Fréttir
Spasskí og Fischer hittast líklega um helgina Boris Spasskí, fyrrverandi heimsmeistari í skák, teflir einvígi við Friðrik Ólafsson, fyrsta íslenska stórmeistarann, hér á landi á morgun. Líkur eru á að Spasskí og Bobby Fischer muni hittast, en ekki hefur verið ákveðið hvort þeir mætist við skákborðið. Innlent 10.2.2006 12:58
Fjórir starfsmenn skikkaðir til að skrifa undir þátttökuyfirlýsingu Fjórir starfsmenn Menntaskólans á Ísafirði fengu frest fram til hádegis til að skrifa undir samkomulag um þátttökuyfirlýsingu í svokölluðu skólaþróunarverkefni. Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari menntaskólans á Ísafirði, segir að tveir starfsmenn hafi nú þegar skrifað undir en óvíst sé með undirskrift hinna tveggja starfsmannana. Hún segir að endanleg niðurstaða muni liggja fyrir á mánudag. Innlent 10.2.2006 13:27
Vilja áframhaldandi breiðfylkingu stúdenta Háskólalistinn, sem náði oddaaðstöðu með einum fulltrúa, í illa sóttum stúdentaráðskosningunum í gær, vill að allir þrír listarnir haldi áfram breiðfylkingu stúdenta, fremur en að mynda meirihluta tveggja lista. Innlent 10.2.2006 13:03
Miskabætur vegna 16 ára gamals slyss Hæstiréttur dæmdi í gær Mosfellsbæ til að greiða ungum manni 500 þúsund krónur í miskabætur vegna slyss, sem hann lenti í á leikvelli í bænum fyrir 16 árum. Innlent 10.2.2006 13:02
Nautakjötsskortur vaxandi Nautakjötsskorturinn fer enn vaxandi þar sem bændur setja nú allar kvígur á, til mjólkurframleiðslu, þrátt fyrir að verð til þeirra fyrir nautakjöt hafi hækkað um tæp 40% á aðeins tveimur árum. Innlent 10.2.2006 12:57
450 hafa kostið utan kjörstaðar Um 450 manns höfðu kosið í utankjörstaðatkvæðagreiðslu Samfylkingarinnar nú undir hádegi. Nokkur spenna ríkir varðandi úrslit prófkjörsins flokksins sem fram fer um helgina, enda hart barist um efstu sætin. Innlent 10.2.2006 12:29
Alvarlegt slys á Hellisheiði Ökumaður slasaðist alvarlega, en þó ekki lífshættulega, þegar bíll hans lenti framan á bíl, sem kom úr gagnstæðri átt á Hellisheiði um klukkan átta í morgun. Þar var þá blindþoka, rigning og hvassviðri. Vegurinn lokaðist vegna árekstursins og var umferðinni beint um þrengslin. Innlent 10.2.2006 12:25
Impregilo bolar Íslendingum ekki burt Ómar Valdimarsson, upplýsingafulltrúi Impregilo, segir fyrirtækið ekki vera að bola Íslendingum frá vinnu við Kárahnjúkavirkjun. Hann telur ekkert hæft í ummælum Odds Friðrikssonar, yfirtrúnaðarmanns starfsmanna á Kárahnjúkasvæðinu, um að fyrirtækið leggi trúnaðarmenn í einelti. Innlent 10.2.2006 12:18
Góð loðnuveiði út af suðurstöndinni Góð loðnuveiði er nú út af suðurströndinni á móts við Ingólfshöfða og vilja sjómenn að þegar í stað verði aukið verulega við loðnukvótann, sem er sá lang minnsti í rúman áratug. Innlent 10.2.2006 12:13
Nýr ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu Jón B. Jónasson lögfræðingur og skrifstoðustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu verður skipaður ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins og tekur við starfinu þegar Vilhjálmur Egilsson lætur af því 15. mars næstkomandi. Innlent 10.2.2006 11:58
Litlu munaði að Vaka fengi meirihluta í Stúdentaráði Örfáaum atkvæðum munaði að Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, næði fimmta manni í Stúdentaráð Háskóla Íslands á kostnað fjórða fulltrúa Röskvu, en úrslitin voru tilkynnt nú í morgunsárið. Niðurstaðan varð að hvor fylking fékk fjóra fulltrúa og Háskólalistinn einn. Innlent 10.2.2006 10:12
Skopmyndum mótmælt á Filipseyjum Mörg hundruð múslima á Filipseyjum komu saman eftir bænastund í morgun til að mótmæla skopmyndum af Múhameð spámanni sem danska blaðið Jótlandspósturinn og fleiri evrópsk blöð hafa birt á síðustu vikum og mánuðum. Lögregla hefur hert öryggisgæslu við ræðismannsskrifstofu Dana og norska sendiráðið í höfuðborginni Manila. Erlent 10.2.2006 10:05
Hellisheiði opnuð á ný Búið er að opna Hellisheiði á ný, en henni var lokað vega umferaðrslyss sem varð á móts við Skíðaskálann í Hveradölum laust fyrir klukkan hálf níu. Allri umferð var beint um þrengslin á meðan björgunarmenn voru að athafna sig á vettvangi. Innlent 10.2.2006 09:57
Forseti Venesúela segir Bush vitleysing Bush Bandaríkjaforseti er vitfirringur og Blair, forsætisráðherra Bretlands, er undirmaður hans. Þetta sagði Hugo Chavez, forseti Venesúela, þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína á fjölmennum fundi í gær. Stjórnvöld í Venesúela og Bandaríkjunum hafa tekist á síðustu misseri og hefur sendifulltrúum beggja landa verið vísað heim. Á fundinum fullyrti Chavez að Bandaríkjamenn og Breta ætluðu sér að ráðast á Íran en forsetinn lagði ekkert fram máli sínu til stuðnings. Erlent 10.2.2006 08:12
Pottormablót haldið í 8. sinn Heldur óvenjulegt þorrablót verður haldið í sundlauginni á Suðureyri annað kvöld, eða svokallað Pottormablót. Á fréttavefnum Bæjarins besta segir að þetta sé í 8. sinn sem blótið er haldið. Á fyrsta blótið komu sex manns en vegna mikilla vinsælda hefur gestum fjölgað ár frá ári og í ár er búist við um þrjátíu gestum. Á pottormablótinu er borðaður þorramatur, sungið og spilað á gítar og farið í sundleiki. Innlent 10.2.2006 08:07
Hlýnun á norðurhveli jarðar ekki meiri á síðari hluta 20. aldar í 1200 ár Á síðari hluta 20. aldar var hlýnun á norðurhveli jarðar meiri en hún hafi verið í 1200 ár. Þetta eru niðurstöður breskar vísindamanna sem birtar eru í nýjasta tölublaði vísindaritsins Science. Erlent 10.2.2006 08:05
Pútín býður Hamas-liðum til Moskvu Valdimír Pútín, Rússlandsforseti, hvetur ríki heims til að virða niðurstöðu þingkosninga Palestínumanna í síðasta mánuði. Hann ætlar að bjóða fulltrúum Hamas til Moskvu sem fyrst til að ræða friðarferlið í Mið-Austurlöndum en samtökin fengu meirihluta í kosningunum. Erlent 10.2.2006 08:00
Tveir bílar fóru útaf í Víðidal Einn ökumaður slapp lítið meiddur og annar ómeiddur þegar þeir misstu báðir bíla sína út af veginum í Víðidal í Húnavatnssýslu í gærkvöldi, í fljúgandi hálku. Óhöppin urðu með skömmu millibili og nánst á sama stað. Annar bíllinn er gjör ónýtur og þykir mikið lán að ökumaður hans skuli ekki hafa meiðst mikið. Innlent 10.2.2006 07:42
Boris Spasski á leið til landsins Boris Spasskí, fyrrverandi heimsmeistari í skák, og Friðrik Ólafsson, fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák, ætla að heyja einvígi í skák í Reykjavík á morgun, að sögn Morugnblaðsins. Spasskí er væntanlegur til landsins í tilefni alþjóðlegs málþings um feril Friðriks, sem Skáksambandið stendur fyrir. Ekki liggur fyrir hvort Spasský ætlar að hitta Bobby Fischer, sem hrifsaði af honum heimsmeistaratitilinn í Laugadalshöll á sínum tíma. Innlent 10.2.2006 07:40
Mosbellsbær dæmdur til að greiða miskabætur Hæstiréttur dæmdi í gær Mosfellsbæ til að greiða ungum manni 500 þúsund krónur í miskabætur vegna slyss, sem hann lenti í á leikvelli í bænum fyrir 16 árum. Þá féll á hann tæplega 200 kílóa kofi, eða leikhýsi, og hlaut hann áverka á höfði, kviði og innri líffærum. Innlent 10.2.2006 07:37
Preval líklegast nýr forseti Haítí Allt bendir til þess að Rene Preval hafi hlotið hreinan meirihluta í forsetakosningunum á Haítí sem fram fóru á þriðjudag. Búið er að telja 40% atkvæða og hefur Preval hlotið rétt rúm 65%. Næstir koma Leslie Manigat, fyrrverandi forseti, með tæp 14% og Charles Henri Baker, kaupsýslumaður, með rétt rúm 6%. Erlent 10.2.2006 07:40
Ökumaður grunaður um ölvun olli slysi í Árbæjarbrekkunni Maður, sem er grunaður um ölvun, missti stjórn á bíl sínum í Árbæjarbrekkunni í nótt, sem hafnaði á ljósastaur, með þeim afleiðingum að hann bortnaði og féll inn á veginn. Bíl sem bar að rétt í þann mund, var svo ekið á staurinn liggjandi. Innlent 10.2.2006 07:35
27 biðu bana í sjálfsmorðsárás í Pakistan Að minnsta kosti tuttugu og sjö biðu bana og fimmtíu eru særðir eftir að sjálfsmorðsárás var gerð í borginni Hangu í Pakistan í gær. Árásarmaðurinn kom sér fyrir innan hóps sjíta-múslima sem gengu í fylkingu til bænahalds en nú stendur hin svokallaða Asjúra-hátíð yfir sem er aðal trúarhátíð sjíta. Erlent 10.2.2006 07:33
Fangaverðir grunaðir um að aðstoða fanga til að flýja Hópur fangavarða hefur verið handtekinn í Jemen vegna gruns um að þeir hafi aðstoðað á þriðja tug meðlimi Al-Qaida hryðjuverkasamtakanna við að flýja úr fangelsi þar í landi í síðustu viku. Fangarnir sluppu úr prísundinni með því að grafa tæplega tvö hundruð metra löng göng og er talið að fangaverðirnir hafi meðal annars útvegað föngunum tæki og tól til verkefnisins. Fangaverðirnir sæta nú yfirheyrslum vegna málsins en ekki hefur verið gefið hversu margir þeir eru sem grunaðir eru um verknaðinn. Erlent 10.2.2006 07:30
Komið var í veg fyrir hryðjuverkaárás í L.A árið 2002 Komið var í veg fyrir stórfellda hryðjuverkaárás í Los Angeles árið 2002. Þessu hélt George Bush, forseti Bandaríkjanna, fram í ræðu sem hann hélt í Washington í gær. Að sögn Bush ætluðu hryðjuverkamennirnir að ræna farþegaþotu og fljúga henni á Bankaturninn svokallaða í Los Angeles sem er hæsta bygging á allri Vesturströnd Bandaríkjanna. Erlent 10.2.2006 07:24
Ritstjóri menningarblaðs JP sendur í frí Ritstjóri menningarblaðs Jyllands Posten, Flemming Rose sem birti teikningar af múhameð spámanni í fyrra hefur verið sendur í frí um óákveðinn tíma. Carsten Juste, ritsjóri dagblaðsins þurfti tvívegis að afsaka ummæli Flemmings í gær en Flemming sagði að menningarblaðið myndi birta teikningar þar sem gert væri grín af helförinni um leið og íröksk dagblöð myndu birta teikningarnar. Þá hafði hann einnig í hyggju að birta teikningar gegn kristinni trú og Ísrael. Erlent 10.2.2006 06:59
183 hafa smitast af HIV Yngsti Íslendingurinn sem hefur greinst með alnæmi var innan við fimm ára gamall og smitaðist í móðurkviði. Alls hafa 183 Íslendingar smitast af HIV-veirunni frá árinu 1983. Innlent 9.2.2006 22:48
Ágreiningur um erlendar fjárfestingar í sjávarútvegi Ágreiningur er á milli sjávarútvegsráðherra og forsætisráðherra um það hvort leyfa eigi útlendingum að fjárfesta í íslenskum sjávarútvegi. Sjávarútvegsráðherra segir málið ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar. Innlent 9.2.2006 22:19
Vilja byggja upp hestaakademíu að Kjóavöllum Nokkurs konar hestaakademía með hesthúsabyggð fyrir 4500-5000 hesta mun rísa á Kjóavöllum í Kópavogi ef hugmyndir bæjaryfirvalda verða að veruleika. Hugmyndirnar voru kynntar á fjölmennum fundi í félagsheimili Gusts fyrr í kvöld. Innlent 9.2.2006 22:03
Börnin verða gáfaðri Nýjar rannsóknir benda til að börn mæðra sem taki lýsi eða borði fisk á meðgöngu verði gáfaðri og aðlagist betur félagslega en önnur börn. Þetta er enn ein rannsóknin sem sýnir hversu mikilvægar omega-3 fitusýrurnar eru sem lýsi er afar auðugt af fyrir andlega og líkamlegan þroska. Lýsisgjöf hefur meira að segja dregið úr ofbeldi í fangelsum. Innlent 9.2.2006 20:26