna Stína hefur sett glæsilega og sjarmerandi íbúð á tveimur hæðum við Þingholtsstræti í Reykjavík á sölu. Eignin er í sögulegu steinsteyptu tvíbýlishúsi frá árinu 1927, hannað af Einari Erlendssyni, fyrrverandi húsameistara ríkisins. Ásett verð er 179 milljónir króna.

Arnar og Sigrún Heba selja glæsihús í Kópavogi
Arnar Grétarsson, þjálfari, og eiginkona hans Sigrún Heba Ómarsdóttir almannatengill hjá ÍSOR, hafa sett einbýlishús sitt við Gnitakór í Kópavogi á sölu. Ásett verð er 218 milljónir.

Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni
Við Brekkugerði í Reykjavík stendur glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum, teiknað af Kjartani Sveinssyni. Húsið var byggt árið 1964 en hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum. Ásett verð er 240 milljónir króna.

Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði
Hönnuðurinn og listakonan Sigga Heimis hefur fest kaup á einbýlishúsi við Bauganes í Skerjafirði. Um er að ræða 170 fermetra hús sem byggt var árið 1987. Þegar húsið var auglýst til sölu var ásett verð 132,5 milljónir.

Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati
Egill Ásbjarnarson, einn eigandi herrafataverslunarinnar Suitup Reykjavík, hefur fest kaup á 80 fermetra íbúð við Hallgerðargötu í Reykjavík. Fasteignamat eignarinnar er rúmar 79,5 milljónir króna, en Egill greiddi 74 milljónir fyrir hana.

Sögulegt parhús í Hlíðunum
Við Skaftahlíð í Reykjavík er að finna glæsilegt parhús sem var byggt árið 1948. Arkitekt hússins er Hannes Davíðsson sem einnig teiknaði Kjarvalsstaði. Garðurinn er sérlega fallegur en fyrsti landslagsarkitekt Íslands, Jón H. Björnsson, þekktur sem Jón í Alaska, hannaði garðinn. Ásett verð er 180 milljónir.

Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi
Hver vill ekki hafa helst allt í röð og reglu á heimilinu. Líklega flestir vilja hafa þokkalega skipulagt heimili.

Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni
Steinullareiningarnar frá Límtré Vírnet henta í flestar gerðir bygginga, frá smáhúsum og einbýlishúsum til stærri bygginga á borð við íþróttahús, landbúnaðarbyggingar og ýmsar gerðir atvinnuhúsnæðis.

Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi
Steinunn Björnsdóttir, fyrrum fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, og kærasti hennar Vilhjálmur Theodór Jónsson, hafa sett íbúð sína við Háaleitisbraut á sölu. Ásett verð er 98,9 milljónir.

Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð
Fjölmiðlamaðurinn Stefán Einar Stefánsson hefur fest kaup á glæsilegri þakíbúð í nýju fimm hæða fjölbýlishúsi við Lautargötu í Urriðaholti. Hann greiddi samkvæmt heimildum fréttastofu 144,9 milljónir fyrir eignina.

Logi og Hallveig keyptu hús í 101
Tónlistarmaðurinn og hönnuðurinn Logi Pedro og sambýliskona hans Hallveig Hafstað Haraldsdóttir ráðgjafi hafa fest kaup á parhúsi við Hringbraut í Reykjavík. Parið greiddi 119,9 milljónir fyrir.

Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia
Ný sumarlína Moomin inniheldur krús, disk og aðra muni ásamt dásamlega mjúkum handklæðum sem vekja upp tilhlökkun og minna okkur á að njóta útiverunnar í sumar; skella okkur á ströndina, í sund eða í notalega lautarferð þegar sólin lætur sjá sig.

Daði Freyr og Árný keyptu einbýli á 86 milljónir
Tónlistarfólkið og hjónin, Daði Freyr Pétursson og Árný Fjóla Ásmundsdóttir, sem landsmenn þekkja vel úr Eurovision-hópnum Daða og gagnamagnið, hafa fest kaup á einbýlishúsi við Borgarhraun í Hveragerði. Hjónin greiddi 86 milljónir króna fyrir.

BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu!
BAUHAUS fagnar afmæli sínu með veglegri afmælishátíð sem stendur út maí mánuð. Mikið verður um dýrðir og þér er boðið að taka þátt í fögnuðinum! Verslunin hefur verið skreytt og stemningin er öll hin besta, alveg eins og í bestu afmælisveislum.

Verðmiðinn hækkar á höll Antons
Verðmiðinn á einbýlishúsi við Haukanes 24 í Garðabæ heldur áfram að hækka. Um er að ræða glæsilegt hús sem enn er í byggingu og í eigu Antons Kristins Þórarinssonar. Ásett verð eignarinnar er 625 milljónir króna, en fasteignamat hennar er 407,4 milljónir. Þegar eignin var fyrst auglýst til sölu í janúar í fyrra var ásett verð 590 milljónir.

Menningarlegt heimili með stórbrotnu útsýni
Við Skildingatanga í Skerjafirði stendur einstaklega glæsilegt einbýlishús á þremur hæðum, byggt árið 1968. Húsið er 450 fermetrar að stærð, teiknað af Kjartani Sveinssyni, og hefur verið mikið endurnýjað. Óskað er eftir tilboði í eignina.

Risa fataherbergi í glæsilegri íbúð Patriks sem nú er til sölu
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokko, hefur sett íbúð sína í Hafnarfirðinum á sölu.

Viltu vinna spennandi vinninga í vorleik Vísis?
Taktu þátt í skemmtilegum vorleik hér á Vísi og þú gætir unnið glæsilega vinninga sem nýtast vel í vorverkin sem eru framundan og í garðinn í sumar. Vel valdir samstarfsaðilar hafa sett saman flottan pakka sem heppinn lesandi fær í sinn hlut.

Íris Svava og Arnþór selja fallega íbúð á besta stað
Íris Svava Pálmadóttir, þroskaþjálfi og talskona jákvæðrar líkamsímyndar, og kærastinn hennar Arnþór Fjalarsson hafa sett fallega íbúð við Skipasund í Reykjavík á sölu. Ásett verð er 54,5 milljónir.