Fréttir
Tælendingar kjósa sér þing Tælendingar gengu að kjörborðinu í morgun og kusu sér þing. Forsætisráðherra landsins boðaði óvænt til kosninga fyrir nokkrum vikum og vildi með þeim reyna að þagga niður í andstæðingum sínum sem hafa krafist afsagnar hans. Erlent 2.4.2006 12:21
Fleiri tilfelli fuglaflensu staðfest í Danmörku Yfirvöld í Danmörku hafa skilgreint 3 km varnarsvæði á Lálandi og í Fåborg á Fjóni þar sem hræ fugla sem voru sýktir af fuglaflensuveiru fundust. Rannsókn á sýnum hefur leitt í ljós að fuglarnir voru sýktir af H5 veiru en ekki liggur fyrir hvort um hið hættulega H5N1 afbrigði er að ræða. Erlent 2.4.2006 12:19
Rice og Straw til Íraks Condoleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir það stefnu bandarískra stjórnvalda að semja um lausn á kjarnorkudeilunni við Írana. Hún segir stöðu mála í Íran aðra en þegar ákveðið var að ráðast inn í Írak. Erlent 2.4.2006 12:14
Svarti kassinn fundinn Búið er að finna lík þeirra nítján sem fórust þegar flugvél þeirra skall utan í fjallshlíð rétt fyrir utan Ríó í Brasilíu í fyrrakvöld. Einnig er búið að finna svarta kassann úr vélinni sem var af gerðinni LET 410 og framleidd í Tékklandi. Sautján farþegar voru í vélinni auk tveggja manna áhafnar þegar hún hrapaði. Nokkuð rigndi á því svæði þar sem slysið varð og nokkur þoka. Björgunarsveitir komu að flaki vélarinnar tæpum tíu klukkustundum eftir slysið en erfiðlega mun hafa gengið að ryðja leið í gegnum þétt skóglendi. Erlent 2.4.2006 11:11
Allmargir féllu fyrir aprílgabbi NFS Allmargir forvitnir Reykvíkingar óku fram hjá Austurvelli í gærkvöld í von um að sjá þar hundruð nakinna fyrirsæta liggjandi í ljósmyndatöku hjá Spenser Tunic fyrir plötuumslag Stuðmanna. Ekki bar mikið á nektinni enda á ferðinni aprílgabb NFS. Innlent 2.4.2006 11:06
Íslendingar byggja óperuhús í Danmörku Íslenskir auðmenn ætla að láta byggja nýtt óperuhús í Kaupmannahöfn. Þannig hljómaði aprílgabb danska dagblaðsins Berlinske Tidende. Blaðið sagði frá því að íslenski fjárfestingasjóðurinn Saga Fairytales Holding, en þó ekki Group, ætlaði að láta reisa óperhúsið gegnt Óperushúsinu í Hólminum sem nýlega var opnað. Erlent 2.4.2006 10:59
Börðu mann með kúbeini Þrír menn veittust að þeim fjórða fyrir utan skemmtistaðinn Hvíta húsið á Selfossi í nótt. Grunur leikur á að þeir hafi notað kúbein til að ganga í skrokk á manninum. Að sögn sjónarvotta var engin augljós ástæða fyrir barsmíðunum. Fórnarlambið fékk að snúa til síns heima eftir heimsókn á sjúkrahúsið á Selfossi en árásarmennirnir dúsa í fangageymslum lögreglu. Að auki var maður færður í fangageymslur lögreglunnar á Selfossi vegna heimiliserja. Innlent 2.4.2006 10:57
Þarf að varna því að eldar blossi upp aftur Tekist hefur að ráða niðurlögum eldanna á Mýrum. Enn er þó vel fylgst með svæðinu þar sem víða er glóð í skurðbökkum. Það var rétt fyrir miðnætti í gærkvöld sem loks tókst að slökkva síðustu eldanna á Mýrum. Slökkvilið frá Reykjavík, Akranesi, Borgarfirði og Borgarnesi barðist allan daginn við elda sem gusu upp aftur síðdegis en talið hafði verið að búið væri að ráða niðurlögum eldanna. Innlent 2.4.2006 10:46
Þingkosningar á Tælandi Tælendingar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér þing. Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra, boðaði óvænt til kosninga fyrir nokkrum vikum en almenningur í landinu hefur gagnrýnt hann harðlega og sakað hann um spillingu og að hafa misbeitt valdi sínu. Erlent 2.4.2006 09:54
Óttast ókyrrð í íslensku fjármálalífi Breskir fjárfestar óttast að ókyrrð í íslensku fjármálalífi leiði til þess að íslenskir fjárfestar selji eigur sínar í Bretlandi. Hlutabréf í félögum þar sem íslendingar hafa fjárfest hafa lækkað í verði vegna þessa ótta á umliðnum dögum. Frá þessu er ítarlega greint í blaðinu Sunday Times í dag. Erlent 2.4.2006 10:49
Um 20.000 manns á Matur 2006 Meistarakokkar og vöskustu uppvaskarar landsins voru meðal þeirra sem sýndu færni sína í Fífunni í dag. Sýningarnar Matur 2006 og ferðatorg 2006 eru nú í fyrsta skipti haldnar samhliða. Innlent 1.4.2006 19:41
Eldfimt ástand á Gasa-ströndinni Heimastjórn Palestínumanna, undir forystu Hamas-liða, hvetur herskáa Palestínumenn til að láta af árásum á liðsmenn Fatah-hreyfingar Abbas forseta. Ástandið á Gasa-ströndinni hefur verið eldfimt frá því leiðtogi herskárra Palestínumanna féll í árás Ísraela í gær. Erlent 1.4.2006 18:08
Félag járniðnaðarmanna og Vélstjórafélag Íslands sameinuð Félag járniðnaðarmanna og Vélstjórafélag Íslands voru sameinuð í gær. Formaður Vélstjórafélagsins segir þetta gert því félagsmenn séu í mörgum tilvikum með sama bakgrunn og starfi á sömu vinnustöðum. Innlent 1.4.2006 19:06
Atlantsolía hækkar líka Eina olíufélagið sem ekki hafði hækkað bensínverð fyrir helgi, Atlantsolía, fylgdi í fótspor hinna félaganna í dag og hækkaði verðið. Bensínlíterinn af níutíu og fimm oktana bensíni kostar nú tæpar hundrað og átján krónur hjá Atlantsolíu. Hann er á um hundrað og nítján krónur í sjálfsafgreiðslu hjá á bensínstöðvum Esso, Shell og Olís á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 1.4.2006 19:02
Rice segir mistök hafa verið gerð í Írak Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir ýmis mistök hafa verið gerð í tengslum við innrásina í Írak og eftirmála hennar en í grunninn hafi verið rétt að koma Saddam Hússein, fyrrverandi forseta, frá völdum. Ráðherrann er staddur í heimsókn á Bretlandi, þar sem mótmælendur hafa fylgt henni eftir við hvert fótmál. Erlent 1.4.2006 18:01
Slökkviliðið er enn að á Mýrum Þegar talið var að tekist hefði að ná tökum á sinueldinum á Mýrum, tók hann sig upp á nýjan leik. Um eitt hundrað ferkílómetrar af móum og mýrum hafa orðið eldinum að bráð, í þessum langstærsta sinueldi í sögu Íslands. Tugir björgunarmanna voru sótsvartir og sveittir í allan gærdag og alla nótt að berjast við eldhafið á Mýrum en klukkan átta í morgun var talið að tekist hefði að ráða niðurlögum þess. Innlent 1.4.2006 18:36
Íranar gera tilraunir með ný flugskeyti Íransher gerði í gær tilraunir með nýja gerð af flugskeytum sem talið er að hægt verði að skjóta á skotmörk í Ísrael og herstöðvar Bandaríkjamanna við Persaflóann. Fregnir þess efnis valda nú Bandaríkjamönnum áhyggjum í ljósi kjarnorkudeilunnar við Írana sem enn er í hnút. Erlent 1.4.2006 17:57
Fólk flutt nauðugt af flóðasvæðum Björgunarsveitarmenn og íbúar í bænum Wildberg í Þýskalandi búa sig undir það versta, en vatnshæð í ánni Saxelfur hefur aukist töluvert síðustu klukkustundirnar. Svo gæti farið að 19 fjölskyldu í Dresden verði fluttar nauðungar frá heimilum sínum í dag sökum flóðahættu. Erlent 1.4.2006 17:54
Nýtt lággjalda símafyrirtæki Fyrsta lággjalda símafyrirtækið á Íslandi hefur tekið til starfa. Símafyrirtækið Sko ætlar sér að bjóða einfaldari verðskrá og lægra verð í farsímaþjónustu. Innlent 1.4.2006 16:11
Ákvörðun Frakklandsforseta fordæmd Verkalýðsfélög og stúdentar fordæma þá ákvörðun Chiracs Frakklandsforseta að staðfesta umdeilda vinnulöggjöf sem mótmælt hefur verið víða um Frakkland síðustu vikur. Forystumenn verkalýðshreyfingarinnar ætla áfram að stefna á allsherjarverkfall í landinu í næstu viku. Erlent 1.4.2006 13:20
Slökkvistarfi næstum lokið Tekist hefur að hemja eldhafið sem breiddist yfir hátt í hundrað ferkílómetra svæði á Mýrunum í fyrradag. Slökkvistarfi á Mýrum er nú að mestu lokið og fóru síðustu slökkviliðsmennirnir af svæðinu klukkan átta í morgun. Þó logar enn við Stóra-Kálfafell en á mjög afmörkuðu svæði og er það vaktað af bóndanum þar. Að sögn slökkviliðsins í Borgarnesi gerðu haugsugur bænda útslagið í baráttunni ivð eldana en þeir stóðu íströngu í gær og nótt og dreifðu hlandfori og mykju á eldinn. Innlent 1.4.2006 12:34
Sex teknir fyrir hraðakstur Sex ökumenn voru teknir fyrir of hraðann akstur í Hafnarfirði í nótt og var sá sem greiðast ók á 140 kílómetra hraða á Hafnarfjarðarvegi en þar er hámarkshraðinn 80 kílómetrar á klukkustund. Innlent 1.4.2006 10:07
Fyrsti geimfari Brasilíu kominn í Alþjóðlegu geimstöðina Fyrsti geimfari Brasilíu gekk um borð í Alþjóðlegu geimstöðina í nótt þegar Sojus geimhylki hans lagði að stöðinni hlaðið birgðum og búnaði. Tveir dagar eru síðan hylkinu var skotið á loft. Erlent 1.4.2006 09:56
Eldflaugaárásir í Gasa-borg Ísrelsher gerði í morgun eldflaugaárás á knattspyrnuvöll í Gasa-borg. Eldflaugum var einnig skotið á garð í miðri borginni. Ekki liggur fyrir hvort einhverjir hafi fallið í árásunum. Erlent 1.4.2006 09:53
Skipstjórinn yfirheyrður Lögreglan í Bahrain yfirheyrir nú skipstjóra snekkju sem fór á hliðina í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að fimmtíu og sjö manns drukknðu. Tveggja er enn saknað. Saksóknari í Bahrain segir skipstjórann ekki hafa nauðsynleg leyfi og því sé hann í haldi. Erlent 1.4.2006 09:48
Reyndi að stela byggingarefni Lögreglan í Reykjavík hafði hendur í hári manns í nótt sem var að hlaða byggingarefnum í kerru sem hann hugðist hafa á brott með sér. Talið er að maðurinn hafi ætlað að reyna að koma efninu í verð enda ekki vitað til þess að hann standi í stórframkvæmdum á heimili sínu. Innlent 1.4.2006 10:08
Eldar í rénun Bálið á Mýrum er heldur í rénun að sögn Lögreglunnar í Borgarnesi. Þrátt fyrir að talsverður eldur logi en á svæðinu eru slökkviliðsmenn vongóðir um að það takist að halda eldi frá mannvirkjum og byggðum bólum. Innlent 1.4.2006 10:01
Einn fluttur á sjúkradeild Einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild eftir árekstur tveggja bíla á Suðurlandsbraut í Reykjavík um klukkan eitt í dag. Meiðsl viðkomandi voru þó talin minniháttar. Innlent 31.3.2006 22:34
Innganga í ESB getur bætt stöðu íslenskra sauðfjárbænda Framleiðslukostnaður lambakjöts er helmingi lægri hér á landi en í Noregi, að sögn sérfræðings Bændasamtakanna. Hann segir að innganga Íslands í Evrópusambandið myndi hugsanlega bæta stöðu íslenskra sauðfjárbænda. Innlent 31.3.2006 23:07
Meiddist lítillega í hörðum árekstri Ökumaður fólksbíls var fluttur á sjúkrahús eftir harðan árekstur á Akranesi síðdegis. Tveir bílar lentu saman á gatnamótum Vesturgötu og Akurgerðis og skall annar bíllinn á kyrrstæðum bíl. Innlent 31.3.2006 22:42