Fréttir
Og fjarskipti hefja útrás sína í Færeyjum Og fjarskipti eignuðust í gær allan hlut í færeyska fjarksiptafyrirtækinu Kall en fyrir viðskiptin áttu Og fjarkskipti rúmlega áttatíu prósent í fyrirtækinu. Kaupin á Kalli eru fyrsta skref útrásar hjá fyrirtækinu. Innlent 2.11.2005 23:01
Beit stykki úr kjamma kindar Hundur særði kind það alvarlega við Grindavík í gær að aflífa þurfti rolluna en stórt stykki hafði verið bitið úr kjamma dýrsins. Eigandi kindarinnar segir í viðtali við Víkurfréttir að færst hafi í vöxt að hundum sé sleppt lausum í hólf þar sem rollubændur hafa kindur sínar eftir að þær koma af fjalli á haustin. Innlent 2.11.2005 07:57
Krónan hækkaði um 1,18% Krónan hækkaði um 1,18 prósent í miklum viðskiptum í gær og hefur þannig unnið upp lækkunina sem varð í síðustu viku. Vísitala krónunnar er nú 101,2 og hefur krónan aðeins einu sinni áður mælst sterkari. Viðskipti innlent 2.11.2005 07:54
Sænsk herþyrla hrapaði Mikil mildi þykir að enginn hafi slasast þegar herþyrla af gerðinni Super Puma hrapaði í sjóinn undan Blekinge í Svíþjóð í gærkvöld. Átta manns voru í þyrlunni. Björgunaræfing á vegum sænska hersins stóð yfir þegar óhappið varð. Erlent 2.11.2005 07:45
Hryðjuverkamenn undirbúa árásir í Ástralíu Hryðjuverkamenn undirbúa nú árásir í Ástralíu. Þetta sagði forsætisráðherra landsins á blaðamannafundi sem haldinn var í Canberra, höfuðborg landsins, í gær. Erlent 2.11.2005 07:25
Meiddist á fæti þegar sprengja sprakk í Skeifunni Kona sem var á gangi í Skeifunni í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt meiddist á fæti þegar öflug sprenging varð undir mannlausum bíl, sem hún var að ganga framhjá, og brot úr sprengjunni þeyttist í hana. Innlent 2.11.2005 07:20
Vill 300 milljónir í hestaíþróttina Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra ætlar að leggja til við ríkisstjórnina á næstu vikum eða mánuðum að allt að 300 milljónir króna fari til uppbyggingar hestaíþróttarinnar á landsbyggðinni. Hann vonast til að eitthvað fjármagn fáist strax á næsta ári. Innlent 1.11.2005 18:22
Ritstjórnarmeðlimir hjá Læknablaðinu segja af sér Fimm af sex ritstjórnarfulltrúum í ritstjórn Læknablaðsins sögðu í gær af sér vegna umdeildrar greinar sem birtist í blaðinu um afleysingarströf Kára Stefánssonar, forstjóra deCode, á taugadeild Landspítalans í sumar. Innlent 1.11.2005 23:06
Lélegasti leikur Chelsea síðan ég tók við Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagðist ekki geta fundið neinar afsakanir fyrir tapinu gegn Real Betis í Meistaradeildinni í gær og sagði leikinn hafa verið lélegustu frammistöðu liðsins síðan hann tók við því á sínum tíma. Sport 2.11.2005 04:19
Fá lægri ellilífeyris- og örorkubætur Lífeyris- og örorkuþegar lífeyrissjóða eru sumir hverjir farnir að finna fyrir nýjum reglum um útreikninga á skuldbindingum lífeyrissjóða vegna örorku. Reglurnar tóku gildi um síðustu áramót og hafa orðið til þess að bætur sumra hafa lækkað. Innlent 1.11.2005 22:42
Kaupþing og Leifsstöð semja Kaupþing Banki hefur samþykkt að lána Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir stækkun norðurbyggingar flugstöðvarinnar til suðurs og endurgerð annarar hæðar hennar. Lánssamningurinn nemur þrem komma þrem milljörðum króna, og er um að ræða framkvæmdalán sem breytist í langtímalán við lok framkvæmda. Áætlað er að þær taki tvö ár og að heildarkostnaðurinn nemi tæpum 5 milljörðum króna. Innlent 1.11.2005 20:38
Ekið á rolluhóp í tvígang Ekið var á fjórar kindur og skömmu síðar á að minnsta kosti átta til viðbótar við bæinn Eyjanes í Hrútafirði í gærkvöldi með þeim afleiðingum að níu rollur drápust og aflífa þurfti þrjár. Innlent 2.11.2005 07:06
Þrír teknir vegna hraðaaksturs Á meðan að lögregluembætti um allt land hafa sinnt útköllum vegna árekstra sem rekja má til hálku hefur lögreglan á Höfn haft í allt öðru að snúast síðustu daga. Þar hafa á síðustu tveimur dögunum þrír verið teknir fyrir hraðaakstur. Innlent 1.11.2005 22:49
Einn fluttur á slysadeild Einn var fluttur á slysadeild til skoðunar eftir áreksturs vörubíls á fólksbíls á gatnamótum Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar um hálf átta leytið í kvöld. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði var smá hálka á brautinni. Innlent 1.11.2005 22:46
Chelsea tapaði fyrir Real Betis Chelsea tapaði sínum fyrsta leik í Meistaradeildinni í ár í kvöld, þegar liðið lá á Spáni fyrir Real Betis 1-0. Chelsea-liðið var mun sterkara í leiknum, en leikmenn liðsins fóru illa með færin og geta sjálfum sér um kennt hvernig fór. Sport 1.11.2005 21:30
Ragnhildur Gísladóttir hlýtur bjartsýnisverðlaun Ragnhildur Gísladóttir, söngkona, leikkona og lagahöfundur hlaut í kvöld Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2005 sem afhent voru í Íslensku óperunni. Innlent 1.11.2005 21:32
Chelsea er undir í hálfleik Eiður Smári og félagar hans í Chelsea eru undir 1-0 í hálfleik gegn Real Betis í Meistaradeildinni og það var Dani sem skoraði mark heimamanna á 28. mínútu. Eiður Smári fór illa að ráði sínu þegar hann misnotaði sannkallað dauðafæri um miðjan hálfleikinn og var skipt útaf í kjölfarið. Liverpool hefur yfir gegn Anderlecht 1-0, þar sem Morientes skoraði mark enska liðsins. Sport 1.11.2005 20:44
Birki fer að vaxa á hálendinu vegna hærra hitastigs Birki mun fara að vaxa á hálendinu og trjátegundir eins beyki og eik munu dafna víða um land á næstu áratugum, rætist spár um hækkun hitastigs á Íslandi, að mati Ingva Þorsteinssonar náttúrufræðings. Þá mun uppskera aukast og kornrækt styrkjast. Innlent 1.11.2005 18:26
Skoðuðu launareikninga í dag Pólverjar sem komu til starfa hér á landi á vegum starfsmannaleigunnar 2B fóru í banka á Egilsstöðum til að skoða launareikningana sína í dag. Fulltrúar launþegahreyfinga ræddu við lögmann starfsmannaleigunnar í dag og verður viðræðum haldið áfram á næstu dögum. Innlent 1.11.2005 18:25
Ljósmyndir vegna vegabréfa teknar hjá sýslumönnum Ráða þyrfti ljósmyndara við öll sýslumannsembætti landsins, að mati Ljósmyndarafélags Íslands, ætli ríkið að sjá um passamyndatöku í landinu, þar sem ljósmyndun er lögvernduð iðngrein. Innlent 1.11.2005 18:24
Hefði ekki getað orðið á verri tíma Ramadan, föstumánuður múslíma var nýhafinn þegar jarðskjálftinn stóri reið yfir fjallahéruð Pakistans. Örþreyttir hjálparstarfsmenn vinna því á fastandi maga frá morgni til kvölds. Skjálftinn hefði því varla getað riðið yfir á verri tíma, að sögn íslensks sendifulltrúa Rauða krossins sem þar er að störfum. Erlent 1.11.2005 18:18
Foreldrar í störfum kennara Foreldrar í Reykjanesbæ gengu í störf kennara í Heiðarskóla í morgun þar sem kennarar mættu ekki til starfa. Innlent 1.11.2005 19:30
Manchester United er stærsta lið allra tíma Alex Ferguson, stjóri Manchester United ætlar ekki að láta slakt gengi liðsins undanfarið hafa áhrif á sig og segir að tapið stóra gegn Middlesbrough geti kennt ungum leikmönnum liðsins dýrmæta lexíu. Sport 1.11.2005 19:48
Borgarstjórn leggur fram fimm milljónir vegna skjálfta Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag að leggja fimm milljónir króna til hjálparstarfs í þágu fórnarlamba jarðskjálftanna í Pakistan í síðasta mánuði. Tillaga borgarstjóra þar að lútandi var samþykkt samhljóða í borgarstjórn. Innlent 1.11.2005 19:13
Eiður Smári í framlínu Chelsea Eiður Smári Guðjohnsen verður í framlínu Chelsea í leiknum við Real Betis í Meistaradeildinni nú á eftir, þegar hann jafnar met Árna Gauts Arasonar yfir flesta leiki sem Íslendingur hefur spilað í Meistaradeildinni. Þetta verður 21. leikur Eiðs Smára. Sport 1.11.2005 19:43
Strandaglópar vegna óveðurs Nokkrir gistu í fjöldahjálparstöðvum Rauða krossins í nótt vegna óveðursins í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu. Flestir þeirra 130 sem gistu þar aðfararnótt sunnudags gátu komist leiðar sinnar í gær. Innlent 1.11.2005 17:34
Nýjar leiðir til að sporna við útrýmingu Namibíumenn fara nú ótroðnar slóðir til að vernda smáan stofn blettatígra í landinu. Með því að þjálfa upp tyrkneska fjárhunda, sem vakta húsdýrahjarðir, halda þeir blettatígrunum frá þeim. Erlent 1.11.2005 18:03
Enn logar allt í óeirðum í París Allt hefur logað í óeirðum dögum saman í einu úthverfa Parísar, Clichy-Sous-Bois, eftir að tveir ungir drengir létust eftir að hafa fengið raflost þar sem þeir földu sig fyrir lögreglunni í lítilli rafstöð. Erlent 1.11.2005 18:01
Munkafundur í Bangkok Á fjórða þúsund búddamunkar funda nú í Bangkok, höfuðborg Tælands. Þátttakendur eru frá tuttugu og þremur löndum og er dagskráin byggð á sameiginlegu bænahaldi og umræðum um búddisma. Erlent 1.11.2005 17:58
Klám? Lögreglan í Reykjavík hefur ekki tekið ákvörðun um hvort skoðað verði hvort tímaritið Bleikt og blátt brjóti í bága við hegningalög þar sem fjallað er um klám. Blaðinu hefur verið breitt og nú er sýnt miklu meira hold heldur en í blaðinu B&B. Innlent 1.11.2005 17:18