Fréttir
Sálin með í sjöunda sinn Lífið 29.12.2005 12:05 Samið við alþjóðlega efnisveitu fyrir farsíma Og Vodafone hefur gert samning við Arvato Mobile, sem er leiðandi fyrirtæki á sviði afþreyingar, um dreifingu á afþreyingarefni fyrir efnisgáttina Vodafone live! Í Vodafone live! er meðal annars að finna þrívíddar tölvuleiki, fréttir, myndskeið með mörkum úr ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu, veggfóður, efni úr Idol stjörnuleit og MP3 hringitóna svo dæmi séu tekin. Innlent 29.12.2005 11:57 Fagnar áramótunum á spítala Það eiga þess ekki allir kost að halda jólin og fagna áramótum á heimili sínu. Börn og unglingar sem dveljast á Barnaspítala Hringsins þurftu sum hver að opna jólagjafir sínar á spítalanum og þar munu nokkur þeirra sömuleiðis dvelja um áramótin. Innlent 29.12.2005 11:47 VG vill að þing verði kallað saman Þingflokkur VG hefur sent frá sér ályktun um þá ákvörðun forsætisráðherra að skipa nefnd um úrskurð kjaradóms. Þingflokkurinn telur nauðsynlegt að fresta gildistöku kjaradóms til að skapa svigrúm til umræðu um forsendur ákvörðunar kjaradóms. Innlent 29.12.2005 11:38 Sjálfsmorðsárás í Suður-Rússlandi Sjálfsmorðsárás var gerð í bænum Makhachkala í Suður-Rússlandi í morgun. Maður sprengdi sjálfan sig í loft upp við athöfn sem haldin var til minningar um öryggisvörð sem drepinn var fyrir tveimur dögum. Rússneskir fjölmiðlar segja engan hafa beðið bana í árásinni fyrir utan tilræðismanninn. Erlent 29.12.2005 10:14 Fjórir lögreglumenn biðu bana í Bagdad Fjórir lögreglumenn biðu bana og fjórir aðrir særðust í sjálfsmorðsárás á lögregluvarðstöð í Bagdad í morgun. Mismunandi upplýsingar hafa borist um hvernig aðdragandi árásarinnar hafi verið; bæði er talað um að árásarmaðurinn hafi komið akandi á lögreglubíl og að hann hafi verið fótgangandi. Erlent 29.12.2005 09:53 Viðskiptahallinn slær met Vöruskipti við útlönd voru óhagstæð upp á um ellefu milljarða króna í nóvember en þá var flutt inn fyrir tæpa 28 milljarða en út fyrir um sextán og hálfan milljarð. Halli Viðskipti innlent 29.12.2005 10:16 Viðurkenning afhent á morgun Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhendir viðurkenningu Alþjóðahúss „Vel að verki staðið" fyrir lofsverða frammistöðu í málefnum innflytjenda á Íslandi við hátíðlega athöfn í Alþjóðahúsinu Hverfisgötu 18, föstudaginn 30 desember kl. 15:30. Innlent 29.12.2005 10:06 « ‹ ›
Stórskotahríð á norðurhluta Gaza-svæðisins Ísraelar hófu í nótt stórskotahríð á norðurhluta Gaza-svæðisins, til þess að hindra að Palestínumenn geti notað það til eldflaugaárása á ísraelsk landsvæði. Í morgun tóku skriðdrekar við af stórskotaliðinu. Erlent 29.12.2005 19:14
Skæður sjúkdómur Skelfilegur sjúkdómur drepur þúsundir manna í Suður-Súdan, án þess að hjálparstofnanir fái rönd við reist. Sjúkdómurinn ræðst á ónæmiskerfið eins og alnæmi en til eru lyf við honum. Erlent 29.12.2005 19:13
Ellefu manns í prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík Ellefu manns gefa kost á sér í prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík sem fram fer 28. janúar næstkomandi, en framboðsfrestur rann út kl. 16 í dag. Þrír gefa kost á sér í fyrsta sætið, Anna Kristinsdóttir borgarfulltrúi, Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra og Óskar Bergsson húsasmíðameistari. Innlent 29.12.2005 19:03
Vélsleðamaður slasast í Fjörðum Björgunarsveiti Landsbjargar á Akureyri og Grenivík voru kallaðar út á fjórða tímanum í dag. Vélsleðamaður hafði slasast í Fjörðum, norðan Grenivíkur. Fyrstu björgunarmenn voru komnir á slysstað hálftíma síðar og fyrsti björgunarbíll kom á slysstað tíu mínútum á eftir björgunarmönnum. Búið var um hinn slasaða og hann fluttur til byggða þar sem sjúkrabíll beið hans og flutti til Akureyrar. Innlent 29.12.2005 17:55
Féll niður vök Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti um hálf fimm leytið mann sem fallið hafði niður vök á Lyngdalsheiði. Ferðafélagar mannsins náðu manninum upp úr vökinni og fluttu hann að Gjábakkaveg til móts við björgunarlið. Maðurinn var kaldur og þrekaður og var hann fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús. Innlent 29.12.2005 17:51
Fá ekki störf sem hæfa menntun Margir flóttamenn sem sest hafa að á Íslandi kvarta undan því að fá ekki störf er hæfir menntun þeirra og fyrri störfum. Stór hluti þeirra vinnur við ófaglærð störf. Innlent 29.12.2005 17:44
Landsnet kaupir flutningsvirki af Hitaveitu Suðurnesja Landsnet hefur keypt 132 kV háspennulínu af Hitaveitu Suðurnesja sem liggur frá aðveitustöð Landsnets við Hamranes, sunnan Hafnarfjarðar, að aðveitustöð Hitaveitu Suðurnesja við Öldugötu í Hafnarfirði. Innlent 29.12.2005 17:20
Fer yfir í Sjálfstæðisflokkinn Oktavía Jóhannesdóttir bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri tilkynnti í dag að hún hefði sagt skilið við flokkinn og hygðist þess í stað ganga í raðir Sjálfstæðismanna. Hún segir ákvörðunina tekna að vel yfirlöguðu ráði og byggi á því mati hennar að Samfylkingin verði seint sá frjálslyndi og framsækni jafnaðarmannaflokkur sem hún og aðrir kratar reiknuðu með í upphafi. Innlent 29.12.2005 17:06
Tvær konur hlutu heiðursverðlaun Vísindafélags Íslendinga Vísindafélag Íslendinga afhenti verðlaun úr Ásusjóði. (LUM) Ásusjóður er kenndur við Ásu Guðmundsdóttur Wright sem afhenti Vísindafélaginu peningagjöf á hálfrar aldar afmæli félagsins nítján hundruð sextíu og átta. Verðlaunin í ár runnu til tveggja kvenna fyrir margþættar rannsóknir á krabbameini, orsökum þess og erfðum. Það voru doktor Jórunn Eyfjörð erfðafræðingur og doktor Helga Ögmundsdóttir læknir. Þær hafa haft samstarf í leit að brjóstakrabbameinsgenum og gert viðamikla rannsókn á stökkbreytingum í þessum genum meðal Íslendinga. Innlent 29.12.2005 16:58
Landvinnsla ekki á leið frá Akureyri Landsvinnsla Brims fær nafnið ÚA á nýjan leik og verður eitt af fjórum afkomusviðum innnan Brims. Þetta kom fram á starfsmannafundi fyrirtækisins á Akureyri í dag. Innlent 29.12.2005 16:50
Dregur úr væntingum Breta Það dró úr væntingum breskra neytenda í desember og hafa þær ekki mælst lægri síðan í mars 2003. Neytendur virðast þannig vera svartsýnni á horfur í efnahagsmálum en áður og ólíklegra er að þeir standi í stórkaupum á næstu misserum. Innlent 29.12.2005 16:23
Jón formaður nefndar sem skoðar málefni Kjaradóms Forsætisráðherra hefur skipað Jón Sigurðsson, fyrrverandi Seðlabankastjóra og ráðherra, formann nefndar til að fara yfir málefni Kjaradóms, eftir að dómurinn ákvað að breyta ekki úrskurði sínum um kjör æðstu embættismanna. Stjórnarandstaðan ætlar ekki að skipa fulltrúa í nefndina nema þing verði kallað saman fyrir áramót. Innlent 29.12.2005 15:49
Umhverfisráðherra staðfestir breytingar á svæðisskipulagi Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hefur staðfest breytingu á svæðisskipulagi miðhálendis Íslands 2015 sem samvinnunefnd miðhálendis samþykkti á fundi sínum þann 12. ágúst 2005. Breytingarnar varða m.a. jarðvarmavirkjun við Hágöngur og lagningu háspennulínu frá þeirri virkjun og breytingu skálasvæðis við Kerlingarfjöll í hálendismiðstöð vegna ferðaþjónustu. Umhverfisráðherra hefur hins vegar synjað staðfestingu á þeim hluta svæðisskipulagstillögunnar sem lýtur að Norðlingaölduveitu. Innlent 29.12.2005 15:32
Viðskiptahalli við útlönd aldrei meiri Viðskiptahalli við útlönd hefur aldrei verið meiri en það sem af er ári nemur hallinn tæpum níutíu milljörðum króna. Stórfelldur innflutningur á bílum vegur þungt en um átján þúsund nýir bílar hafa verið skráðir það sem af er ári. Innlent 29.12.2005 15:23
Eldur í ruslageymslu fjölbýlishúss Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að fjölbýlishúsi við Engjasel í Breiðholti á þriðja tímanum í dag vegna elds í ruslageymslu hússins. Einn slökkviliðsbíll var sendur á vettvang ásamt sjúkrabíl en það tók aðeins fjórar mínútur að slökkva eldinn. Innlent 29.12.2005 15:19
Almenningur getur ekki skipt um raforkusala fyrr en í vor Rafmagn á Íslandi verður selt á samkeppnismarkaði frá og með 1. janúar næstkomandi. Þó lítur út fyrir að almenningur geti ekki skipt um raforkusala fyrr en í fyrsta lagi í vor, ef þeir hyggjast gera það á annað borð, vegna tafa á aðlögun erlends viðskiptahugbúnaðar að íslenskum aðstæðum. Innlent 29.12.2005 15:13
Ellefu skornir á háls Vopnaðir menn réðust inn á heimili suður af Bagdad, höfuðborg Íraks, og myrtu ellefu fjölskyldumeðlimi með því að skera þá á háls. Fólkið var sjíamúslimar en bjó á svæði þar sem súnnímúslimar eru í miklum meirihluta. Fjölskyldunni hafði verið hótað öllu illu ef hún flyttist ekki á brott en brást ekki við hótununum. Erlent 29.12.2005 14:01
Samskip opna skrifstofu í Vigo á Spáni Samskip opna skrifstofu í Vigo á vesturströnd Spánar um áramótin og verða helstu verkefni hennar umsýsla með hverskyns fiskafurðir, bæði kældar og frosnar. Viðskipti innlent 29.12.2005 14:05
Avion kaupir fjórar nýjar fraktvélar Avion Group hefur staðfest kaup á fjórum Boeing 777 fraktvélum til viðbótar við þær fjórar sem félagið keypti fyrr á árinu. Heildarfjárfesting í þessum átta vélum, samkvæmt listaverði frá Boeing, nemur hátt í tveimur milljörðum Bandaríkjadala. Vélarnar fjórar verða afhentar á árunum 2010 og 2011 og verða notaðar hjá dótturfélagi Avion Group, Air Atlanta Icelandic. Viðskipti innlent 29.12.2005 14:04
Fékk styrk úr minningarsjóði Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, fékk 250 þúsund króna styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsens, fyrrverandi borgarstjóra og forsætisráðherra. Styrkinn afhenti Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri Guðrúnu við athöfn í Höfða. Innlent 29.12.2005 13:49
Vill þingfund fyrir áramót Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir flokkinn tilbúinn til að tilnefna fulltrúa í nefnd forsætisráðherra vegna niðurstöðu Kjaradóms, að því gefnu að þing verði kallað saman á morgun eða á gamlársdag, til að setja lög sem fresta gildistöku launahækkana æðstu embættismanna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar, telur enn hægt að kalla þing saman fyrir áramót. Innlent 29.12.2005 13:21
Framselja fangavörð Dómstóll í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að fyrrverandi fangavörður, í útrýmingarbúðum nasista, skuli framseldur til Úkraínu. Fangavörðurinn hefur barist fyrir bandarískum dómstólum í meira en þrjátíu ár. Erlent 29.12.2005 12:26
Samið við alþjóðlega efnisveitu fyrir farsíma Og Vodafone hefur gert samning við Arvato Mobile, sem er leiðandi fyrirtæki á sviði afþreyingar, um dreifingu á afþreyingarefni fyrir efnisgáttina Vodafone live! Í Vodafone live! er meðal annars að finna þrívíddar tölvuleiki, fréttir, myndskeið með mörkum úr ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu, veggfóður, efni úr Idol stjörnuleit og MP3 hringitóna svo dæmi séu tekin. Innlent 29.12.2005 11:57
Fagnar áramótunum á spítala Það eiga þess ekki allir kost að halda jólin og fagna áramótum á heimili sínu. Börn og unglingar sem dveljast á Barnaspítala Hringsins þurftu sum hver að opna jólagjafir sínar á spítalanum og þar munu nokkur þeirra sömuleiðis dvelja um áramótin. Innlent 29.12.2005 11:47
VG vill að þing verði kallað saman Þingflokkur VG hefur sent frá sér ályktun um þá ákvörðun forsætisráðherra að skipa nefnd um úrskurð kjaradóms. Þingflokkurinn telur nauðsynlegt að fresta gildistöku kjaradóms til að skapa svigrúm til umræðu um forsendur ákvörðunar kjaradóms. Innlent 29.12.2005 11:38
Sjálfsmorðsárás í Suður-Rússlandi Sjálfsmorðsárás var gerð í bænum Makhachkala í Suður-Rússlandi í morgun. Maður sprengdi sjálfan sig í loft upp við athöfn sem haldin var til minningar um öryggisvörð sem drepinn var fyrir tveimur dögum. Rússneskir fjölmiðlar segja engan hafa beðið bana í árásinni fyrir utan tilræðismanninn. Erlent 29.12.2005 10:14
Fjórir lögreglumenn biðu bana í Bagdad Fjórir lögreglumenn biðu bana og fjórir aðrir særðust í sjálfsmorðsárás á lögregluvarðstöð í Bagdad í morgun. Mismunandi upplýsingar hafa borist um hvernig aðdragandi árásarinnar hafi verið; bæði er talað um að árásarmaðurinn hafi komið akandi á lögreglubíl og að hann hafi verið fótgangandi. Erlent 29.12.2005 09:53
Viðskiptahallinn slær met Vöruskipti við útlönd voru óhagstæð upp á um ellefu milljarða króna í nóvember en þá var flutt inn fyrir tæpa 28 milljarða en út fyrir um sextán og hálfan milljarð. Halli Viðskipti innlent 29.12.2005 10:16
Viðurkenning afhent á morgun Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhendir viðurkenningu Alþjóðahúss „Vel að verki staðið" fyrir lofsverða frammistöðu í málefnum innflytjenda á Íslandi við hátíðlega athöfn í Alþjóðahúsinu Hverfisgötu 18, föstudaginn 30 desember kl. 15:30. Innlent 29.12.2005 10:06