Fréttir

Fréttamynd

Dagsbrún fær 730 milljóna endurgreiðslu frá danska ríkinu

Dagsbrún, sem hyggur á útgáfu fríblaðs í Danmörku, fær um 730 milljónir íslenskra króna endurgreiðslu frá danska ríkinu þar sem notast verður við dönsku póstþjónustuna við að dreifa blaðinu. Ritstjórar þeirra dagblaða sem nú eru á markaði segja ljóst að þeir munu þurfa að gera breytingar á blöðunum til að standa af sér íslenskættuðu samkeppnina.

Innlent
Fréttamynd

Sex látnir eftir sjálfsmorðsprengjuárás í Tel Aviv

Í það minnsta sex manns létust og þrjátíu særðust í sjálfsmorðsprengjuárás í Tel Aviv í Ísrael í morgun. Að því er Reuters-fréttastofan hermir sprengdi meðlimur í palenstínsku Al-Aksa-herdeildunum sprengjuna við skyndibitastað nærri fjölfarinni umferðarmiðstöð.

Erlent
Fréttamynd

Lóan er komin

Lóan er komin til landsins. Til hennar sást, og reyndar um það bil fimmtán fugla, við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd í gær. Þá sáust lóur framan við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja síðdegis í gær. Frá þessu greinir á vef Víkurfrétta.

Lífið
Fréttamynd

Heimsmarkaðsverð á olíu komið upp í 70 dali

Heimsmarkaðsverð á olíufatinu er komið upp í sjötíu dali og hefur ekki verið hærra í átta mánuði. Ófriðurinn í Írak og óvissan um framleiðslu í Íran vegna kjarnorkuáætlunar klerkastjórnarinnar eru á meðal ástæðna fyrir hækkuninni.

Erlent
Fréttamynd

Opið í Bláfjöllum og Hlíðafjalli

Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opið til klukkan sex í dag. Nýfallinn þunnur snjór er yfir svæðinu en skíðaleiðir þrengri en venjulega svo fólki er sérstaklega bent á að fara varlega og halda sig á troðnum skíðabrautum. Í Hlíðarfjalli verður opið til klukkan fimm.

Lífið
Fréttamynd

30 særðust í sprengingu í Istanbúl

Þrjátíu manns særðust, þar af tveir alvarlega, í sprengingu í úthverfi Istanbúl í Tyrklandi í gær. Lögregla telur að öflugri handsprengju hafi verið komið fyrir í ruslafötu og hún sprungið með þessum afleiðingum.

Erlent
Fréttamynd

Maður henti sér í höfnina

Maður henti sér í höfnina í Reykjavík um klukkan þrjú í nótt. Hann var ölvaður og sagðist hafa fengið nóg af lífinu. Honum fannst sjórinn hins vegar mjög kaldur og hætti snögglega við þegar ofan í var komið og fór upp úr aftur.

Innlent
Fréttamynd

Hafa órækar sannanir fyrir fjöldamorðum Saddams

Írakskir saksóknarar segjast hafa órækar sannanir fyrir því að Saddam Hussein hafi undirritað skjöl sem tengjast fjöldamorðum á sjíum. Réttarhöld yfir einræðisherranum fyrrverandi hófust á ný í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Íranar styðja heimastjórnina

Stjórnvöld í Íran hafa ákveðið að styrkja heimastjórn Palestínu um tæpa fjóra milljarða króna. Íranar feta þar með í fótspor Rússa, sem tilkynntu í gær að þeir myndu veita heimastjórninni rekstrarfé.

Erlent
Fréttamynd

Þarf lítið til að gleðja

Félagar í Rótarýklúbbi Reykjavíkur héldu í dag til Afríku en þar ætla þeir að styrkja ýmis verkefni eins og bólusetningu og fræðslu barna.

Innlent
Fréttamynd

Blóðbað í Írak

Tugir létust og enn fleiri slösuðust í fjölmörgum árásum í Írak á páskadag. Hinn kristni minnihluti íröksku þjóðarinnar gerði þó sitt besta til að halda daginn hátíðlegan.

Erlent
Fréttamynd

30 slösuðust í sprengjuárás í Istanbúl

Þrjátíu slösuðust í sprengjuárás í úthverfi Istanbúl í Tyrklandi í dag. Sprengju hafð verið komið fyrir í ruslatunnu fyrir framan verslunarhverfi nærri alþjóðaflugvellinum. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á tilræðinu.

Erlent
Fréttamynd

Óvæntur liðsauki

Lögreglunni í Keflavík barst óvæntur liðsauki síðla í gær þegar þegar fjallmyndarlegur dísarpáfagaukur kom á lögreglustöðina. Líklegt þykir að gauksi hafi strokið að heiman og rati ekki til baka. Eigandi páfagauksins getur komið við á varðstofunni í Keflavík og vitjað gauksins, svo hann geti notið páskanna í faðmi fjölskyldunnar.

Innlent
Fréttamynd

Fjórir menn handteknir eftir átök í heimahúsi

Fjórir karlmenn voru handteknir eftir átök milli þeirra í samkvæmi í Breiðholti. Lögreglunni barst tilkynning í kringum miðnætti um að mikil læti bærust frá íbúð þar sem þeir voru staddir. Nokkrir samkvæmisgestir voru vopnaðir hnífum og voru undir áhrifum áfengis- eða vímuefna.

Innlent
Fréttamynd

Enn eykst þrýstingurinn

Wesley Clark, fyrverandi yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins, hefur bæst í hóp þeirra sem telja að Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra Bandaríkjanna ætti að segja af sér.

Erlent
Fréttamynd

Einn gisti fangageymslur

Einn maður gisti í fangageymslum lögreglunnar á Akureyri í nótt en mikil skemmtanahöld voru í bænum. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri var talsvert ölvaður og þótt hann hafi ekki gert mikið af sér var hann til leiðinda eins og lögreglan orðaði það sjálf.

Innlent
Fréttamynd

Munu ekki styðja hernaðaraðgerðir

Tony Blair hefur tilkynnt George Bush Bandaríkjaforseta að Bretar geti ekki stutt innrás inn í Íran, jafnvel þó að alþjóðasamfélagið veiti sinn stuðning. Þetta hefur dagblaðið Skotsman eftir embættismönnum úr utanríkisráðuneyti Bretlands.

Erlent
Fréttamynd

Leiðindaveður á mörgum skíðasvæðum

Leiðindaveður er á mörgum skíðasvæðum landsins. Opið er á neðra svæðinu í Hlíðarfjalli í dag. Lokað er í Bláfjöllum og á skíðasvæði Ísfirðinga en þar á að athuga með opnun klukkan ellefu.

Innlent
Fréttamynd

Einn fluttur á slysadeild eftir slagsmál

Ungur karlmaður var fluttur á slysadeild Landsspítala-Háskólasjúkrahús eftir slagsmál í miðborginni. Einhverjar ryskingar áttu sér stað milli hans og annars manns og lenti ungi maðurinn með hendina í rúðu, sem brotnaði, og skarst maðurinn nokkuð. Meiðsl hans voru þó ekki alvarleg.

Innlent
Fréttamynd

Farfuglarnir seint á ferð

Miklar norðanáttir undanfarið hafa seinkað komu farfugla til landsins. Þrátt fyrir að þessir vorboðar séu farnir að láta sjá sig eru þeir mun færri en venjulega og enn bólar ekkert á sumum þeirra eins og hrossagauknum.

Innlent
Fréttamynd

Samkynhneigðir fái full réttindi

Íslenska þjóðkirkjan verður að veita samkynhneigðum öll sömu réttindi og gagnkynhneigðum. Þetta er skoðun prestanna Þórhalls Heimissonar og Bjarna Karlssonar.

Innlent
Fréttamynd

Bökuðu kjarnorkuköku

Háskólastúdentar í Íran fögnuðu fæðingardegi Múhameðs spámanns í dag með því að baka gula kjarnorkuköku. Með bakstrinum vilja nemendurnir sýna í verki stuðning sinn við stjórnvöld í Íran.

Erlent
Fréttamynd

Kínverji fékk nýtt andlit

Önnur andlitságræðsla sögunnar fór fram í Kína í gær. Aðgerðin, sem tók meira en hálfan sólarhring, heppnaðist með ágætum. Aðgerðin er sú fyrsta sinnar tegundar í Kína.

Erlent
Fréttamynd

Neitar að játa ósigur

Romano Prodi krafðist í dag afsökunarbeiðni frá Silvio Berlusconi, fyrir að hafa haldið því fram að brögð hefðu verið í tafli í nýafstöðnum þingkosningum á Ítalíu.

Erlent
Fréttamynd

Forseti bæjarstjórnar leiðir listann

Elías Jónatansson, iðnaðarverkfræðingur og forseti bæjarstjórnar bolungarvíkur leiðir lista sjálfstæðismanna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 27. maí. Framboðslistinn var samþykktur einróma af fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Bolungarvík á fundi ráðsins á skírdag.

Innlent
Fréttamynd

Lyon hyggst fá Drogba í sumar

Franska knattspyrnufélagið Lyon er á höttunum eftir Didier Drogba, sóknarmanni Chelsea og ætlar að freista þess að fá hann til liðs við sig í sumar. Jean-Michel Aulas, forseti Lyon segir í viðtali við The Sun í dag að það sé ýmislegt sem gefi til kynna félaginu takist að fá Drogba í sumar.

Sport
Fréttamynd

Gott skíðafæri um mest allt land

Flest skíðasvæði á landinu er opin í dag. Opið er á skíðasvæði höfuðborgarbúa í Bláfjöllum, í Hlíðarfjalli á Akureyri, í Tungudal á Ísafirði og í Oddskarði fyrir austan svo dæmi séu tekin.

Innlent