Fréttir
Ráða ráðum sínum gegn Norðlingaölduveitu Stjórnarandstæðingar komu saman til fundar á tólfta tímanum til að ræða sameiginlegan málflutning gegn því að ráðist yrði í framkvæmdir við Norðlingaölduveitu. Innlent 16.1.2006 12:06
ENA stofnar þjónustunet Stofnað hefur verið þjónustunet sem leysa á úr ágreininingsefnum milli kaupanda og seljenda yfir landamæri innan Evrópu. Markmið þjónustunetsins er að auka traust neytenda á Evrópu sem einu markaðssvæði. Til að kynna starfsemi sína hefur ENA, Evrópska neytendaaðstoðin, útbúið bæklins sem nálgast má á heimasíðu þeirra. Innlent 16.1.2006 11:31
Vonar að tillagan verði samþykkt Ólafur F. Magnússon ber upp tillögu um verndun Þjórsárvera í borgarstjórn á morgun og binda F-lista menn miklar vonir við að hún verði samþykkt en það yrði þá í fyrsta skipti sem borgarstjórn leggst gegn áformum ríkisvaldsins og Landsvirkjunar í virkjanamálum. Innlent 16.1.2006 11:16
Fundað vegna mála leikskólakennara í dag og á miðvikudag Það ræðst á fundum samráðshóps um kjaramál leikskólakennara í dag eða á miðvikudag hvort hópurinn kemst að sameiginlegri niðurstöðu um tillögur að lausn í kjaramálum leikskólakennara. Innlent 16.1.2006 10:54
Nýskráðir bílar rúmum 52 prósentum fleiri í fyrra en árið 2004 Íslendingar að og Lettar bera höfuð og herðar yfir aðrar Evrópuþjóðir þegar miðað er við aukningu á nýskráðum bílum á milli ára. Nýskráningar jukust um ríflega 52 prósent hér á landi í fyrra miðað við árið 2004 en nýskráðum bílum á Evrópska efnahagssvæðinu öllu fækkaði hins vegar lítillega milli ára. Innlent 16.1.2006 10:48
Máli Bubba gegn 365-prentmiðlum frestað Fyrirtöku í meiðyrðamáli Bubba Morthens gegn 365-prentmiðlum sem átti að vera í dag var frestað þar sem lögmaður Bubba, Sigríður Rut Júlíusdóttir, er veik. Ný dagsetning á fyrirtöku málsins liggur ekki fyrir. Innlent 16.1.2006 10:24
Grunaðir um að berja heimilislausan mann til bana Tveir unglingspiltar í Fort Lauderdale í Flórída eru í haldi lögreglu grunaðir um að hafa barið þrjá heimilislausa menn aðfaranótt fimmtudagsins, en einn þeirra lést af sárum sínum. Myndir af því einni árásanna þar sem maður var barinn með hafnaboltakyflum náðust á eftirlitsmyndavél en tilkynnt var um tvær aðrar árásir á heimililislausa þessa nótt. Erlent 16.1.2006 08:04
Sheikh Jaber al-Ahmad al-Sabah látinn Sheikh Jaber al-Ahmad al-Sabah, Emírinn af Kúveit, er látinn 77 ára að aldri. Emírinn var þrettándi einræðisherrann úr fjölskylduveldinu sem ríkt hefur í Kúveit í 245 ár. Kúveitar er tíundi stærsti olíuframleiðandi heims og þar búa um það bil tvær komma tvær milljónir manna. Eftir fall Saddams Husseins fyrrum einræðisherra nágrannaríkisins Íraks, hefur krafan um lýðræði í Kúveit sífellt orðið meiri. Erlent 16.1.2006 10:03
Kasta sætindum fyrir svín Þeir kasta ekki perlum fyrir svín í Danmörku heldur sælgæti ef marka má fréttir í danska blaðinu Politiken. Þar segir að lítill hópur danskra svínabænda hafi tekið upp á því að gefa grísum sínum bæði hlaup, súkkulaði og lakkrís í bland við aðra hollari fæðu þar sem það er um helmingi ódýrara en korn. Erlent 16.1.2006 07:32
Ehud Olmert stýrir Kamida flokknum Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, var í dag valinn til að stýra Kamidaflokknum í veikindaforföllum Ariels Sharons forsætisráðherra. Kemur það í hlut Olmerts að leiða flokkinn í kosningabaráttunni sem framundan er en kosningar fara fram í Ísrael þann 28. mars næst komandi. Erlent 16.1.2006 09:26
Börðu þrjá heimilislausa menn Tveir unglingspiltar í Fort Lauderdale í Flórída eru í haldi lögreglu grunaðir um að hafa barið þrjá heimilislausa menn aðfaranótt fimmtudagsins, en einn þeirra lést af sárum sínum. Myndir náðust á eftirlitsmyndavél af einni árásanna. Þær hafa vakið mikinn óhug í Bandaríkjunum en drengirnir eiga yfir höfði sér morðákæru vegna málsins. Erlent 16.1.2006 08:57
Telur óraunhæft að refsa fyrir vændiskaup Jafnréttisráðherra Noregs, Karita Bekkemellem, telur óraunhæft að refsa þeim sem nýta sér vændisþjónustu. Hún vill beita forvörnum til þess að koma vinna bug á vændi og mansali í landinu. Frá þessu er greint í norska blaðinu Verdens Gang. Erlent 16.1.2006 07:29
Heimsmarkaðsverð á áli hækkar ört Álverð á heimsmarkaði hækkar nú ört og hefur þegar hækkað um rúm sex prósent frá áramótum, eða á hálfum mánuði. Síðustu sex mánuði nýliðins árs hækkaði það um rösk 30 próent og samkvæmt Reuters fréttastofunni er það nú komið upp í 2388 dollara tonnið, sem er hæsta heimsmarkaðsverð í 17 ár. Landsvirkjun hagnast væntanlega á þessu því raforkuverð til álveranna hér á landi tekur ákveðið mið af heimsmarkaðsverði á áli. Erlent 16.1.2006 07:35
Trúfélög fái að gefa samkynhneigða saman Siðmennt, félag siðrænna húmanista, hvetur allsherjarnefnd Alþingis til að breyta hjúskaparlögum þannig að skráð trúfélög fái að gefa saman samkynhneigða einstaklinga. Þannig geti trúfélög sem það vilja gefið saman samkynhneigð pör en önnur séu ekki skyldug til þess. Innlent 16.1.2006 07:59
Sirleaf tekur við sem forseti Líberíu Ellen Johnson-Sirleaf sver í dag embættiseið sem forseti Líberíu, en hún er fyrst afrískra kvenna til að gegna leiðtogahlutverki í landi sínu. Búist við fjölmörgum háttsettum gestum frá öðrum Afríkuríkjum og ríkjum víða um heim á embættistökuna í höfuðborginni Monróvíu en mikill viðbúnaður er vegna hennar. Erlent 16.1.2006 07:26
Talibanar hóta frekari árásum Talíbanar hóta frekari árásum á hermenn en kanadamaður og tveir Afganir féllu í sjálfsmorðstilræði í Suður-Afganistan í gær. Þá særðust 13 manns til viðbótar en alls hafa 25 sjálfsmorðssprengjuárásir verið gerðar í landinu á síðustu fjórum mánuðum. Kanadamaðurinn sem lést var starfsmaður endurreisnarsveitar alþjóðlegur friðargæslunnar í Afganistan. Alls hafa því níu Kanadamenn fallið í landinu frá árinu 2002. Erlent 16.1.2006 07:31
Mikið snjóað í Pakistan Mikið hefur snjóað í Pakistan yfir helgina og gert þeim tug þúsundum sem búa upp til fjalla enn erfiðara fyrir. Talið er að yfir þrjár milljónir manna séu heimilislausir eftir jarðskjálftann þar í landi sem varð í október á síðasta ári. Áframhaldandi snjókomu er spáð næstu daga og óttast yfirvöld að hundruð manna muni farast vegna mikilla vetrarkulda. Talið er að um 90 þúsund manns hafi farist í jarðskjálftanum og segja Sameinuðu þjóðirnar ekki ólíklegt að jafn margir ef ekki fleiri farist í kuldunum á næstu vikum og mánuðum. Erlent 16.1.2006 07:29
Ró á fasteignamarkaði Nær helmingi færri fasteignir seldust á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku en í meðalviku. Alls seldust 88 eignir en síðustu tólf vikur hafa að meðaltali selst 150 íbúðir á viku. Innlent 16.1.2006 06:34
Heimsmarkaðsverð á olíu mun hækka Heimsmarkaðsverð á olíu mum hækka ef Íranir verða beittir refsiaðgerðum vegna kjarnorkuáætlana þeirra. Þetta sagði efnahagsmálaráðherra landsins í gær og sagði jafnframt verðhækkanir verða töluvert hærri en ráðamenn á vesturlöndum geri sér grein fyrir. Þá sagði forseti Írans það algjörlega rangt að kjarnorkuáætlun þjóðarinnar miðaði að því að smíða vopn því Íranar hefðu ekkert við kjarnorkuvopn að gera. Ákveðið verður í þessari viku hvort deilunni verði vísað til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Erlent 16.1.2006 07:26
Vilja komast að uppruna sólkerfisins Hylki könnunargeimfars sem skotið var á loft fyrir sjö árum lenti í eyðimörk í Utah í Bandaríkjunum í gær, hlaðið geimryki. Vísindamenn vonast til þess að komast að uppruna sólkerfisins með því að rannsaka rykið sem safnað var saman í hylkið. Könnunarflaugin fór um það bil 4,7 miljarða kílómetra á ferð sinni um geiminn en þetta er í fyrsta sinn síðan árið 1972 sem þeim tekst að safna saman föstu efni utan úr geimnum og senda það til jarðar. Erlent 16.1.2006 07:36
Ellen Johnson-Sirleaf sver í dag embætti forseta Ellen Johnson-Sirleaf sver í dag embættiseið sem forseti Líberíu, en hún er fyrst afrískra kvenna til að gegna leiðtogahlutverki í landi sínu. Búist við fjölmörgum háttsettum gestum frá öðrum Afríkuríkjum og ríkjum víða um heim á embættistökuna í höfuðborginni Monróvíu en mikill viðbúnaður er vegna hennar. Sirleaf hefur sagt það markmið sitt að endurvekja von í landinu, en innviðir samfélagsins í Líberíu eru molum eftir áralanga borgarastyrjöld. Erlent 16.1.2006 08:02
Finnar þurfa að kjósa aftur Aftur þarf að kjósa í forsetakosningunum í Finnlandi þar sem Tarja Halonen, forseti landsins, fékk ekki yfir helming atkvæða í kosningunum í gær eins og hún þurfti. En hún fékk aðeins 46 prósent atkvæða. Sauli Ninistö, fyrrverandi fjármálaráðherra Finnlands og frambjóðandi Hægriflokksins, hlaut 24% og Matti Vanhanen, forsætisráðherra og frambjóðandi Miðflokksins fékk 18,6%. Kosið verður því á milli þeirra Halonens og Ninistös eftir hálfan mánuð en þá þykir víst að Halonen sigri. Erlent 16.1.2006 07:23
Mikill erill á slysadeild Íbúar Suðvestur hornsins virðast vera komnir úr allri þjálfun á skíðum og snjóbrettum því mikill erill var á slysadeild Landsspítalans í gær við að hlynna að skíða- og snjóbrettafólki sem lent hafði í slæmum byltum. Engin reyndist þó alvarlega slasaður og stúlkan, sem þyrla Landhelgilsgæslunnar sótti upp í Bláfjöll í gær, reynidst líka minna slösuð en óttast var í fyrstu. Sama á við um vélsleðamanninn, sem þyrlan sótti í sömu ferð upp í Landmannalaugar. Erlent 16.1.2006 07:28
Kona næsti forseti Chile Michelle Bachelet, fyrrum varnarmálaráðherra Chile var í gær kjörin forseti landsins, fyrst kvenna. Bachelet fékk rúmlega 53 prósent atkvæða á meðan mótframbjóðandi hennar, kaupsýslumaðurinn Sebastian Pinera fékk tæplega 47 prósent atkvæða. Þetta er í fjórða skiptið sem forsetakosningar fara fram í Chile frá því landið varð lýðveldi árið 1990 eftir 17 ára herforingjastjórn. Málefni frambjóðenda voru svipuð. Bæði hétu þau því að draga úr glæpum í landinu sem og að fjölga atvinnutækifærum en atvinnuleysi hefur farið vaxandi í Chile undanfarin ár. Erlent 16.1.2006 07:11
Flughált á Hellisheiði og í Þrengslum Flughált er á Hellisheiði, snjóþekja og éljagangur er í Þrengslum og hálka á Suðurlandi en þar stendur mokstur yfir. Þá er hálka og snjóþekja á Norðurlandi, Norðausturlandi og Vesturlandi. Ófært er yfir Eyrarfjall, Hrafneyrar og Dynjandisheiði og á Austurlandi er ófært yfir Fjarðarheiði, Breiðdalsheiði og Öxi Innlent 16.1.2006 07:40
Stjórnlaust flutningaskip NA af Langanesi Rúmlega sjö þúsund tonna flutningaskip, skráð á Möltu, rekur stjórnlaust um 200 sjómílur norðaustur af Langanesi eftir að aðalvél skipsins bilaði í gær. Tólf manns eru í áhöfn og er þeim ekki talin hætta búin þótt bræla sé á svæðinu. Skipið, sem heitir Wilson Tyne, var á leið til Grundartanga. Útgerð þess ákvað í gær að fá norskan dráttarbát til að koma skipinu til hjálpar, frekar en að leita aðstoðar Landhelgisgæslunnar, og er stór dráttarbátur væntanelgur að skipinu á morgun Innlent 16.1.2006 07:10
Nítjan manns hafa greinst með fuglaflensu í Tyrklandi Fimm ára drengur greindist með H5N1 afbrigði fuglaflensunnar í Tyrklandi um helgina. Er það nítjánda manneskjan þar í landi sem greinist með afbrigðið. Systir drengsins lést í gær en var ekki sögð með veiruna í sér. Hún hafði þó komist í snertingu við smitaða fugla líkt og bróðir hennar og segja sérfræðingar mjög líklegt að hún hafi verið ranglega greind. Erlent 16.1.2006 07:07
Sjö létust í bruna í Vladívostok Að minnsta kosti sjö létust og átján særðust þegar eldur kom upp í skrifstofuhúsnæði í Vladívostok á Kyrrahafsströnd Rússalands í morgun. Erlent 16.1.2006 11:48
Mourinho sættir sig við rauða spjaldið Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea hafði ekki yfir miklu að kvarta eftir 2-1 útisigur sinna manna gegn botnliði Sunderland í dag sunnudag. Hann segir dómarann hafa gert rétt þegar hann vísaði Arjen Robben af velli fyrir að fagna sigurmarki sínu með áhorfendum en sá hollenski stökk yfir auglýsingaskilti og henti sér í áhorfendaskarann. Sport 15.1.2006 23:06
Roma lagði AC Milan Brasilíski kantmaðurinn Alessandro Mancini tryggði Roma óvæntan 1-0 sigur á AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Sigurmarkið kom á 81. mínútu þvert gegn gangi leiksins en Milan liðið var mun betri aðilinn í leiknum en fóru illa með fjöldamörg færi sín. Sport 15.1.2006 22:34