Fréttir
Spáir hruni í mjöl- og lýsisiðnaði Helsti sérfræðingur Norðmanna í mjöl- og lýsisiðnaði spáir því að fiskimjölsverksmiðjum muni stórfækka á Íslandi á næstunni vegna kreppu í greininni. Kolbjörn Giskeödegård sagði þetta á ráðstefnu í tengslum við sjávarútvegssýninguna í Lilleström í Noregi, sem nú stendur yfir og greinir Fiskaren frá þessu. Innlent 16.2.2006 12:21
Kröfur allt að 50 milljónir króna á hendur ríkinu Fyrrverandi ráðuneytisstjóri í viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu krefur ríkið um rúmlega fimmtíu milljónir króna vegna meintrar ólögmætrar framgöngu ráðherra í hans garð, en ráðuneytisstjórinn hefur ekki fengið að snúa aftur til starfs síns í áratug. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 16.2.2006 12:25
Rannsókn á morði Jóns Þórs ólokið Lögreglan í El Salvador vinnur nú hörðum höndum að því að rekja slóð Jóns Þórs og Brendu sem myrt voru á hrottafenginn hátt á sunnudag til að reyna að komast að því hver ber ábyrgð á morðinu. Að því er fram kemur í DV í dag er rannsókn málsins mjög erfið vegna þess að glæpaklíkan sem grunuð er um morðið fylgist grannt með rannsókninni og hefur í hótunum við vitni. Innlent 16.2.2006 12:16
Landsbanka ber að afhenda skjöl Hæstiréttur hefur úrskurðað að Landsbanka Íslands sé skylt að afhenda efnahagsbrotadeild lögreglunnar afrit af skjölum varðandi færslur á bankareikningum tveggja manna. Þar með staðfestir Hæstiréttur úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 26. janúar síðastliðinn. Innlent 16.2.2006 12:13
Ófært víða um land Ekkert flug hefur verið frá Reykjavík til Akureyrar og Ísafjarðar í morgun vegna óveðurs á þeim stöðum. Víða hefur verið ófært norðvestanlands vegna snjókomu eða blindandi skafrennings, og af þeim sökum hefur skólahaldi verið aflýst í mörgum skólum á svæðinu Innlent 16.2.2006 12:11
Gæti dregið 142 milljónir manna til dauða Allt að 142 miljónir manna eiga á hættu að deyja úr fuglaflensu, stökkbreytist H5N1-veiran. CNN hefur þetta eftir sérfræðingum Lowy stofnunarinnar, álitsgjafa í Ástralíu. Fuglaflensan er komin til Ungverjalands en flensan fannst í þremur svönum sem drápust þar. Verið er að greina hvort veiran sé af gerðinni H5N1. Innlent 16.2.2006 10:52
Mikil ófærð víða um land Ekkert flug hefur verið frá Reykjavík til Akureyrar og Ísafjarðar í morgun vegna óveðurs á þeim stöðum, en veðurskilyrði verða könnuð nánar nú á tólfta tímanum. Skólahaldi hefur verið aflýst í nokkrum skólum á Norðvesturlandi vegna ófæðrar og óveðurs og helstu fjallvegir á Vestfjörðum eru ófærir vegna snjóa. Innlent 16.2.2006 10:50
René Preval lýstur sigurvegari Bráðabirgðaríkisstjórn Haítí hefur lýst René Preval sigurvegara í forsetakosningum sem fram fóru í landinu í síðustu viku. Áður hafði hún fyrirskipað endurskoðun á úrslitum talningar atkvæða eftir að Préval hélt því fram að umfangsmikil kosningsvik hefðu átt sér stað og útfylltir kjörseðlar fundist í sekkjavís á sorphaugum. Erlent 16.2.2006 10:16
Cheney segist bera fulla ábyrgð á slysaskoti Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, hefur viðurkennt að hann beri fulla ábyrgð á óhappinu sem varð í veiðiferð hans og félaga hans, milljarðamæringsins Harrys Whittingtons, um síðustu helgi. Cheney særði þá Whittington í andliti og á bringu. Erlent 16.2.2006 07:56
Tap á flugrekstri FinnAr Tap finnska flugfélagsins Finnair nam 220 milljónum króna á síðasta ársfjórðungi. Á sama tímabili árið 2004 var um 250 milljóna króna hagnaður af starfseminni. Í tilkynningu frá félaginu segir að hátt eldsneytisverð og aukinn launakostnaður séu aðal ástæður fyrir tapi en sölutekjur jukust um 7,5% milli ára. Innlent 16.2.2006 10:07
FL Group kaupir bjórfyrirtæki FL Group, móðurfélag Flugleiða til skamms tíma, hefur keypt tæp ellefu prósent í danska ölgerðarfyrirtækinu Royal Unibrew, sem er næst stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á Norðurlöndum. Fyrirtækið rekur sex verksmiðjur í Danmörku, Eistlandi og Lettlandi, með tvö þúsund og þrjú hundruð starfsmönnum. Það flytur afurðir sínar til 65 landa, einkum í Evrópu, Ameríku og Afríku Innlent 16.2.2006 09:55
Hröktum manni komið til hjálpar Lögreglan í Keflavík kom manni til hjálpar sem hafði fallið fyrir utan veitingahús og skorist í andliti þannig að það fossblæddi úr honum. Innlent 16.2.2006 07:42
Alheimssamtök lyðheilsustöðva stofnuð Alheimssamtök opinberra lýðheilsustöðva, International Association of National Public Health Institutes (IANPHI) hafa verið stofnuð og fór stofnfundurinn fram í Ríó de Janeiro í Brasilíu, dagana 29. janúar til 1. febrúar sl. með þátttöku forstjóra flestra opinberra lýðheilsustöðva sem nú eru starfandi í löndum víðs vegar um heiminn. Þeirra á meðal var Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar Íslands. Innlent 16.2.2006 09:42
Ætla að brenna danska fánann fyrir knattspyrnuleik Arabískir knattspyrnuáhangendur í Ísrael ætla að brenna danska fánann fyrir vináttuleik Dana og Ísraela sem fram fer í Ísrael eftir um tvær vikur. Er þetta gert til þess að mótmæla skopteikningunum af Múhameð spámanni sem birtust fyrst í Jótlandspóstinum. Erlent 16.2.2006 07:31
Afkoma botnfiskveiða versnaði Afkoma botnfiskveiða versnaði frá árinu 2003 til ársins 2004 en afkoma botnfiskvinnslu batnaði á sama tímabili. Þetta kemur fram í hefti Hagstofunnar, Sjávarútvegur, sem nú er komið út. Hreinn hagnaður botnfiskveiða reiknaður samkvæmt árgreiðsluaðferð minnkaði úr 10,2% af tekjum í 7,5 prósent á meðan hagnaður af botnfiskvinnslu jókst úr 3,5% af tekjum í 4,5%. Innlent 16.2.2006 09:37
Kínverjar drepnir í Pakistan Þrír kínverskir verkfræðingar og bílstjóri þeirra voru skotnir til bana af manni á mótorhjóli í suðvestur Pakistan í gær. Aðeins þrír dagar eru þar til forseti Pakistan fer í opinbera heimsókn til Kína. Mikill fjöldi Kínverja vinnur í Pakistan en Kína er einn helsti bandamaður landsins og hefur skaffað þeim vopn og peninga í mörg ár. Erlent 16.2.2006 07:26
Vill endurskoða lög um sóknargjöld Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður allsherjanefndar og þingamður Samfylkingarinnar segir tímabært að endurskoða lög um sóknargjöld til trúfélaga og jafnframt lífsskoðunarfélaga. Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, hefur þrívegis farið þess á leit við allsherjanefnd að fá jafna stöðu á við eiginleg trúfélög í landinu. Innlent 16.2.2006 08:59
Haglél veldur óhöppum Haglél varð til þessa að fimm umferðaróhöpp voru með skömmu millibili síðdegis í dag á Akureyri. Að sögn lögreglu byrjaði að snjóa og gekk á með éljum sem varð til þess að hálka myndaðist fljótt á vegum sem kom ökumönnum í opna skjöldu með fyrrnefndum afleiðingum. Engin slys urðu þó á fólki. Innlent 16.2.2006 09:11
Víða ófært Óveður er á Hellisheiði og á Kjalarnesi en sjólaust. Svipaða sögu er að segja af Vesturlandi en á Vestfjörðum er ófært um Klettsháls, Eyrarfjall og Steingrímsfjarðarheiði. Stórhríð er á Norðvesturlandi og ekkert ferðaveður, ófært á milli Blönduóss og Skagastrandar, á þverárfjalli og á milli Hofsóss og Siglufjarðar. Hálka er víða á Austurlandi , þæfingsfærð á Vopnafjarðarheiði og ófært um Öxi. Innlent 16.2.2006 09:15
Fundu ólöglega stera, E-töflur og fleira Hundrað pillur af ólöglegum sterum, tuttugu og tvær E- pillur og eitthvað af Marijúana fannst við húsleit í Keflavík í gærkvöldi. Lögreglan stöðvaði eigandann í umferðinni, vegna gruns um fíkniefnamisferli, en ekkert fannst í bílnum. Var þá gerð húsleit á heimili hans með fyrrnefndum árangri. Innlent 16.2.2006 07:28
Féll fyrir utan veitingahús Lögreglan í Keflavík kom manni til hjálpar, sem hafði fallið fyrir utan veitingahús og skorist í andliti þannig að það foss blæddi úr honum. Ekki var fyrr búið að gera að sárum hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja , en að hann var sendur í ofboði með sjúkrabíl á Slysadeild Landsspítalans í nótt,til að láta dæla upp úr honum, vegna gruns um að hann hefði gleypt einhverja ólyfjan. Þar er hann enn og er hrakförum hans að líkindum lokið. Innlent 16.2.2006 07:14
Lögreglan aðvarar ökumenn Lögreglumenn í Reykjavík límdu viðvörunarmiða á yfir eitt hundrað bíla í nótt, sem ekki hafa verið færðir til skoðunar eða eru með útrunnar tryggingar. Þar með er búið að líma miða á að minnstakosti 200 bíla á tveimur nóttum og verða lögreglumenn á ferðinni í sömu erindum alveg fram að helgi. Innlent 16.2.2006 07:22
Harma myndbirtingu ástralskrar sjónvarpsstöðvar Bandarísk yfirvöld harma að ástralska sjónvarpsstöðin SBS hafi sýnt nýjar myndir af misþyrmingum á íröskum föngum sem áttu sér stað í Abu Graib fangelsinu árið 2003. Myndirnar væru olía eld núverandi ástands og gætu leitt til ofbeldis. Erlent 16.2.2006 07:35
Enn haldið sofandi eftir alvarlegt umferðarslys Stúlkunni, sem varð fyrir bíl í Garðarbæ síðegis í gær, er enn haldið sofandi í öndunarvél og er líðan hennar óbreytt að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans í morgun. Ekið var á stúlkuna þegar hún var á leið yfir gangbraut á Bæjarbrautinni. Innlent 16.2.2006 07:25
Tímabært að endurskoða lög um sóknargjöld til trú- og lífsskoðunarfélaga Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður allsherjanefndar og þingamður Samfylkingarinnar segir tímabært að endurskoða lög um sóknargjöld til trúfélaga og jafnframt lífsskoðunarfélaga. Innlent 15.2.2006 23:26
Úrslit í forsetakosningum á Haítí endurskoðuð Bráðabirgðaríkisstjórn Haítí hefur fyrirskipað endurskoðun á úrslitum talningar í forsetakosningum sem fram fóru í landinu í síðustu viku. Stjórnin ákvað þetta eftir að René Préval, sá frambjóðandi sem flest atkvæði hlaut, hélt því fram að umfangsmikil kosningsvik hefðu átt sér stað og útfylltir kjörseðlar fundist í sekkjavís á sorphaugum. Erlent 16.2.2006 07:22
Samningur við Eykt samþykktur í bæjarstjórn Hveragerðis Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðis samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi umdeildan samning bæjarins við verktakafyrirtækið Eykt um að það fái að byggja allt að 900 íbúðir á 80 hektara landssvæði bæjarins, án útboðs. Innlent 16.2.2006 07:18
Árás skaði Bandaríkjamenn meira en Írana Ef Bandaríkjamenn ráðast á Íran, mun það skaða þá meira en okkur. Þetta sagði varnarmálaráðherra Írana á blaðamannafundi í Teheran, höfuðborg Írans, í gær. Hann sagði Bandaríkjamenn aðeins vera að reyna að hræða íranskan almenning með yfirlýsingum sínum um árásir á landið. Erlent 16.2.2006 07:15
Grunaður morðingi framseldur til Bandaríkjanna Breti sem grunaður er um að hafa myrt bandaríska eiginkonu sína og níu mánaða barn þeirra í úthverfi Boston í Bandaríkjunum og síðan flúið til Bretlands, var í gær framseldur til Boston þar sem hann sætir morðákæru. Neil Entwistle, sem er 27 ára að aldri, neitar allri sök en kona hans og barn fundust látin eftir að hafa verið skotin á heimili þeirra þann 20. janúar síðastliðinn. Erlent 16.2.2006 07:23
Fuglaflensa í ellefu Evrópuríkjum Fuglaflensan er komin til Ungverjalands. Þrír svanir þar í landi hafa drepist úr fuglaflensu. Verið er að greina hvort veiran sé af gerðinni H5N1. Þar með hefur veiran greinst í ellefu Evrópuríkjum. Þá hafa yfir 200 dauðir fuglar sem fundist hafa víða um Danmörku verið sendir til rannsóknar í Árósum en það kemur líklega ekki í ljós fyrr en á morgun hvort þeir hafi drepist úr fuglaflensu. Erlent 16.2.2006 07:13